Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
14.09.2006 at 03:07 #560074
Takk fyrir góð ráð. Við notuðum þessar svörtu skófur hvað þær nú heita á stærstu blettina og bárum svo tvær umferðir af Rust Converter á restina af gólfinu en þetta á að vera undraefni sem breytir ryði í harða kvoðu eða eitthvað skylst mér en sel það ekki dýrara en ég keypti það.
Þá er bara eftir að sniða teppi og teppaleggja bílinn og ganga frá öllu.Kv Davíð Karl í hilux uppgerð
13.09.2006 at 04:12 #198533Sælir nú er verið að taka Hilux í gegn og Botninn er þónokkuð ryðgaður og við erum ekki vissir hvað sé best að nota til að slípa niður ryðið. Hvað er best að nota höfum verið með vírhring á borvél en það er svo andsk.. seingert er eitthvað sem er betra t,d sandpappír og þá hvaða teg og s,fr
Með von um skjót svör þar sem áætlað er að gera hann tilbúinn fyrir helgi
Kv Davíð Karl
07.09.2006 at 01:31 #559216Sælir strákar…..
Ég get kíkt á þetta og borið saman verðið ef einhver getur skellt þessu saman á Excel og sent mér í tölvupósti
það væri gaman að fá að vita muninn á þessu öllu samanKv Dabbi R2856 semhefurekkertaðgera
06.09.2006 at 00:17 #559418Sælir/ar mér langar að deila með ykkur að ég hef farið á fund hjá flugbjörgunarsveitinni einmitt í þessum umrædda sal og var mjög gott rými og myndasýningin var mjög góð sem þeir flugbjörgunarmenn voru með og vill ég slökkva á öllum þeim umræðum um að þetta sé ekki gott til myndsýninga það er della. rými salarinns var gott og ég tala nú ekki um ef að við breytum honum út í að verða salur fyrir 250 manns það er bara frábært og að það sé ekki pláss fyrir mánudagsfundina er bara della við fáum kannski ekki að sitja við þessi fínu hringborð eins og í ferðafélagssalnum en nóg er að rými í þessum sal og ég tala nú ekki um að við getum gert okkur heimakomna/r í þessu nýja húsæði með myndum logoi að utan eins og benni sýndi dæmi á fundinum og jafnvel VHF mastri og virkri hlustun og ég tala nú ekki um eins og benni gaf okkur hugmynd um með aðstöðu eins og félagsmiðstöð "vídjógláp og gaman" og svo getum við unnið okkur tekjur með útleigu á sal sem og klúbburinn getur tekið að sér fleiri fjáraflanir ef því er að skipta og svo að ég tala nú ekki um allt bílastæðið sem fylgir þessu það rýmir allann okkar bílaflota og meira til. en ég ætla að segja þetta gott í bili og já það má skrá mig í vinnu í breytingarnar ef því er að skipta….
Viva 4×4
Kv Davíð Karl R-2856
05.09.2006 at 23:42 #559400eins og ég sagði lárus að þeir eru fljótir að redda þér hér og best er eins og MMC segir að fara í 35" og velja bara svo þá hefuru möguleikann á að fara í 35" seinna meir og kemst í fleiri ferðir o,s.fr en til lukku með jeppann
Davíð Karl R-2856
05.09.2006 at 19:53 #559402Sælir ég held að hún passi á milli en þori ekki að vera viss en langaði að benda á það sem þú örugglega veist að gallarnir á no-spin eru örugglega fleiri en kostir fínt í snjó en alveg hræðilegt á malbiki ég mundi versla mér loft í staðinn mun betra og skemmtilegra vildi bara benda á þetta
Kv Davíð Karl R-2856
05.09.2006 at 19:49 #559394betra seint en aldrei kanta getur þú fengið til dæmis í Allt Plast og öðrum fyrirtækjum sem ég man ekki nafnið á í augnablikinu fáum aðra félaga til að hjálpa mér með það en með dekk og felgur þá væri sniðugt til að minnka byrjunarkostnað að auglýsa bara eftir dekkjum og felgum hér á f4x4.is annars geturu talað við Gúmmívinnustofuna Bílabúð Benna og þessar helstu bíla og jeppabúðir sem og dekkjaverkstæði og ef þú ert félagi eða gerist félagi 4×4 þá færðu fínann afslátt á þessum stöðum sem getur borgað upp félagsgjaldið. en ég spyr af hverju ekki að fara í 35" þá ertu mikið gjaldgengari í vetrarferðir og ferð mikið meira, ágætis umhugsunarvert. ég vona að þetta hjálpi eitthvað og gangi þér vel með jeppann
Kv Davíð Karl R-2856
03.09.2006 at 13:42 #559106Þess má til gamans geta að ég fór syðri fjallabak í gær og endaði á Sólheimasandi og neyddist ég til að skilja bílinn eftir með brotið drif og eitthvað í gírkassa við sumarbústað vinafólks þar hjá svo næsta helgi verður víst viðgerðarútilega þar sem ég get ekki keyrt bílinn í bæinn og ekki dregið hann.
Viðgerðarkveðja Davíð Karl
01.09.2006 at 14:21 #559096Sælir ég hef verið nokkuð góður í sumar fyrir utan rafgeymir sem er ónýtur og fylltist af spanskgrænu og tvo sprungna afturdempara Þórsmörk.
Kv Davíð Karl
31.08.2006 at 17:36 #198471Sælir félagar. Ég er að fara að túra Fjallabak Syðri á laugardaginn gaman væri ef þið gætuð deilt með mér hvað er áhugavert að skoða og hvernig leiðin er hvað ber að varast og annað hef ekki farið þessa leið sjálfur. Þess má geta að ég er á 38″ svo er einn 35″ og svo loks tengdó á 33″ og ég lenti í því bölvaða óláni að sá sem átti að túra var dæmdur úr leik:S
Fjallakveðja
Davíð Karl Snjóræningi R-2856
31.08.2006 at 17:14 #559048Ég vill ekki vera að alhæfa að umrætt breytingaverkstæði stundi þetta þar sem ég einungis veit um eitt slíkt tilfelli og finnst mér því fyrir bestu að ég nefni hvorki eiganda, bíltegund eða breytingarverkstæði/umboð. Ég vill ekki tala illa um þetta né þá heldur staðhæfa að þetta sé afleit staðsetning þrátt fyrir að ég hafi mínar efasemdir hehe
Kv Davíð Snjóræningi
31.08.2006 at 04:23 #559042ég gef mér að ég viti hvaða verkstæði stundar þetta þar sem félagi minn er með glænýjann pickup á 35" og hann er einmitt með smá rellu loftdæu og er hún einmitt í stuðarasvuntunni þar sem smá op er og mun hún lenda í öllu snjó vatni og drullu. Svona vinnubrögð skil ég ekki
Kv Davíð Karl meðrunnersemklikkarekki
30.08.2006 at 03:38 #558986sæll runnerbróðir
munurinn á 5:29 og 5:71 er kannski ekki gígantískur en hann er þó eitthvað og 5:71 hlutfallið er léttara og þar af leiðandi mun veikara sérstaklega afturábak þar sem þú ert á 38" mundi ég kaupa nýtt 5:29 hlutfall í hann (eru að fara á ca 30 K með húsi) og geyma 5:71 ef þú skyldir fá þér stærri dekk eða selja þau upp í kostnað á nýju 5:29 og einhvers fleira góðgætis.vona að þetta hjálpi
Kv Davíð Karl R-2856
P,S er með hús með soðnu 5:29 en brotnum flans fer á lítinn pening
29.08.2006 at 18:08 #558882þeir eru ótrúlegir þessir bílaþjófar ég hvet alla til að fá sér þjófavörn það er eina vitið. Kíki nú samt í kringum mig
Kv Davíð Karl
28.08.2006 at 14:19 #558744flott að heyra að þau séu fundin allt of mikið um þetta lenti sjálfur í að númerum var stolið af bíl sem ég átti.
Kv Davíð Karl
28.08.2006 at 00:40 #558766maður getur nú verið blindur en ég get víst ekki lagt mig og litlarunner af mörkum þar sem ég verð að túra litla kalla í ferð
28.08.2006 at 00:21 #558762ég reyni að leggja mig og minn bíl að mörkum er reyndar að fara syðri fjallabaksleið um daginn en maður reynir að heilsa upp á félaga okkar þarna suðurfrá hvenar á rúnturinn að vera??
Kv Davíð Karl
26.08.2006 at 23:44 #558748Það eru nú þónokkrir komnir á 33"-35" dekk og ættiru að geta fengið nokkuð góðar lýsingar en einna helst sem ég veit er að þessir bílar eru ekki byggðir á grind heldur eru sjálfberandi og því ekki hægt að lyfta boddýi svo það þarf að breyta stýrisgang væntanlega skástífu og þessháttar ég man að ég þurfti að breyta þessu á kassaboddýinu að vísu var hann 38" en þetta er einna helst sem mér dettur til hugar nú og svo skera klippa og kanta:D
Kv Davíð Karl
25.08.2006 at 00:44 #558640setrið er eitthvað sem á best heima á klósettinu lúddi minn það er dyggur vinur í gegnum svörtustu tímana
Kamarkveðja Davíð karl
24.08.2006 at 18:15 #558610það er ágætis álág á bílinn en alltaf jafn gaman að sjá kanann breyta bílum ætli þeir kunni ekki á slípirokk:D
Hoppukveðja Davíð Karl
-
AuthorReplies