Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
14.12.2005 at 14:40 #535826
Þú verður að lesa þráðinn "Patrol stolið" athugasemd #114 til að skilja málið, þá kviknar kannski á perunni. KV. HSE
14.12.2005 at 13:50 #196862Fundur í kvöld kl 20:00. Skúli formaður og Jón Ofsi stjórnarmaður, rithöfundur og jeppakall mæta.
14.12.2005 at 12:58 #535822Hvernig er það, ertu nokkuð fæddur á Gamlársdag 1981. Kveðja frá Suðurnesjum HSE
14.12.2005 at 12:41 #531052Ég er búinn að fá það staðfest að þetta er sami náungi og stal Patrol á Akureyri í október og búinn að fá nafnið og kennitöluna (svona til staðfestingar er hann fæddur í lok ársins ef hann skyldi lesa þetta). Hann er með fullt af málum á bakinu, játar hjá löggunni og labbar út og fer sjálfsagt að leita að öðrum Patrol. Kveðja HSE
14.12.2005 at 11:41 #531044Við Suðurnesjamenn höfum mikinn áhuga að hitta þennan mann, þannig að það væri gman að fá nánari upplýsingar um hann. Óskum eftir nafni og mynd. Kveðja HSE
10.12.2005 at 17:06 #533496Skv nýjustu staðsetningu eiga þeir 5 gráður eftir í pólinn og ef ég man rétt eru það 300 mín og það er 1 sjómíla í mín, eða 300 * 1.852 eða um 560 km, þannig að þetta virðist ganga mjög vel. Kveðja Heiðar
15.03.2005 at 17:11 #518544Við fengum nú ekki greiðsluseðlana frá stjórninni fyrr í lok desember og seðillinn kom ekki í heimabankann fyrr en í byrjun janúar. Þar á undan vorum við að senda út reikningana í september þannig að slóðaskapurinn er nú hjá aðalstjórninni(sennilega í sama gír og heimasíðugerðin). Ég veit að Marteinn gjaldkeri okkar er í smá hremmingum með tölvuna hjá sér, en ef maður fer ekki að sjá mars Setrið mæli ég með því á næsta fundi hjá Suðurnesjadeildinni að við breytum klúbbnum aftur í Jeppavinafélag Suðurnesja.
Heiðar hundfúll!!
10.03.2005 at 16:46 #518536Ég er nú búinn að borga eins og flestir í deildinni hjá okkur.Það var nú fámennasti fundur í áratugi hjá okkur í gærkveldi, sennilega vegna þess að Setrið kom ekki til okkar á réttu tíma. Er það komið eða ekki???? Kv Heiðar sem er búinn að borga.
10.03.2005 at 10:00 #195639Hvernig stendur á því að Setrið hefur ekki komið á Suðurnesin, eða hefur enginn fengið Setrið í mars. Ég man ekki eftir því að þetta hafi gerst áður. Kv. Heiðar
14.02.2005 at 14:38 #516664Til að forðast misskilning þá er skálagjöldin fyrir meðlimi Ferðaklúbbsins 4×4 1000 kr. ekki bara Suðurnesjamenn. Kveðja Heiðar
03.02.2005 at 13:04 #515464Ég veit ekki hvort þetta sé bara hjá mér, en ég fékk Setrið ekki með Fréttablaðinu hér í Keflavík. Gaman að vita hvernig dreifingin er. Heiðar
13.01.2005 at 13:29 #513084Skráning var í gærkvöldi á fundinum hjá okkur á þorrablótið í Setrinu 21-23. jan og eru núna 53 búnir að skrá sig þannig að það er að fyllast hjá okkur. Við förum í 60 max.
05.01.2005 at 11:52 #512402Færa hann ofar á töfluna
04.01.2005 at 18:42 #195162Fundurinn frestast um viku og verður haldinn 12. janúar í húsi Bjsv. Suðurness. Stjórnin
01.01.2005 at 19:57 #512142Ætli 33" Sukka drífi ekki betur en 38" 60 Lc með afturhásingu undir miðjum bíl. HSE
01.01.2005 at 19:53 #511880Hvenær á að fara og ná í bílana. Við Suðurnesjamenn erum að fara á Grímsfjall um næstu helgi á 12 til 13 bílum. Kveðja Heiðar
09.04.2004 at 12:49 #194169Ætlaði að fara að setja inn myndir í albúmið, en fæ bara einhver error. Sennilega fullt eða bilað. Setti inn myndir á síðuna okkar feðga. http://www.jeppa.vefurinn.is/myndir/heidar
26.03.2004 at 08:00 #493951Ég er nú búinn að skoða ansi mikið af myndum af þessari ferð og hef nú bara séð einn bíl sem gæti flokkast undir öflugan (LC80), hitt voru bara vísitölubreyttir bílar, en þessi ferð yfir ánna er bara heimska. Sem betur fer voru 20 skynsamir menn sem lögðu sig á bakkanum. Kveðja Heiðar
26.03.2004 at 08:00 #501239Ég er nú búinn að skoða ansi mikið af myndum af þessari ferð og hef nú bara séð einn bíl sem gæti flokkast undir öflugan (LC80), hitt voru bara vísitölubreyttir bílar, en þessi ferð yfir ánna er bara heimska. Sem betur fer voru 20 skynsamir menn sem lögðu sig á bakkanum. Kveðja Heiðar
11.02.2004 at 14:53 #488304Farðu í félagatalið hjá Suðurnesjadeild (jeppi.is). Það eru rúmlega 20 44" bílar með öllu í deildinni, þar af eru myndir af 10 – 15 í félagatalinu. Heiðar
-
AuthorReplies