Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
17.09.2015 at 17:09 #929371
Nú er búið að senda póst á þá sem skráðu sig í ferðina, ef einhver saknar póstins, þá gæti þurft að gá í „rusl“ flokkaðan póst, hvort pósturinn hafi lent þar. Ef ekki, þá er hægt að senda póst á litlanefnd@f4x4.is og láta vita.
16.09.2015 at 13:34 #929268Já, við sendum póst á morgun til þeirra sem hafa skráð sig.
16.09.2015 at 11:46 #929264Skráningin er opin til kvöldsins, þannig að við erum með endanlegan lista þá. Það vantar enn hópstjóra, þannig að um að gera að ýta við félögunum
Skipulag er eins og áður, hópstjórar mæti um kl 8
Kveðja,
Hafliði
15.09.2015 at 15:30 #929007Okkur vantar fleiri hópstjóra, endilega skrá sig fyrr en síðar
Kveðja,
Hafliði
12.09.2015 at 06:29 #928299Mæting á Stöðina (áður Select sjá: https://www.skeljungur.is/einstaklingar/stadsetning-stodva/stod/?itemid=58a2200e-cc13-4877-ac19-cd21afefd002), Vesturlandsvegi kl. 8:30
Brottför frá Stöðinni kl. 9:00
Gert ráð fyrir að koma seinni partinn til byggða (að Rangárvallavegi (264), þaðan eru ca. 100 km til Reykjavíkur). Það er margt sem getur haft áhrif á ferðatíma og því betra að þátttakendur geri ráð fyrir að ferðin geti dregist.
Kveðja,
Hafliði
11.09.2015 at 17:26 #927991Litlanefnd í Hungurfit
Skráning er nú hafin í haustferð Litlunefndar. Ferðin verður farin laugardaginn 19. september og er skráning opin til miðvikudagsins 16. septembers.
Þar sem húsnæði klúbbsins er ekki tilbúið enn, þá verður ekki kynningarkvöld fyrir þessa ferð, en kynningarefni verður sent á alla sem skrá sig í ferðina.
Skráning er hér: http://goo.gl/forms/QmtZYSLMVK
Hvetjum þá sem hafa verið hópstjórar að skrá sig. Þeir sem eru vanir en hafa ekki verið hópstjórar áður eru líka hvattir til að skrá sig.
Kveðja,
Hafliði
21.07.2015 at 09:36 #907277Þú getur talað við Arctic Trucks, þeir eru með staðlaðar breytingar á nokkrum Nissan tegundum. Bara að kíkja í kaffi hjá þeim í búðinni og ræða við þá.
14.04.2015 at 08:53 #778992Flott framtak, að sjálfsögðu mætir maður.
11.04.2015 at 12:45 #778971[quote=778962]þegar ég opna ljósmyndir í firefox þá koma myndirnar allar í einfaldri röð en þegar ég notra safari þá koma þær þrjár hlið við hlið er þetta eitthvað stillingar atriði? er að nota mac ef það skiftir einhverju máli [/quote]
Sæll Hilmar,
Ég er líka að nota Mac og get ekki framkallað þetta. Getur þú sent okkur skjáskot á vefnefnd@f4x4.is ásamt upplýsingum um hvaða útgáfu af firefox og mac os x þú ert að nota?
Kveðja, Hafliði
11.04.2015 at 12:32 #778970Það er búið að henda auglýsingunni. Það er gott að fá ábendingar um svona á vefnefnd@f4x4.is, og við reynum að bregðast skjótt við, innlegg í ummræður og auglýsingar fara stundum fram hjá manni þó maður séu að fylgjast vel með, eins getur eðlilega liðið tími á milli þess sem við komumst á síðuna.
Kv. Hafliði
19.03.2015 at 20:21 #777659Nú er búið að gera miklar breytingar á myndasíðunni og tengja inn öll fyrri albúm. Endilega prófið að skoða LJÓSMYNDIR.
Kveðja, Hafliði
04.03.2015 at 12:59 #777114Sællir,
Nú fer að styttast í ferðina og allir að pakka. Þá er gott að hafa gátlista til að merkja við svo allt sem þarf að vera með gleymist ekki.
Á vef okkar eru linkar á nokkra gátlista sem gott er að skoða, þeir eru hér https://old.f4x4.is/um-ferdaklubbinn/ferdast/gatlistar/. Þarna er meðal annars gátlisti sem hjálparsveitin tók saman á sínum tíma http:/wp-content/uploads/2015/03/092_Gatlisti.pdf
Ef þið lumið á fleiri gátlistum þá væri gott ef þið senduð þá á Vefnefnd svo við getum uppfært skjalið.
Kveðja, Hafliði
04.03.2015 at 08:42 #777106Ég held að menn séu ekki að gugna, en auðvitað verðum við að taka mið af veðri og velja leiðarval og ferðartíma útfrá því.
Kveðja, Hafliði
03.03.2015 at 14:41 #777094Á fundinum í gærkvöldi var farið yfir reglur ferðarinnar. Þær má lesa hér https://old.f4x4.is/wp-content/uploads/2015/03/2015-Fer%C3%B0areglur_skipuleggjendur.pdf
Ríkisleiðina má svo sjá hér: https://old.f4x4.is/wp-content/uploads/2015/03/Storferd_2011_vers2.gdb
25.02.2015 at 22:02 #777015Athuga að Bílabúð Benna er með sérafslætti í tilefni Stórferðarinnar. Sjá https://old.f4x4.is/bilabud-benna-afslattur-vegna-storferdar/
Ath. það er einnig tilboð á stökum viðgerðartöppum, pakkinn er 1990 kr.
Almennur afsláttur fyrir 4×4 félaga er óbreyttur.
Verkfæri eru með 40% afslætti á meðan birgðir endast.
14.02.2015 at 18:52 #776814Sæll,
Þær eru á þjóninum, en það er ekki búið að finna útúr því enn hvernig við flytjum þær á notendur. Vonandi ekki langt í niðurstöðu.
Kveðja, Hafliði
14.02.2015 at 12:33 #776793[quote=776792]Hvað er í gangi?! Það eru allar myndir og umræður horfnar af þræðinum [/quote]
Sæll Jón,
Það er ekkert horfið, en við breytingarnar í gær, þá kom upp böggur sem virðist vera þannig að ef magnið er á síðuskilum, þá sést þráðurinn ekki nema notandi sé loggaður inn. Við erum enn að finna útúr þessari villu. En, eftir innlegg þitt, þá sést þráðurinn þó þú sért ekki innskráður. Þegar smellt er á mynd í þráðum, þá er hægt að fletta í gegnum þær myndir sem eru á þeirri blaðsíðu, til að skoða myndir á annari blaðsíðu, þá þarf að færa sig.
Kveðja, Hafliði
09.02.2015 at 13:45 #776710Er að fá fyrspurnir um skráningu.
Verður skráning fyrir námskeiðið, eða eiga menn „bara“ að mæta?
Kveðja,
Hafliði
03.02.2015 at 13:40 #776483Nú er hægt að greiða fyrir ferðina hér (https://old.f4x4.is/vara/storferd-f4x4-2015/) á vefnum. Greiðslur eru miðaðar við einstaklinga, en nauðsynlegt er að skrá í hvaða bíl (bílnúmer) viðkomandi einstaklingur er.
Kveðja, Hafliði
31.01.2015 at 13:44 #776415Velkominn í hópinn! Þú átt eftir að komast fullt á þessum.
-
AuthorReplies