Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
26.10.2012 at 23:29 #759499
Verð strekkjardemparanum er 24 þús og eitthvað í umboðinu. Ef keypt er sett (dempari+hjól) er verðið 38 þús og eitthvað. Verðið er ekki 70 þús en nóg samt fyrir ekki neitt.
19.10.2012 at 09:36 #759489Nei legan í alternatornum er í lagi, ég hallast frekar að því að strekkjarinn sé vandamálið því samvæmt því sem maður les á netinu eru strekkjararnir eitthvert vandamál í þessum bílum.
19.10.2012 at 00:04 #224692Góðan dag
Kunningi minn á nissan patrol 2001 með 3.0td vél, ekinn um 150 þús km. Viftureimin endist ekki nema í nokkar vikur (tætist upp og eyðileggst). Síðast þegar skipt var um viftureim var strekkjarinn skoðaður og kom þá í ljós að legan í honum var ónýt. Skipt var um leguna en nú u.þ.b. mánuði síðar er reimin aftur farin að tætast upp.
Hefur einhver lent í þessu sama og veit hvað er að?
Takk fyrir það.
Kv.
HH
13.03.2006 at 07:43 #546024Það er búið að skrá bílinn ónýtan þannig að núverandi eigandi er Gámastöðin í Borgarnesi (fyrirtæki sem heitir Njarðtak). Hann stendur/stóð þar á planinu hjá þeim og bíður/beið þess að fara í stálpressuna.
10.03.2006 at 12:31 #197510Góðan dag !
Ég á Isuzu Trooper árg 99 og er hann óupphækkaður. Mig langaði að hækka hann upp fyrir 33 tommu sumardekk sem ég á (er núna á 32 tommu vetrardekkjum). Hvað hafa menn verið að gera í þessu sambandi (tiltölulega lítil breyting), hafa menn sett klossa undir gormana að aftan og skrúfað upp að framan eða bara klippt úr ? Hvar er best að kaupa kanta á bílinn sem henta í þessu sambandi ? Allar tillögur vel þegnar.
Með fyrirfram þökk og kveðju
HH
R3361
10.03.2006 at 12:23 #546020Góðan daginn !
Ég átti eitt sinn stuttan fox 410 með 1000cc vélinni. Ég setti í hann volvo B21-vél (úr volvo 244) og 5 gíra kassa úr volvo 740. Ég skipti líka um millikassa, fékk millikassa úr 413 bílnum til að fá hærri gírun. Millikassinn úr 410 hafði lægri gírun og var því skemmtilegri í snjó og ófærð en hins vegar var bíllinn skemmtilegri í akstri á vegum úti með 413 kassann. Ég var með upphaflegar hásingar (með 4.11 hlutfalli minnir mig, í 413 er hlutfallið eitthvað um 3.90 ef minnið svíkur ekki) og braut ég afturdrifið eftir 2 ára notkun. Það var samt þess virði :o) . Þennan bíl átti ég á 32 tommu dekkjum í 5 ár og reyndist vel. Ég hækkaði hann upp á boddýi um 5 cm og til að vega upp aukna þyngd að framan vegna volvovélarinnar bætti ég einu fjaðrablaði í hvora framfjöðrina. Síðast þegar ég vissi hvíldi þessi bíll lúin bein á gámastöðinni í Borgarnesi, afskrifaður, og er sennilega þar enn þegar þetta er skrifað (hvítur). Vél og gírkassi voru held ég í lagi.
Gangi þér vel
Kv
HH
10.03.2006 at 12:22 #546018Góðan daginn !
Ég átti eitt sinn stuttan fox 410 með 1000cc vélinni. Ég setti í hann volvo B21-vél (úr volvo 244) og 5 gíra kassa úr volvo 740. Ég skipti líka um millikassa, fékk millikassa úr 413 bílnum til að fá hærri gírun. Millikassinn úr 410 hafði lægri gírun og var því skemmtilegri í snjó og ófærð en hins vegar var bíllinn skemmtilegri í akstri á vegum úti með 413 kassann. Ég var með upphaflegar hásingar (með 4.11 hlutfalli minnir mig, í 413 er hlutfallið eitthvað um 3.90 ef minnið svíkur ekki) og braut ég afturdrifið eftir 2 ára notkun. Það var samt þess virði :o) . Þennan bíl átti ég á 32 tommu dekkjum í 5 ár og reyndist vel. Ég hækkaði hann upp á boddýi um 5 cm og til að vega upp aukna þyngd að framan vegna volvovélarinnar bætti ég einu fjaðrablaði í hvora framfjöðrina. Síðast þegar ég vissi hvíldi þessi bíll lúin bein á gámastöðinni í Borgarnesi, afskrifaður, og er sennilega þar enn þegar þetta er skrifað (hvítur). Vél og gírkassi voru held ég í lagi.
Gangi þér vel
Kv
HH
03.02.2006 at 12:12 #540446Sæll !
Ég festi mína talstöð (reyndar gömul stór CB) upp í loftið milli ljósanna sem eru fyrir ofan spegilinn í troopernum mínum (99-módelið). Það var þar fyrir plastfesting sem á stóð Cardholder, hana tók ég burt og útbjó svo festingu í þykku flatjárni sem passaði í Cardholder-gatið. Þetta hefur reynst prýðilega.
Með kveðju
HH
13.09.2005 at 13:09 #526698Það var ég sem skrifaði þennan þráð og svo virðist sem ,,bílasalinn heiðarlegi" hafi svo sterk ítök í félaginu að hann geti fengið málefnaleg skrif (sem auðvelt er að sanna) þurrkuð út. Þetta er ,,lýðræðislegt félag" þykir mér. En upplýsingarnar eru komnar á framfæri og ég þakka allan stuðning.
Kær kveðja
Hrafnkell Harðarson kt. 010373-5819
4×4 nr. R-3361
13.09.2005 at 13:09 #526696Það var ég sem skrifaði þennan þráð og svo virðist sem ,,bílasalinn heiðarlegi" hafi svo sterk ítök í félaginu að hann geti fengið málefnaleg skrif (sem auðvelt er að sanna) þurrkuð út. Þetta er ,,lýðræðislegt félag" þykir mér. En upplýsingarnar eru komnar á framfæri og ég þakka allan stuðning.
Kær kveðja
Hrafnkell Harðarson kt. 010373-5819
4×4 nr. R-3361
13.09.2005 at 13:08 #526694Það var ég sem skrifaði þennan þráð og svo virðist sem ,,bílasalinn heiðarlegi" hafi svo sterk ítök í félaginu að hann geti fengið málefnaleg skrif (sem auðvelt er að sanna) þurrkuð út. Þetta er ,,lýðræðislegt félag" þykir mér. En upplýsingarnar eru komnar á framfæri og ég þakka allan stuðning.
Kær kveðja
Hrafnkell Harðarson kt. 010373-5819
4×4 nr. R-3361
13.09.2005 at 13:08 #526692Það var ég sem skrifaði þennan þráð og svo virðist sem ,,bílasalinn heiðarlegi" hafi svo sterk ítök í félaginu að hann geti fengið málefnaleg skrif (sem auðvelt er að sanna) þurrkuð út. Þetta er ,,lýðræðislegt félag" þykir mér. En upplýsingarnar eru komnar á framfæri og ég þakka allan stuðning.
Kær kveðja
Hrafnkell Harðarson kt. 010373-5819
4×4 nr. R-3361
13.09.2005 at 13:07 #526688Það var ég sem skrifaði þennan þráð og svo virðist sem ,,bílasalinn heiðarlegi" hafi svo sterk ítök í félaginu að hann geti fengið málefnaleg skrif (sem auðvelt er að sanna) þurrkuð út. Þetta er ,,lýðræðislegt félag" þykir mér. En upplýsingarnar eru komnar á framfæri og ég þakka allan stuðning.
Kær kveðja
Hrafnkell Harðarson kt. 010373-5819
4×4 nr. R-3361
09.02.2005 at 07:50 #516334Á Internetinu er einnig hægt panta fjöldan allan af bókum. Það hef ég gert með góðum árangri, pantað bæði frá Bandaríkjunum og Bretlandi.
Kveðja
CHH
03.02.2005 at 13:11 #515260Tæknimenn hjá Heklu stinga upp á að það sé bilaður hjá mér Power Transistor og/eða háspennukeflið. Ætli næsta skref sé þá ekki að fara með bílinn á verkstæði og láta stinga honum í samband við alvitra tölvu sem finnur hvað er að.
Kveðja
CH2
02.02.2005 at 10:54 #515256Skiptirðu þá um kveikju alveg eða var hægt að skipta um eitthvað í henni ? Það segirðu satt þetta er mjög pirrandi :o( !!!!
En takk fyrir góð svör !!!!Kveðja
C
01.02.2005 at 08:16 #195386Góðan daginn !
Hefur einhver lent í gangtruflun með MMC Pajero V6 3000 (árg.1992) sem lýsir sér þannig að bíllinn drepur skyndilega á sér í akstri og fer ekki strax aftur í gang þegar startað er en dettur svo skyndilega í gang og gengur í svona 1 mínútu þar til hann drepur aftur á sér. Á meðan vélin er í gangi er vinnslan í bílnum fín og engar gangtruflanir fyrr en skyndilega slökknar á öllu saman eins og lýst er hér að ofan. Getur verið að Relay fyrir bensíndælu sé að hrekkja mig eða einhver annar rafmagnsbúnður ? Allar skynsamlega ábendingar og hugmyndir vel þegnar.
Kveðja og þakkir
C
-
AuthorReplies