Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
25.02.2006 at 20:40 #544414
fótbolta og íþróttafélög selja aðeins flugelda til að styrkja sín samtök eftir því sem ég best veit þesssvegna margborgar sig að kaupa af björgunarsveitum og hjálparsveitum ég persónulega þoli ekki einkaaðila sem selja flugelda eins og stendur hér fyrir ofan "hvar eru bílasalarnir núna???" við ættum ekki svona öflugar björgunarsveitir ef það væri ekki fyrir flugeldana aðal innkoma sveitanna er flugeldasala og jólatrésala
með von um góðar fréttir af jöklinum fljótlega
Davíð R-2856
20.02.2006 at 04:18 #543446megi þið feðgar ná skjótum bata
mínar 2000 kr eru komnar inn og ég skora á þá sem að eru eins og ég og þekkja feðgana ekki persónulega að hjálpa samt samfélugum sínum þótt það sé ekki nema 500 krónur margt smátt gerir eitt stórt munið það og einnig skora ég eins og margir aðrir á fyrirtæki að sýna hjálpsemi …..
með von um góðann bata og að þið feðgar komist á fjöll aftur fljótlega
Davíð Karl R-2856
Félagar Sýnum Samhug!!!!!!
07.02.2006 at 19:29 #541756hvar er maður að fá þessar fini pumpur??? og er bara ein tegund af henni til eða eru margar týpur og einhver ein sem skarar framúr???? og hvað eru þær að kosta þessar??
Kv Davíð R-2856
07.02.2006 at 03:19 #197255jæja þá er komið að því að ég verð að fá mér pumpu í bílinn sem er ´91 4runner 30l v6 bensín ég vill helst A/C en ég kann ekki að breyta henni en ég vill fá einhverja öfluga svo ég sé ekki jólanna á milli að pumpa í 38 tommuna svo ég spyr ykkur meira reyndari og vitrari hvað er best að setja í runnerinn og þar ofaná hvernig er svo best að koma loftdælu fyrir þar sem ekki mikið húddpláss er í boði því hann er lítið sem ekkert hækkaður á boddýi… með von um góð ráð eða ábendingu á þráð um sama mál
Kv Davíð R-2856
31.01.2006 at 00:42 #537958þetta er í sjálfu sér ekkert vitlaus hugmynd og ég tala nú ekki um að ef maður er búinn að smíða jeppakerru og komin á tilheyrandi 38/44" dekk þá er þetta búið að kosta mann eitthvað og ekki væri verra að hafa þetta skráð hjá eins og t,d klúbbnum en þá verður þetta líka að vera eitthvað sem er erfitt að afmá
29.01.2006 at 07:38 #540554takk fyrir góð svör ég held að hann sé úr áli en mig er farið að gruna að slangan milli tanka geti verið valdurinn að lekanum og ég veit ekki baun um aukatankasmíði og ég reikna með að það sé dæla inní þessu öllu saman og ég jahh að fitla eitthvað með bensíntankana er ekki eitthvað sem ég er mjög hrifinn af svo ég vill láta fagmann gera þetta þannig að ég spyr útfrá þessum svörum þessi kiddi eða prófílstál redda þeir líka ef þetta eru slönguvandræði???? en annars takk fyrir svörin með vhf stöðvarnar eru menn með kveikt á þeim innanbæjar eða er einhver hlustun ef einhver kallar og er í vandræðum?? og þá er einhver spes rás sem er notuð til að hlusta hérna í höfuðborginni???
Kv Davíð R-2856
kominn á jeppa eftir 2 ára pásu og með mjög stórt bros
28.01.2006 at 05:33 #197181Sælir ég er með 4runner og er með 100 litra aukatank og hann virðist leka annaðhvort á tankinum (þ,a,s auka) eða slöngu milli tanka en nú veit ég ekkert hvern ég get fengið til að láta gera við þetta svo allar uppástungur vel þegnar…
einnig langar mig að forvitnast svona aukalega hversu vel drífa VHF stöðvarnar svona almennt?? þ,a,s í lengd
Kveðja Davíð R-2856
28.01.2006 at 05:30 #540526mér þykir leitt að heyra hvernig fór með bílinn þinn en mig langar að skora á einhverja radíóþjónustu um að koma með sértilboð á þjófavörn og ísetningu fyrir meðlimi 4×4 ég held að það sé alls ekki vitlaus hugmynd ég veit það vel að ég sef mun betur með kveikt á þjófavörninni
með von um að sökudólgarnir finnist
Davíð R-2856
22.01.2006 at 20:32 #539820sælir ég vill ekki opna nýjann þráð fyrir nánast sömu spurningu en ætlaði að athuga hvort sérfróðir gætu hjálpað aðeins.
svo er mál með vexti að vinur minn var að kaupa sinn fyrsta jeppa núna á föstudaginn, hilux ex-cab v6 árg 91 og hann er auðvitað á klöfum að framan en hann er farinn að verða var við smá læti í framdrifi sem á að vera með 5,29:1 en þegar hann setur í frammdrifið þá koma brak og brestir og smellir og smá þvingun og stýrið kippist til og gerist þetta aðalega á hörðu undirlagi ekkert í snjó og skrýtni parturinn að mér finnst er að þetta gerist aðalega í háa drifinu lítið sem ekkert í lága drifinu og nú er hann á slitnum Dick Cepek og hef ég ekki séð neinn mun á sliti á þeim dekkjum og eftir heimildum sem fengust hjá fyrri eiganda var allt nýtt eða nýlegt í aftur drifi en eitt veit ég að ég athugaði loftþrýsting í dekkjunum hjá honum í gær og voru 12 að aftan og yfir 20 að framan sem ég auðvitað jafnaði strax en virtist ekki hafa áhrif því spyr ég ykkur hvort þið hafið einhverja hugmynd. ég persónulega datt fyrst í hug brot í framdrifi fyrst en þegar reyna á það tók þá heldur drifið fínt að mér virðist en við höfum reynt bílinn smá en ég hef þá alltaf verið á mínum bíl svo ég hef ekki orðið sjálfur vitni að öllu þessu þannig að ef ykkur dettur eitthvað í hug þá endilega látið í ykkur heyra
kv:Davíð R-2856
17.01.2006 at 21:53 #539148ættir að geta það en getur samt átt von á að dekkin rekist í hér og þar svo er ekki mikið mál að hækka örlítið ef þarf og skera og berja til svo hann láti vel á 33"
davíð R-2856
17.01.2006 at 21:50 #539340Sælir
ég er með runner 38" með framlæsingu og engum lokum
en mér langaði að skjóta smá spurningu því ég er með klafa að framan en ekki hugmynd hverskonar læsingu hún er auto þegar sett er í 4wheel og þegar hann lallar t,d upp í móti í snjó virkar þetta eins og no-spin semsagt höktir svona á lágum snúningi og tekur alltaf á báðum megin en samt finnst mér þetta ekki vera no-spin þegar ég keyri hann í framdrifinu þannig að ég spyr ykkur læsingaséníin getur þetta verið eitthvað annað en no-spin þar sem að ekki er mikið framboð í klafadrifin þá held ég að það geti ekki verið margar tegundir sem þetta gæti verið.Davíð R-2856
17.01.2006 at 21:44 #539298ég tek alveg undir það ég mundi hiklaust styrkja gott málefni eins og klúbbinn okkar og borga fyrir að fá að rúlla í gegnum "dekkjabaðið" alls ekki vitlaus hugmynd
en ég tek einnig undir það að notast við þvottaplönin við hreinsunina og reyna að halda olíu og öðrum spillingum fjarri hálendinu en í aðrar nótur þá hef ég notast aðeins við svokallaðann dekkjahreinsi sem seldur er á sumum esso stöðvum og hann hefur virkað alveg merkilega sæmilega en leitin að besta hreinsiefninu á dekkin mun eflaust halda áfram um óráðna framtíð:DDavíð R-2856
31.12.2005 at 16:06 #537568ég þakka liðið ár og óska gleðilegs nýs árs til allra félaga 4×4 og fjölskyldna og hafið það sem best í kvöld
Davíð R-2856
03.02.2005 at 12:39 #506992Bjór (passar við allt frá snakki uppí lækjarbrekkufæði:P
Langt eða Stutt Milli hjóla
03.02.2005 at 11:54 #515462Frábært framtak loksins eitthvað skemmtilegt að lesa svona í morgunsárið frábært framtak og ég óska bara stjórninni sem og öllum klúbbfélögum til hamingju!!
Kv: Davíð R-2856
03.02.2005 at 11:45 #515394Já hérna þeir sem vilja slást með í för þá verður mætingin bara rétt fyrir 9 laugardagsmorgun á Esso í Mósó!!! við gerum ráð fyrir að leggja í hann rúmlega 9 og bara því fleiri því betra og já það væri mjög gott ef einhver vissi hvernig færðin þarna uppfrá er og þar í kring og jafnvel kaldidalur og gæti upplýst okkur um það aðeins í örfáum orðum hérna í þessum dálk
Kveðja Dabbi R-2856
Allir velkomnir nýliðar sem og ellismellir í sportinu:D
03.02.2005 at 11:36 #515392ja því fleiri því betra er það ekki mér lýst allavega vel á að fá fleiri bíla (ég verð kóari hjá lata) eftir því sem mér best skilst eru 2 félagarnir að fara saman og held ég að það væru allir ánægðir með meiri þáttöku:D
Kveðja Dabbi R-2856
Snjór Snjór skín á mig….
28.04.2004 at 09:15 #500279endilega takiði alla leiðindakallana sem eru með stæla til ykkar svo við alvörujeppamennirnir getum talað saman á f4x4.is og já meðan ég man latur og flippi er sami maðurinn vinur tvöfaldur persónuleiki??? ég er ekki viss hvort hann sé með tvö nöfn hér eða ekki en ekkitaka tvisvar sama manninn!!!
Alvörujeppakveðjur: Dabbi R-2856 með Rosalegt tæki í byggingu uppí skúr!!!
P.S. Vá hvað ég á eftir að fá mikið skítkast á þessum þræði núna jahh kannski kemur "patrolmann" og bakkar mig upp:D
26.04.2004 at 14:33 #500053sælir…
þú getur farið í expert og þeir eru með boss hátalara á viðráðanlegu verði. ég er með Boss 6*9" afturí hjá mér 500W og kringlótta boss 250W í frammhurðum og er með kenwood 4*47w mask spilara ég keyri frammhátalarana á þ,a,s 250w á spilara svo er ég með lítinn nettann jbl magnara fyrir 6*9" hátalarana og virkar bara mjög vel en svo er ég líka með magnara, box og meðfylgjandi en þetta kemur drulluvel út hjá mér en ef þú ert í græjuhugleyðingum mundu þá Númer 1 ÞJÓFAVÖRN!!!!!!!!!!Kveðja Davíð R-2856
23.12.2003 at 21:09 #482754Ég óska félögum 4×4 og öðrum hérna á síðunni Gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári og vonum allir/öll að við fáum snjó í jólagjöf!!!:D
Jólakveðja Davíð R-2856
-
AuthorReplies