Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
28.01.2007 at 10:46 #577658
jæja þá var ég að lenda eftir um 25 klst rúnt sem var um 200 km að leið allt gekk vel eftir að vil skildum við litludeild en færi var erfitt og mikið var hjakkast og vorum við um að ég held 8 klst að komast 12 km sjónlínuleið inn á línuveg. annar mussoinn var með bilaða löpp og affelgaði tvisvar og rifnaði kantur örlítið í seinna skipti, en þá var bara notast við lím og tappa og viljum við meina að við séum afbragðs dekkjakallar á fjöllum. björgunarsveitin Ársæll kom á 2 44" land roverum og hjálpuðu til með að losa þónokkrum sinnum og eiga þeir menn hrós skilið þeir spöruðu okkur eflaust lágmarki 2 tíma í festum og veseni. skildum við svo við björgunarsveit þegar komið var áleiðis á línuveg eftir mikið krapaævintýri, slæmt var að við höfðum engin tök á NMT síma en gátum eins og stendur ofar látið af okkur vita um kl 2 með GSM en verst finnst mér að hafa þurft að valda fólki áhyggjum en allir eru komnir heim í bólið núna öruggir og allir bílar í lagi (að mestu) búið er að ráða bót á tóbaks matar og drykkjarvandamálinu strax og komið var í bæinn en vorum við í þeim bíl sem ég var í farin að setja snjó í flösku og láta bráðna (ojjj) en gott að öll verkefni dagsinns hafa gengið þónokkuð vel (enn laugardagur hjá mér ATH)
en jæja Góða nótt
Davíð Karl R-2856
27.01.2007 at 02:41 #576874jæja þá eru bílarnir klárir fullir af olíu og brúsrnir líka (minn er sko í fríi) og mæting 08:30 á select suðurlandsbraut og allir að mæta með góða skapið farastjóri verður Kjartan ásamt Lauga (sem ég truflaði á kóræfingu:S) og skal bara stefnt í frábæra ferð.
Sjáumst hress í fyrramálið
Davíð R-2856
26.01.2007 at 12:58 #576860Jahh ég verð að viðurkenna að "aðferðafræðin" sé svoldið spes en þrátt fyrir að ég viti ekki hvert skal halda veit ég að ég er allavega að fara með 3 bíla á fjöll í fyrramálið og hef ég fulla trú á Lauga og Kjartani.
en athuga verður að færð veður og fleira setur strik í reikninginn og verður að hafa það svoldið að leiðarljósi, því jú ekki förum við með 31" meðalþungann jeppa í eitthvað krapasull sem aðeins 38" og stærri eiga eitthvað erindi í en hinsvegar þá erum við búin að fá svona sirka á hvaða slóðir við ætlum og við vitum að öllu jöfnu að við fáum að jeppast aðeins og spreyta okkur svo höldum góða skapinu og bíðum aðeins lengur
Kv Davíð Þolinmóði R-2856
26.01.2007 at 02:52 #577012jújú anton minn CB er talstöð og þú ættir að geta notast við hana að einhverju marki annars er VHF málið en það eru margir eins og ég en ég er með bæði CB og VHF í mínum bíl og nota CB bara fyrir félaga mína sem hafa ekki efni á VHF en það er bara gott mál að fá sér VHF
KV Davíð R-2856
26.01.2007 at 02:18 #577174já mér datt í hug að hann væri ekki orginal en hinsvegar var logið að mér að hásingarnar undir V6 bílnum Hilux/4Runner séu stærri en í 2,4EFI bílunum minnir að einhver hafi sagt 8,8" sel það ekki dýrara en ég keypti það
Kv DabbiV6 R-2856
25.01.2007 at 19:24 #577284Alli Bridde í Briddebuilt ætti að geta soðið svona saman fyrir þig á engri stundu ef ekki er brjálað að gera hjá honum en mjög fagleg vinna og frágangur og sanngjarn á verð hann er uppá höfða á móti SMS bara fara og ræða við kallinn
Kv Davíð
25.01.2007 at 19:21 #576836er ekki málið að gera bara frábæra ferð úr þessu við komum nú 31" musso á jökul í fyrra í lala færi og rav í jahh harðfenni reyndar 😀 *hóstMHNhóst* no hard feelings en ég hef fulla trú á að við getum kíkt eitthvað í snjó enda verður eitthvað að "fullorðnum"bílum þarna
Kv Davíð R-2856 aka kennari:D
25.01.2007 at 19:18 #577168ég er einmitt í svipuðu veseni með aftur lásinn minn sem er úr hilux held ég (held að hann komi ekki orginal) er þetta sama systemið og í hiluxinum???
Kv Davíð R-2856
25.01.2007 at 02:26 #576924Ég verð bara að segja að mér finnst það hreint og beint rugl að menn séu að kvarta yfir þessum hvað er þetta 4200kr??? við höldum uppi skálum erum með húsnæði (mætti nú alveg fara að gera eitthvað í húsnæðismálunum *hóst benni hóst*) hvernig fór með húsnæðið sem flubbarnir buðu okkur??? er það dottið uppfyrir???.
svo má náttúrulega nefna starfsmann klúbbsinns hana Agnesi sem á hrós skilið fyrir sína vinnu og stendur hún sig með eindæmum frábærlega í þessu.
svo er það að leigja þarf sal FÍ fyrir hvern félagsfund (þ,a,s á meðan við höfum þann sal) sem kostar eflaust skildinginn….
mér finnst félagsgjaldið lágt miðað við önnur gjöld (sbr hér að ofan) og mætti mínvegna hækka aðeins og leggja meira í viðhald á setrinu eða öðrum skálum, koma húsnæðismálum í lag og síðast en ekki síst þá eru félagsmenn klúbbsinns alltaf tilbúnir að bjarga öðrum jeppamönnum sem eru í ógöngum. Ég vill samt taka það framm að ef út í það er farið þá vill ég ekkert borga meira en ég er alveg tilbúinn til þess vegna þess að það er svo ótal margt sem klúbburinn þarf að standa undir. jújú félagsmenn eru margir og innkoman eflaust eitthvað há þegar á það er litið en spurningin er hún nógu há????
kv Davíð R-2856 stoltur félagsmaður
25.01.2007 at 02:04 #577006þú getur fengið að prufa hann á laugardaginn með litlu deildinni þar að segja ef farið verður sökum snjóleysis. þarf að yfirheyra klakann betur og fá þetta á hreint er sjálfur að koma 2 í sportið svo ég þarf að nota ferðina til að kenna þeim:D
með von um skjóta ferð Dabbi R-2856
24.01.2007 at 03:54 #576974ég mældi minn bíl í fyrra og fékk út 2,2 tonn með hálfann tank og 2 í bílnum svo setti ég helming og helming á viktina og fékk nánast 50/50 þyngdardreyfingu og hefur hann allavega flotið ágætlega hjá mér á jöklum og í snjó almennt. er á V6 4runner á 38"
Kv Davíð R-2856
24.01.2007 at 03:46 #576810bara uppfæra svo við förum vonandi að fara að fá svör:D
dabbi
24.01.2007 at 00:10 #576964margir eru að setja myndir af jeppanum/bílnum/hjólinu/sleðanum ég gerði bara eins og sumir sem ég hef séð setti mynd af mér það er mikið þæginlegra og þá getur maður tengt það allt saman í staðinn fyrir að vera alltaf að leita að bíl viðkomandi.
þetta finnst mér allavegana þæginlegra
Kv Dabbi myndasjúki
23.01.2007 at 23:45 #576960veit ekki alveg hvað málið er en veit að nokkrir hafa verið að lenda í þessu. Skora á vefnefnd að gera eitthvað í þessu
Kv Davíð Sem kann ekkert á vefinn
23.01.2007 at 21:11 #576884margir á 35" og veit um einn á 38" en held að ekki sé mikið til í þessa bíla svo sem hlutföll og læsingar og annað slíkt en annars veit ég það svosem ekki alveg en þeir eru bara flottir á 38"
kv Dabbi
23.01.2007 at 21:03 #576794Klakinn hann hlýtur að liggja á þessum upplýsingum er það ekki???
væri gaman að fara að fá planið svo ég geti dregið tengdapabba í túr:D
Kv Dabbi R-2856
23.01.2007 at 01:04 #576662Ég segi nú bara er til 44" ground hawk???? ég er á 38" gh og hafa þau bara reynst mér merkilega ágætlega og verið nokkuð ódýr líka eina kannski að þau eiðast pínu hraðar en önnur dekk hef ég heyrt.
Dabbi R-2856
19.01.2007 at 19:03 #575648góðir punktar en þar sem ég hef aðeins verið með eina ferð áður svo ég er enginn sérfræðingur í þessu þessvegna bið ég um leiðbeiningar því maður lærir ekki öðruvísi. þetta er rétt að þetta er full langt en ég var svona einhvernveginn að reyna að skeyta þessu saman þannig að hægt væri að enda á Tony’s County i ölfusi í lokin því þeir ætla að bjóða okkur frábærann díl þar en auðvitað vill ég stoppa og leyfa þeim að skoða og var jafnvel að spá í að redda nokrum stiga sleðum og leyfa þeim að renna sér niður einhverja brekkuna en eins og ég segi allar athugasemdir vel þegnar.
expl takk fyrir að bjóða samlokur:D
Kv Davíð R-2856
18.01.2007 at 00:08 #576046þú gætir prufað að tala við strák að nafni Birgir hann er rafvirkinn minn og getur örugglega hjálpað þér fyrir lítinn pening ef það er ekki of mikið að gera sakar ekki að reyna segðu bara að dabbi hafi sagt þér frá honum nr er 8688951 Birgir
Kv Davíð
17.01.2007 at 23:57 #575094er þetta einhver alda sem er að brjótast út hjá þessum konum því nú er mín búin að láta fjarstýringuna af sjónvarpinu mínu hverfa!!!!! ég á ekki til orð en sem betur fer þá get ég skipt um stöðvar og hækkað og lækkað á sjónvarpinu sjálfu svo auðvitað hefur maður netið til að kíkja á fréttir og annað nauðsynlegt
kv dabbi sem er að leita að fjarstýringunni:D
-
AuthorReplies