Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
17.01.2007 at 22:37 #575636
Ég var að tala við aðila sem ég þekki í kvöld og bar undir hann þá hugsun að fara kaldadal uppá langjökul yfir í þursaborgir og niður á hveravelli þaðan í ölfus á veitingastað (sem umræddur aðili er eigandi ásamt öðrum af) og þar yrði gerður sérstakur matseðill fyrir okkur á góðu verði og þar yrði borðaður kvöldmatur (klukkan eitthvað:D) og krakkarnir frá Mexico gætu jafnvel skemmt sér vel og skoðað jeppa og borðað góðann mat. Þetta er auðvitað á frumstigi at the moment og á allt eftir að þróast betur en hvernig lýst mönnum á þetta plan??
17.01.2007 at 02:45 #575966Sælir nú er ég ekki gáfaðari en það að ég fatta ekki hvað þessi hvítu loftnet eru fyrir þessi sem eru ekki eins og venjuleg loftnet heldur breiðari og aðeins stærri en standard VHF loftnet minna mig helst á sjónvarpsloftnet eða ég veit ekki hvern fj…. ég á að halda en ég er ekki að meina SSB loftnetin stóru þessi eru ekki svo stór en samt slatta massíf
spyr sá sem ekki veit
Dabbi
17.01.2007 at 02:28 #575630merkilegt að ég skuli ekki vera einn vakandi hehe svona er að vinna frammeftir en alltaf getur maður notað 4×4 til að taka smá pásu enda frábær vefur en ég ætlaði ekki að babbla um það!!! dekkjastærð í ferðirnar verða líklegast lágmark 35" allavega var það alveg lágmarkið í langveiku barna ferðinni í fyrra svo hjalti minn ég reikna nú með að þú komist með sko allavega í seinni ferðina en varstu ekki að spá í að setja stærri barða undir ofur lúxinn???? ég get mætt með suðugræju slípirokk og sleggju ef þér langar að breyta:D
Kv næturdabbi R-2856
p,s, Ef einhver á freestyle myndir þar að segja frjálsum stíl myndir af snjóbrettum og/eða skíðum má alveg lána mér fyrir námskeið það væri vel þegið!!! Einnig ef einhver veit ca tölu á 35"+ breyttum jeppum hér á landi væri það líka vel þegið en já aftur að Mexico:D
17.01.2007 at 01:45 #199415hvernig er það nú á ég 37″ dekk á 8 gata felgum sem ég hef hugsað mér að nota sem varadekk fyrir 38″ runnerinn og félaga mína 2 sem eru einnig á 38″ bílum með 6 gata deilingunni en felgurnar eru 16″ eða 16,5″ man ekki alveg mér hefur allavega ekkert gengið að fá felgur fyrir þessi dekk sem passa undir minn svo ég spyr eru ekki einhverjir færir kallar sem skipta um miðjur??? og hvað er svona að kosta er með 2 stk sem þarf að breyta.
og annað passa ekki örugglega sömu felgur á mmc L200 árg 2003 og 4runner/hilux 1991 árg?????
Kv Davíð R-2856
16.01.2007 at 23:57 #575624Ég held að málið sé að gera þetta bara að góðri ferð á jökul þrátt fyrir að einhverjir séu móðgaðir yfir því að ég hafi talað um eldsneyti frekar en samlokur og gos:D en já frábært að menn séu til í þetta og verðið á fáknum skiptir ekki máli það er hugurinn sem gildir jahh og skemmtunin en það er bara næsta mál að panta gott veður:D og Axel þú bara mætir í ferðina með Einstök Börn og þá færðu örugglega samlokur og jafnvel grill eins og síðast.
með Chili kveðju Davíð R-2856
16.01.2007 at 21:24 #575614jæja fékk tímasetningu og verið er að spá í laugardeginum 17 mars eða sunnudeginum 18 mars.
mikið hefur verið tjáð sig í öðrum þræði um leyfi og dæmi fyrir að fá olíu/bensín styrk fyrir þessa ferð en ég má greinilega redda samlokum og gosi en ekki eldsneyti eftir því sem ég best skil (sjá ísrael eikkvað þræðinum) sem mér finnst auðvitað út í hött en það stendur samt áfram til að halda þessa ferð eins og áður var planað þrátt fyrir að bannað sé að keyra börn sín í skólann!
Kv Davíð sem hefur engin leyfi greinilega:D
16.01.2007 at 21:15 #575692mikið er um að fólk slái saman til að fara í ferðir bæinn ball rúntinn eða hvað sem til fellur og hefur það einnig tíðkast að sá sem er bílstjóri fær kannski kók og pulsu fyrir að geta skutlað. Hvernig er það ég og fl vorum með ferð fyrir langveik börn og fengum við borgað í formi matar og drykkjar frá nokkrum fyrirtækjum er það ekki svipað?????? á ég að ráða þá sem hafa atvinnu af fjallaferðum að fara með langveik börn í ár á jökul????? má ég láta farþega borga hvalfjarðargöngin ef ég skutla honum ?? eða fæ ég sekt við því???? spyr sá sem ekki veit
davíð sem er bara 23ja og ekki lögfræðingur
á ég að þora að eignast barn ef ég má ekki keyra það???
16.01.2007 at 20:48 #575908já þeir ættu að koma honum inn en þeir eru fljótlega að loka fljótlega svo betra að flýta sér
kv dabbi
16.01.2007 at 17:26 #551194félagi minn var á l200 á 35" og óbreyttum hlutföllum svo fór hann í 38" og þá er bara milligír í þeim bíl sem er nokkuð sniðugt og þægilegt og sá bíll er líka á orginal hlutföllum en super swamperinn er seldur í gúmmívinnustofunni og mickey Thompson er held ég í fjallasport en veit ekki hvað benni selur annað en mudder gæti verið MT
kv dabbi
16.01.2007 at 17:21 #575852hún gæti gert buisniss úr þessu hehe
dabbi
16.01.2007 at 00:08 #575610Æðislegt að fá svona viðtökur og það er alltaf æðislegt að geta boðið þeim sem fá ekki að njóta stórbrotinnar náttúru íslands eins og við erum vanir. Ég var að tala við þann sem bað mig að taka þetta að mér og sagði honum að ég væri að fá svona góðar viðtökur svo núna verður pressað á að fá nákvæma dagsetningu fyrir þessa ferð og mun ég koma henni á netið eins fljótt og ég get. Einnig er ég opinn fyrir öllum hugmyndum eins og ef ykkur finnst að við ættum að fara á annann jökul eða hvort hægt sé að bjóða uppá einhverja skemmtun á jökli eða já bara hverju sem er…
og svo má auðvitað ekki gleyma ferðinni fyrir Einstök Börn þ,a,s fyrir sömu og við fórum með í fyrra en sú ferð verður seinna í vor og vona ég að ég fái góðar viðtökur fyrir henni einnig og óska ég þess að sú ferð verði jafn frábær og í fyrra eins og margir muna eftir en fyrir þá ferð verður aftur reynt að fá styrki og hafa jafn æðislegt og í fyrra og eins og ég sagði áður þá get ég ekki gert neinar framkvæmdir nema með ykkar hjálp (ekki bara þeirra sem skrifa í þennan þráð heldur félaga 4X4 og jeppaáhugamanna almennt ) sem leggja sig og bíla sína til í þessar ferðir en ræðum meira um langveiku ferðina seinna. ég allavega vonast eftir svona viðtökum áfram eins og komið er nú þegar fyrir "Mexico" ferðina og eins og ég sagði þá er ég opinn fyrir öllum uppástungum og athugasemdum nema þegar kjánar gera grín að mér eins og gerðist fyr í kvöld (nefni engin nöfn) sumir hafa kannski ekki gaman að því að gera þetta sem ég er að reyna að koma í gegn en það er óþarfi að gera "grín" að manni en ég er nú samt ekki fúll þar sem margur er kjáninn til:D… hehe
með von um áframhaldandi góðar viðtökur og frábæra ferð á fjöllum í Mars.
Davíð Karl R-2856
15.01.2007 at 21:11 #575652ef þú ætlar að skjóta á mig þá er lágmark að gera það almennilega sko hehehe
ekki týna tölunni
dabbi
15.01.2007 at 20:54 #199389Sælir félagar….
Ég fékk símtal í dag og var beðinn um að taka að mér að halda ferð á Íslenskann jökul með börn frá Mexico á aldrinum 6 ára og uppúr í Mars. Þessi börn hafa ekki séð snjó áður eftir því sem mér var sagt og fannst mér forréttindi að það hafi verið beðið mig að reyna að halda þessa ferð. En ég get ekki haldið þessa ferð án ykkar hjálpar þar sem ég keyri ekki marga bíla á jökul! ég hafði hugsað mér að þar sem þetta er ekki beint eins og ferðin með langveik börn þar sem bílstjórar gefa t,d eldsneyti í þá ferð og ætla ég að reyna að fá eldsneytis kostnað borgaðann fyrir bílstjóra. Fyrstu tölur eru að þetta sé um 16 manna hópur sem getur vel stækkað eitthvað. ég þarf um 8 bíla með bílstjóra eins og staðan er núna og er planið líklegast Langjökull dagsferð. Ekki er komið á hreint með nákvæma dagsetningu enda er svolítill tími í þetta og langar mig að fá sem mest feedback á þetta en eins og ég segi er þetta bara í vinnslu eins og er. Gaman væri að fá að vita hvernig ykkur finnst og fá ráð ef þið hafið að gefa. en ég held að það væri frábært að gera þessa ferð að veruleika og börnin yrðu held ég mjög ánægð og eins og ég sagði áður þá reikna ég fastlega með að ég láti bílstjóra fá eldsneytiskostnað greiddann eða að einhverju marki allavega og svo fá menn auðvitað ánægju og fá að jeppast sem er auðvitað aðal málið:D Endilega látið skoðanir ykkar í ljós.
Mexico Kveðja Davíð R-2856
15.01.2007 at 01:29 #575356ég þori ekki að sverja það en ég frétti að Arctic Trucks væru að bjóða einhvern góðann díl á 35" Dick Cepek dekkjum getur prufað að rúlla til þeirra og fá verðtilboð
Kv Davíð
12.01.2007 at 15:09 #199356Veit einhver hversu margir breyttir jeppar eru í okkar þjóðfélagi og hversu margir eru virkir innan okkar sem og annara samtaka hér á landi, hver ca fjöldinn sé og ef fjöldinn er ekki hægt að fá að vitja þá hversu margir eru virkir í þjóðfélaginu og hversu margir stunda þetta að alvöru,
Davíð K R-2856
09.01.2007 at 21:47 #574720sko félagsgjaldið sem slíkt borgar sig upp á fyrsta brotna drifi svo þú getur verið óvirkur félagi og svoleiðis fengið gjaldið endurgreitt sem slíkt, félagsskapurinn sem slíkur er ekki metinn til fjárs þar sem hann er frábær og klíkur eins og þú orðar bjóða meira segja mönnum eins og mér með í ferðir og er ég aðeins 22ja ára strákur og hef meira segja haldð eina ferð sjálfur þar sem meira en 30 bílar komu með og var mér hjálpað ótrúlega við að láta af þeiri ferð verða sem tókst alveg frábærlega, ég er með 4×4 rásir og nokkrar ferðafélags íslands rásir inná VHF inni minni bara því ég er félagi í ferðaklúbbnum 4X4 og hef ég lært margt nytsamlegt á opnum húsum 4X4 og flr og hef ég fengið frábærar viðtökur hjá öðrum félögum sem og formanni og stjórnarmönnum klúbbsinns ef því er að skipta en það eitt að vera gildur félagsmaður margborgar sig og hef ég verið félagsmaður frá 2002 og er ég fyrst að taka einhvern þátt að viti fyrst í byrjun 2006 og hef ég þau 4 ár sem á undan liðu farið mikið á mis við þann félagsskap sem mér hefur boðist…….
4X4 kveðja Davíð R-2856
09.01.2007 at 00:21 #573768sammála tryggva allt kom í ljós og flott ferð í alla staði jahh eða ágætis bíltúr allavega
rosalegt með dekkið samt 1/2 meters gat í swamperinn!!
góðir tímar
Davíð
Hefði svosem komist á rönner í afturhjólaþúveist;)
08.01.2007 at 21:00 #573592var bent á myndir af ferðinni vona að eigendum sé sama að ég pósti þessu hérna ef ekki þá bara láta ljós sitt skína:D
http://tryggviogkristin.vefalbum.is/mai … temId=2693
hræðilegt að sjá þetta
kv Davíð R-2856
08.01.2007 at 00:10 #573848hvaða djók er það að breyta honum fyrir 38" og setja hann svo ekki á gorma að aftan?????? en gaman verður að sjá hvernig hann reynist og með 3 L mótor
Davíð R-2856
07.01.2007 at 01:12 #574148jahérnahér ég hefði átt að koma á 38" Runner (bara afturhjóladrifinn notabene) og kippa ykkur upp og koma ykkur fyrr til byggða:D
en hvað á það að þýða að 44" sé lítið loksinns þegar ég er að spá í að fá mér 44"???? einhver?????
38"kveðja Dabbi R-2856
-
AuthorReplies