Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
04.01.2006 at 12:51 #537692
Hvað er maður að hafa með í ferðir, og hvað er komið auka í jeppa.
Gasgrill og kút
Kaðal
Skóflu
Álkarl með stáltá
Vaðstöng með stálenda (2metra löng)
Loftdælu
Bússur
Neiðarprímus og neiðarmat (fer aldrai úr bílnum)
NMT Sími
VHF talstöð
Verkfærakista
Tappasett
Slökkvitæki
Sjúkrakassa
Auka ljós
Toppgrindarbogar og kassi á topp
Krómgrind
Milligír
Stýristjakkur
Spennubreytir
Gps-FartölvaNenni ekki að telja upp meira, eða giska á hvað þetta vigtar.
Góðar stundir
03.01.2006 at 22:34 #537790Ég hélt að Parlock vörubílabrettin kæmu með fallegum svörtum lit og stundum væri meiraðesegja hvít sportrönd á þeim. (ef þú kaupir delux útgáfuna) Af hverju á að fara að mála þetta ??? Ég á gamlan pensil sem er ekki orðin mjög harður, sem ég skal gefa þér í þetta verk. (þetta er ofnapensill með löngu haldi, og aðeins skakkur í annan endan)
Góðar stundir
31.12.2005 at 17:52 #537312Vil bara benda á það, til að valda ekki neinum misskilning, að ég er ekki fastur á þessum myndum. Það var bara svo gott veður að maður varð að stoppa til að njóta veðurblíðunar svona af og til. Maður setti svo bara í gír og gerði för fyrir Ford…
Áramótakveðja.
Hlynur-Inga-Selma.
23.12.2005 at 20:18 #535904Ertu þú að fara á fjöll til að aðstoða Patrol Eiður ??? Mig minnir að einhverjir aðrir hafi nú verið nokkuð mikið hjálparþurfi, og þótti nú ekki slæmt að fá að dingla aftaní Patrol.
SAS kveðja
Hlynur
ps: ég fer að gera mér ferð í Eyjafjörð með CB. Á líka eftir að sigra eina brekku þarna.
22.12.2005 at 17:37 #536064Prufaðu að henda bara loftsíuni úr, hann verður örugglega svakalega sprækur við það. Hvað var meira gert til að auka við aflið ?
Góðar stundir
21.12.2005 at 22:49 #536722Það er til góð lausn á þessu. Maður notar bara vandaðar smurolíur og hættir að hugsa um svona vesen.
Góðar stundir
20.12.2005 at 18:02 #536640Var að setja inn nýjar myndir af þessu svæði.
19.12.2005 at 21:35 #536628Jólakaffið var tekið á mánudagsfundinum síðasta. Kaffi, kakó, kökur og ég veit ekki hvað og hvað.
Það væri frekar að lepja úr einum jólabauk.
Góðar stundir
17.12.2005 at 22:35 #536138Núna er kapteininn búinn að bæta metið á pólinn aftur.
http://www.mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1174232
Á þessari krækju má sjá frétt og mynd af kappanum, sem að sjálfsögðu er með Lindberg Sírius á nefinu, það eina sem alvöru fjallamenn nota.
Góðar stundir
17.12.2005 at 18:53 #536230Ef þú ert að fá þér jeppa fyrir ekki lengri tíma en þetta, skaltu fá þér breyttan jeppa, eða sætta þig við að afskrifa breytinguna á þessum tíma.
Hlynur
16.12.2005 at 23:25 #536204Það er búið að sigra Grænland. Það er samt hægt að sigra það aftur, farið bara að vinna í þessu. http://www.dpc.dk/Res&Log/ProjectPlanne … Start.html
Þarna eru smá uppl um alla pappíra sem þarf að fá, og tryggingar. Annars eru nokkrar myndir í myndaalbúminu hjá mér.
Góðar stundir
ps: Það hefur aldrei komið Hræjero á Grænlandsjökul
16.12.2005 at 23:09 #536130Voðalega eru þið eitthvað hýrir í kvöld. Þessi sólgleraugu eru frekar í dýrari lagi, kosta trúlega ca 15000kr.
Hvað þessa hommaferð varðar, þá tók ég að sjálfsögðu konuna og barnið með, til að vera allveg stikk frí í Gay holuni. Þetta er annars frekar óhommalegur félagsskapur, talar mikið um hvað Siv er falleg, og síðan eftir nokkra bauka var tekið upp venjulegt spjall, ég dríf meir en þú, þú ert alltaf fastur og ekki má gleyma því besta, Patrol drífur mest. Þá fara sumir að reyna að tala aftur um Siv, en hafa ekki árangur sem erfiði.
Góðar stundir
16.12.2005 at 17:25 #196872Það hefur nú varla farið fram hjá nokkrum manni, að jeppamenn hafa tekið ágætis þátt í útrásinni sem hefur verið vinsæl að undanförnu. Íslenskir jeppamenn eru búnir að sigra Grænland og Suðurpólinn, svo eitthvað sé nefnt. Núna er nýjast uppátækið að fara til Kanada og vinna stóra sigra þar norðurfrá.
Þar sem einhverjir aðilar sem eru að plana þessa Kanadaferð eru nokkuð reglulegir gestir á spjallinu, væri fróðlegt að fá einhverja frekari vitneskju um þetta fyrirhugaða ferðalag.
Hlynur
16.12.2005 at 17:12 #534874Núna kemur kappinn og kýlir alla kalda. Svona smásálir sem vilja ekki taka eyjar með í þessa miðju.
Góðar stundir
15.12.2005 at 22:46 #536106Allra bestu gulu gleraugun sem hægt er að fá, eru frá dönsku fyrirtæki sem heitir Lindberg, en gerðin heitir Sírius. Þessi gleraugu er nefnd eftir Sírius hundasleðasveitunum á Grænlandi, en ekki veit hvort þeir noti þessi gleraugu, en það kæmi mér ekki á óvart. Það er búið að gera samanburð við mörg önnur gleraugu, þar á meðal Oakley, en Sírius er einfaldlega mikið betri. Það er sama fyrirtæki sem flytur þessi gleraugu inn og Oakley, en gleraugnabúðin í mjóddinni virðist vita mest um þessi gleraugu. Þetta eru nú ekki hátískugleraugu og hafa verið nefnd "hommagleraugun" af óskiljanlegum ástæðum.
Góðar stundir
10.12.2005 at 20:16 #532998Ertu sáttur við pústið ??? Er túrbóið að koma fyrr inn núna ???
Góðar stundir
08.12.2005 at 15:25 #535062Þetta er bara spurning um að vera aldrei faramaður.
44" rúlar
Góðar stundir
07.12.2005 at 18:18 #535256Ég man eftir bækling sem var með myndum af öllum helstu hásingum/drifkúlum þess tíma og nafni með. ( mest USA dót)
Mig minnir að Fjallabílar/Stál og stansar hafi gert þennan bækling og dreift á jeppasýningu fyrir nokkrum árum, og gott ef ég rak ekki augun í þennan bleðil einhverstaðar fyrir stuttu. Það væri flott að endurútgefa og uppfæra þennan bækling, eða koma þessu á netið fyrir áhugasama.
Hlynur
07.12.2005 at 12:40 #534826Ég mæli líka með að það verði gerð skoðanakönnun á því hvar Lyngdalsheiði er, og færa hana þangað sem menn vilja að hún sé.
Ef LMI eru búnir að mæla flatarmálsmiðju landsins, þá er miðjan þar, en ekki annarsstaðar. Síðan getum við fært Setrið og Hafnafjörð eitthvað í leiðinn.
Góðar stundir.
05.12.2005 at 13:50 #534922Svo er þessi fína auglýsingaherferð í gangi núna hjá einu tryggingafélagi. "Ef þú ert tryggður færðu það bætt"
Maður tekur ekki ljósið úr og reynir að selja það og svoleiðis vesen. Þeim ber einfaldlega að laga þetta, sama hvað það kostar. Er nokkuð þitt tryggingafélag að borga þetta tjón ???.
-
AuthorReplies