Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
17.09.2007 at 17:00 #597278
Ef þú hefur áhuga þá á ég togstöng sem passar beint á orginal sextorsarminn í 4runner. Sér smíðað fyrir svona hásingaræfingar á 4runner.
Þú mátt bjalla ef þú hefur áhuga eftir kl 20.00 eitthvert kvöldið. Sími í prófíl,kv Hilmar Örn
16.09.2007 at 21:42 #597174Stutti cruser (60) eða (70) mann hvort hann er. Er með niðurgírun í háa. svo er bara spurning hvort sá millikassi passi á gírkassana í Hilux eða 4runner. Ég veit ekki hversu mikill niðurgírun er í þeim en það má örugglega finna það á netinu.
Eina vandamálið með þessa kassa með niðurgírun í háa er að úrtakið fyrir afturskaftið er hægramegin á kassanum, en ekki fyrir miðju eins og algengt er í Hilux og 4runner.
T.d í 4runner þá þarf örugglega að sneiða af olíutankanum til að koma skaftinu í svona kassa. Held að þetta sleppi betur í hilux en það er mun meira pláss þar til að koma þessu fyrir.kv.Hilmar Örn
11.09.2007 at 22:53 #596536Var ekki einhver að minnast á að ..Afturhaldssekkir.. væru klúbbnum ekki til bóta, hér í öðrum þræði. Nú er kannski kjörið að rífa sig uppúr hjólfarinu sem liggur uppí Setur og prófa eitthvað nýtt.
Það má alltaf prófa eitthvað nýtt og ef mönnum líkar það ekki má fara aftur ofaní sama gamla farið.kv. Hilmar Örn
08.09.2007 at 23:33 #596312Hann ætti að geta snúið 44" með twin turbo í húddinu.
"but it’s believed a twin-turbo version will produce up to 200kW and 650Nm for the 200-Series.
Maður ætti kannski að fá sér svona twin turbo á 3l disel runnerinn, yrði kannski erfitt á 4 cyl krílinu.
KV HÖS
08.09.2007 at 23:19 #596308Ef þú skrifar landcruser 200 í google þá færðu fullt af síðum.
hér eitthvað um bílinn.
[url=http://privatefleet.goauto.com.au/mellor/mellor.nsf/story2/0D5FE5A4D63E8CB5CA2572B8000661A1:13yqukxx][b:13yqukxx]lc200[/b:13yqukxx][/url:13yqukxx]
kv Hilmar
07.09.2007 at 12:01 #596198Olíuleki er ekki vistvæn svo að landrover eigendur þurfa að borga fyrir sín stæði áfram.
27.05.2007 at 08:11 #591516Fór í gær á jökulinn og var færið all verulega þungt, búið að snjóa svoltið og var snjórinn þannig að það var ekki hægt að keyra í honum. það var hægt að tommast áfram í lolo og þurfti setja í 1 til 2 pund til að eitthvað mjakaðist.
Það voru þarna nokkrir bílar bæði disel og bensin, 38 og 44 tommu, japanskir og amerískir, þungir og léttir og alla gerðir af dekkjum en ekkert virtist virka nema skriðgírinn.
En færið er fljótt að breytast svo um að gera að kíkja.
kv. Hilmar örn
05.04.2007 at 00:26 #585542það hljóta allar deildir að eiga rétt á rás og því spurning hvort þessar deildir þurfi að sækja um rásir.
En eins og ég sagði áðan ef að rásir 47 til 50 eru allar í notkunn á svæðinu sem þú ert á er hægt að athuga hvor hinar rásirnar eru lausar, og ef svo er þá er hægt að nota þær. þ.e.a.s Ekki nota þessar rásir sem fyrsta val heldur að hafa þær til vara ef það er mikil umferð í loftinu.
Oft er mikil notkun á talstöðunum og sérstaklega um páska og því rétt að hafa þetta í huga.kv.Hilmar Örn
04.04.2007 at 23:46 #585538mál ef að hjálparsveitinn er á fjöllum með stillt á scan og hlustar eftir félögum í vanda. En að vera á ferðinni með 16 bíla á einni rás sem tilheyrir annari deild er bara frekja. Það er kannski í lagi fyrir ykkur að nota 52 ef það eru margir hópar á jöklinum sem eru að nota rásir frá 47 uppí 50, en enginn hópur að norðan á svæðinnu svo að rásin er laus.
Kæri Gundur geturðu sagt mér hversvegna þú vilt nota rás 52 frekar en rásir 47-48-49-50. Skil ekki þörfina þegar þú hefur aðrar rásir til að velja úr.
Finnst mér það vera orðið æalgengara að menn séu að nota rásir landsbyggðadeildana, kannski er það bara af vanþekkingu því að menn vita ekki af þessari úthlutun á rásum. En núna veist þú það allavegana og getur því verið rétt stiltur þegar þú þarft að kalla á aðstoð við að láta bjarga þér úr einhverjum krappapytti um helgina.Gleðilega krapa páska
Hilmar Örn
vinur landsbyggðadeildanna
04.04.2007 at 22:06 #585534Gundur. Rás 52 er frátekinn fyrir Norðurlandsdeild og því ættu þeir og þeirra ferðafélagar að fá að hafa þá rás í friði.
Þegar maður er á fjöllum og heyrir í rás sem er tekin frá fyrir ákveðna deild gerir maður ráð fyrir að þar séu menn á ferð sem tilheyra þeirri deild, t.d ef maður heyrir í rás 52 gerir maður ráð fyrir því að eyfirðingar séu þar á ferð og getur þá kallað í þá.
Reykjavíkur deildin er með beinu rásirnar 47-48-49-og 50.
Vinnsamlegast hafið þetta í huga þegar þið notið beinu rásirnar.Sett hérna inn póst frá Tryggva R Jónssyni þar sem hann fer vel í gegnum þetta.
kv Hilmar Örn
Scangrúppur
4. júlí 2006 – 12:09 | Tryggvi R. Jónsson, 697 póstarÞað er greinilega nauðsynlegt að kaupa græju þar sem hægt er að setja upp scangrúppur.
Þá er þetta hér listi yfir það sem er leyfilegt fyrir félagsmenn í 4×4 (tekið saman af því sem er hér á undan):
24 Veður frá Loftskeytastöðvum
25 Veður frá Loftskeytastöðvum
26 Veður frá Loftskeytastöðvum
27 Veður frá Loftskeytastöðvum
28 Veður frá Loftskeytastöðvum
42 FÍ endurvarp
44 4×4 endurvarp
45 Almenn rás
46 4×4 endurvarp
47 4×4 beint almenn
48 4×4 beint almenn
49 4×4 beint almenn
50 4×4 beint almenn
51 4×4 beint Vesturlandsdeild
52 4×4 beint Norðurlandsdeild
53 4×4 beint Austurlandsdeild
54 4×4 beint Suðurlandsdeild
82 FÍ öfugt endurvarp fyrir 42
86 4×4 öfugt endurvarp fyrir 46
88 4×4 öfugt endurvarp fyrir 44
Þessi listi ef hann reynist réttur ætti heima undir "Fróðleikur" finnst mér. Félagsaðild að Útivist myndi væntanlega gefa aðgang að rás 41 til viðbótar.
Páll spyr upphaflega um rás 16 (neyðarrás). Er hún opin öðrum en björgunarsveitum? Hvernig er það t.d. með björgunarsveitirnar sem eru á hálendinu í sumar? Eru þær að hlusta á okkar skvaldur á okkar rásum (sem þær hafa leyfi til held ég…?) eða á að vera hægt að ná í þær beint (vhf-16) eða þarf að fara í gegnum 1-1-2 ?
27.03.2007 at 15:48 #586010Ætli að sunnan menn séu jafngóðir í að sprengja dekk á felgu og að keyra í hálku? snjóaði 1mm í nótt, og höfuðborgarsvæðið var eins og vigvöllur um 8 í morgun, bílar þvers og kruss og uppá umferðareyjum og inní runnum,
en samt þurfa þeir ekki nagladekk af því að þeir eru langbestir í öllu hahahaha.Strákar verið þið bara heima í sofanum þá lendið þið ekki í vesini.
kv. norðlendingurinn
17.03.2007 at 16:55 #584764ég á togstöng með enda sem passar á sektors arminn þannig að ekki þurfi að breyta honum. getur fengið endan og stöngina ef þú vilt.
21.02.2007 at 11:24 #581648ég er með þrýstijafnara frá Landvélum og er stilliskrúfa á milli pólana, þar sem maður plöggar í samband. hef ekki pófað að skrúfa hann niður en í botni er hann 8 bar.
kv. Hilmar Örn
16.02.2007 at 11:28 #580630þú notar diskana og dælurnar af klafabílnum.
setur speiserinn á milli disksins og nafsins. þarft að renna inna úr bremsudiskinum til að hann passi upp á liðhúsið.Góða skemmtun
11.02.2007 at 13:13 #579052við brúarsmíði og ræsi er áætlaður 840 milljónir fyrir utan vsk. þeir ætla örugglega að nota ódýrt vinnuafl við þetta.
07.02.2007 at 00:48 #579390að það sé box á bakvið plastið framanvið gírstöngina, fyrir neðan öskubaskan. held að það sé dagljósabúnaðurinn. mann það samt ekki 100% gætir prófað að kippa því úr sambandi.
07.02.2007 at 00:41 #579428eins og menn nota til að sofa á í tjaldferðalögum. Fæst í Rúmfatalagernum (reyndar bara á sumrinn) og í 66 norður. keypti svoleiðis um daginn og setti inní brettakantana hjá mér. Þægilegt að vinna með þetta og snikka til.
kv. Hilmar Örn
07.02.2007 at 00:33 #579000Mér finnst svolítið skrýtið að ein af rökunum fyrir malbiki yfir kjöl sé það að erlendir ferðamenn vilji það, eða það sé til að auðvelda þeim aðgengi að íslenskri náttúru.
Hvað með það sem við viljum, við Íslendingarnir sem höfum búið hér og notað þessa leið. Höfum við ekkert að segja ef erlendir ferðamenn vilja eitthvað annað. Þó er ég ekkert viss um að erlendir ferðamenn vilji malbikað hálendi, þeim finnst örugglega jafn spennandi og okkur að keyra um í nánast óspiltri nátturu. ( hvort vegslóði teljist til óspiltrar náttúru veit ég þó ekki)
Svo var sagt að við jeppamenn sætum einir að hálendinu, en þeir sem ættu bara fólksbíla fengju ekki tækifæri til að njóta hennar. Held ég að það sé þó frekar þannig að þeir sem hafa áhuga á að njóta hálendissins kaupi sér frekar jeppa, já eða hest, snjósleða mótorhjól nú eða bara gönguskó. Þeir sem hafa engan áhuga á að njóta þess munu hvort eð er ekki gera það á 90 km/klst.
Svo er líka búið að velta upp þeirri hugmynd í fjölmiðlum að banna þungflutninga yfir kjöl, ef nýr vegur yrði byggður, ég held að það sé prýðis hugmynd því þá er verkefnið fallið um sjálf sig. enda er aðal hugmyndinn við þetta að KEA og Bónus geti farið sem stystu leið með vörurnar sínar.
Ég styð hugmyndir Ómars, sem eru þó ekkert nyjar hugmyndir, að stytta og bæta þjóðveg 1, ég kem allavega ekki til með að sakna þess að keyra í gegnum Blönduós. Nú ef það skildi gerast þá hef ég alltaf möguleika á því að fá mér rúnt þangað.
Verndum kjalveg og aðra íslenska fjallaslóða. þeir eru einstakir og er ekki hægt að bæta það tjón sem slík skemmdaverk kunna að hafa í för með sér.
kv. Hilmar Örn
30.01.2007 at 22:16 #560684Þetta gekk ekki hjá mér, það kom upp – is not a valid nRoute file and could not be opened.
En það er nú samt allt í góðu Því Einar Lárusson var svo góður að senda mér skálaskrá í tölvupósti og gat ég importað þá skrá í nRoute með leiðingunum Sveins G og er ég nú kominn með skálaskrá í nRoute. Bara glaður með það og langar að þakka ykkur Sveinn og Einar fyrir hjálpina með þetta.
kveðja Hilmar Örn
28.01.2007 at 21:48 #560676Ég reynda að opna þessa skrá sem þú bentir mér á en fékk bara einhverja villumeldingu, er einhver spes kúnst við þetta eða hvað. Allavega gekk ekki, Takk samt.
Hilmar Örn
-
AuthorReplies