FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Davíð Karl Davíðsson

Davíð Karl Davíðsson

Profile picture of Davíð Karl Davíðsson
Not recently active
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 401 through 420 (of 964 total)
← 1 … 20 21 22 … 49 →
  • Author
    Replies
  • 06.03.2007 at 23:41 #583628
    Profile photo of Davíð Karl Davíðsson
    Davíð Karl Davíðsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1788

    Það er alltaf hægt að fá hana á Ebay býst ég við

    en er þetta ekki standard í patrol eða þ,e,a,s ef hjólabúnaður bilar þá setja amerískt undir, ef vél bilar setja amerískt í húddið?? það er allavegana orðið algengt

    Maður spyr sig:D

    Kv Davíð Toyotakall





    06.03.2007 at 23:35 #583568
    Profile photo of Davíð Karl Davíðsson
    Davíð Karl Davíðsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1788

    Hvernig suðugræju hefuru aðgang að og svo þarf að kaupa efni og dót

    veit um einn fínann suðumann sem væri kannski hægt að plata í þetta fyrir lítið þori þó ekki að lofa ég skal tjekka á því og láta þig vita en þó ekki næstu 2 helgar því ég er að fara að ferðast með honum þá.

    ætla einmitt að láta hann setja fourlink að framan og aftan á rönnerinn;P

    Kv Davíð Karl





    06.03.2007 at 19:26 #583548
    Profile photo of Davíð Karl Davíðsson
    Davíð Karl Davíðsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1788

    hjá kidda var þetta bara dekk hvað gerist ef að barn dettur og fær svona tein á hnakkann eða eitthvað álíka???? er þá verktakinn/eigandi hússins bara stykkfrí??? ég held nú ekki!!!!

    þetta er bara hreint og beint kjaftæði og ég segi sama og addi það væri gaman að vita hvaða verktaki þetta er!!!

    Kiddi smelltu inn mynd af teinunum og hvernig þetta var á föstudaginn þegar þú sprengdir þá sést hversu "vel" þetta var merkt!!!!

    og varst það ekki þú!! sem settir spítur ofaná teinana til að afstýra verra slysi??? ég held það

    Kv Dabbi pirr.is





    06.03.2007 at 18:54 #583562
    Profile photo of Davíð Karl Davíðsson
    Davíð Karl Davíðsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1788

    getur verið boltinn, fóðringar, brotin fjaðrablöð nú eða auðvitað það sem skeður stundum brotið augablað en það er væntalega ekki því þú hefðir séð það strax en er ekki um að gera að nota tækifærið og skella honum á gorma? nú eða loftpúða það er ennþá betra.

    kv dabbi sem fer á four link:D





    06.03.2007 at 17:45 #583460
    Profile photo of Davíð Karl Davíðsson
    Davíð Karl Davíðsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1788

    hvenar ætlaru að leika með stóru strákunum???

    Lowprofile er fínt á rúntinn en þetta er allt of lítið fyrir leikglaðann mann eins og þig er það ekki???

    jahh þú hefur að vísu verið nokkuð nægjusamur á báðum hiluxunum og ekki þorað í stærra:D (já mín saga svo ég ræð:D)

    Kv Dabbi





    06.03.2007 at 17:40 #199861
    Profile photo of Davíð Karl Davíðsson
    Davíð Karl Davíðsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1788

    Nú verð ég bara aðeins að tjá mig eftir símtal sem ég fékk áðan

    Sko eins og sumir vita þá varð Kristinn í Litludeildinni fyrir því á föstudaginn fyrir rúmri viku að hann keyrði á nagla eða öllu heldur steyputeina á stéttinni fyrir utan nettó,
    ókei slíkt gerist og kom 3ja putta gat í sæmileg 38″ DickCepek sem var undir Mussonum hans ókei það var ekkert í stöðunni en að kaupa ný dekk því ekki setur hann eitt nýtt dekk svo hann fær sér dekk fyrir einhverjar gloríur af pening eins og við vitum öll þá kostar þetta smá.

    jæja svo reynir hann að ná sambandi við yfirmenn Nettó sem er alveg skiljanlegt þar sem þetta var augljóslega þeirra valdur að láta ekki ganga frá svona teinum og loks þegar hann náði í yfirmenn þá var honum sagt að þetta væri ekki þeim að kenna að teinarnir væru svona og datt ekki í hug að bæta honum kostnað sem nemur sæmilegu 38″ dekki eða um 30 þús kr sem honum fannst sanngjarnt en ókei þeir benda honum á verktaka sem ég veit ekki hverjir eru en það átti víst að vera þeirra valdur að teinarnir stæðu þarna uppúr en allt kom fyrir ekki og fékk hann bara leiðindi hjá þeim!!!

    svo ég fór aðeins að pæla og ætla að nota Hjalta gamla sem dæmi (nota vinina:D) en ókei hann á bíl og segkum sem svo að ég sé að bakka úr stæði við hliðana á honum og ég legg á minn og ríf brettakanntinn af hjá honum og rispa bílinn hans rosalega með grindinni minni hvað gerist þá ??

    ef hann segir Dabbi þetta var af þínum völdum svo þú borgar þetta, hvað eg ég segji nei ekki séns þetta var sólinni að kenna eða eitthvað jafn fáránlegt ég meina auðvitað bæti ég tjón sem ég er valdur af það er bara common sense!!

    Það er bara svona dæmi sem fer í taugarnar á mér því flest fyrirtæki reyna auðvitað að sleppa sem best útúr öllu og kenna einhverjum öðrum um.

    eru ekki einhver bótalög eða eitthvað sem hann getur notað?? því jú þetta er búið að kosta hann þónokkra peningana og síðast þegar ég vissi var hann kominn yfir 200 þús á þessari rúmu viku og mér finst hann ekki vera að fara neitt framm á mikið frá þeim

    er ekki einhver lögfræðingur eða einhver fróður um svona mál eða eitthvað sem getur bent honum á varðandi þetta mál ???

    Kiddi áttu ekki myndir af teinum??

    Kv Dabbi pirr





    06.03.2007 at 17:20 #583540
    Profile photo of Davíð Karl Davíðsson
    Davíð Karl Davíðsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1788

    ég verð bara að segja að ég tilnefni ykkur fyrir bullverðlaunum í ár:D

    magnaður þráður:D

    Dabbi





    06.03.2007 at 17:18 #583456
    Profile photo of Davíð Karl Davíðsson
    Davíð Karl Davíðsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1788

    hvað segiru hjalti hvenar fæ ég svo að handleika nýja bílinn með slípirokknum og sleggjunni??? ég skal lofa samt að láta rafmagnið vera held að það sé best:D

    en já klafar eru bara yesterday dót sko bara rör og ekkert ves en já jón ég sendi þér e-mail endilega kíktu á það og láttu mig vita.

    Kv RöraDabbi





    06.03.2007 at 17:14 #582622
    Profile photo of Davíð Karl Davíðsson
    Davíð Karl Davíðsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1788

    hjalti minn það var magnað (þrátt fyrir að lítið sem ég man) en ég held að það sé fullkalt fyrir það núna en það er aldrei að vita hvað maður gerir ef við skreppum í pottinn á hveravöllum á laug þá getur maður kannski komið með einhverja brandara og jafnvel verið í flottri sundskýlu:P

    en í sannleika sagt þá er ég hættur að fara í ferðir sem enda á því að ég muni ekki eftir þeim! það er ekkert svo gaman svo ætli maður taki því ekki rólega en ég skal mæta með grillið og baukana það er ekki málið:D

    og já hvernig er með tunnugrillið sem var smíðað fyrir síðustu ferð í mörkina???

    Kv Dabbi (kindofsober:D)





    06.03.2007 at 17:08 #583452
    Profile photo of Davíð Karl Davíðsson
    Davíð Karl Davíðsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1788

    auðvitað braustu ekki lakkrísdrifin í gamlarauð því það var meiri kraftur í batterísborvélinni minn heldur en í honum:D neinei þessi bíll sem um ræðir er á klöfum að framan (nema búið sé að skipta því út) en þinn var á hásingu og svo er hann nú þegar búinn að brjóta eitt 5:29 hlutfall sem er eins og þú veist sterkara en lakkrísið og svo skiptir auðvitað ökulag máli líka en jújú það er ótrúlegt að gamlirauður hafi ekki brotið drif sko

    5:29 Amen

    Dabbi





    06.03.2007 at 15:51 #583444
    Profile photo of Davíð Karl Davíðsson
    Davíð Karl Davíðsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1788

    ég held að það eigi að passa en þori ekki alveg að fara með það en ertu að tala um framm eða afturdrif??

    Dabbi





    06.03.2007 at 14:59 #582618
    Profile photo of Davíð Karl Davíðsson
    Davíð Karl Davíðsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1788

    Ég er að fara í fyrsta sinn í árbúðir núna um helgina og förum við að öllum líkindum á föstudaginn og ég hef verið aðeins spurður um grillaðstöðuna þar.

    er grill þarna uppfrá???

    ef það er er það væntalega kolagrill???

    og er það kalt í skálanum að maður verður að vera í poka dugar sæng ekki??

    með von um svör svo ég geti svarað:D

    Kv Davíð Karl





    06.03.2007 at 14:13 #583042
    Profile photo of Davíð Karl Davíðsson
    Davíð Karl Davíðsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1788

    Jæja það er kannski að hann fari að breyta hegðun sinni og halda sig við umsamin mál þarna á Húsavík

    Kv Dabbi





    06.03.2007 at 14:11 #583494
    Profile photo of Davíð Karl Davíðsson
    Davíð Karl Davíðsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1788

    Sæl Barbara

    Hann Addi er ein alfræðibók um Musso og hann er að ég held ekki nettengdur mikið þessa dagana svo bjallaðu bara á hann í síma 8469005. hann er mjög líbó og er án efa snöggur að koma með lausn á þessu

    vona að þetta hjálpi

    Davíð Karl





    06.03.2007 at 14:08 #583440
    Profile photo of Davíð Karl Davíðsson
    Davíð Karl Davíðsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1788

    5:71 hlutfallið er að margra manna mati of veikt í hlutfall því mæli ég ekki með því og eins og Grímur segir hér að ofan að þá er það rétt að /runnerinn er með sverara drif en að ég held er það bara að aftan ég hef allavega notað framdrif úr 4Runner í 2,4 hilux ex-cab með góðu móti en það er eins og stendur hér að ofan best að láta vana menn stilla inn hlutfallið og talaði Arctic Trucks um 50 þús fyrir bæði hlutföllin við mig á sínum tíma sem gera þá ca 25 þús fyrir eitt hlutfall en verðið gæti hafað lækkað/hækkað síðan.

    svo þarftu að passa þig að keyra inn hlutfallið þ,e,a,s ekki taka á því af fullum krafti til að byrja með eins og með aðra hluti sem eru nýjir og svo hugsa um drifin og athuga reglulega hvort sé í lagi með olíu á drifum og hvort að nokkuð hafi komist vatn inn á þau er góð regla rétt eins og þú mælir olíu og annað slíkt.

    og þú ert búinn að brjóta sterkara hlutfallið núþegar hitt er bara lakkrís trúðu mér

    Kv Davíð Karl





    06.03.2007 at 12:35 #582788
    Profile photo of Davíð Karl Davíðsson
    Davíð Karl Davíðsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1788

    Að tryggvi mundi ekki beila hehe

    hvernig er krúserinn að standa sig?? búinn að laga hallann á honum?? kominn á 44"??

    en já bóka þig með

    Kv Davíð Karl





    06.03.2007 at 12:25 #582784
    Profile photo of Davíð Karl Davíðsson
    Davíð Karl Davíðsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1788

    Það er flott að við fáum þig í cargo svo samlokurnar og drykkir verður kalt (nema þú kveikir á miðstöðinni í pallinum hehe) svo það vantar bara einn bíl núna til að geta náð mínum lágmarks standördum en þeir fara framm á að allir komist til byggða þó það þyrfti að skilja eftir jafnvel 2 bíla

    þannig að ef einhver hefur ekkert að gera þann 17 þá bara skella sér í túr það hafa allir gott af þvíog hana nú:D

    Kv Davíð Karl





    06.03.2007 at 03:26 #583426
    Profile photo of Davíð Karl Davíðsson
    Davíð Karl Davíðsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1788

    Sæll Jón og leiðinlegt að heyra hvernig seljandinn stýrir þessum málum.

    En það er rétt hjá sigga að ég er að fara að hásingavæða rönnerinn þar sem mér fannst það vera það skynsamlegasta í stöðunni hjá mér þar sem ég ætla að hella mér út í meiri öfgafullar breyingar á næstu misserum, en ég lenti einmitt í svipuðu og þú ég semsagt braut frammdrifið hjá mér í sumar alveg í döðlur svo það var brugðið á að leita sér að drifi með húsi og öllu í klafana 7,5" og redda þar með málunum (það var áður en breytingarnar voru ákveðnar) og fékk ég drif með 4:88 hlutfalli eins og var í runnernum og kaupi ég drif af manni sem er mjög vanur toyotum og búinn að vinna við þær í nokkur ár (nefnum engin nöfn samt) og fékk ég drif úr Hi-ace sendibíl og fullvissaði hann mig um að það passaði og það þyrfti bara að skipta um pönnuna og flansinn til að þetta myndi smella í runnerin og ég auðvitað tók það gott og gilt þar sem umræddur maður ætti (hefði maður haldið) að vita þetta alveg á hreinu en nei þetta drif er visa-versa af Hilux/4Runner drifi og þetta passaði engannveginn og var ég einmitt búinn að ræsa einn til að hjálpa mér og við vitleysingarnir tókum upp á því að byrja að setja öxla í og ganga frá því en allt kom fyrir ekki og þurftum við að taka allt úr aftur og án þess að setja framdrif í bílinn.

    og í dag er ég með Runnerinn án framdrifs og öxla ónýtar hjólalegur spindla balance stöng að framan og flr og viti menn blessaða Hi-ace drifið er ennþá úti á túni hjá mér! Svo ég svona skil nokkurn veginn hvað þú ert að ganga í gegnum með þessi afturdrifskaup.

    en með hlutföllin þá skal ég segja þér að ég átti double cab á 38" með lengdum palli (mynd í albúmi) og var sá á 5:71 og það gefur auga leið að erfiðara er fyrir bíl að snúa 38" heldur en 35" eins og þú ert með og fyrir utan aukaþyngd sem var á lengdum bíl (held að þú sért ekki á lengdum:D) og var Hiluxinn hjá mér alveg hrikalega ömurlega gíraður og kunni ég aldrei við þessi 5:71 og þar að auki er helsti ókostur við þau að þau eru svo veik að það mætti halda að þau væru úr lakkrís þessi &#%$ svo ég segi ekki lægra en 5:29og hananú:D og þess má geta að runnerinn fer á 5:29 og mun hann verða breyttur þannig að ég hafi þann möguleika að setja 44" undir þó hann verði á 38" til að byrja með svo þú sérð það að ég er að vísu með v6 bensínmótor en hann fer ekki á lægri en þetta fyrir 44" hjá mér og ég get nokkurnveginn verið viss um að þinn (diesel) togi meira heldur en minn (nema það séu þessi 4:88 hlutföll að gera það hjá mér)

    en ég vona að þessi saga mín sem átti að verða mikið styttri geti hjálpað eitthvað en þú getur auðvitað reynt að auglýsa hér á vefnum um skipti við þig en ég á hvorki 5:71 né 5:29 handa þér því miður annars mundi ég redda þér á no time.

    Gangi þér vel með þetta og hikaðu ekki við að spurja.

    Kv Davíð Karl





    06.03.2007 at 00:41 #582780
    Profile photo of Davíð Karl Davíðsson
    Davíð Karl Davíðsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1788

    bara að minna á ferðina og enn vantar ca 2 bíla þann 17

    Góðir tímar

    Davíð Karl





    05.03.2007 at 19:43 #582610
    Profile photo of Davíð Karl Davíðsson
    Davíð Karl Davíðsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1788

    Jahh ætli maður verði ekki að sjá sér fært að koma með í þessa ferð og sjá hvort það verður ekki skemmt eitthvað sem nýbúið er að laga 😀

    sjáumst kát í árbúðum

    Kv Davíð Bíllausi:D





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 401 through 420 (of 964 total)
← 1 … 20 21 22 … 49 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.