You are here: Home / Hafliði Sigtryggur Magnússon R-3833
FERÐAKLÚBBURINN 4X4 |
||||
Menu |
Ég er með!
Til að ná sem bestum árangri tel ég að Stjórnin verði að stýra þessu, með fullri virðingu fyrir nefndum félagsins. Þetta er viðkvæmt efni (púðurtunna), snertir alla, og verður að taka réttum tökum.
Þó öll heimili og fyrirtæki á Íslandi þurfi að borga bensín/dísel þá virðist erfitt að ná eyrum þingmanna. Breyting á óbeinum sköttum er alltaf erfið því hún hefur víðtæk áhrif og menn hræddir um fordæmið. Sem dæmi, að lækka VASKinn á matvælum gaf fordæmi sem menn vísa í, í þessum þræði. Ég er 100% sammála því að verð á eldsneyti er allt of hátt, en þetta á líka við um margt annað. Ef farið er í mótmæli, þá þarf að finna rök fyrir því af hverju þingið á að taka á þessu máli frekar en öðrum afar viðkvæmum og mikilvægum málum. Púff, nú skaut ég mig í fótinn.
Það sem ég er að reyna að koma fram er að við verðum að sameinast um eina lausn og hafa skotheld rök fyrir henni, annars dreifast kraftarnir og árangurinn verður enginn. Ég er sammála því að besta leiðin sé að vinna þetta í samvinnu við aðra hagsmunaaðila, ef við getum náð samkomulagi við einn af þessum aðilum um aðgerðir þá munu aðrir fylgja á eftir.
sammála, virðist fínn samningur. Ég myndi samt vilja sjá kynningu á samningnum hér á vefnum. Þó samningurinn virtist ekki flókinn við fyrstu sýn þá vöknuðu samt margar spurningar í gær og umræðan fór vítt. Væri gott að fá stutta samantekt hjá þeim sem þekkja samninginn vel.
kv. hsm