You are here: Home / Hjörtur Logi Dungal
![]() |
FERÐAKLÚBBURINN 4X4 |
|||
Menu |
rosalega er gott að fá svona greinagott svar frá einhverjum sem greinilega veit hvað hann er að tala um.
en nú verður spurningaflóðið að halda áfram,
hvað er ásættanlegt að borga fyrir svona hlutföll, eða köggul með 1:4.88 eða 1:5.29?
Enn og aftur, kærar þakkir fyrir svörin.
nú verð ég aðeins að spurja meira, en ég stóð í þeirri meiningu að bíllinn væri ekki með LSD þar sem hann spólar á öðru í góðum festum, ætti hann ekki að spóla á báðum með LSD?
.
svo var ég að muna að ég á einhversstaðar Haynes manuallinn fyrir þennan bíl, stendur ekki þar hver hlutföllin eru í þessu?
.
það er ekki hægt að kvarta undan virkni, hún er svo sem ágæt, en ástæðan fyrir þessum stöðugu skiptingum á ca 90 km/h er klárlega vegna þess að vélin er bara lullandi í ca 2000 rpm og nær því ekki að halda sæmilegum snúningi og fer að erfiða við minnstu breytingu á undirlagi.
.
kærar þakkir fyrir gott svar og vonandi bætist eitthvað meira við í viskubrunninn í framhaldi af þessu.
Þar sem maður er algjör nýgræðingur í svona málum, þá lærir maður víst ekkert nema spurja.
Er með Toyota 4Runner 3.0 V6 ’94 á 35″ og hann er svo hundleiðinlegur í utanbæjarakstri, alltaf að skipta sér þegar maður er að lulla á löglegum hraða, tel nokkuð víst að hann sé bara á orginal hlutföllum (er það ekki 4.10) og var að velta fyrir mér hvort 4.56 væri ekki hentugra?
Ég sá auglýsingu hérna inni með slíka köggla til sölu úr Hilux 8″ drifi og var að velta fyrir mér hvort þetta passaði á milli?