Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
08.09.2011 at 21:48 #736957
Skoða bara allar stífufóðringar, einnig að skoða hvort boltagöt séu nokkuð orðinn rúm þannig að það geti komið slag einhverstaðar.
26.05.2011 at 22:32 #730811Hver er ástæðan fyrir því að dekk slitna hraðar á köntunum en í miðjunni.
Hefur það eitthvað með felgubreidd að gera?Er með mudder á 15" breiðum felgum sem eru meira en hálfslitinn og þau eru byrjuð að slitna meira í köntunum.
Þegar dekkin voru nýrri og mynna slitinn fannst mér að þau slitnuðu nokkuð jafnt, en þegar þau voru orðinn aðeins meira en hálfslitinn fannst mér að kanntarnir byrjuðust að eyðast hraðar.
Er einhver sem veit af hverju þetta stafar.
17.05.2011 at 20:51 #730219Ég hef lent í svipuðu á disel 4runner. þá hafi komist smá bútur á bréfi ofan í tankinn sem sogaðist alltaf upp í rörið og stíflaði olíuflæðið að olíusíu. Ef blásið var í slönguna frá olíusíu og aftur í tank þá lagaðist þetta í smá stund eða þangað til að bréfið sogaðist aftur í rörið.
þú getur prófað að blása aftur í tank og séð hvort það losni um einhverja stíflu, ef svo er þá þarftu að taka tankinn undan hreinsa hann.
10.05.2011 at 21:37 #729893Pabbi er að þessu einmitt núna, afturhásingin er kominn undir og framhásingin langt kominn líka getur heyrt í honum, hann heitir Smári L Einarsson á Akureyri.
kv Hilmar
04.04.2011 at 13:20 #725815[quote:2gere7of]Hvaða hlutföll voru í boði í LC60 hásingunum?
[/quote:2gere7of]yukon gears selja
3.70
4.56
4.88
5.29breiddin á lc 60 hásingunni er aðeins minni en á 4runner ifs, ca 1 cm mjórri held ég. Þessar hásingar smellpassa undir 4runner, það þarf samt að taka aðeins úr olíutanknum fyrir drifskaftinu
[img:2gere7of]http://www.f4x4.is/g2/main.php?g2_view=core.DownloadItem&g2_itemId=238381&g2[/img:2gere7of]
Mynd Eiður Jónsson
03.04.2011 at 16:58 #723902Jæja kominn heim eftir góðan túr þar sem Höfsjökull var hringaður. Þakka þeim í Eyjafjarðardeildinni fyrir góðan og skemmtilegan túr þar sem allt var á kaf í snjó og bara gaman.
kv Hilmar
23.03.2011 at 17:44 #724464Væri ekki hægt að setja upp 12v lýsingu þannig að það sé hægt að gista og hafa ljós án þess að setja ljósvélina í gang. Það er nú ekki ókeypis orðið að kaupa olíu þannig að það væri best að spara ljósavélina sem mest.
Réttatorfa er búinn á þennan hátt og er þetta alveg snild, ljós og vatnsdæla á 12v. Ekki þarf að setja ljósvélina í gang þar nema það þurfi að hlaða geymana eða það sé verið að nota rafmagnsverkfæri eða eitthvað svoleiðis.
23.03.2011 at 13:17 #724362Ég hef bæði keypt á partasölu( það entist ekki lengi) og síðan aftermarket af Heklu, það er í lagi ennþá eftir 3-4 ár. Þau fara stundum allt í einu og stundum er bíllinn búinn að missa aðeins kraft á undan, eða eins að hann missi einn og einn púls frá keflinu.
23.03.2011 at 13:03 #724460Er hægt að hita upp húsið og gista í því þó svo að það sé ekki ljósavél í gangi.
21.03.2011 at 21:31 #724358Sæll Erlingur.
þetta gæti líka verið háspennukeflið, ég er með golf 96 1400 cc og hef verið að lenda í þessu sama. þ.e.a.s að drepa á bílnum og hann vill ekki í gang en startar fínt. þá er það keflið. Nú veit ég ekki hvort það eru sömu kefli í þessum bílum en þau hafa verið að endast illa.
20.03.2011 at 20:54 #723872Hilmar + 1 (leggur af stað úr Kópavogi)
11.03.2011 at 21:13 #722018Flott gaman að gera safnað video linkum saman.
11.03.2011 at 20:44 #722496[quote:1s882ngs] 230 þús. manna þjóð[/quote:1s882ngs]
Mannfjöldi 1. janúar 2011 318.452
hagstofa.is
13.02.2011 at 22:12 #719788Hvernig er með viðhald á Dana 44. hvernig eru legur að endast í þessu og hvernig er verð á varahlutum.
12.02.2011 at 16:37 #217384Nú er verið að spá í að setja hásingar undir trooper bæði að framan og aftan.
Veit einhver hvaða hásingar passa þókkalega upp á sporvídd, erum að pæla í patrol hásingum en höfum ekki enn skoðað muninn á sporvíddinni.
Man eftir bláum tropper á 44″ með hásingum að framan og aftan en veit ekki hvaða hásingar voru undir honum, einhver sem þekkir þá breytingu.
Ef einhver hefur þekkingu á þessu eða hefur gert þetta væri gott að fá að vita af því.
21.01.2011 at 18:10 #716832Skemmtilegar greinar og gaman að sjá hvað jeppasportið hefur þróast mikið frá þessum tíma. Hefur einhver séð myndina sem var gerð um þennan leiðangur. Samkvæmt síðustu greininni heitir hún [color=#FF0040:9jopf5hu]88°í austur [/color:9jopf5hu]en ég finn ekkert um þessa mynd svona með einfaldri leit.
14.12.2010 at 21:11 #713484Ég veit að það er hægt að nota alskonar trix til að losa síuna, málið er að það er hundleiðinlegt að losa síuna með töng og lítið pláss til að komast að henni. því er þægilegast að nota svona bolla.
Er búinn að fá ábendingu hvar hægt sé að fá þetta og þarf að tékka á því.
13.12.2010 at 22:21 #216396Veit einhver hvar hægt er að fá bolla til að losaolísu úr 3l disel toyotu. Utan mál á síunni er 98 mm.
Er búinn að athuga í
N1
Stillingu
Poulsen
Logey
BB
kv Hilmar
04.12.2010 at 23:07 #712658Tekk undir það sem Skúli segir hér að framan. Einnig er það orðið svo að maður er hættur nenna að gista í Setrinu vegna þess hvað það er mikið vesen að starta upp og græja skálan. Hef ekki komið þarna í nokkur ár, hef frekar farið í minni skála sem eru ekki með gargandi ljósavél í gangi til að eyðileggja fyrir manni fjallakyrðina.
Held að skálanefnd ætti að kynna sér hvernig Eyfirðingar eru búnir að græja Réttartorfu. Þó að þar sé ljósvél til staðar, þá þarf ekki að setja hana í gang ef það er bara verið að gista og hita skálann. Í skálanum er olíuvél til að hita húsið og 12v sólarljósarafkerfi fyrir lýsingu og vantsdælu. ljósvélin er síðan notuð í vinnuferðum og þess háttar.
Því er spurning eins og Skúli bendir á að græja hluta hússins á þenna hátt þannig að þessi venjulegi ferðahópur ca 6 bílar geti gist þarna án mikils kostnaðar.
kv Hilmar
04.12.2010 at 22:45 #712618Frábært framtak hjá litlunefnd, og til hamingju jeppaklúbbur Félags heyrnarlausra með þessa ferð. Þá er búið að brjósta ísinn og opna hálendið fyrir vetraferðum heyrnalausra með F4x4 klúbbnum. Hlakka til að sjá ykkur á fjöllum í vetur.
kv Hilmar
-
AuthorReplies