Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
24.10.2008 at 03:55 #631540
Ég elska þegar það koma svona fréttir frá jarðeðlisfræðingum.
–Það er kannski ekki slæmt djobb, sitja bara og velja staði reglulega og segja við og við þetta gæti kannski gerst og þarna gæti mögulega gosið og svo á föstudögum þá er dregið úr glasi einn af mörgum miðum sem standa misjafnt á "eldgos" "jarðskjálfti" osvfr og lokað augunum og stungið pinna einhverstaðar á landakortið og voila möguleiki er á eldgosi þar á austurstræti 12B kemur í fréttunum og svo er auðvitað farið snemma heim enda föstudagur, svo er þetta örugglega fínt borgað:D
–Góðir tímar
Davíð
07.10.2008 at 01:42 #630534sem félagi minn lenti í og það leyndi sér ekkert þegar kertið fór á 200km/h út úr vélarrýminu. en þetta var lagað með nýjum kertum og !nýjum! þráðum og ath hvort allir þræðir gefi neista. nýlegir notaðir þræðir eru stundum ekkert betri en gamlir notaðir þræðir, ágætt að hafa það í huga.
07.10.2008 at 00:41 #630630ég hef sjálfur aðeins notast við Garmin 276 í bíl og líkaði vel við, tengdapabbi á svona tæki og er hann mjög ánægður með það. annars gætiru líka skoðað hvort kaupfélagið sé að fara að koma með einhverja pöntun á tækjum, þar ættiru að geta fengið góðann díl á góðum tækjum, sendu stjóranum mail á b@islandia.is og spurðu hann hvort hann sé að huga að gps pöntun og þjóðráð ef þú ert ekki í kaupfélaginu að gefa honum netfangið þitt og skrá þig í það, fullt af góðum hlutum á góðum verðum reglulega (allt jeppatengt meira og minna) nýbúið að panta ljósabúnað og annað svo það er mjög gott að fylgjast með þar
vona að þetta hjálpi Kv Davíð K
06.10.2008 at 05:57 #630564eftir því sem ég best veit þá erum við með einhvern samning við k2 eða vorum allavega, við erum allavega með auglýsingu á síðunni fyrir þá
Kv Davíð
26.09.2008 at 05:52 #629892ég mundi skjóta á svell og sprungur, ef þú skoðar þráðinn "kjaftasaga" þar segir frá ferð hlyns á vatnajökli "Þeir fóru upp hjá Jöklaseli og það var víst eitthvað svell upp í 100 m hæð. M.a. þurfti snjótroðara til að laga til einhverjar sprungur í svellabeltinu svo að fært væri yfir. Þeir foru inn á miðjan jökul til að forðast srpungur og þar var algjör fjarskiptaþögn" Einnig segir dagur frá "Mátaði þann bláa við sporð Langjökuls um daginn, eina bíllengd og rann sá blá strax til baka þó svo að dekkin hafi öll snúst í hina áttina"
–
en sleðafæri er auðvitað allt annað en jeppafæri en betra samt að fara með gát.Kv Davíð Karl
23.09.2008 at 16:00 #629842ég held að þetta sé norsk framleiðsla
11.09.2008 at 17:21 #629184klúbburinn átti til örfá magellan tæki að mig minnir en voru eitthvað í ólagi en veit ekki með hvort klúbburinn sé með leigu á gpsum núna, annars held ég að enginn leigi út gps best væri að óska bara eftir handtæki til leigu/láns hjá félögum klúbbsins, ef ferðast er í litlum hóp ætti eitt gps með korti að vera nóg sem væri bara staðsett hjá forustubílnum. ég veit til þess að margir hverjir innan klúbbsins eiga bæði hand og bíltæki og því hugsanlega einhverjir sem gætu leigt eða lánað handtæki að því gefnu auðvitað að því sé skilað í sama ástandi (þ,a,s ekki bilað eða ónýtt:D)
mér hefur amk verið boðið handtæki að láni fyrir ferð sem ég var með og var sá bíll sem átti að vera fremstur gps laus en svo breyttist planið og ég þurfti ekki á tækinu að halda, svo þú ættir að geta bjargað þér innan félaga klúbbsins ef enginn er að leigja út slík tæki (þ,a,s klúbburinn , fyrirtæki eða annarskonar samtök)
Mbk Davíð Karl
10.09.2008 at 01:22 #202890Mig langar að benda á þráð sem sýnir ljósmyndir af því sem við þurfum að gjalda þess að fórna fyrir stóriðju, ég hvet alla til að skoða myndirnar og allar blaðsíðurnar (sem eru 3 í augnablikinu) en þessi linkur er tekinn af áhugaljósmyndarasíðunni Ljósmyndakeppni.is en þar eru menn/konur ekki ánægt með stóriðju framtíðarinnar í tengslum við íslenska náttúru.. linkurinn er http://www.ljosmyndakeppni.is/viewtopic.php?t=32331&postdays=0&postorder=asc&start=0 ég kann ekki að gera svona fínann link eins og allir svo copy paste verður að duga þar til að einhver geti kannski reddað easy link inn á þessa síðu,
með von um sem minnstar breytingar á íslenskri náttúru
Davíð K Davíðs Jeppamaður og Ljósmyndari
03.09.2008 at 16:20 #628700félagi minn lenti í svipuðu með runnerinn sinn og það dugði til að fá hann í gang að taka háspennuþráðinn frá kefli og tengja aftur, ég mundi lesa á honum kóðann í tölvu til að fá hreint svar þetta getur verið svo margt
kv davíð
01.09.2008 at 01:42 #628520Það er flott að heyra að hann sé fundinn.
–
furðulegt með það að á hverju ári þegar byrjar að hausta þá er eins og einhver alda komi yfir og jeppum er stolið og þá sérstaklega þegar að snjóa tekur. Kannski er ég einn um að vera að spá í þessu en mér finnst þetta alveg merkilegt, maður ætti kannski að taka stýrið með sér inn á hverju kvöldi?? maður spyr sig.
–
–
Kv davíð K
18.08.2008 at 01:50 #627654Það náttúrulega toppar enginn íslendingana í mótorsporti það er alveg tærar línur:D
–
flottar fréttirKv Davíð K
06.08.2008 at 01:00 #626856Unnar skrifar Mér finndist það vera þjóðráð að "loka" þó ekki væri nema einni bensínstöð hálfan dag eða svo. Bílar myndu einfaldlega raða sér við allar dælurnar og vera þar um kyrrt (gott að mæta með skuldahalann til að taka enn meira pláss).
–
–
–
þegar við tókum örfisey þá náðum við að loka á aðalæð ólíuflutninga til allra bensínstöðva og verktaka frá holtavörðuheiði austur á klaustur. sú mótmæli voru friðsamleg svo lögregla aðhafðist ekkert eina sem vantaði var meira úthald í mannskapinn á þessum vordegi og fleyri mótmælendur, en þarna tókum við um hálsinn á snáknum ef svo má segja, enginn komst hvorki inn né út nema labbandi. en þó má skýra þar sem t,d fjölmiðlar rugluðu var að þetta var ekki aðgerð hjá 4×4 þó nokkrir meðlimir 4×4 hafi verið þarna heldur var þetta hinn almenni maður sem var hreinlega kominn með nóg af verðlagningu olíu, mér finnst flott eins og t,d mótmæli f4x4 þar sem halarófan fór niður í bæ og með dekk á alþingi og þessháttar en ef fara á í harðari aðgerðir þá er betra að hafa það low key og ekki svo hægt sé að kenna klúbbnum fyrir heldur frekar kenna 5-50 einstaklingum um,uppl um e-mail adressu mína er í mínum uppl hér á síðunni svo ef einhver er í uppreisnarhug þá bara pósta á mig einnig hef ég síma 6934878 (best að ná í mig seinnipartinn)
nú kvóta ég í mikinn mótmælanda og segi
VÉR MÓTMÆLUM ALLIR!!!Kv Davíð K
05.08.2008 at 19:01 #626846Heyr Heyr Lárus!!!!
–
Þetta er náttúrulega komið út í rugl, mér finnst að við þurfum að gera eitthvað í þessum málum og það sem fyrst hvort sem klúbburinn eða hópa saman sem almennir borgarar (svipað og við gerðum í Örfirsey)
–
Kv Davíð K (sem kaupir bensín ekki olíu:D)
31.07.2008 at 19:53 #626562þú þarft sérskoðun fyrir 33" já en ég hefði heldið að það væri nóg að setja bara hækkunarklossa milli fjaðra og hásinga (svo bara rokkur og sleggja) hérna fjaðrirnar liggja ofaná hásingunni hjá þér ekki satt?? ég mundi halda að 3" klossar milli hásinga og fjaðra væru nóg
25.07.2008 at 23:09 #626402áttu mynd af bílnum eða nákvæmlega eins bíl (sömu aukahlutum etc ef eitthvað) til að setja inn ?? er eitthvað sem sker þennan úr öðrum???? svo er þetta væntanlega glænýr bíll enda með 3ja bókstafa númer?
með augun opin
Davíð K
17.07.2008 at 21:55 #626130ef þú skoðar bara blað af Four wheeler þá finnuru án efa eitthvað handa þér og eins á summitracing.com en ég tek undir það að panta að utan ef þú getur (ef fjöðrun er óbreitt t,d) ib á selfossi eru mikið í influtningi á pörtum og hlutum frá ameríkunni og geta þeir örugglega gefið þér góðann díl á innflutningi ef þú villt ekki flytja inn sjálfur, þeir hafa flutt inn fyrir mig á góðu verði og fyrirtaks þjónusta og ég fékk hlutinn innan nokkura daga.
–
ég mundi athuga þetta og skoða t,d summitracing.com sem er mjög þæginleg síða til að vafra á áður en þú lætur smíða hérna heima
09.07.2008 at 20:51 #625654passaðu þig á því hvernig intakið fyrir loftið á musso er staðsett, það tekur inn ef vatn kemst í raufina milli ljóss og stuðara hægra megin. ég drap einmitt mússóinn hanst tengdó í ökkladjúpri krossá hér fyrir rúmu ári og komst að þessari skrítnu staðsetningu "the hard way"
–
Annars hef ég heyrt að hann addikr sé kominn með lausn á þessu vandamáli en þó hef ég ekki enn séð hvernig en það fæ ég vonandi að sjá á næstunni, þar sem mótþróinn hann ég keypti mér musso eftir allt saman,en góða ferð um sandinn
Kv Davíð K
04.07.2008 at 00:45 #202632mér langar að varpa spurningu til fróðari manna,
mér býðst nú 99 módel af musso óbreyttum með bensínvél 2,3l á fínu verði, en mig langar að vita hvort og hvernig þessir bílar eru og þá með bensínvélinni.
endilega segið mér frá hvað sé gott og hvað ekki
Kv Davíð K
01.07.2008 at 00:21 #625190ofsi skrifar
Þórhallur Þorsteinsson, formaður ferðafélags Fljótsdalshéraðs gagnrýnir það harðlega að Síminn hafi slökkt fyrirvaralaust á NMT farsímasendi á Slórfelli nálægt Möðrudal á Fjöllum í gær. Sendirinn hafi tryggt NMT símasamband á hálendinu norðan vatnajökuls og sé mjög mikilvægt öryggisatriði.Sendirinn hefur tryggt NMT farsímasamband á vinsælum ferðamannastöðum svo sem Kverkfjöllum, Herðubreiðarlindum, Öskju og Hvannalindum. Þórhallur Þorsteinsson, segir það alvarlegt fyrir félagið og almenning að slökkt skuli hafa verið á sendinum.
Hann segist ekki hafa fengið nein skýr svör frá símanum um ástæður þess að slökkt var á sendinum og hann er mjög ósáttur við að það skuli hafa verið gert fyrirvaralaust án nokkurs samráðs.
*
*
*
Vinur minn er einmitt Landvörður í herðubreiðarlindum og staddur þar núna og ég tala fínt við hann í gsm en þar var víst settur upp sendir þar nálægt fyrir nokkrum dögum, ætli það sé ekki ástæða nmt slökkvunarinnar (sem er út í hött að mínu mati)
26.06.2008 at 19:41 #625002þetta er frábært en jahh ég held að ríkisstjórnin eigi ekki eftir að leggja neitt og mikið á sig í að vernda náttúruperlnurnar okkar svo við verðum held ég að treysta á þá sem eiga perlurnar eins og t,d kerið ehf
-
AuthorReplies