Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
29.11.2010 at 20:41 #711956
Djöfull er gamli að verða flottur, líst vel á þetta hjá þér. En hvað málið með þessa rauðu skóflu sem Maggi heldur á, og hvernig varð hún því valdandi að það þurfti stærri dekk. Ekki segja mér að þú hafir náð að FESTA þig.
10.11.2010 at 22:02 #709648Nei ég er ekki byjaður, það var bara orðin svo slitin annar stúturinn í framhásingunni að það þurfti að skifta honum út. Auk þess ætla ég ekki að skifta út framhásingunni strax, enda hefur ekki verið neitt vesen með hana.
Ég var búinn að fá læsingar hjá Magga en vantar enn afturöxulinn með löngurílunum fyrir barkalæsinguna. Búinn að versla hlutfall en á eftir að henda því í.
Góðir hlutir gerast hægt en þetta er allt í vinnslu.kv Hilmar
09.11.2010 at 19:30 #709644Takk fyrir þetta strákar, ég var aðalega að spá í stútinn. Er með nafið úr klafabílnum á hásingunni svo það skiftir ekki máli þó nöfin sé mismunandi ef stútturinn er eins.
kv Hilmar
09.11.2010 at 17:07 #215709Jæja Toyotu sérfræðingar. Eru ekki örugglega sömu nöf og nafstútar í LC 60 og Hilux með fram hásingu. Vantar að vita hvort ég get ekki flutt þetta á milli hásinga. Er ekki með Lc 60 hásinguna hjá mér og get því ekki borið þetta saman sjálfur.
kv Hilmar
03.10.2010 at 22:10 #700610Snævarr verður á fundi f4x4 í mörkinni annað kvöld. Ekki í höfuðstöðvum f4x4.
29.06.2010 at 21:14 #697376Ég get ekki sagt þér hvernig færðin er þar í dag, en laufröndin er alla að jafna seinfarin leið enda nokkuð grýtt. hins vegar er ekkert mál að fara hana í lítið breyttum bílum, hef farið hana á 33" bíl. þú átt að geta farið hana án þess að vera með gps, leiðinn var einhvern tíman stikuð og eru stikur á hluta leiðarinnar, sumar eru að vísu dóttnar niður eða farna út í veður og vind. Það er nokkuð af villuslóðum sem þarf að passa sig á.
Best er að vera með GPS en það er hægt að fara hana án þess. Hef farið þessa leið í svarta þoku án þess að vera með GPS og það gekk en oft saknaði ég þess að vera ekki með tæki.
Best er að fylgja bara slóðanum, og ef þú týnir honum þá er best að stoppa og labba aðeins til að finna hann aftur og til að búa ekki til nýja villuslóða.
29.06.2010 at 20:59 #695628[quote:2vd7s3u6]eru menn með skoðanir á hvort sé betra að vera með Síman eða Vodafone inn á hálendi?
[/quote:2vd7s3u6]Í ferðinni í hjólför aldamótanna nú í vetur, þar sem var farið upp í Nýjadal, Gæsavötn, Sigurðaskála, Brúarjökul og Snæfell. þá var ég með kort frá tal en kóarinn var með kort frá símanum, ég held að það hafi alltaf verið betra samband hjá símanum og oft var tal útí þegar að það var fínt samband hjá símanum.
Við vorum ekki að fylgjast neitt sérstaklega með því hvort það væri samband en svona þar sem við þurftum að nota símann þá var þetta niðurstaðan.
24.06.2010 at 21:27 #696856SELDUR
23.06.2010 at 19:10 #696854Er enginn með grænafingur sem vantar kassa?
21.06.2010 at 21:15 #213287Er með möltukassa til sölu. Hann er c.a. 1 meter á hæð og er átthyrndur grænn plast kassi, hægt að smella honum í sundur og svo er lok ofan á honum til að bæta í hann.
verð 5000 kr.Hilmar 894-4969
hilmarorn78(hjá)hotmail.com
16.06.2010 at 22:49 #696528það er búið að gera þetta eins og allt annað. LC 60 hásing passar flott undir runner, sama sporvídd þannig þetta passar flott saman. það er ekkert vandamál þó svo að kúlan sé aðeins til hliðar því það er jú hjöruliður á drifskaptinu sem sér um það. Það þarf annað hvort að taka aðeins úr aðaltanknum eða smíða nýjan í staðinn.
Það er ekkert sem segir að skaptið þurfi að vera beint og virkar þetta vel svona, enda er sama brot á skaptinu í báða enda.
Hér eru myndir af lc 60 hásingu í 4runner.
[img:c2eox96k]http://www.f4x4.is/g2/main.php?g2_view=core.DownloadItem&g2_itemId=238371&g2_serialNumber=1[/img:c2eox96k]
[img:c2eox96k]http://www.f4x4.is/g2/main.php?g2_view=core.DownloadItem&g2_itemId=238376&g2_serialNumber=1[/img:c2eox96k]
kv Hilmar
fleiri myndir hér.
[url:c2eox96k]http://www.f4x4.is/index.php?option=com_jfusion&Itemid=235&g2_itemId=238300&g2_page=2[/url:c2eox96k]
11.04.2010 at 12:19 #690306Góður pistill Ofsi og gaman að fá að fylgast með því starfi sem að klúbburinn stendur í og við óbreyttir félagar vitum oft ekki af. En hvernig er það, þarftu ekki að fara að senda þessa pistla þína í blöðin eða eitthvert þar sem fleiri og breiðari hópur les. Ég er ekki viss um að Svandís S skoði F4x4 mikið þó svo að nokkrir úr gögnu elítuni fylgjast vel með okkur.
Það er kannski til að bæta stöðu klúbbsins í þessu máli ef það kemur fram í fjölmiðlum hvernig hagsmunaaðilar eins og f4x4 eru hunsaðir í svona ferli.KV HÖS
03.04.2010 at 12:11 #688958Ég er einn af þeim sem var "smalað" niður af Fimmvörðuhálsi í gærkveld, smöluninn fór þannig fram að það var kallað í talstöðina að það væri búið að opna leiðina niður að skógum og bíll frá Ársæli ætlaði að keyra á undan til að leiða hópinn. Ég fékk aldrei tilkynningu um að það væri búið að loka yfir jökullinn, en ég ákvað að nýta mér það að fara niður hjá Skógum (flóttaleiðinna) enda styðsta leiðin niður á þjóðveg.
Einhverjir sem voru lagðir af stað upp á jökul snéru við að eigin frumkvæði og komu niður hálsinn.
Ég veit ekki hvernig fór með þá sem voru ekki með talstöð, en það var ekki verið að lappa um svæði og tilkynna um opnunna niður að Skógum, kannski fóru þeir bara talstöðvalausir yfir jökul.
Svo var sagt í fréttum að um 200 bílar væru á leið niður í fylgd björgunarsveita, mér fannst að það væru ekki meira en svona 70-80 bílar á leið niður og bíllinn frá Ársæli snéri við hjá Baldvinsskála og menn keyrðu sjálfir niður slóðan í fínu veðri.Allur fréttaflutningur er í töluverðum æsifréttastíl og lýsir ekki raunveruleikanum eins og hann er.
Veðrið var fínt hjá gosinu þegar "smölunnin" hófst og því einginn ástæða til að "bjarga" öllum til byggða.Kv Hilmar sem var "bjargað" niður af Fimmvörðuhálsi um "flóttaleið" með "300" bílum af "60" björgunarsveitarmönnum. NOT
ps. skil ekki hvers vegna slóðin upp frá Skógum er lokaður það sem hann er frosin og einginn hætta á skemmdum.
02.04.2010 at 01:18 #688614Getur einhver sent mér track upp að gosinu frá Sólheimajökli á hilmarorn78@hotmail.com
Ætla að skella mér á morgun.kv Hilmar
22.03.2010 at 19:48 #687798Fór í nótt upp Fljótshlíð og inn á slóðan í átt að Einhyrning, gosið sást vel á móts við Húsadal. það er fært fyrir óbreytta jeppa þangað. Hitti Lögregluna þegar ég kom niður og settu þeir ekkert út á þetta ferðalag mitt.
09.03.2010 at 14:48 #686424Nei, þetta virkar bara og ekkert vesen á þessu hjá mér allavega. ertu búinn að prófa mismunandi net vafra. oft er gott að hafa 2-3 mismunandi vafra (explorer. firefox og goggle crom eru fínir) eftir því hvað maður er að skoða, sumar síður getur maður ekki opnað fyrr en maður prófar annan vafra eða þá að síðan opnast en virkar ekki að öllu leyti.
Lenti í þessu með gömlu tölvuna, gat eiginlega aldei skoðað myndir og síðan var útlokað að panta miða á midi.is eða flugfelag.is. downlodaði firefox í tölvunna og þetta fór allt að virka
Þetta eru sjálfsagt einhver stillingar atriði, en ef þú veist ekki hvað þú átt að still þá er gott að skifta á milli vafra.Held að þetta sé jafnvel meira tölvunni þinni um að kenna en síðunni
kv Hilmar
28.02.2010 at 21:04 #685414HK-Sandblástur ehf, Helluhrauni 6, HAFNARFIRÐI
Blésu fyrir mig boddy hluti og var ég sáttur við útkomuna og þjónustuna
04.02.2010 at 11:36 #681062Minnir að hilux 96 og eldri, og lc 70 sé 55" sem er þá 139,7 cm
ifs-Hilux/runner eru að mig minnir 58" sem er þá 147,3 cm
lc 60 er aðeins mjórri 146 eða 145 eða eitthvað nálægt því.
03.02.2010 at 15:16 #681046Þú getur líkað skoðað það að nota LC 6o hásingar undir LC 90. þær eru fljótandi með 9,5" drif bæði að framan og aftan og ekki með sama leguvandamálið að framan og patrol.
Patrol er með handbremsu á millikassanum og þarf að spá í það við svona framkvæmd. Síðan hefur maður heyrt að það kosti allt morðfjár í þessar patrolhásingar, þekki það ekki sjálfur enda aldrei átt patrol.Ég var í sömupælingum með 4runner og endaði með að fá mér lc 60 hásingar, þær hentuðu betur en þær eru t,d í sömu sporvídd og runnerinn, en patrol var mikið breiðari sem að þýddi að ég hefði þurft að breikka brettakantana.
Þetta er allavegana möguleiki sem að þú getur skoðað, þá ertu líka ekki að svíkja lit og menga bílinn með einhverju Datsun dóti
02.02.2010 at 22:47 #680954Já þetta er ömurlegt slys og votta ég aðstandendum Halldóru samúð mína.
Ég veit ekkert um hvernig þetta slys atvikaðist nema það sem að komið hefur fram í fjölmiðlum, en ég hef verið að hugsa um það undafarið hvort að það sé ekki kominn tími til að við jeppamenn förum að hugsa meira um öryggi okkar á jöklum.
Sem dæmi má nefna að það er nánast engin með línur eða neinn búnað til að setja á milli manna þegar það er verið að bjarga bílum úr sprungum. Ég veit upp á mig skömmina í þessu ásamt örugglega flestum sem hafa lent í svona aðstæðum.
Ég ræddi þetta við björgunarsveitamann sem að ég þekki og datt okkur í hug að það væri sniðugt að fá vana björgunarsveitamenn á fund hjá f4x4, og halda smá fyrirlestur um hvernig best sé að tryggja eigið öruggi þegar að bílar lenda í sprungum.
Hugsanlega þarf að aðlaga þeirra þekkingu eitthvað að okkar búnaði, fæstir erum við með flottar línur í bilunum en allir með dráttartog, kannski mæti nýta þau á einhvern hátt á milli manna til að tryggja öryggi. vissulega er þungt að hafa dráttartogið bundið við sig en það er samt betra en ekkert.
jafnvel er hægt að útbúa einhvern öryggispakka handa okkur með allra nauðsynlegast útbúnaði, eitthvað sem er einfallt og ódýrt og allir ráða við að kaupa. síðan mætti halda námskeið í að nota þennan búnað.
Hvað segja menn um þetta, einhver áhugi fyrir þessu eða sjá menn einhverjar aðrar og betri lausnir?kv Hilmar Örn
-
AuthorReplies