Forum Replies Created
- 
		AuthorReplies
- 
		
			
				
29.12.2011 at 09:14 #745057Það er hægt að fá forrit til að umbreyta baughnitum í ýmis hnitakerfi s.s. lambert, en ég veit ekki hvort þau ráða við Ísnet. Félagar okkar hjá Landmælinum, Loftmyndum, Hnit eða Samsýn vita þetta líklega, hvort það sé til vefsíða eða ókeypis forrit til að gera þetta. Ég kíkti alla vega á heimasíðuna hjá Landmælingum og sá í fljótu bragði engan link hjá þeim. Kveðja, 
 Hafliði
 24.12.2011 at 13:25 #744753Sömuleiðis, gleðileg jól og farsælt nýtt ár! 
 16.12.2011 at 19:54 #744287Skrifstofan er með: f4x4 
 Stjórnin er með: stjorn
 bæði enda á: @f4x4.isVefdeildin mun síðan skoða af hverju hafa samband virkar ekki. Kv. hsm 
 16.12.2011 at 15:01 #744283Sæll Gísli, Mér finnst afskaplega leitt að þú hafir ekki fengið svar. En tölvupóstur er ekki áreiðanlegur miðill og ég finn engan póst hjá mér um þetta mál. Veit ekki hvort skrifstofan hefur fengið póst. Getur þú endursent þennan póst á okkur? Kveðja, 
 Hafliði
 16.12.2011 at 10:21 #742943Það er mjög gott að þeir sem þekkja til hugsanlegra áhrifavalda sendi fréttatilkynninguna og athugasemdirnar á viðkomandi tengiliði. Um að gera að dreifa þessum skjölum á sem flesta. Kveðja, 
 Hafliði
 15.12.2011 at 23:03 #742937Athugasemdir klúbbsins við Hvítbók fóru til ráðuneytisins í dag. Þeir sem hafa áhuga á að lesa athugasemdirnar geta skoðað PDF útgáfu af þeim sem eru sem viðhengi [url=http://f4x4.is/index.php?option=com_content&view=article&id=1682:frettatilkynning-fra-fereaklubbnum-4×4-vegna-hvitbokar&catid=48:frettir&Itemid=443:39gn4t32]við fréttina[/url:39gn4t32] Kveðja, 
 Hafliði
 15.12.2011 at 09:36 #744215Virkilega gott innlegg hjá þér Laila. Kveðja, 
 Hafliði
 11.12.2011 at 10:34 #743825Skemmtileg grein. Flott hjá þér Didda! Kv. hsm 
 03.12.2011 at 16:11 #743105Var að tala við ferðalanga, allir komnir upp í setur. Ferðin gekk vel, engin óhöpp. Ekki búið að ákveða hvaða leið verður farin á morgun. Kv. hsm 
 25.10.2011 at 10:21 #220960Vil vekja athygli á því að Ferðast um hálendið kom út með fréttablaðinu í dag, blaðið er gefið út af Ferðafrelsisnefnd og ritstjóri og ábyrgðarmaður er Guðmundur G. Kristinsson. Fullt af fróðlegu og skemmtilegu efni! Blaðið er aðgengilegt á netinu sjá: http://www.visir.is/ExternalData/pdf/fbl/111025.pdf Kveðja, 
 Hafliði
 11.10.2011 at 08:55 #739331Þetta var virkilega gaman og margir á svæðinu. 
 Merkilegt hvað manni fannst afturdekkin minnka þegar þau voru svona þétt saman.Kv. hsm 
 30.09.2011 at 08:21 #738445Ég tek undir þetta, frábært starf hjá Litlunefnd, það eru mikil hlunnindi hjá okkur að hafa svona breiðan hóp af frábæru fólki sem er tilbúið til að leggja mikið á sig fyrir starf okkar. Kveðja, 
 Hafliði
 23.09.2011 at 21:42 #737659[quote="Rangur":39qhb9ts][quote="Ofsi":39qhb9ts]Mér er bannað að merkja slóðirnar rauðar. þ.e sama sem lokaðar. Ég á að eyða þeim út.[/quote:39qhb9ts] Hver bannar? kv. ÞÞ[/quote:39qhb9ts] Bannað er ekki rétt orð í þessu samhengi, við vorum beðin um að taka þessa slóða út. Sú beiðni kom frá fleiri en einum aðila, meðal annars frá einum félagsmanni okkar sem lenti í vandræðum í nefnd sem hún starfar í fyrir okkur. Mér finnst ekki rétt að nafngreina aðilana í opnu spjalli. Í sjálfu sér má deila endalaust um það hvort slóðar sem eru lokaðir eigi að vera með eður ei, sem dæmi þá held ég að enginn færi að krefjast þess að Austurstræti væri tekið út af götukortum Reykjavíkur þó akstur sé bannaður þar, af hverju á ekki sama að gilda um slóða? Þessir umræddu slóðar eru í augnablikinu lokaðir fyrir umferð vélknúinna ökutækja, en ég veit ekki til þess að bannað sé að ganga eftir þeim. Kv. hsm 
 18.09.2011 at 20:15 #735619Flott í Landanum! Kv.hsm 
 05.09.2011 at 08:45 #735607Takk fyrir mig, þetta var frábær ferð, þar sem allt gekk vel skv. áætlun. Rós í hnappagötin hjá þeim sem skipulögðu og stóðu fyrir ferðinni. Kveðja, 
 Hafliði
 09.07.2011 at 12:02 #733237[quote="PFTH":3mo4mmdu]Ein spurning 
 Er að spá í að mæta með tjaldvagn. Er hægt að tengjast rafmagni til hitunar og lýsingar?
 Kv. Pétur[/quote:3mo4mmdu]Það á að vera rafmagn á staðnum, en gestir þurfa að greiða fyrir það sjálfir. Kv. hsm 
 06.07.2011 at 15:54 #733231Sæll Jakob tjaldstæði og/eða svefnpokapláss þarf ekki að hafa áhyggjur af, en rafmagn þurfa gestir að greiða sjálfir. Ef það er ekki grill á staðnum þá tökum við grillið okkar, þannig að allir geti grillað saman sem vilja. Það er ekki búið að negla niður fasta punkta í dagskránni, en það er hægt að fara á fjórhjól, skreppa í stuttan jeppatúr, fara í leiki og ýmiskonar sprell. Það verður gaman að sjá ykkur! Kveðja, 
 Hafliði
 06.07.2011 at 10:57 #219678Eins og búið var að auglýsa þá er sumarhátíð klúbbsins aðra helgi, eða 15-17 júlí að Hólaskóg (Þjórsárdal). Þetta er frábær staður og mér er sagt að Einar Sól sé búinn að semja um mjög gott veður! Það verður boðið upp á svefnpokapláss fyrir þá sem vilja og síðan tjaldsvæði fyrir þá sem vilja draga húsnæðið með sér eða skella upp tjaldi. Eins er boðið upp á sána fyrir þá sem vilja hreinsa líkama og sál, þannig að nauðsynlegt er að taka með sér handklæði og sundföt. Þeir sem hafa áhuga á að prófa fjórhjól á staðnum, þá verður boðið upp á það á laugardeginum fyrir mjög sanngjart verð (þarf að skrá sig hjá Unnari þegar komið er á staðinn). Gestir þurfa að taka með sér mat og drykki. Það væri mjög gott að fá að vita sem fyrst hverjir stefna á að mæta, því samningar við staðarhaldara eru miðaðir við lágmarksþátttöku. Endilega sendið póst á skraning(AT)f4x4.is eða segið frá á þessum þræði. Kveðja, 
 Hafliði
 25.06.2011 at 20:10 #732229Takk fyrir góðan dag í dag! Kv. hsm 
 16.06.2011 at 12:29 #731791[quote="hsm":2hixc597]Meðfylgjandi er fundargerð Aðalfundar hjá Ferðaklúbbnum 4×4 sem haldinn var mánudaginn 23. maí kl. 20:00 í húsakynnum klúbbsins.[/quote:2hixc597] Smá leiðrétting, einn í litlunefnd var rangfeðraður. Kv. hsm 
 
- 
		AuthorReplies
