Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
02.05.2008 at 00:22 #621708
Ég verð að játa, ég er náttúrulega beintengdur inn í stjórn. Ég verð að viðurkenna að ég stend í mikilli þakkarskuld við Agnesi og Jón Snæland að hafa fengið Barböru í stjórn í fyrra og þ.a.l. kynntist ég henni og fleira góðu fólki. Þetta eru algjör forréttindi að geta farið með konunni út í bílskúr og átt rómantíska stund undir jeppanum, ég held að það séu fáir í klúbbnum sem búa við slík forréttindi.
Kv.
Heiðarps.
Maður getur valið sér vini en ekki ættingja.
01.05.2008 at 14:46 #621698Það vantar ekki, alltaf jafn málefnalegur( Bæring eða Bassi eftir því hver skrifar). Heldur þú að þessi vinna sé best komin á spjallþráðum, komdu bara að starfi klúbbsins og á landsfund og komdu þínum skoðunum á framfæri þar.
Kv Heiðar
Form. Suðurnesjadeildarps
Ertu nokkuð náskyldur fyrrverandi stjórnarmanni, er það rétt.
30.04.2008 at 20:14 #621690Ég held að þessar lagabreytingar séu afrakstur vinnu sem fór fram á síðasta landsfundi sem haldinn var á Illugastöðum í Fnjóskadal. Þetta kemur ekkert frekar frá stjórninni, en það er náttúrulega langbest að kenna Agnesi og Barböru um þetta. Þær eru náttúrulaga bara frekjudollur( ef þær væru með tippi þá væru þær ákveðnar).
Kv.
Heiðar
form. Suðuenesjadeildar
01.04.2008 at 23:23 #618878Eitt það fyrsta sem mér var sagt fyrir 15 árum þegar ég byrjaði í vetrarferðalögum var að láta Hofsjökul eiga sig. Árin 2005 og 2006 flaug ég oft yfir jökulinn og reyndi að skoða hann vel og komst að þeirri niðurstöðu að best væri að láta hann eiga sig. Hann er hreint út sagt ógeðslega sprunginn og ég er sammála Jóni ofsa að ferlar eiga ekki erindi í almenna dreifingu.
Kv. Heiðar
19.03.2008 at 11:28 #618030Er klúbbafsláttur á steinolíu hjá Shell?
Kv. Heiðar
19.03.2008 at 10:54 #618026Hvar er hægt að kaupa steinolíu af dælu. Það þarf að kaupa þetta á tunnum í Keflavík.
Kv. Heiðar
04.03.2008 at 20:59 #616038Í hverju skyldi Sesselja Bjarnadóttir vera sérfræðingur, einhvern veginn líst mér illa á þessa titla hjá ráðuneytunum, er að spá hvort hún hafi farið út fyrir 101 Rvk.
Kv. Heiðar
04.03.2008 at 20:44 #616114Ég er með
Heiðar
02.03.2008 at 13:02 #615620Bíllinn er í eigu Þorvaldar Árnasonar lyfsala í Lyfjavali og er búinn að vera það undanfarin 8 ár ca.
Kv. Heiðar
19.02.2008 at 10:51 #613924Á ekki bara að drífa sig um helgina, spáin er efnileg og ekki sami hiti og um síðustu helgi.
Kv. Heiðar
13.02.2008 at 12:51 #612802Það er eins gott að karlpeningurinn haldi sig í hæfilegri fjarlægð við þessar aðstæður.
Kv.
Heiðar
13.02.2008 at 12:45 #613920Er ekki meiri áhugi
Kv. Heiðar
12.02.2008 at 14:25 #201849Skv. vetrardagskránni okkar er áætlað að fara í Landmannahellir og Hvanngil um næstu helgi. Ef menn hafa áhuga er hægt að hafa samband í síma 6606222 eða bara skrá sig hér á þræðinum.
Kv. Heiðar
08.02.2008 at 14:33 #613324Alveg sammála Benna, Tetra er frábær viðbót í dótapakkann. Er ekki hægt að komast í einhverskonar 12 spora meðferð fyrir þá sem sjá bara cb og Gufunes og kannski fyrir þá sem haldnir eru Toyotusíki.
Kv. Heiðar
25.01.2008 at 13:15 #6114364 bílar eru nú í Hrauneyjum og bíða eftir skárra veðri. Þeir fóru á stað áðan en sneru aftur við og ætla að hinkra eitthvað eftir betra veðri.
Snjókveðjur
Heiðar
10.01.2008 at 23:52 #609878Eg myndi mæta ef ég væri ekki fastur í sól og ófærð á Kanarí. Vona að það gangi vel að redda þessu.
Kv. Heiðar
28.12.2007 at 00:32 #606640Beggi minn, bíllinn er að verða klár fyrir hvað sem er eins og sést í myndaalbúminu
Kv. Heiðar
26.12.2007 at 23:50 #606630Við förum af stað á föstudagsmorgunn, það er pláss fyrir fleiri.
Kv. Heiðar
26.12.2007 at 19:14 #606006Við Gústi ætlum í Landmannahellir á föstudagsmorguninn, reiknum með að fara uppeftir hjá Keldum. Það er laust pláss ef menn hafa áhuga.
Kv. Heiðar
14.12.2007 at 14:26 #606628Þeir sem vaða á eftir manni út í hvað sem er, eru alltaf velkomnir með, við reynum frekar að bleyta okkur innvortis næst.
Kv. Heiðar
-
AuthorReplies