FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Hlynur Snæland Lárusson

Hlynur Snæland Lárusson

Profile picture of Hlynur Snæland Lárusson
Virkur síðast fyrir 8 years, 7 months síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 81 through 100 (of 1,627 total)
← 1 … 4 5 6 … 82 →
  • Author
    Replies
  • 27.02.2011 at 21:48 #721414
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Sá þáttinn og þetta var soldið eins og Icesave hræðsluáróður. Menn verða auðvitað að vita hvað þeir eruað gera þegar þeir fara á jökul, en það er algjör óþarfi að hætta að ferðast um hann.





    26.02.2011 at 22:31 #721258
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Vertu nú ekki að gera lítið úr kvennaferðinni Atli, þótt þær hafi flutt sig í Hólaskóg. Þessir 1000 metrar frá malbikinu og að húsinu geta stundum verið svo krefjandi af fólksbílar eiga í vandræðum þar :)





    26.02.2011 at 18:56 #721248
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Endurvarparás 44 á Bláfelli dekkar þetta svæði algjörlega. Eins næst endurvarparás 58 á Hlöðufelli eitthvað á þessu svæði. Þótt að það sé GSM sendir upp á Bláfelli, er mín reynsla að samband á GSM sé frekar stlitrótt fyrir sunnan Árbúðir og upp á Bláfelsháls.

    Góðar stundir





    24.02.2011 at 16:18 #720996
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Á hvaða síðu er þessi afsökun í Pæjero bókinni ?





    03.02.2011 at 19:51 #715712
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Er nú bókin góða komin í leitirnar. Bók þessi sem ber nafnið "501 ástæða fyrir því að ég dríf ekki neitt" var og er staðalbúnaður í breyttum Pajero jeppum. Þar sem Benni byrjaði á Pajero, þá hefur hann líklega hirt bókina úr Pæjerónum þegar hann seldi hann. Svo er hún greinilega komin til Gísla núna, enda kemur sá guli aldrei heill heim og Gísli er hann út í eitt :-)





    01.02.2011 at 18:51 #718126
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Eitt sinn hlustaði ég á Odd Sigurðsson útskýra hvað væri jökull. Mig minnir að hann yrði að síga eða falla fyrir eigin þyngd til að geta talist jökull. Líklega er Okið alveg á mörkunum að geta talist jökull. Eru ekki einhverjar jökulfannir í norðurhlíð Oksins ?

    Góðar stundir





    31.01.2011 at 18:47 #718114
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Tek undir með Atla. Maður er að sjá auglýsingar þar sem alskonar bíla eru sagðir með öllu. Las auglýsingu um Patrol fyrir stuttu sem var sagður með öllu, en var reyndar bara búið að breyta honum fyrir 44" og lækka hlutföll. Prófiltengi, kastarapar og þverbogar á toppinn gera bíla ekki "einn með öllu".

    Mér dettur helst í hug öflugir hjálparsveitabílar þegar talað er um "einn með öllu", og svo er auðvitað slatta af félagsmönnum sem eiga "einn með öllu"

    Góðar stundir

    ps: var næstum búinn að klikka á "vista" í staðin fyrir "senda" Hvar endar svarið ef klikkað er á "vista" ? Hjá sérstökum saksóknara eða hjá Svandísi Svavars ?





    12.01.2011 at 13:01 #713370
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Það var jarðýta að laga veginn fyrir ofan Sandkluftarvatn milli jóla og nýárs. Þá var Kaldidalur svo til snjólaus, aðeins klaki í veginum. Ef jarðýtan hefur lagað þessi úrrensli þokkalega, þá ættu Uxahryggir að vera fólksbílafær.

    Góðar stundir





    09.01.2011 at 23:54 #715890
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Skoðaðu ljosin.net Ég á hleðsluvasaljós frá þeim sem lang lang langbesta ljós sem ég hef eignast. Þetta eru ekki ódýrustu græjurnar, en Wolf Eyes LED ljósið sem ég er búinn að eiga næstum í þrjú ár er fáránlega gott.

    Góðar stundir





    07.01.2011 at 21:11 #715458
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Ég heyrði að Atli myndi bjóða upp á sætaferðir á blótið. Hann er víst búinn að saga Toyotuna í sundur aftur og stefnir á eins margar hurðir og sæti og passar fyrir ferðina. Svo er Birkir (Fastur) víst kominn á jeppa sem hann hefur aldrei velt !!!





    21.12.2010 at 13:12 #714146
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Það má ekki gleyma Skarphéðinstind í Kverkfjöllum. Hann er 1936 metrar.





    16.12.2010 at 22:16 #713656
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Ég pantaði mín hjá TwistedThrottle.com Settið með öllu kostar 300USD og það var ca 42.000.- komið til landsins. Núna eru alveg eins ljós til hjá Bílasmiðnum.

    Góðar stundir





    16.12.2010 at 19:10 #713648
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    LED er framtíðin. Ég keypti mér þessi og setti á sleðan minn. http://www.youtube.com/watch?v=z-IgdqRTAPM





    14.12.2010 at 19:52 #713570
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Ekki er þetta neitt sérstaklega glæsilegt.

    "Óbreytt er ákvæði um heimild ráðherra til að takmarka eða banna akstur á
    jöklum og á snjó þar sem hætta er á náttúruspjöllum eða óþægindum fyrir aðra sem þar eru á ferð."

    "Útgáfu kortagrunnsins og þar með gildistöku hans skal auglýsa í B-deild
    Stjórnartíðinda og á það einnig við um uppfærðar útgáfur hans. Grunnurinn verður réttarheimild
    um heimilar akstursleiðir um landið og jafnframt verður ljóst að óheimilt er að aka vélknúnum
    ökutækjum á slóðum sem ekki eru sýndir í grunninum."

    "Lagt er til að ráðherra verði heimilt að
    takmarka umferð um vegslóða sem skráðir eru í kortagrunninn í samræmi við ástand þeirra."

    Það er að okkur sótt, vægt til orða tekið.





    20.11.2010 at 16:58 #710864
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Besta lausnin á þessum fjarskiptum, er að fara út í bíl. Stilla á endurvarparás 58 og kalla á þá sem eru þarna á ferð. 58 næst mjög víða í Reykjavík og að sjálfsögðu er Skjaldbreiðarsvæðið mjög vel dekkað af honum.

    Það þarf ekkert Tetra, gsm eða annað aðkeypt dót. Við eigum VHFið alveg skuldlaust og um að gera að nota það.

    Góðar stundir





    31.10.2010 at 22:36 #708574
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Í byrjun þessa mánaðar var komið ágætt færi á Grímsfjall frá Jöklaseli. Ég held að þeir sem voru á ferð þá hafi farið niður Tungnaárjökul í ca 1100-1200 metr, og töldu leiðina áfram niður í Jökulheima líklega ófæra, en þeir áttu svosem ekkert erindi þangað. Síðan hefur eitthvað snjóað, og eins og venjulega er bara ein leið til að vita hvort þetta er fært. Það er bara að drífa sig af stað og skoða aðstæður.





    17.10.2010 at 18:29 #706806
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    46" MT á 16" felgu er afburðadekk í þessari stærð. Tourisataökumenn eru búnir að prufa öll dekk á flestum felgustærðum , og reynslan hefur sýnt að 46" MT dekk á 16" felgu kemur lang best út.

    Góðar stundir





    16.10.2010 at 11:15 #705852
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Þetta er aldeilis flott hjá Páli Ásger. Ég held að ómerkilegri pennar séu vandfundnir.





    12.10.2010 at 22:38 #705824
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Þetta mál er allt hið furðulegasta. Eins og ég skil það, þá lagði svæðisráðið á vestursvæði fram þá tillögu að akstur um Vonaskarð yrði takmarkaður yfir hásumarið, en á öðrum tíma ársins yrði hún opin. Stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs ákvað að fara ekki eftir þeim tillögum, og hafa mér vitanlega ekki fært nein haldbær rök fyrir því.

    Þetta fólk skipar stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs.

    Stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs skipa:
    Anna Kristín Ólafsdóttir, formaður.
    Varamaður, Hilmar J. Malmquist.

    Ólöf Ýrr Atladóttir, varaformaður.
    Varamaður, Hjalti J. Guðmundsson.

    Böðvar Pétursson, aðalmaður og Katrín Eymundsdóttir, varamaður.

    Björn Ármann Ólafsson, aðalmaður og Ruth Magnúsdóttir, varamaður.

    Hjalti Þór Vignisson, aðalmaður og Björn Ingi Jónsson, varamaður.

    Elín Heiða Valsdóttir, aðalmaður og Eydís Indriðadóttir, varamaður.

    Þórunn Pétursdóttir, aðalmaður og Ingólfur Á. Jóhannesson, varamaður, tilnefnd af umhverfisverndarsamtökum.

    Magnús Hallgrímsson, aðaláheyrnarfulltrúi og Magnús Tumi Guðmundsson, varaáheyrnarfulltrúi, tilnefndir af Samtökum útivistarfélaga.

    Það gæti verið tilraunarinnar virði, að senda þessu fólki tölvupóst og fara fram á frekari rökstuðning fyrir lokun á Vonaskarði, en skýringarnar sem koma fram í verndaráætlun segja mér ekki mikið, og eins hafa verið færð ágæt rök fyrir því að lokun geti haft neikvæð áhrif á svæðið.

    Góðar stundir





    12.10.2010 at 09:42 #705814
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Það getur verið fróðlegt að lesa fundargerðir stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs. http://www.vatnajokulsthjodgardur.is/me … gerd25.pdf

    Þarna kemur meðal annars þetta fram.

    "4. Rekstrarmál 2010
    – Rekstraráætlun 2010 – samþykki
    Framkvæmdastjóri lagði fram áætlun fyrir árið. Rekstrargjöld eru áætluð 270
    milljónir, sértekjur um 100 milljónir og framlag úr Ríkissjóði um 170 milljónir.
    Reiknað er með að alls um 55 manns vinni við landvörslu og önnur störf fyrir garðinn
    næsta sumar.
     Rekstraráætlunin 2010 samþykkt."

    Samkvæmt þessu á ríkið að borga 170 milljónir með garðinum í ár eg eins að 55 vinni þar í sumar.

    Í þessu samheingi er vert að benda á, að ekki hefur verið landvörður við Gullfoss og Geysi undanfarin ár, þótt það svæði sé eitt vinsælasta og mest sótta svæði landsins.

    Ég efa það ekki, að það má mjög auðveldlega hagræða og nýta þessa fjármuni mikið betur en nú er gert.

    Góðar stundir





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 81 through 100 (of 1,627 total)
← 1 … 4 5 6 … 82 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.