Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
02.03.2008 at 12:34 #615788
Ég er kannski ekki með beint svar við brettakanta hugleiðingum þínum heldur meira svona hugleiðing um þörf á felgubreidd fyrir þessa bíla.
Ég er með 16 ½ breiðar felgur og 44 dc undir mínum 4runner og þessa venjulega kannta sem eru fyrir 16 beiðar felgur. Ég held að það séu alveg nógu breiðar felgur undir ekki þyngri bíl en þetta en á 44 er hann 2.2 tonn.
Er búinn að prófa að keyra á 18 eða 18 ½ breiðum felgum og dc undir sama bíl og fann ég mikinn mun á því hve bíllinn lét mikið verr á vegi, rásaði mun meiri og var allur óstýrlátari.
Hásingarnar undir Þessum eru heldur ekki þær sterkustu og hafa menn t.d lent í því að [url=http://www.f4x4.is/new/photoalbum/default.aspx?file=ferdamyndir/5543/43801:1wzgxt0h][b:1wzgxt0h]brjóta[/b:1wzgxt0h][/url:1wzgxt0h] afturöxla og missa afturhjól undan með tilheyrandi tjóni. Með breiðari felgum ertu að auka álagið á hásingarnar og legurnar til muna.
Það getur Þó komið upp sú staða að 18 tommur felgur séu betri í einhverju ákveðnu færi en 16, en svona almennt séð held ég að 16 -16 ½ henti þessum bílum mun betur og þá ertu líka laus við að þurfa að sérsmíða vængi á bílinn.
Kv Hilmar Örn
ps. fyrirgefðu Ofsi að ég skuli linka á svona leiðindar mynd af Slóðrík.
16.02.2008 at 14:45 #614278Er búinn að vera með sömu yesu bílstöðinna ( vx 2000) held ég að hún heiti síðan 2002 og hefur hún reynst mér mjög vel, dregur fínt og hefur ekkert bilað.
Það er að vísu ekki ljós í tökkum en það skiftir ekki máli því að maður lærir um leið hvar hvaða takki er, nota aðalega 3 takka plús hækka lækka takkan.Kv.Hilmar Örn
18.01.2008 at 14:33 #610260Ef við fórum norður þá gerum við það. Endilega að bjalla á mig ef fleirri hafa áhuga að renna norður á Laugadag.
Hilmar Örn
894-4969
854-4969
18.01.2008 at 12:50 #610254Erum að spá í að renna norður sprengisand á laugardaginn á 2 bílum og í Laugarfell. Og til baka á Sunnudag. Ef einhverjir eru á leið á þessar slóðir á laugardag væri gaman að heyra af því og jafnvel að verða samferða yfir. Betra að hafa fleirri bíla EF menn festa sig illa.
Hilmar Örn
894-4969
17.01.2008 at 00:59 #609742Langar að þakka Lárusi fyrir kynninguna, hún var fróðleg og lærði ég nokkur atriði sem ég kunni ekki áður, þó búinn að vera með þetta forrit í nokkurn tíma.
Mæli líka með þessu námsskeiði fyrir byrjendur í mapsource og nroute, þetta hjálpar þeim sem lítið kunna á forritin að læra á þau án þess að læra af mistökunum, en það getur verið dýrkeypt að gera mistök með leiðsögutækin þegar menn eru á fjöllum. Í versta falli getur það kostað menn lífið.
Svo um að gera að fylgjast með og skrá sig á næsta námskeið.Kv Hilmar Örn
16.01.2008 at 23:45 #610480þú sérð allt um málið [url=http://www.aukaraf.is/images/Sta%F0setning%20Endurvarpa.pdf:3oc1l0s2][b:3oc1l0s2]hér[/b:3oc1l0s2][/url:3oc1l0s2] . Vantar að vísu endurvarpa 58 á Hlöðufelli á þetta kort.
kv.Hilmar Örn
12.01.2008 at 00:20 #609956Þú notar bara dísel vél úr 4runner, og málið er dautt.
02.01.2008 at 17:50 #608398Held að magnum hafi ruglast á bílum á brúnni við garðheima, minn er hvorki með bláa kastara né fulla öskubaka af sígarettu stubbum. Minn gengur líka fyrir eiginvélarafli og er powered by toyota svo magnum þarf að taka betur eftir.
Kv. Hilmar Örn
Grár Toyota 4runner á 44" með glæra kastara og tóma öskubakka
11.12.2007 at 18:04 #605860í Hafnarfirði voru með þessa kannta fyrir 38" og færslu uppá 11 cm. Ég notaði þá þegar að ég færði hásinguna aftur hjá mér um 16.5 cm. Voru á fínu verði miðað við margt annað.
Getur séð myndir af þeim í albúminu mínu undir Bíllinn.Kv Hilmar Örn
10.12.2007 at 16:12 #606270ertu þá tilbúinn til að fara að koma á fjöll fyrst bíllinn er kominn í lag. stefnan tekinn á fjöll 21 til 22 des.
kv. Hilmar
09.12.2007 at 23:50 #606210Það er ekki sama hvar í bænum maður er. Ég náði sambandi við 58 á bílastæðinu í spönginni en ekki á Höfðanum hjá N1. Fæ heldur ekki samband í 200 kóp eða niðrí bæ 101. Það er sennilega betra að vera staðsetur frekar hátt og ekki með mikið af stórum byggingum í kringum sig.
Kv Hilmar Örn
01.12.2007 at 13:50 #604428fyrir hjálpina eik og snjókall. Þetta hafðist hjá mér, vandamálið hjá mér var að files of type var stilt á gdb. er ég breytti því í all files að þá opnaðist þetta.
Takk fyrir trakið.
kv. Hilmar
30.11.2007 at 14:16 #604422skráin sem er [url=http://klaki.net/gutti/strutur/gps.html:3db0vm2h][b:3db0vm2h]Hér[/b:3db0vm2h][/url:3db0vm2h] og er gdb opnast beint inn í masource og sé ég þá alla puntana. en ég get ekki opnað gpx skjalið þá fæ ég bara tölu rununa.
Þannig að vandamálið hjá mér er að ég get ekki opnað gpx eða bara kann það ekki.
30.11.2007 at 14:03 #604420Hvernig get ég þá látið þessar skrár opnast í mapsource. þ.e.a.s breyt öllum þessum tölum
–
86.000000–
88.000000–
86.000000– [HTML_END_DOCUMENT]
86.000000í eitthvað sem er sýnilegt í mapsource.
Kv. Hilmar
30.11.2007 at 13:35 #604416Er með mapsource 6.12 en get ekki opnað þetta. Ef ég smelli á linkinn þá kemur bara upp óendanlegt magn af tölum. Ætti mapsource ekki að ræsa sig sjálf ef þetta er að virka og sýna trakið eða puntana.
kv. Hilmar
26.11.2007 at 08:57 #603210Takk fyrir það Snjókall.
Skil ekki afhverju slóðarnir eru hafðir hálf ósýnileigir í forritinu sem maður þarf að nota til að keyra eftir, það er meiri þörf fyrir að sjá þá vel þar heldur en í mapsource.
Kv. óánægður eigandi íslandskorts 3.5
25.11.2007 at 20:09 #603206Hvernig er það er einginn búinn að skoða nýja kortið í nRoute og athuga hvort slóðarnir eru ljósir eða dökkir.
kv. Hilmar Örn
23.11.2007 at 20:29 #603204Þá er ég búinn að uppfæra kortið hjá mér úr 2.01 í 3.5. Það er mikill munur í mapsource, allir slóðar greinilegri og mun meira af slóðum auk þess sem búið er bæta litina t.d. í vötnum.
Ef ég opna nýja kortið (3.5) í nRoute þá koma allar breytingar í ljós nema að slóðarnir eru ennþá í ljós gráu sem er mikill galli að mínu mati. Ein af meiginn ástæðunum fyrir því að ég fékk mér nýja kortið var að fá slóðana skýrari.
Ég nota nRoute nær eingöngu þegar ég er að ferðast og er þetta því mjög fúlt.
Mig langar að vita hvort þetta sama vandamál sé til staðar hjá öðrum sem eru komnir með nýju uppfærsluna, væri gaman að vita hvort þetta sé stillingar atriði hjá mér eða bara légleg vinnubrögð útgefanda.ps. er með map detail stillt á high.
kv. Hilmar Örn
23.11.2007 at 14:46 #604246Er með fini dælu og er með hana tengda við loftkút og pressustat sem slær út í 8 bar. Er með loftpúðana, arb læsingarnar og úrtak til að dæla í dekkin á kerfinu og eru enginn vandræði og hafa læsingarnar verið að virka fínt.
kv. Hilmar Örn
25.10.2007 at 16:55 #201035Eftir alla umræðuna um jarisinn og auglýsingar og það hvernig eigi að flokka auglýsingar, þá er kominn nýr vinkill í auglýsingamennsku á þessum vef, og þyrfti sjálfsagt að flokka hana sem einkamál.
Auglýsingin er svona..
Jeppi með kærasta óskast, Bílar
Heimir Jóhannsson, 24. október 2007 – 21:25Ég hef áhyggjur af eldri systur minni vegna karlmannsleysis hennar. Eftir stutt samtal við hana fundum við það út að draumprinsinn fyndist helst hér á þessum vef. Hér fyrir neðan er auglýsingin hennar:
Prinsessa fædd 1968 óskar eftir einum flottum útivistagæja. Helstu kostir æskilegir: Óheyrilega skemmtilegur, fáránlega fyndinn, ómótstæðilegur kroppur og nátturlega blíður, góður og fær á velli.
Æskilegir aukahlutir: Scarpa gönguskór, Cintamani flíspeysa, Northface úlpa, millet pakpoki og góður Garmin. (Eða ótrúlega ratvís af nátturunnar hendi)
Prinsessunni getur fylgt lítil upphækkuð súkka.
Prinsessan sjálf er sæt -skemmtileg – hress og grönn. Það er ekki lygi!!!!
Ekki myndi skemma fyrir ef að viðkomandi ætti gott spil, hefði magnaða fjöðrun, öflugan dráttarkrók , væri læstur að framan og aftan með og low gír. Góð tengdamamma engin fyrirstaða.
Hafðu samband: heijo@thekking.is
Það verður gaman að fá fréttir af því hvernig þetta gekk,
Þó svo að lýsingin passi vel við mig að þá er ég bundinn og kem því ekki til greina.
Hvernig er það er einginn á lausu ?
-
AuthorReplies