Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
23.06.2013 at 20:47 #766623
Þetta lýst mér á. Ég held ég geti ekki annað en rekið inn nefið í sumar, og jafnvel gert eitthvað gagn.
10.06.2013 at 22:30 #766477Bara vegna þessarar yfirlýsingar þinnar, þá gróf ég upp eina gullfallega mynd og minnkaði vinningslíkur þínar
04.06.2013 at 17:08 #766223Ég hélt að kaldhæðnin hjá mér skini í gegn, en ég var semsagt að djóka.
Bara gaman að taka þúsarann á´etta.
03.06.2013 at 17:00 #766309[quote="jong":2mpo94mz]Hvenær var Gæsavatnaskáli reistur og hvernig er ástandið á klæðningunni á honum núna?[/quote:2mpo94mz]
Hann er reistur 1997 og ég sá ekkert nema snyrtilegheitin við þann skála nú um páskana. Var reyndar ekki að rýna í klæðninguna.
Eftir mikið hugarangur þorði ég ekki öðru en að treysta skálanefnd fyrir þessu vali. Enda kann ég bara á skrúfjárn og skiptilykil, og hef enga reynslu af húsbyggingum.[img:2mpo94mz]http://img41.imageshack.us/img41/1203/img1315lg.jpg[/img:2mpo94mz]
01.06.2013 at 20:52 #766267Já ég er ekki að sjá fyrir mér þessa bárujárnsklæðningu í bland við Steni.
Klúbburinn er vel stöndugur að mér skilst og fer létt með að borga nokkrar aukakrónur í klæðningu sem mun standast tímans tönn við hörð skilyrði. Svo ekki sé minnst á að skemman mun "sjattera" við Setrið.
Mitt atkvæði fer á Steni.
01.06.2013 at 19:45 #766259Er ekki hægt að setja myndir á vefinn eða tengla á myndir, sem sýna aluzink á móti steni?
Ég til dæmis veit ekki hvernig aluzink lítur út.
30.05.2013 at 20:20 #766215Það er rétt, ekkert gaman að keyra Þúsundvatnaleið.
Slóðinn í endalausum hlykkjum, farið yfir sömu ána margoft, og svo er þetta mosavaxna hraun eins langt og augað eygir. Álíka leiðinlegt og Reykjanesbrautin.Skarðsheiðin er skemmtileg, Svo er hægt að fara upp á Svínaskarð, og niður hinumegin ef þú ert hugaður.
Þessar leiðir krefjast samt mismikla hækkun á jeppa.
25.05.2013 at 17:48 #742481Til að undirstrika síðustu spurningu síðan á síðasta ári, Hvernig er staðan á Bláfjallasendinum?
Var að tengja talstöðina í nýja jeppann og fékk ekki signal á Bláfjöll eins og ég var vanur að geta gert heima frá mér.
23.04.2013 at 18:47 #765543Það vantar ekki kraftinn í þetta Gengi, gaman að því.
01.04.2013 at 21:09 #764361Fórum í Nýjadal á skírdag og hittum á nokkra hressa Eyfirðinga sem gistu eina nótt.
Á föstudaginn langa var kíkt í Jökuldal og svo norður fyrir Tungnafellsjökul og í Gæsavötn þar sem við hittum 3 Húnvetninga á 2 bílum. Fossinn Gjallandi skoðaður í leiðinni.
Á laugardegi var keyrt í Laugarfell og baðað sig í lauginni og þar rákumst við á Austfirðinga sem vildu ólmir koma suðureftir í Nýjadal sem þeir gerðu. Buðu þeir upp á lambalæri með öllu tilheyrandi og sósu sem er víst aðalmálið þarna austurfrá.
Meðal þeirra voru glöggir menn sem tóku eftir því að olíukyndingin var ekki að virka nægilega vel, svo það var tekin upp borvél og alls kyns verkfærasett. Eftir allmargar klukkustundir komst góður hiti á kofann. Eitt handslökkvitæki þurfti reyndar að brúka en það er leyndarmál sem verður ekki farið nánar út í..
Á sunnudegi var gengið frá og keyrt heim á leið, með viðkomu í Illugaveri.[u:1uhi68s7]Ég þakka fyrir frábæra ferð.[/u:1uhi68s7]
[img:1uhi68s7]http://img541.imageshack.us/img541/7523/img1294k.jpg[/img:1uhi68s7]
12.03.2013 at 19:07 #764319Þetta hljómar vel, við fjölskyldan erum líkleg til að kíkja uppeftir og þá í samfloti með einhverju rólegheitar fólki.
28.02.2013 at 18:07 #764019Ætli óhappið sem átti sér stað í haust eigi ekki þátt í þessu, einhver bifreið sem keyrði útaf og utan í rörið og gerði höfuðborgarsvæðið næstum heitavatnslaust.
Og já það verður örugglega hundfúlt að mega ekki aka þarna í vetur ef manni langar til þess.
05.02.2013 at 14:04 #762243Flott birtan á Langjökli. Voruð þið snemma á ferð á laugardegi þá?
02.02.2013 at 13:21 #762203Fréttaritari óskast!
01.02.2013 at 21:50 #763235Bíðið má þetta? Verður ekki að segja frá hvað er að gerast á fjöllum?
Missti Frikki tappann undan skiptingunni? Vantaði svona mikið á hana? Eða var þetta á stýrið? Eða er sjk vökvi það eina sem virkar til að koma skemmdum mat niður?
22.12.2012 at 23:43 #761853Varst þú á innri akrein og ætlaðir svo úr hringtorgi í fyrstu beygju? Semsagt til hægri niður Lækjargötu?
ps: ég er ekki umræddur ökuníðingur, enda passar lýsingin engan veginn við minn bíl, nema að vera gamall hilux
16.12.2012 at 20:36 #761693Ég skal byrja..
Uppi í vinstra horni er hann Bárður Snæfellsás, staðsettur á Arnarstapa.
Niðri í hægra horni er Kleifarbúinn, staðsettur á Kleifarheiði fyrir vestan.Manni brá alltaf í þau fáu skipti sem maður keyrði framhjá Kleifarbúanum, þar sem hann heldur á mjög svo ílöngum hlut í klofhæð
15.12.2012 at 09:39 #761625Ég myndi líklega skrá mig!
14.12.2012 at 08:56 #761613Úlfarsfell.
10.12.2012 at 15:10 #761537Er ytri myndin af nýja uppblásna sparkhúsinu í Hveragerði?
Og sú innri frá Kerlingarfjöllum og yr.no veðurstöðin sem sést ekki?
-
AuthorReplies