Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
06.03.2016 at 12:38 #936781
Mjög góð ábending hjá þér Björgvin, auðvitað ætti dagskrá vetrarins að liggja fyrir á vefnum. Við verðum að bæta okkur þarna.
Takk fyrir,
Hafliði
05.03.2016 at 20:28 #936776Á fyrsta félagsfundi vetrarins í haust var dagskrá nefndarinnar kynnt. Þar voru kynntar 5 ferðir sem væru fyrirhugaðar í vetur. Fyrstu tvær ferðirnar voru fyrir óbreytta jeppa, þriðja ferðin fyrir nýliða, fjórða ferðin fyrir millistærð jeppa og síðan fimmta ferðin fyrir óbreytta. Því miður komust við ekki í fyrstu ferðina, en hinar tvær ferðirnar voru farnar eins og planlagt var.
Það voru því þrjár ferðir planlagðar fyrir óbreytta jeppa.
Kveðja,
Hafliði
01.03.2016 at 21:25 #936713Við munum fara í vettvangsferð vel fyrir ferðina til að kanna snjóinn, ef það er ekki nóg, þá förum við annað. En, það á að vera nóg af snjó á þessu svæði.
01.03.2016 at 09:43 #936700Nú fer að styttast í næstu ferð hjá Litlunefnd en stefnt er að henni laugardaginn 19. mars. Nákvæm ferðatilhögun verður ákveðin þegar nær dregur en til stendur að fara að Djúpavatni á Reykjanesi. Ferðin er miðuð við 35” breytta jeppa.
Skráning í ferðina verður opnuð fljótlega, þannig að nú er um að gera að fylgjast með, taka daginn frá og biðja veðurguðina um að vera með okkur í liði þennan dag.Kveðja,
Litlanefndin
12.02.2016 at 08:42 #936499Sælir,
Þetta virðist hafa gerst fyrir alla þræði, við erum að finna útúr þessu. En, fyrsti pósturinn var svona:
Nú er komið að því félagar
Þorrablót Eyjafjarðardeildar 4×4 verður haldið 13. febrúar í Dreka. Það verður stíf skemmtidagskrá alla helgina.Það verður boðið uppá skemmdan mat af bestu gerð.
Það verða tvær brottfarir á föstudaginn 12.feb.Sú fyrri kl.12.30 og seinni ferðin kl.18.00
Það verður farin hefðbundin leið í Dreka þ.e.frá Hrossaborgum.Kostnaður er kr.12.500 fyrir þorramat og gistingu í tvær nætur en kr.7.500 fyrir þorramat og gistingu í eina nótt.
Félagar eru beðnir um að leggja inn á reikning deildarinnar og setja skýringu „Þorrablót“ með:Kennitala: 620796-2399
Reikningsnúmer: 0566-26-044044Nú er um að gera að skrá sig hér á spjallinu eða hringja í Jóa Hauks í síma 8945307 ,Ragga í síma 8420005 eða Davíð í síma 6591541
Kv.
Ferða-og Skemmtinefnd Eyjafjarðardeildar 4×4
09.02.2016 at 09:13 #93643307.01.2016 at 14:06 #935730Nú hafa fleiri gert upp.
Nafn Nöfn farþega Bíltegund Dekkjastærð Kjartan Benjamínsson Toyota Hilux 38 Arnar H Isaksen Haraldur Ingvarsson Nissan navara 38 Viggó Guðjónsson Sverrir Kristinsson Toyota Hilux 38 Aron Frank Leópoldsson Nissan Navara 38 Guðmundur Sigurðsson Sveinbjörn Halldórsson Toyota LC80 44 Elvar Már Guðbjartsson Irena Lilja haralds Nissan double cab 36 Kristinn R. Kristinsson Davíð Þorsteinsson Nissan Patrol Y60 1993 38 Hafliði Sigtryggur Magnússon Óskar Erlingsson Nissan Patrol 44 Jakob Ásmundsson Ólafur Magnússon Grand Cherokee 44 Aron berndsen aron berndsen, ingvar berndsen, ingvi reynir berndsen Ford f250 46 Magnus H Sigurðsson Loftur Gunnarsson Toyota Tacoma 38 Logi Ragnarsson Oddgeir Gylfason Wagoner 44 Ágúst Birgisson sonur og Árni Bergs Nissan Patrol 44 Erikas Jurgita Milleriene og þrjú börn: Rugile Milleryte, Vilte Milleryte, Joris Milleris Nissan Patrol Y60 38 Hans R. Thor +1 og eitt barn LC 80 46 Einar +1 og 2 börn LC 100 46 Þröstur +1 Jeep Unlimited 41 Styrmir +1 Land Rover Defender 44 Björgvin +1 LC 80 44 19 bílar.
06.01.2016 at 23:36 #935714Nú fer allt að verða klárt fyrir helgina. Mikill áhugi hefur verið á ferðinni og er það mjög ánægjulegt.
Nafn Nöfn farþega Bíltegund Dekkjastærð Kjartan Benjamínsson Toyota Hilux 38 Arnar H Isaksen Haraldur Ingvarsson Nissan navara 38 Viggó Guðjónsson Sverrir Kristinsson Toyota Hilux 38 Aron Frank Leópoldsson Nissan Navara 38 Guðmundur Sigurðsson Sveinbjörn Halldórsson Toyota LC80 44 Elvar Már Guðbjartsson Irena Lilja haralds Nissan double cab 36 Kristinn R. Kristinsson Davíð Þorsteinsson Nissan Patrol Y60 1993 38 Hafliði Sigtryggur Magnússon Óskar Erlingsson Nissan Patrol 44 Jakob Ásmundsson Ólafur Magnússon Grand Cherokee 44 Aron berndsen aron berndsen, ingvar berndsen, ingvi reynir berndsen Ford f250 46 Magnus H Sigurðsson Loftur Gunnarsson Toyota Tacoma 38 Logi Ragnarsson Oddgeir Gylfason Wagoner 44 Ágúst Birgisson sonur og Árni Bergs Nissan Patrol 44 Ofangreindur listi er yfir þá sem ég hef fengið staðfestingu á að séu búnir að gera upp, ef einhverjir hafa lagt inn á reikninginn og gleymt að senda staðfestingarpóst á litlanefnd@f4x4.is þá vantar þá á listann.
Þeir sem hafa áhuga á að koma með í ferðina þurfa að gera upp fyrir kl 13 á morgun, 7. janúar.
Kveðja, Hafliði
05.01.2016 at 18:07 #935686Það á eftir að slípa þetta aðeins til, ætlum að læra af reynslunni.
Kv hsm
05.01.2016 at 12:43 #935683FaceBook tengillinn er miðaður við alla sem hafa aðgang að FaceBook. Við getum síðan alltaf sett notendur á svartan lista og/eða lokað á notendur.
05.01.2016 at 11:25 #935677Þegar notandi smellir á „Innskráning með facebook“ og hann er ekki tengdur fyrir á facebook þá þarf að gefa upp email eða síma ásamt lykilorði til að tengjast réttum facebook aðgangi. Ef notandi er tengdur facebook þá fer hann inn á vef okkar. Ef e-mail er sama okkar megin og á facebook þá eru aðgangarnir paraðir saman, þannig að þá skiptir ekki máli hvort farið er inn á síðu okkar með facebook eða gamla notendanafninu. Ef aftur á móti e-mail er annað, þá verður til nýr aðgangur á okkar síðu sem er þá með sama e-mail og facebook, í þessu tilfelli er notandinn kominn með tvo aðganga, hann getur notað báða eða bara annan.
23.12.2015 at 14:36 #935473Skráning í Nýliðaferðina gengur vel, nú eru 26 bílar skráðir fyrir utan fararstjóra og hópstjóra. Þar sem gistipláss í setrinu er takmarkað, þá munu þeir sem skrá sig eftir þetta lenda á biðlista.
22.12.2015 at 22:49 #935465Eins og glöggir hafa séð, þá hefur bæst við nýr innskráningarmöguleiki á síðu okkar. Þetta er Facebook tenging. Það hafa margir beðið lengi eftir þessu og er þetta því kærkomin jólagjöf til þeirra.
Kveðja,
Hafliði
17.12.2015 at 14:44 #935372Búið er að opna fyrir skráningu í nýliðaferðina. Linkur á skráningarsíðuna er http://goo.gl/forms/c89jcAj4jF
Kveðja,
Litlanefnd
16.12.2015 at 10:31 #935357Klúbburinn hefur staðið lengi fyrir nýliðaferðum, það er engin nýlunda. Nýliðaferðir eru miðaðar við 38″, þeir sem eru með minni dekk þurfa að hafa samband við okkur áður en þeir skrá sig. Í auglýsingunni nefndi ég tvær tegundir af mjög algengum jeppum eingöngu svo menn hefðu viðmið. Að sjálfsögðu er LC90 á 38″ dekkjum velkominn í ferðina. Oft hefur verið talað um þyngd á bílunum, það er annað viðmið.
Ef menn eru í vafa með dekkjastærð, þá er bara að hafa samband.
Kveðja, Hafliði
24.11.2015 at 06:20 #934826Sendi fjölskyldu Ómars innilegar samúðarkveðjur.
Kv Hafliði
07.11.2015 at 23:30 #934108Frábær árshátíð. Takk fyrir mig!
08.10.2015 at 19:30 #932890Við erum enn með ferðina á dagskrá, það er mikið um að vera hjá okkur þessa dagana, en við erum að reyna koma ferðinni að .
23.09.2015 at 09:43 #930365Prófa að svara 4 ára gömlum þræði
18.09.2015 at 13:56 #929458Því miður þurfum við að fresta ferðinni, við reynum aftur eftir 2-3 vikur. Þeir sem vilja geta því enn skráð sig í ferðina.
-
AuthorReplies