Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
15.09.2009 at 22:05 #657400
Sæll Robbi.
Ef að þú ert að tala um 9,5" landcruser drif að þá eru 5:13 ekki til í það að ég best veit, og reyndar ekki til í Toyotu.
Það sem að yukon bíður upp á er
[url:1b6onyh1]http://www.yukongear.com/PartsList.aspx?SearchMode=Spotlight&SpotlightID=23[/url:1b6onyh1]
3:70
4:11
4:56
4:88
5:29Kv Hilmar Örn
26.08.2009 at 21:44 #655382Sæll Elli
Ég er með kassa úr bíl með rafmagnsmæli sem að ég setti í bíl með barkamæli, og ákvað ég að halda barka systeminu. það eina sem að ég þurfti að gera var að skrúfa hraðamælisdrifið úr barkakassanum í rafmagnskassan, passaði á milli án vandræða.
Þannig að ég myndi halda að það ætti að duga skrúfa rafmagnshraðamæladrifið í barkakassan og skipta svo um mælaborð.
kv Hilmar
15.07.2009 at 12:53 #649268Hva er þetta keppni í því hver getur tuðað og grenjað mest, standiði nú upp frá tölvunni og fariði út og njótið sumarsins, þá þurfið þið ekki að skoða myndir af því hvernig íslensk náttúra lítur út.
Vefsíðan mun skána hvort sem að það verður á morgun eða eftir mánuð, getur ekki verið að liggi svo mikið á þessu yfir há sumarið.sumarkveðja Hilmar Örn Smárason
14.07.2009 at 20:21 #205201Á einhver til track af jeppaleiðum upp úr Þistilfirði fyrir mapsource eða jafnvel gps punkta til að geta fundið gatnamót. Stefnan er að taka bíltúr upp að sem flestum skálunum á heiðinni.
Ef einhver á enga punkta en býr yfir fróðleik um þessar leiðir má líka hafa samband við mig í síma 894-4969KV Hilmar Örn
hilmarorn78(hjá)hotmail.com
11.07.2009 at 21:50 #651410Sæll Eisi
Prófaðu að athuga hvort það sé ekki hægt að nota lc 80 kannta á runnerinn, þeir eru breiðari en kantarnir eins og ég og Ofsi erum með.
Ég er með 16,5 " breiðar felgur með 9 cm backspeis en kantarnir eru samt aðeins of mjóir vantar svona 2-3cm upp á að þeir séu góðir.
Auk þess voru kanntarir allt of þröngir þegar að ég fékk þá, þurfti að lengja bæði fram- og afturkantana til að 44" kæmist inn í þá.
kv Hilmar.ps. er fyrir norðan ef að þú villt skoða og mæla eitthvað
02.05.2009 at 14:59 #646842Ég á 1 stk mudder 38 tommu sem að þú mátt fá gefins, það er orðið lélegt en er fínt í svona framkvæmdir, það er hins vegar ekki á felgu.
kv Hilmar 894-4969
11.04.2009 at 22:02 #645602Já svona á milli kl 8 og 8:30
11.04.2009 at 19:44 #645598Sæll.
Ég ætla að fara á þann langa á morgun. Býst við að fara úr bænum um kl 08:00 í fyrramálið, er 4runner á 44 tommu.
Þér er velkomið að kíkja með.kv Hilmar Örn
894-4969
09.04.2009 at 00:11 #645448Ég ætla ekki að blanda mér í 800 eða 1300 kg umræðuna enda er það eins og spyrja hvort sé betra toyota, patrol eða ford, bara trúabrögð.
En það er ekki rétt hjá Grím að plastbotna púðarnir séu eitthvað dót.
Er búinn að vera með sömu plastbotna púðana undir síðan 2003 og eru þeir enn í fínu standi þrátt fyrir að ýmislegt hafi stundum gengið á.Kv Hilmar
ps. Toyota og 1300 kg púðar eru náttúrulega best
08.04.2009 at 22:09 #645400Ég verslaði kanta af honum þegar að ég var að breyta bílnum hjá mér, lenti í sama veseni og aðrir við að ná sambandi við hann en það tókst þó að lokum og átti hann kantana sem að mig vantaði, en það var ekki hægt að fá að koma og skoða kantana hjá honum, heldur vildi hann að koma í skúrin til mín með kantana.
Gott og vel hann kom með kantana og við mátuðum þá við bílinn, voru þetta kantarnir sem að ég var að leita að og ákvað ég að kaupa þá og borgaði honum fyrir í beinhörðum peningum.
Það þurfti þó að lengja alla kantana þar sem að ég var að breyta fyrir 44 tommu dekk en kantarnir rúmuðu bara 38 tommur. Bauðst hann þá til að taka kantana og lengja þá fyrir mig fyrir sanngjarnt verð.
Þáði ég það þar sem í nógu var að snúast við breytingarnar og sá ég fram á að spara tíma með því að láta hann lengja kantana. Kantarnir áttu að vera tilbúnir eftir tvö daga.
Á þriðja degi fer ég að hringja til að athuga hvort að kantarnir séu tilbúnir, en þá var eins og jörðin hefði gleypt manninn og náði ég með engu móti sambandi við hann, reyndi ég að hafa upp á honum í tvær vikur án árangurs.
Þar sem að ég var búinn að borga fyrir kantana var ég mjög ósáttur og við að hann skildi eiginlega hafa stolið þeim aftur.
Á endanum fann ég heimilisfang skráð á fyrirtækið á netinu og ákvað að fara þangað og athuga hvort að hann byggi þar enn. Svo var ekki en foreldrar hans bjuggu þar og brugðust þau skjótt við er ég hafði sagt þeim sögu mína, og var ég kominn með kantana í hendurnar innan klukkutíma og þakka ég þeim fyrir það.
Kantarnir voru enn ólengdir og annar aftur kanturinn var baðaður í gamalli mótorolíu sem að hafði lekið af mótor sem verið var að taka í sundur.
Ég heyrði aldrei frá honum aftur og fékk aldrei neina afsökunar beiðni á þessu nema frá foreldrum hans sem voru mjög kurteis og almennileg.Ég vill benda mönnum á að þessi kantasali auglýsir oft hér á f4x4 undir notenda nafninu
Björgvin kristinsson og held ég eftir samskipti mín við hann að menn ættu að fara varlega í að versla við hann.Kv Hilmar Örn
07.03.2009 at 19:14 #642642Ef einhver er í vandræðum með að heyra í vefradíoinnu, að þá virðist ekki vera sama hvað vafri er notaður, get hlustað ef ég nota internet Explorer en ekki ef ég nota fire fox.
kv Hilmar
05.03.2009 at 09:18 #642488Samkvæmt svari umhverfisráðherra virðist sem svo að samút fái aðeins að hafa áheynafulltrúa í nefndinni en ekki atkvæða rétt til að koma málum sínum fram.
Sem að er skrítið í ljósi þess að lang stærsti notenda hópur slóða á hálendinu er einmitt útvistar fólk sem að stendur að baki Samút.Einnig segir hún að það verði haft eitthvert samráð við félög eins og f4x4, VÍK, Hestamannafélög og göngufólk en vegna þess hve félögin eru ólík, eru hverfandi líkur á að verði meira en einhver umsögn.
Sem að svo verður jafnvel ekki hlusta á ef að það hentar ekki því sem þegar verður búið að ákveða hjá nefndinni.kv Hilmar
03.03.2009 at 15:59 #642294Gerði þetta fyrir 10 árum síðan þannig að minnið er farið að riðga aðeins, Setti svona vél í disel hilux árg 90.
mótorfestingar passa á milli, en það þarf að færa þær á grindinni.
Millikassafesting. Skar augun sem að festast á millikassan af gírkassapúðanun og færði 2,5 cm aftur, þá passaði vélin fínt ofan í húddið
Ég fékk vél með kössum, altenator og öllu utan á svo að ég þurfti ekki að spá í það, en held að ekkert úr hiluxnum passi.
Breytta þurfti vantskassa, Stúturinn að neðan þyrfti að fari yfir á hina hliðinna.
Þetta er ekkert stórmál ef að þú ert með disel hilux, en af þú ert með bensín hilux að þá er þetta mun meiri vinna, þarft að breyta öllu rafkefi til að koma glóðarkerta stýringu fyrir, kúplings braketið þarf að flytja yfir og fullt af svona smotteríis brasi.
Þetta er alveg vesenisins virði þvi að þetta eru mjög skemmtilegar vélar sem torka mjög vel á lágum snúning og eru áreiðanlegar, passa þarf þó upp á afgashitan á henni eins og öllum disel vélum nú til dags með ál hedd.
Veit reyndar ekki hvort að þessar upplýsingar gagnast eitthvað fyrir nýrri hiluxuinn, þ.e. eftir 1996. Hef ekki kynnt mér þá bíla neitt.
kv Hilmar
23.01.2009 at 21:35 #638786Þetta hefur nú meira að seigja verið notað á Íslandi, veit þó ekki hvernig þetta hefur komið út.
sjá [url=http://bsvd.simnet.is/myndasafn.aspx?m=23:3gqruxsf][b:3gqruxsf]hér[/b:3gqruxsf][/url:3gqruxsf]
21.01.2009 at 08:39 #636642Jæja Jón, var verið að svíkjast um í vinnunni enn einu sinni. Það þýðir ekkert að mótmæla því enda varstu tekinn upp á filmu og sýndur á [url=http://vefmidlar.visir.is/VefTV/?channelID=STOD2&programID=d93d6ddc-f3df-4c27-90e2-28d49738f306&mediaSourceID=cb766789-d7a0-4e60-892a-d206751362de&mediaClipID=ce221657-4c66-44ed-bc33-1e28e822a274:1y5aiq7z][b:1y5aiq7z]stöð[/b:1y5aiq7z][/url:1y5aiq7z] 2.
03:34 mín.
Spurning um að láta pabba reyk vita af þessu?
14.01.2009 at 20:31 #637188Þó svo að það sé mjög töff að hafa einhverjar flottar stýringar á þessu með tölvuskjám og öðru fíneríi, að þá eru einfaldari útgáfur líka fínar.
Þegar að ég setti loftpúðana að aftan hjá mér tengdi ég þetta þannig.
Er með slöngu frá sitt hvorum loftpúða og inn í bíl og tengjast þær þar í kúluloka,
Kúlulokarnir eru tengdir við tvívirkan loka sem að dælir loftinu annaðhvort í eða úr púðanum. Þannig get ég dælt í einn púða eða báða bara eftir því hvað henntar best (opna og loka bara kúluloka fyrir þann púða sem á að dæla í eða úr).
Tvívirki lokinn er síðan tengdur við loftkút.
Einginn rafmagnsvír eða segulloki er notaður.
Ég setti mæla fyrir hvorn púða fyrir sig en nota þá aldrei, það skiftir mig engu máli hvað það er mikið loft í púðunum, Heldur bara að bíllinn standi í réttri hæð og það geri ég eftir auganu.
Maður fær strax tilfiningu fyrir því hvernig best er að hafa þetta, oft er nóg að horfa í baksýnisspeglana þegar að maður er að stilla bílinn af.
Er búinn að vera með þetta í nokkur ár og líkar bara vel og hefur ekki verið neitt vesen með þetta enda fáir hlutir sem að geta klikkað.
Toppurinn er síðan að þetta er mjög ódýrt, kostaði allt um 7000 kr og var ég mjög fljótur að skella þessu í.kv Hilmar
12.01.2009 at 11:51 #636926er einginn nema Ívar sem hefur prufað þetta eða séð hvernig þetta virkar.
09.01.2009 at 21:05 #636906Ætli að Steinfag selji ekki sápuna. Allavegana virðast þeir vera með þetta.
[img:3nkhq5qi]http://www.internet.is/racing/Steinfag03.jpg[/img:3nkhq5qi]
09.01.2009 at 19:25 #20352005.01.2009 at 20:45 #635038Það var einhver umræða um þennan bíl á spjallinu fyrir nokkru.
[url=http://www.f4x4.is/new/forum/default.aspx?file=bilarogbreytingar/9391:1gza7ogk][b:1gza7ogk]Hér[/b:1gza7ogk][/url:1gza7ogk] er slóðin.
Og myndin sem að Hörður bendir á
[img:1gza7ogk]http://www.f4x4.is/new/files/photoalbums/6361/54128.jpg[/img:1gza7ogk]
-
AuthorReplies