Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
28.01.2015 at 09:28 #776347
[quote=776343]Læt þrjár myndir frá Akureyri fylga, þar af tvær úr keppni hinna mörgu hestafla.[/quote]
Ég sé bara eina mynd 😉
Kv hsm
27.01.2015 at 09:10 #776326Þessi fundur er í dag, þriðjudaginn 27. janúar kl. 17
Ég kemst því miður ekki, en verð með ykkur í anda, vona að sem flestir sjái sér fært um að mæta.
Kveðja,
Hafliði
23.01.2015 at 13:43 #776282Sæll,
Það eru margir spenntir fyrir þeim möguleika að kíkja á nýja hraunið. Er eitthvað að frétta af þeim þreifingum?
Kv hsm
20.01.2015 at 16:35 #776173Sæll Bjarki,
Yfirleitt hefur verið „fréttaritari“ í byggð sem hefur séð um að setja inn fréttir af ferðum. Ég veit ekki af hverju það var ekki gert í þetta skiptið, en reikna með að passað verði betur upp á þetta næst. Hingað til hafa skipuleggjendur ferða séð til þess að fréttir komi á vefinn.
Kv Hafliði
09.01.2015 at 20:55 #776069[quote=776041]ps: Hvernig stofnar maður nýjann þráð hérna á þessari síðu? Hef ekki fundið út úr því[/quote]
Bjarki, þú getur valið „SPJALL“ í valmyndinni, velur síðan spjallflokk og neðst á viðkomandi síðu sem kemur upp, þá byrjar þú að skrifa efni í nýjan þráð.Kveðja,
Hafliði
09.01.2015 at 19:52 #776053Flottur! Hvað ertu með mikinn straum á bak við USB tengin? 1A, 2A eða eitthvað annað?
Kv hsm
05.01.2015 at 16:47 #776004[quote=775952]Ekkert nema gleði að eiga Wagoneer eins og þú veist Rúnar, fór í eina stutta ferð um jólin og langar nú í aðra og þær koma víst í röðum í feb, mars og apríl. Þið Sveinbjörn verðið að fara að drífa í að klára ykkar kagga svo mínum líði ekki eins og síðasta geirfuglinum á fjöllum, hann fer að halda að það séum bara ekki fleiri svona bílar til……. Logi [/quote]
Þú verður bara að fara að hjálpa þeim Logi svo þetta klárist hjá þeim.
04.01.2015 at 16:15 #775919Það er ekki búið að ákveða hvað við gerum með gömlu myndasíðuna.
Kv hsm
29.12.2014 at 23:39 #775497Ég lenti í þessu að læsingin var til vandræða, komið gat á memruna. Fékk þá hjá Friðriki Ólafssyni til að skipta um membruna, þeir fengu hana hjá partasölu fyrir austan fjall. Læsingin hefur virkað mjög vel síðan þetta var gert.
23.12.2014 at 08:56 #774947Mjög áhugavert efni. Það væri gaman að vita hvað talið er að ársframleiðslan geti verið.
22.12.2014 at 09:18 #774929Takk sömuleiðis og gleðileg jól og farsælt nýtt ár.
Kv hsm
22.12.2014 at 09:16 #774928Takk Guðmundur Magni fyrir góða punkta.
Við vitum af þessu með fjölda innlegga, því miður er þetta ekki innbyggt í „kubbnum“ sem við erum að nota, en þegar um hægist, þá skoðum við hversu auðvellt er að bæta þessu við hann.
Í sambandi við flokka í smáauglýsingum, þá er þetta góður punktur, til hvers eigum við að hafa svona marga flokka?
Kveðja,
Hafliði
18.12.2014 at 19:20 #774819Sælir
Í dag hefur verið vinna í gangi við að klára ýmis atriði sem átti eftir að klára. Nú er t.d. myndskoðun í spjalli mun betri en var. Forsíðan hefur verið endurröðuð. Yfirlitsíðan fyrir spjall hefur verið endurgerð og margt fleira.
Kv hsm
04.12.2014 at 20:02 #773981Það er hægt að breyta tölvupóstfangi, en það er ekki farið í prófil, heldur er valið „Stillingar„. Þá kemur upp form þar sem hægt er að breyta hvort sem er tölvupóstfangi (eða netfangi eins og sumir kalla það) eða skipta um lykilorð.
Til að skipta um tölvupóstfang eða lykilorð þá þarf að gefa upp núverandi lykilorð. Síðan þarf að staðfesta breytinguna með þvi að svara staðfestingarpósti sem kemur í tölvupósti. Athugið að tölvupósturinn getur lent í rusl síu hjá mörgum og nauðsynlegt að skoða SPAM eða rusl póst listann upp á það. Í þessum tölvupósti er þá staðfestingarlinkur sem þarf að smella á.
Ef þetta klikkar allt saman, þá er hægt að hafa samband við Vefnefnd.
Kv hsm
03.12.2014 at 20:19 #773734Hið árlega jólakakó verður útbúið af jeppastúfi og verður gefið þeim sem mæta á opið hús upp á Eyrhöfða á föstudagskvöldinu kl. 20:00, einnig mun skemmtinefndin gera eitthvað uppbyggilegt og einnig verður eitthvað góðgæti til sölu.
Jólaföndur verður á sínum stað, allanvega ekki upp á Höfðanum……..
Sjá: https://old.f4x4.is/events/jolafagnadur/
Kveðja
Skemmtinefndin
03.12.2014 at 19:33 #773730Athugið að þegar þið viljið stofna spjallþráð undir nefndum eða deildum og viljið fá þráðinn á forsíðuna, þá þurfið þið að smella á spjallborð eftir að þið hafið smellt á viðkomandi nefnd eða deild og stofna þráðinn þar.
30.08.2014 at 15:11 #771269Langaði virkilega að koma með, en hafði því miður ekki tíma.
Hvað er að frétta? Hvernig gengur?
Kveðja,
Hafliði
22.08.2014 at 13:54 #770904Sæll,
Það eru þó nokkrir að selja dælur sem koma til greina, t.d. Arctic Trucks, Poulsen, Bílabúð Benna, Bílanaust og Fossberg svo eitthvað sé upptalið.
Kveðja,
Hafliði
20.08.2014 at 11:00 #770861Er búinn að fá svar frá caritas þar sem þeir segjast muni taka athugasemdina til greina. Þetta er þessi klassíski misskilningur á hvað Offroad í USA merkir. Ég stakk upp á við þá að nota frekar texta „Útbúinn fyrir erfiða vegi“ eða eitthvað álíka.
Kveðja,
Hafliði
20.08.2014 at 10:39 #770859Það er rétt að þetta er mjög klaufalegur texti hjá þeim og þeir ættu að breyta honum.
Það getur hver sem er sent póst á support@caritas.is og bent þeim á að laga þetta.
Ég sendi þeim póst í morgun.Kveðja,
Hafliði
-
AuthorReplies