Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
05.01.2009 at 19:58 #635034
Veit ekki hvernig hann er akúrat í DAG en hann hefur staðið hérna í Kópavoginum og sá ég hann seinast í haust að mig minnir. Hann er orðinn dáltið sjúskaður, allavegana bodyið, byrjað að koma aðeins ryð í það þó svo að það hafi ekki verið alvarlegt, og sennilega ekki fengið bón býsna lengi. Veit ekkert um ástandið á kraminu.
04.01.2009 at 22:01 #636160Jón þú mátt bætta mér á listann, legg til ofurjeppa af bestu gerð.
kv. Hilmar Örn
31.12.2008 at 17:36 #635852Ertu búinn að skipta um plast tannhjólið sem að er í drifinu sem að stingst inn í millikassann. Þetta slitnaði einu sinni hjá mér það mikið að hraðamælirin hætti að virka, skifti um tannhjólið og allt í þessu fína á eftir.
31.12.2008 at 17:23 #635860Sælir.
Er með Range rover stífur að framan hjá mér og var alltaf í vandræðum með fóðringarnar þangað til að ég fékk mér polyurethan fóðringar. Síðan hefur þetta verið til friðs, að vísu bara búinn að vera með þetta í 2 ár en það er sá tími sem að orginal fóðringarnar entust en þessar eru enn í fínu standi. Auk þess varð bíllinn mun skemmtilegri í akstri á eftir, mun stífari þó án þess að það hafi eitthvað bitnað á fjöðrun eða þægindum.
Ég keypti fóðringarnar af [url=http://www.polybush.co.uk/:1d2wfp4b][b:1d2wfp4b]Þessum[/b:1d2wfp4b][/url:1d2wfp4b] og tók þær appelsínugulu.
kv Hilmar Örn
12.12.2008 at 22:54 #634562Hefur landi nokkuð áhrif á neysluvísitöluna
það blanda allir ……………….
skál
12.12.2008 at 22:38 #634442Sælir/ar
Kíkti í N1 á Nýbílaveginum í dag
Mobil super 3000 í 4L brúsa. 5580 kr sem gera þá 1395 kr/L
Mobil super 3000 í 1L brúsa 1505 krMobil 1 í 1L brúsa ca 2200 eða 2300 kr, kostaði ca 100 kr minna líterinn í 4L brúsa
Fór líka í Europris
Mobil 1 í 1L brúsa kostaði í um 2200 kr sem er þá svipað verð og í N1.KV. Hilmar Örn
10.12.2008 at 20:53 #203345Hafa menn eitthvað verið að bera saman verð á mótorolíu undanfarið, þá kannski helst á Synþetískum 5W-40 olíum eða 0W-40 eins Mobil 1.
Sá í N1 ( Bílanaust) um daginn að 1 líter af Mobil 1 var kominn yfir 1800 kr líterinn.
Hvaða olíu eru menn almennt að versla á bílana hjá sér og þá sérstaklega dísel jálkana. Var alltaf með ESSO ultron 5W-40 en hún fæst ekki lengur svo að maður neyðist víst til að skipta um tegund, því miður.
kv. Hilmar
26.10.2008 at 17:13 #631500úpps meinti OME Stýridempara en ekki tjakk
Setti OME stýrirdempara til viðbótar við tjakkin sem var fyrir í bílnum, þannig að ég er bæði með tjakk og dempara.
Tjakkurinn er frá Landvélum.
26.10.2008 at 13:18 #631496Þegar að ég setti runnerinn minn á 44 dekkin byrjaði ég á því að setja þverstífu fóðringar úr LC 80, nýja togstöng með LC 80 stýrisendum frá Marlin Crawler og fyrir var Stýristjakkur, Einnig setti ég stýrisarm frá Árna Brynjólfs á Hásinguna og passaði allar stífur flútuðu eins. Einnig voru ný stífugúmmí í stífunum á framhásingunni.
Síðan fór ég á rúntinn og kagginn skalf og nötraði allur saman, þá var farið aftur inn í skúr og settur OME stýristjakkur í bílinn og skinnur teknar undan spindillegunum og hert vel saman eftir tilfinningunni.
Eftir það var gamli alveg eins og hugurmanns og ekki til skjálfti í honum.
Það þarf að fylgast betur með spindillegunum Á eftir vegna þess að það er meira álag á þeim en ekkert sem er að hrjá mann.Kv Hilmar Örn
18.09.2008 at 11:44 #629404besta sem maður gerir fyrir patrol er að rífan.
Það eina sem er hægt að nota eftir slíkan verknað eru hugsanlega hásingarnar þó að þær séu ekki einu sinni gallalausar.
Annars er ég bara að skoða hvað er í boði í hásingum þyngd breidd hluttföll og fleira.en þetta er patrol þráður svo veit einhver þyngdina?
18.09.2008 at 08:09 #629400Takk fyrir það freyr.
En þyngdin á hásingunum vitiði hver hún er í 89-97 bílunum.
17.09.2008 at 21:53 #629396Vitiði hvað patrol hásingarnar eru breiðar. þ.e.a.s mælt frá því hvar felgurnar setjast að þegar að búið að skrúfa þær fastar.
07.09.2008 at 10:22 #629028Sæll
Ég er á 4 runner 44" með hilux framhásingu og notaði ég omi dempara frá bílabúð Benna og hann virkar bara fínt.
Passaðu líka að hafa liðhúsin vel stíf á spindillegunum annars skelfur þetta alltaf.kv Hilmar Örn
20.07.2008 at 14:54 #626150Ef að þú ert að flýta þér þá er betra að fara sprengisand og þá leið inn í öskju.
Slóðinn um vonarskarð er þokkalegur en svolítið grófur á köflum og er þá ferða hraðinn ekki mikill.
Þú þarft að fara yfir litla jökulsprænu við Svarthöfða en hún er ekki djúp eða vatnsmikil og ætti 31" að fara auðveldlega yfir ef það er ekki búinn að vera einhver vætutíð.
Slóðinn úr Vonaskarði og niður í Jökulheima er hins vegar mun meira krefjand þar sem maður þarf að fara yfir stærri jökulár og eru Sveðja og Sylgja þar stæðstar mynnir mig. Fór þarna í fyrra sumar um Verslunarmanna helgi og fór vatnið nánast upp á húdd á 44" tommu breytum bílum í dýpstu álunum. Reyndar var einhver belgingur í ánum þá.
29.04.2008 at 17:24 #621786prufa þetta. Settir flækjur á gamla 2.4 disel hilux dc sem átti. Þetta skilaði aðeins meira togi og hékk hann lengur í gírunum, en þetta gerði enginn kraftaverk fyrir þessa vél. Það var engin túbína í honum. Mig minnir að það hafi orðið töluvert meiri hávaði inn í bíl, sem lætur mann jú halda að það sé eitthvað mikið að gerast.
meiri hávaði=meira power
er það ekki?
Bíllinn fór ekki að virka almennilega fyrr en ég setti stærri vél í hann.
14.04.2008 at 08:31 #620404ef satt reynist. Ekki sé ég heldur þörfina fyrir að banna umferð ákveðina hópa á kostanað annara þar sem Það er nú ekkert mjög mikil umferð þarna á þessu svæði og ætti ekki að vera mikið um árekstra á milli hópa.
Ólíklegt finnst mér að þetta sé gert með vilja meirihluta heimamanna. Gaman værir að vita meira um þetta mál og hverjir standa að þessu.Ég hef nú keyrt í all nokkur skifti þarna um að vetrarlagi og aldrei rekist á neinn á svæðinu nema ég hafi einfaldlega vitað um viðkomandi og farið til að hitta hann.
25.03.2008 at 14:40 #618426Þetta er að verða eins og á hinu háa alþingi, stofnaðar nefndir og ráð alveg hægri vinstri um sama hlutinn.
En gott að vita að það sé verið að vinna í þessu á fullu og vonandi að þetta skili okkur því sem við vonumst til.
Ein spurning til ferlaráðs (eða Ferlanefndar) er eitthvað samstarf haft við sveitafélög í þessu verkefni, Þau hafa jú valdið í þessu slóða máli því að þau koma til með að loka þeim slóðum sem verður lokað.
Þið segist vinna í samstarfi við heimamenn en það er spurinnig hverjir þeir eru, Bændur, jeppamenn eða sveitastjórnarmenn.
04.03.2008 at 20:05 #616088Ég er með
Hilmar Örn
04.03.2008 at 16:03 #616028Samkvæmt þessu á að loka þeim slóðum sem engin ber ábyrð á, en í póstinum á undan segir
Sesselja Bjarnadóttir, sérfræðingur ráðuneytisins og formaður nýja
starfshópsins, segir að fyrst í stað muni hópurinn einbeita sér að
slóðum og vegum á hálendinu, þ.e.a.s. þeim vegum og slóðum sem
óljóst er hver beri ábyrgð á. Þetta geti t.d. verið leiðir inn að
skálum, gamlar þjóðleiðir og línuvegir. Ef enginn vill taka
ábyrgð á þeim, telur heldur enginn að hann þurfi að halda þeim
við, segir Sesselja. Þetta geti t.d. valdið því að ef skurður
kemur í veg sem enginn ber ábyrgð á, muni hugsanlega enginn fylla upp
í skurðinn með þeim afleiðingum að ökumenn krækja út fyrir veginn.
Um 20 sveitarfélög eiga skipulagsvald á hálendinu og segir Sesselja að
hópurinn muni fara yfir málið með fulltrúum þeirra allra. Aflað
verði upplýsinga um hvaða vegir og slóðar eru ekki í umsjón eins né
neins og hvort takmarka þurfi umferð um þá eða loka alfarið. Slíkt
verði aðeins gert með fullu samráði og samþykki sveitarfélaganna.Hvað ef f4x4 klúbburinn vill taka ábyrð á þessum slóðum sem eru munaðarlausir, hugsamlega í samstarfi við aðra útivistar hópa þarf þá nokkuð að loka þeim ?
Þegar að þessi starfshópur er búinn að finna út hvaða slóðar eru án eftirlits getur f4x4 tekið þá að sér og síðan geta ákveðnir hópar eða gengi t.d Rottugengið (bara sem dæmi) fóstrað ákveðna leið og þá mokað ofan í skurðinn eða tínt stæðsta grjótið úr slóðanum.
Hvers vegna ekki?
Hilmar Örn
02.03.2008 at 13:56 #615792Jón ertu þá ekki búinn að gróðursetja líka brotin drif á hálendinu, svona uppá framtíðina
En telst Slóðríkur þá ekki vera kolefnisjafnaður eða þarf að koma meira af varahlutum í jörðu til þess.
-
AuthorReplies