Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
01.03.2007 at 00:49 #582586
ætlaði að setja mexicoþráðinn inn á morgun en ákvað að gera það núna bara
vonast eftir liðsauka í því máli
Kv Davíð Karl
01.03.2007 at 00:46 #199816Jæja Jeppamenn og konur nú er að koma að þessari blessuðu ferð með börnin frá Mexico 17 Mars og hafði ég hugsað langjökul sem besta kost fyrir þessa ferð.
ég er ekki alveg kominn með á hreint hvernig verður með styrki og annað slíkt en það var búið að bjóða samlokustyrk frá línusamlokum og vona ég að það boð sé enn gilt.
það sem ég vonast eftir er að fá
Bílstjóra sem eru tilbúnir að leggja sig og jeppana sína framm fyrir þessa ferð
Fararstjóra sem þekkja Langjökul sæmilega og vita um áhugaverða staði eins og þursaborgir (sem flestir rata í) en einnig fleyri staði eins og íshellana og bara það sem ykkur dettur í hug,
frábært væri ef einhver hefur sambönd og getur hjálpað mér með styrki svo sem drykki og fleira sem væri gott að fá og munu þeir verða nefndir í fjölmiðlum ef einhverjir vilja fjalla um þetta (Einar elí endilega komdu með komment hvort þetta sé þess vert að minnast á )
og já Fyrst og Fremst þá er það í ykkar höndum hvort við getum boðið þessum börnum uppá ferð yfir höfuð því jú ég get lítið gert einn svo ég óska eftir allri hjálp sem ég get fengið!!!!!
en listinn hljóðar svona
Hópurinn samanstendur af 6 nemendum ásamt skólastjóra og 2 kennurum.
A Carolina Ramirez Florez 9 ára
Carlos Octavio Bermudes Razo 10 ára
Estefania Quintanar 12 ára
Emanúel Birkir Gómez Garðars 10 ára
Elizabeth Björk Gómez Garðars 6 ára
Monserrat Ramirez Florez 13 ára
Raquel Quijano skólastjóri
Veronica Ardisson Quijano kennari
Elín Hrund Garðarsdóttir kennari og túlkur
Við þetta bætast svo 2 íslenskir strákar sem hýsa nokkra af þessum ofangreindu.
eins og stendur eru þetta 6-13 ára krakkar plús þau 5 sem bætast við svo við erum að tala um 11 manna hóp og hafa í það minnsta 8 eflaust aldrei komið á jökul og eftir þeim upplýsingum sem ég fékk hafa allavega börnin víst ekki séð einusinni snjó!!!
endilega allir sem vilja leggja mér lið við að gera þessa ferð að veruleika sendið mér e-mail á davidkarl@btnet.is
ég held að ég hafi lágmark 35″ í þessa ferð svo hægt sé að ferðast sæmilega yfir jökulinn og vandamálum haldið í lágmarki (þó er benna formanni ef hann kemur heimilt að vera með sýnikennslu í að gera við á fjöllum og láta eitthvað bila eins og í maí í fyrra:D)
en eins og stendur hér að ofan þá vantar
menn/konur
jeppana
farastjóra (það má hver sem er bjóða sig framm í það sem telur sig geta það en það vantar 2)
og svo styrki ef einhver hefur sambönd og vill leggja mér lið
Með von um góðar móttökur
Davíð Karl Davíðsson Mexicovinur
6934878
svo auðvitað tjá sig hér í þessum þræði
01.03.2007 at 00:13 #582720er málið lang nothæfastar og skemmtilegar og svo þarftu eklki að vera í því sem ég persónulega þoli ekki en það er helv…. gjallið af pinnasuðunni
kv Dabbi
01.03.2007 at 00:07 #582582já hjalti minn það er rétt að toy er alltaf hrein fegurð í sinni bestu mynd sama hvaða flak það er (meira segja þinn gamli var nú fallegur á sinn sérstaka hátt:D) en ég skal sko koma í ferð með þér þegar ég er kominn á hásingu að framan og 4link að fr og aft. en hjalti minn leiðinlegt að segja þér en ég er bara raunsær að þótt þú fáir þér töllukubb og sverara púst svaka interkúler og allann pakkann þá muntu aldrey halda í mig 😀 þar sem rönnerinn er svo öflugur að ég fæ endalausar sektir fyrir of hraðann akstur og hann er bara kyrrstæður í bílastæði og sko ef ég fer í lága og gef onum duglega og kippi kúplingunni upp þá hendist hann svoleiðis áfram að ég dett afturúr honum og enda sitjandi í svaðinu með stýrið í höndunum:D…………..
ókei hann er ekkert öflugur miðað við eyðslu þessvegna ætla ég að koma eina dimma nótt og hirða mótorinn þinn og setja bensín relluna mína í húddið hjá þér múhahahaha
en í alvöru þá kemur að því að ég skipti yfir í diesel
spurning hvort ég fái þá dagatal eins og þú:D
Góðir tímar Davíð Karl Rúnkadur í rímíní
28.02.2007 at 23:52 #582574sko með Lancerinn þá átti að henda honum þegar ég kaupi hann og fæ ég hann á hringrásarverði sem ég náttla doblaði og seldi þér með 50% hagnaði sem hehh dugaði í ca korter hehe
en með tví þrí eða fjórhlauparann (misjafnt hvað hann er kallaður) varðar þá er hann ekki kominn með mosa því hann er nú hreyfður reglulega (nema þegar ég lána dekk undan honum til innanbæjarsprengjara:D) og það er reyndar satt hann er ágætis skemmtun fyrir börnin þar sem þau horfa á hann og hafa aldrei séð aðra eins fegurð og ég tala nú ekki um þegar litlu frændsystkyn mín fá að biba og þykjustunni keyra þá er sko kátt í höllinni en talandi um að láta bíla sína rotna niður þá er ég að spá í að taka eignarhald á 38" econoline-inum sem stendur útá plani en hann er búinn að standa þar í hátt í 3 ár óhreyfður og eigandin býr hér hvergi nálægt (kannski hann hafi verið brottnuminn af geimverum??? maður spyr sig jahh nú eða strumpar hafa étið hann það er annað hvort) en með rönnerinn þá fer ég að fá hásingu og er búinn að redda suðumanni og allann pakkann en vantar bara skúr sem ég get fengið afnot af ég er stopp þangað til en þetta fer allt að gerast bíddu bara og þá fölnar lúxinn þinn hliðiná hinni einu sönnu Rönner fegurð 😀 en ég held að ég segi þetta gott í bili jahh nú nema þú komir með eitthvað á móti þá skal ég sko glaður rugla meira:D
Kv Davíð hinn ó-af-ruglaði:D
28.02.2007 at 23:32 #582542Benni endilega bókaðu mig á listann fyrir alvöru loftnet þetta kolaportsnet er bara della að mínu mati!! en þessi loftnet skrúast bara í fótinn sem ég er með ekki satt??
Kv Davíð Karl
28.02.2007 at 23:20 #582570Maður fer á einn fund og þá byrja allir að þenja sig hérna!!!:D
Laugi 33"mussoinn sem ég á (ekki) fer örugglega lengra en þessi blessaði patrol þar sem jú ég er auðvitað undir stýri en fyrir þá sem ekki vita þá er ég guðdómlegur ökumaður (jahh eða þykist vera það) og ég tala nú ekki um að olíumælirinn í Musso er ekki bilaður (þótt ég þurfi að skipta um glóðarkerti , dempara, dekk, skera úr hækka, bóna og síðast en ekki síst þá er einn spíss óþéttur að mér sýndist í dag) svo tala ég ekki um þegar runnerinn er tilbúinn kominn á hásingu milligír og allann pakkann (stendur úti með 3 dekk föst og eitt liggjandi undir honum ekkert framdrif og enga öxla og klafa ennþá undir sér og hitt og þetta en bensínmælirinn virkar þó:D) ókei ókei ókei skódinn virkar fínt hjá mér allavega
ókei kannski ert þú betur settur en ég með jeppamál at the moment Laugi minn:D en ég kem aftur eða eins og frægt orðatiltæki segir "Minn tími mun koma!!!!!" en svona á alvarlegu nótunum er mælirinn kominn í lag hjá þér???
og Hjalti Toyotudýrkandi hvað á ég að segja við þig??? þú sérð ekkert annað en Toyotu svona svo aðrir heyri en ég veit eftir góðum heimildum að þú varst að hugsa um hvort þú ættir ekki að fá þér amerískt á alvöru dekkjum ???? Laugi hefur það þó framm yfir þig að hann er á alvöru dekkjum þótt hann sé kannski að bæta um litla stærð á bíb eins og við margir en við eigum þó stóra jeppa:D og Lancerinn það er alveg rétt hjá þér það er alvöru bíll nú enda seldi ég þér hann og græddi alveg 50% á þeim bíl (þó það hafi nú ekki verið mikil fjárhæð í þessum 50 prósentum:D)
og AddiKr þú kemst ekkert í þessa ferð þar sem ég ætla sko að hlekkja þig inní skúr og láta þig hjálpa mér að breyta mussonum sem ég á (ekki) og mun ég fóðra þig yfir þessa helgi á teiknuðum kartöflum og burtflognum kjúkling svo þú ert ekkert að fara í matarboð í Árbúðum og hana nú:D
og með kristinn sko það er lágmark að sprengja dekk í einhverju aksjóni en á planinu á NETTÓ kommon 😀
EN ATHUGIÐ!!!!!!! Allt sem ég segi hér að ofan er dagsatt rugl í mér og ætla ég ekki að særa neinn og vona að enginn taki þetta illa (þar sem jú allir sem ég er að hrauna yfir þekki ég og langar mig ekkert að þeir kötti á mig því eru þetta allt sómamenn allir saman) og er ætlunin að skemmta lesendum sem lesa þetta 😀 en ég reikna ekki með að ég komist í góugleðina þar sem mussoinn sem ég á (ekki) er jah örlítið bilaður en það er aðeins smávægilegt eins og stendur hér að ofan:D en góða skemmtun í árbúðum
og já
hjalti takk fyrir að ætla að plögga mér með 35" og felgur að prófa
Laugi Takk fyrir alla hjálp sem þú hefur veitt hingað til og frábæra framkomu þótt ég sé bara pínulítill ungur vitleysingur með kjaft og á stórum jeppa
Addikr takk fyrir hjálp hingað til og komandi bráðlega:D ég þarf einmitt að fá þig til að dæma spíssinn hjá mér á mussonum sem ég á (ekki)
Kristinn þú ert sómamaður (þrátt fyrir innanbæjarsprengingar:D) og hefur gefið mér góðar ráðleggingar við eitt og annað og ætlar meira að segja að hleypa mér í rokkinn annað kvöld (vonandi:D)
og þið hin sem ég nefni ekki. ég nefni ykkur seinna:D
og eitt enn vantar endilega myndir af Lauga og Kristni föstum í þessari ferð svo ég geti nú híað á þá:D
ofvirkniskveðja Davíð Karl Hinn kjaftrífandi
28.02.2007 at 12:33 #582554Já Laugi minn er það ekki eins með þinn bíl og minn?? hann bilar ekki hann fer bara í frí endrum og sinnum??? allavegana virkar toyotan mín þannig en já ég ætla að athuga hvort ég geti ekki mætt á góugleðina þrátt fyrir hvað það sé mikið að gera hjá mér með 2 bíla á skurðarborðinu og svo tilfallandi viðgerðir sem ég hjálpa til við og svo fr.
En ég innilega vona að það fari allt að ganga á góðan veg hjá þér og fjölskyldunni.
Góukveðja Davíð Karl og þreytta toyotan og litli mussoinn:D
hvernig er það get ég ekki alveg komist á musso 33" uppeftir?? hann meirasegja gæti verið kominn á 35" þegar að þessu líður???
28.02.2007 at 11:26 #582506nú það er enn betra að rikki sé komin með þær en eins og ég segi þá held ég samt að það sé alveg auranna virði að fá sér Kenwood og svo mæli ég með yaesu frekar en ICom byggt á því sem ég hef heyrt um yaesu og minni reynslu á ICom en ég vill taka það fram að þetta er aðeins mitt álit og endurspeglar það ekki álit annara á hvaða stöð sé best að velja, veit til þess að einhverjir séu mjög ánægðir með ICom
vona að þetta hjálpi eitthvað
Davíð Karl
28.02.2007 at 11:19 #582550Sæll Laugi minn og takk fyrir síðustu hjálp en hvernig er það kemur þú á góugleðina??? og kristinn sagði mér hvað hefði verið að patrol er hann kominn í lag aftur???
Kv Davíð Karl Dekkjalánari:D
28.02.2007 at 00:04 #582502aukaraf radíóraf radíó sigga harðar (aka bílanaust á höfðanum) en gott er að spá í vörunni áður en keypt er ekki bara kaupa eitthvað t,d AMG Aukaraf er með ICom stöðvar (ég er með þannig) þær virka fínt en ég er ekki nógu ánægður með mína en það er bara ég og verð er sæmilegt, Bílanaust (radíó sigga harðar) er með Yaesu stöðvar sem ég hef heyrt góða hluti af og þær eru einnig á fínu verði eftir því sem ég veit. RadíóRaf er með Kenwood og hef ég heyrt frábæra hluti af þeim en þær kosta víst aðeins meira en eru víst vel peninganna virði (ætla að selja ICominn minn og fá mér Kenwood sjálfur) en heimasíður eru http://www.aukaraf.is (ICom) http://www.rsh.is (yaesu) og http://www.radioraf.is (Kenwood) en minn listi er
1, Kenwood
2, Yaesu
3, ICom
4+, aðrar stöðvar eins og maxon oghvað þær heita allarvona að þetta hjálpi eitthvað
svo eru margir fróðlegir þræðir hér á síðunni um VHF eins og t,d VHF RULES mjög fróðlegur ef þú gefur þér tíma að lesa hann
Kv Davíð Karl
27.02.2007 at 16:59 #582310Ég átti Terrano 1 með þessum frammenda og reyndar eldri og var hann 33" með sömu vél eða 2,4 bensín og var sá bíll mjög skemmtilegur og hann var á orginal hlutföllum en skilaði sæmilegu afli og fór ég á jökul á honum og ferðaðist mikið og var það mjög skemmtilegur bíll með skemmtilega fjöðrun, en hvaða hlutföll eru orginal veit ég ekki en þau eru ekki of hág að ég held fyrir 33" en væntanlega fyrir 36" þar sem þau eru mun þyngri og breiðari en svari vitrari menn betur
Kv Davíð Karl
27.02.2007 at 15:30 #582420þetta er bara eins og með öll hjálpartæki þetta er mjög sniðugt og spennandi fyrst en þegar á botnin er hvolft þá kemur ekkert í stað gömlu góðu aðferðanna eins og t,d hvort á maður að treysta einhverri byssu sem segir það er x djúpt og bla bla bla eða treysta líkama sínum og finna tilfinningu dýptar og straums??? kannski er ég af gamla skólanum en ég vill helst vera búinn að finna tilfinningu dýptar og straumsj´æalfur áður en ég set bílinn minn (sem kostar svoldið meira en svona mæliapparat) útí á. ég allavega verð að segja að ég treysti þessu ekki svona í fljótu bragði og mundi ég mæla og vaða svo sjálfur þar til ég fengi reynslu á þetta
Kv Davíð Skoðunarsami:D
27.02.2007 at 02:24 #581758Þú segir nokkuð Benni minn, það er náttúrulega hárrétt hjá þér að menn eiga að segja sig bara úr klúbbnum ef að þeir ætla ekki að borga. en smá forvitni með þetta blessaða setur nú hafa margir talað um að þeir fá hreinlega ekki setrið jahh jafnvel hátt í ár þessvegna en ég er forvitinn um eitt með setrið eins og hjá mér það er eins og það hreinlega gleymist bara að senda mér setrið ca 3 hvern mánuð og hefur það verið svoleiðis meira og minna síðan ég gekk í klúbbinn í að ég held apríl 2002 þannig að það eru þónokkur hefti sem ég hef misst af en ég fullyrði samt ekki að það sé nákvæmlega 3 hvern mánuð heldur svona að meðaltali og hef ég heyrt marga tala um þessi setursmál hér á vefnum alveg frá því ég byrjaði að pikka hérna inn sem hefur verið um 2003.
ekki það að ég ætli að vera með einhverja frekju og leiðindi hér við erum eins og þú segir Benni jú mannleg og ég er alls ekki að setja út á klúbbinn!! sérstaklega þar sem klúbburinn og allir sem hann inniheldur hafa reynst mér mjög vel og hef ég eignast marga félaga í gegnum hann. Þetta er bara svoldið spúkí með setrið:D hmm er kannski reimt í klúbbnum???? og nefndarmenn afturgöngur:D
maður spyr sig
Kv Davíð Karl (með öflugt ýmindunarafl:D)
27.02.2007 at 01:28 #581754ég fékk nú miðann fyrir þónokkru síðan svo það er eitthvað ekki alveg að ganga upp hjá stjórn ef miði er ekki kominn og greitt var í desember. en ég verð að taka undir að þetta eru frekar asnalegar aðferðir þar sem um er að ræða félagsgjald og þú þarft ekki að vera félagi þetta árið frekar en þú villt og vextir og dráttarvextir og bla bla bla ég á ekki orð en kannski það sé rétt hjá jóni að þeir séu hreinlega að safna í gjöldin frá póst og fjar..
maður spyr sig
Davíð Karl sem er greiddur en vantar setrið.
27.02.2007 at 01:21 #582348Ég ætla aðeins að skjóta útí bláinn en fyrst hann var kominn í vöku er hann alveg örugglega orðinn að niðursuðudós núna held ég, annars átti félagi minn sjötíu og eitthvað módel af Cj-5 á 36" rauðann reyndar blæju sem endaði í vöku eftir að við rifum allt slátrið úr honum er nokkuð séns að ’66 bíllinn sé enn á götunni eða í uppgerð og þú hafir tekið feil á ’66 bílnum og 70+ bílnum???? bara vangavelta hjá mér????
Kv Davíð Karl
27.02.2007 at 01:15 #582306ég get semsagt ekki notað þig í cargo í næstu langveiku og einar ekki með pallhús:s bömmer það jahh þú þjónaðir nú síðasta ári (ferð) vel svo þú ert höfðingi fyrir það en bara gangi þér vel að finna góðann jeppa sem hentar þínum þörfum (sammála ég var á hilux og það vantar alveg plássið) og já ég verð að leiðrétta það er ekki 2Runner lengur heldur er það 3Runner þar sem ég lánaði kidda í litludeildinni eitt dekki og ótrúlegt að það hefur ekki lekið á netið en þá bjargaði ég honum með dekk síðasta föstudagskvöld því hann reif eitt af sínum í nettó í mjódd en þeir sem lesa þetta varið ykkur á steyputeinunum sem standa uppúr kantinum þar!!!! það varð dekkinu hans að falli (ca 3-4 cm rifa) en já tómi til að fara að sofa svo bara góðar stundir
Davíð Karl , Að verða hásingarvæddur og læti:D
26.02.2007 at 20:08 #582302Misskildi ég eitthvað sem ég sá hér á vefnum sem þú sagðir einhverntímann eða ertu búinn að selja L200-uðinn????
Kv Davíð (semvillvitaallt:D)
26.02.2007 at 14:43 #582298þess má geta að 33" og 35" er jafnbreið og því eru líklegast sömu kanntar fyrir þau (er að breytta musso hjá tengdapabba hann er á 33" og fer á 35" og þarf ekki að skipta um kannta) en svo aftur ´´a móti er 36" orðin breiðari eða 14,5" en 33", 35", 12,5" breið svo 36" þarf stærri kannta svo ef kanntarnir eru mikið breiðari en 33" er þá er líklegt að hann hafi verið breyttur fyrir 36"-38" dekk, og þú ert gjaldgengur á 35" en orðinn mun gjaldgengari á 38" þar sem meira flot og sv fr er í þeim en þau eru náttúrulega dýrari eins og við má að búast, hvernig er að keyra hann er hann lágt gíraður í háa drifinu?? ef svo er má vera að skipt hafi verið um hlutföll og ef svo er þá er hann eflaust fyrir 36"+ því yfirleitt (nema stundum) þá eru orginal hlutföll í 35" breytingu.
en með þessa bíla þá hef ég ferðast með svonabíl á 38" og var hann drulluseigur og virtist vera mjög skemmtilegur en það þarf auðvitað hver maður að dæma fyrir sig,
vona að þetta komi eitthvað að gagni
Kv Davíð Karl
26.02.2007 at 00:13 #582292Kenwood….. Rest my case!!!!!!
er í dýrari kantinum en er að því sem ég best veit laaang besta stöðin. skoðaðu þráð sem heitir "Vhf RULES" ég lærði mikið af því að lesa hann..
ég er sjálfur með ICom og ætla ég að skipta út ég er ekki hrifinn af þeirri stöð
vona að þetta hjálpi
svo er Yaesu líka flottar stöðvar
1 Kenwood
2 Yaesu
3 IComKv Davíð Karl
-
AuthorReplies