Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
26.05.2006 at 21:04 #553238
Hvernig er það er ekki til bíll með nafninu Golíat????
26.05.2006 at 15:07 #553230jæja litla frænka mín (3ára) skýrði hann trukkinn svo það er það besta sem komið er hingað til, er enginn með hugmyndir???
Kv Davíð og Kannski trukkurinn
25.05.2006 at 23:45 #553226biggi er með bláa fiðringinn og broncoinn var kosinn "icebraker" í ferð sem ég fór ekki í þannig ég kom hvergi þar nálægt en já bjórdollan segiru hehehehe
Kv Dabbi R-2856
25.05.2006 at 23:34 #198002jæja nú ætla ég að biðja um smá hjálp. sko svona standa málin að flestir ef ekki allir snjóræningjarnir eru komnir með „nöfn“ á bílana sína sem og mjög margir í klúbbnum búnir að skýra svo ég óska eftir hjálp ég er með ljós/dökk gráann runner á 38″ með flest öllunema nafni svo ég bið ykkur mennina sem eruð á kafi í vélum og drifsköftum eins og sagt var í útvarpinu og sjónvarpinu að gefa mér hugmynd að nafni á jeppann. myndir af honum er að finna í albúmi bæði undir nýja græjan og svo ferð á jökul 25 mars svo ég viti svo nafnaglöggir menn endilega hjálpið mér
Kveðja Davíð Karl R-2856
25.05.2006 at 22:21 #553216en er ekki rétt var ekki sjálfkjörið í allt og benni (hmm) orðinn formaður???? spyr sá sem ekki veit
Kv Davíð R-2856
21.05.2006 at 07:41 #553040Þetta var einn af mínum betri dögum á ævinni og er ég bara 22 ára , þetta heppnaðist eins og í skáldsögu gæti ekki hafað óskað það betra frábærir jeppamenn frábærir ferðamenn sem við tókum með og frábær ferð með öllu ég er í skýjunum yfir þessu og er ég farinn að hugsa um haustferð einstakra barna og kem ég með eitthvað þegar þar að kemur …. Takk fyrir allt einstök börn og samfélagar í 4×4 frábært með eindæmum stórt TAKK fyrir alla hjálp hefði ekki getað neitt án ykkar……….
Kveðja Davíð Karl R-2856
20.05.2006 at 01:18 #551086síðustu tölur komu út með 34 farþega tvær fjölskyldur duttu út vegna veikinda og ein fjölskyldan er eins og áður kom framm á selfossi, okkur vantar ekki plássið því nóg er af því en þess má geta að það koma held ég tveir allavega einn langveikur sem er utan lista en það er frændi jóhannesar á slydda L200 38" og bið ég ykkur stelpur að taka hann með í dæmið hvað varðar mynd boli brúsa og það sem þið hafið handa þeim en svo hringdi einn óstaðfestur sem ætlar líklegast að kíkja en gaf mér ekki klárt svar og er óskráður í e-mail hjá mér stöð 2 gæti komið og fjallað um þetta mál í fyrramálið og vil ég biðja fólk að tala ekki um hversu öflugur eða fínn jeppinn sinn er heldur tala um hvað við getum gert fyrir þessi börn. einnig þarf ég tvo bíla til að keyra annaðhvort í samfloti austur á selfoss í Ká að sækja fjölskyldu þar 3 manns og annaðhvort fara á undan hjörðinni eða fara með fyrri hóp og falla inn í seinni hóp þeir sem geta það endilega talið við mig í fyrramálið er á gráum tvílitum 4runner 38" en látum þetta gott heita það ætti að fara að koma svefntími á mann svo ég býð góða nótt og sjáumst eldhress og úldin kl 8 í fyrramálið:D
ATH: Allir verða að merkja sína bíla með sóma og 1944 límmiða
Kveðja Davíð Karl Davíðsson R-2856
og já rásir verða VHF 45 CB 12AM
18.05.2006 at 22:52 #552830já ætli það hafi ekki gert gæfumuninn þegar ég fór með honum í ferð á hraðfara sem var 3ja dyra vitara á 33" blöðrum og gaf hinum lítið eftir ætli hann sé ekki þessvegna að fá sér súkku:)
neinei segi svona þetta verður án efa öflugur bíll hjá honum og ef ég þekki hann rétt að þá ef það virkar ekki þá vill hann það ekki
til lukku með nýja gripinn
Kv Davíð Karl
18.05.2006 at 20:20 #552826þessu trúi ég ekk að gamli lærimeistarinn minn sem kenndi mér margt sé búinn að selja fína hiluxinn með mislita pallhúsinu og gormafjöðrunarlímmiða bara öðrum megin eru engar fréttir hvað hann sé kominn á núna ég trúi ekki patrol þá er nú illa farið með góðan mann
Kv Davíð Karl "toyotakall"
18.05.2006 at 02:41 #551076Mæting er fyrir bílstjóra og alla jeppa kl 0800 svo við höfum tíma til að úthluta límmiðum og setja þá a bíla og svo samlokubílar verði klárir og allt verði í orden svo mæta Einstök Börn kl hálf níu níu og þá er hent í bíla og rúllað af stað planið er brottför úr mörkinni kl 0900
og naglar eða ekki skiptir ekki máli bara stóru dekkin erum með undanþágu með þetta ákvæði
Besta kveðja Davíð Karl
ATH!!!!!! skráning er enn á e-mail davidkarl@btnet.is
og þeir sem vilja hjálpa til við undirbúning grill og tiltekt hafi samband við klakann
17.05.2006 at 17:08 #552672ég vill bara segja til hamingju með nýja gripinn og vona að hann reynist þér vel.
Kveðja Davíð
p,s skari hvað varð um fínu toyotuna með gormafjöðrunarlímmiða öðrum megin??? ekki ertu búinn að velta honum aftur ég trúi því ekki:D
17.05.2006 at 15:10 #551062ég orðaði þig við hann í gær eins og þú kannski veist núna fyrst þið eruð búnir að rabba saman og var ég einmitt að spjalla við hann áðan og honum leist alveg frábærleg á þetta og er með allt myndavéladótið og þrífótinn fyrir austan (hann er með fulla myndavélabakpoka af græjum hef sjálfur verið að hjálpa honum við að taka myndir) svo er hann með svona auka grip á vélinni sem á að vera voða fínt:) en þar sem ég leysi hann þá hér með af hólmi við að vera dráttarbíll þarna uppfrá var hann eitthvað að tala um að jafnvel fá að fljóta bara með þér í bíl einar svo hann gæti verið hlaupandi út um allt með vélina hvernig tekur þú í það??
annars held ég bara að þetta sé hið frábærasta mál
Kveðja Davíð Karl
17.05.2006 at 02:14 #551054endilega hafðu samband við birgi hann gæti vísað þér á slóð með stærri myndum eða eitthvað og þið getir rætt myndavélamál ég held að hann sé góður kostur í þetta allavegana hafa þær myndir sem ég hef fengið hjá honum hafa verið frábærar endilega hafðu samband við hann og þið getið rætt saman þar sem þú ert ekki með eninn gsm síma skráðann getur hann ekki haft samband við þig
Kv davíð Karl
16.05.2006 at 22:19 #551052fékk e-mail í dag frá magnúsi MHN sem hljóðaði svona ég hef áhuga að
slást í ferðina en get ekki ferið á jökul vegna smæðar í staðinn taka myndir af ferðinni á lálendi við grillið og ?
kv,,,MHNen nú veit ég ekki hvernig vél hann er með né neitt en svo er einnig vinur minn með stafræna linsuvél og kemur hann með í ferðina en hann er nokkuð góður að mínu mati hér er galleríið http://www.vortex.is/birgirs/ hann er með nokkrar linsur þrífót og brennandi áhuga og ágætisreynslu en hvort hann sé eitthvað sem þú ert að leita af veit ég ekki en þú getur haft samband við hann í síma 8688951 en eina sem ég sé er að hann vinnur á hvolsvelli svo þið munduð verða að gera einhverja samninga með að vinna með myndirnar hann er ekki með nógu öfluga tölfu fyrir austan mér skilst að borðtalvan hans sé heima hjá honum í bænum en endilega þá geturu bjallað á hann nafnið er birgir örn og vélin er canon 350 eða eitthvað kostaði allavega yfir 100 þúsund veit ég
Kv Davíð "semábara25þúskrdigitalvél"
16.05.2006 at 19:57 #551048Jæja þá er það komið á hreint með mætingu hún verður í mörkinni kl 8 á laugardagsmorgun brottför verður um 9 og þurfum við að gera bíla klára koma börnum fyrir og þessháttar fyrir brottför þá er bara að mæta með fullann tank og vera tilbúnir að jeppast þeir sem eru á nöglum þurfa engar áhyggjur að hafa því ég fékk undanþágu hjá vegagerðinni vegna þess ákvæðis svo það er klappað og klárt, einnig virðist klakinn vera að standa sig með pöntun á veðri svo það er frábært og ef einhverjar spurningar vakna þá bara um að gera að spurja einnig má geta að um 30 bílar verða meðí för svo þetta verður stór og mikill hópur og samlokur gos og grill handa öllum
Kveðja Davíð Karl R-2856
16.05.2006 at 15:26 #197971jæja það er svo dautt eitthvað á spjallinu að ég ætla að stinga uppá leik sem ég hef tekið þátt í á öðrum spjallþráðum. Hann gengur út á það að þú átt að segja hvað þér finnst um persónuna fyrir ofan þig hrósa skamma getur sagt hvað sem þér dettur í hug samt ekki nein meiðyrði þetta getur verið nokkuð skemmtilegt að lesa þegar þessi leikur er farinn af stað svo ég spyr eru 4×4 menn tilbúnir í leik:D???
en þar sem enginn er fyrir ofan mig þá verð ég að segja hvað mér finnst einhverstaðar þegar þráðurinn er kominn af stað
Leikjakveðja Davíð
16.05.2006 at 01:54 #551046fjölpóstun
16.05.2006 at 01:35 #551044Fjölpóstun
16.05.2006 at 01:35 #551042fjölpóstun
16.05.2006 at 01:19 #551040nota tækifærið í öllum þessum fjölpóstum að þá mun hvorki ég né neinn annar tekur það í mál að það verði eitthvað show off í ferðinni og menn að reyna að standa bíla sína og stökkva eða einhverja vitleysu við getum gert það í okkar eigin frítíma ekki með þessi börn með okkur sem þola ekki hvað sem er vill bara koma því á framfæri en er ekki á neinn hátt að beina þessum póst að einum né neinum (enda er ekki allt toyota:D) vill bara brýna þetta fyrir og menn hafi þetta í hausnum á sér sama hversu frábærir pallar og hengjur verða þarna (samt alltí lagi að leika aðeins er ekkert að taka fyrir það) bara vill að þetta verði tekið af skynsemi og góð ferð gerð úr þessu
fjölpóstakveðja DAvíð fjölpóstari:D
-
AuthorReplies