Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
29.09.2009 at 11:22 #658958
Þið megið ekki verða sárir þótt við sendum ykkur kveðju norður yfir heiðar. Við komum við í Veiðivötnum og fréttum að þið hefðuð hætt við að mæta á svæðið, en í Veiðivötnum var sól og blíða þegar við vorum þar.
Góðar stundir
13.09.2009 at 15:30 #657020Vel þekkt vandamál í þessum 6.0 fordhórumotor. Það eru bilaðir spíssar hjá þér, og veskið verður lengi að jafna sig.
Góðar stundir
23.08.2009 at 21:42 #654734Enn og aftur vilja menn skattleggja ferðaþjónustu til dauða, eins og hún sé ekki næjanlega skattpínd fyrir.
Núna hafa menn áhyggjur að því að ferðamenn séu að sparka allt út, sem vissulega er rétt í mörgum tilfellum og margir fjólsóttir staðir eru löngu búnir að ná þolmörkum og eru hættir að vera aðlaðandi. Þá vill ríkið skattleggja, en ef maður þekkir ríkið rétt, mun varla nokkur króna skila sér í uppbyggingu á ferðamannastöðum, heldur hverfa þessar krónur í kjaftæði og heimsku eins og venjulega.
Eitt tonn af fiski gaf okkur 260 þúsund í gjaldeyristekjur í fyrra. Eitt tonn af áli 210 þúsund og eitt tonn af ferðamönnum (miðað við tólf ferðamenn í tonni) gaf okkur 2.6 milljónir. Í fyrra skilaði sjávarútvegurinn okkur 172 milljörðum í útfluttningstekjur, en ferðaþjónusta 110 milljörðum. Kostnaður ríkissins til að afla þessara tekna af ferðamönnum er fáránlega lítill, ef miðað er við fjárausturinn í sem farið hefur í álverskjaftæðið og sjávarútveginn.
Að byggja göngustíga í Dimmuborgum kostar bara aura miðað við þær tekjur sem ríkið hefur af ferðaþjónustu, en eins og venjulega er ríkið eins og slefandi smábarn þegar kemur að hagsmunum þessarar atvinnugreinir, sem virðist vera sú eina sem plummar sig um þessar mundir og er ekki sveitt við að fá niðurfellingu á lánum eftir góðærið.
Góðar stundir
15.07.2009 at 00:51 #651532Þessi síða má fara í ruslið mínvegna. Bæði ljót og með ömurlegt viðmót.
06.06.2009 at 00:00 #648446Er ekki hægt að fá sukklaðidagatal ?
31.05.2009 at 13:00 #648314Það var ágætis færi í september 2008. Aðeins ósléttur en ekki til vandræða.
Góðar stundir
18.05.2009 at 23:31 #647910Er ekki hægt að setja bremsu aftan á millikassan eins og er í Patrol ? Frábær búnaður sem bilar aldrei.
Góðar stundir
16.05.2009 at 00:06 #647678Tek undir það að Polsen er með gott verð og mikið af vöru, enda versla ég reglulega þar. En þjónustan þar mætti vera betri, en hefur þó lagast.
Góðar stundir
15.05.2009 at 22:04 #647704Ég er alltaf í sandölum. Þeir sem ég þarf að draga geta bundið í mig sjálfir.
Góðar stundir
14.05.2009 at 18:50 #647570Fróðlegur pistill. Ég geri það að minni tillögu að húsaleigusamning 4×4 verði sagt strax upp, fyrst það er 6 mánaða uppsagnafrestur.
Góðar stundir
12.05.2009 at 23:38 #645576Það er best að taka ánna eftir auganu, en líklega eru nýleg för þarna. Það þarf helst að passa sig á drullu þegar maður er að nálgast jökulinn, en þetta á að vera alveg ágætt að mestu leiti.
Góðar stundir
12.05.2009 at 22:50 #645572Það er ágætis færi í Jökulheima og það er alltaf hægt að komast yfir Tungnaá.
Góðar stundir
10.05.2009 at 15:49 #6473683" púst gerir alveg helling fyrir 2.8 mótorinn. Millikælir og 3" púst og þetta verður nýr bíll hjá þér.
Góðar stundir
09.05.2009 at 00:51 #647328Ég þarf að vinna á morgun og kemst ekki á fundin, en langar samt til að kjósa eitthvað. Er ekki hægt að kjósa um eitthvað annað kvöld, ef maður skyldi reka inn nefið ?
Góðar stundir
27.04.2009 at 21:39 #646624Við eru að verða reglugerðaland dauðans. Eitt gott dæmi um hvað ESB hefur skilað okkur eru hraðatakmarkara í jeppa/pallbíla sem eru yfir 3.5 tonn. Þetta er ekki í boði í pallbílum frá USA og þarafleiðandi er ekki hægt að nýskrá lengur Ford F350 og sambærilega bíla. Eins hefur reglum verið breytt þannig að Ford Econoliner fæst ekki skráður lengur sem hópferðabíll, allt er þetta ESB að þakka. Klárlega eru eitthvað meira skemmtilegt til í pokahorninu hjá ESB til að gleðja okkur jeppamenn, sama hvað Robert Marshall dásamar þetta á fundi hjá 4×4.
Hvað Vatnajökulsþjóðgarð varðar er sagt að uppbygging á honum kosti 1.300 m.kr. Mér þykir þetta vera sóun á peningum og þessi upphæð er alltof há. Í ár á hann að fá 342,5 millur, en þá peninga er hægt að nota í skárri hluti en þessa vitleysu.
Góðar stundir
08.04.2009 at 22:35 #645420Ég skal hundur heita ef þessir peningar fara í vegaframkvæmdir eða til að bæta samgöngur í nágreni Vatnajökuls. Trúlega fer þetta allt meira og minna í eitthvert skrifræðisbákn, þar sem menn eru á fullu að skrifa skýrslur sem aldrei verða lesnar.
Það mætti kaupa nokkra olíulítra á varðskipin okkar fyrir þessa upphæð.
Hlynur
07.04.2009 at 22:28 #204197Var að flakka um netið og rak augun í þetta.
212 Vatnajökulsþjóðgarður. Lagt er til að fjárveiting til Vatnajökulsþjóðgarðs verði 342,5 m.kr. og jafngildir það 99,3 m.kr. hækkun að raungildi frá fjárlögum yfirstandandi árs. Rekstrarframlag hækkar um 14,3 m.kr. og verður 97 m.kr. en framlag til stofnkostnaðar hækkar um 85 m.kr. og verður 245,5 m.kr. Er það í samræmi við endurskoðaða framkvæmdaáætlun þar sem gert er ráð fyrir að uppbyggingu í þjóðgarðinum verði lokið árið 2013. Í áætluninni er gert ráð fyrir 245 m.kr. árlegum framkvæmdakostnaði til ársins 2012 og 100 m.kr. árið 2013. Stofnunin hafði 50 m.kr. fjárveitingu til stofnkostnaðar á fjárlögum 2007 og hefur 160,5 m.kr. á fjárlögum 2008. Gangi þessi áform eftir verður kostnaður við uppbyggingu í þjóðgarðinum samtals um 1.300 m.kr.
Þarna er verið að tala um fjárlög fyrir árið 2009. Hvernig getur það kostað 342,5 millur að reka Vatnajökulsþjóðgarð og er það virkilega þess virði ?
Góðar stundir
ps: þetta er tekið hér
http://hamar.stjr.is/Fjarlagavefur-Hluti-II/GreinargerdirogRaedur/Fjarlagafrumvarp/2009/Seinni_hluti/Kafli_3-14.htm
30.03.2009 at 20:54 #640346Sammála Bassa. Þetta er klárlega bogið rör.
Góðar stundir
26.03.2009 at 12:33 #644514Spaðar geta orðið fastir og snúist alltaf, og þá getur orðið vaesen að fá eðlilegan vinnuhita.
Góðar stundir
20.03.2009 at 17:18 #643968Það er ekki neitt mál að ná þessu í sundur í dekkjavél fyrir stór dekk.
Góðar stundir
-
AuthorReplies