Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
01.02.2006 at 13:23 #540930
Það ætti að banna allt fæði, annað en þorramat í 1km radíus frá Setrinu þessa helgi. Það ætti að vera einn hákarlsbiti á klukkutíma fresti þegar verið er í Setrinu.
Hlynur
30.01.2006 at 20:10 #540822Þegar verið var að ræða þetta mál fyrir nokkrum mánuðum, var einhver sem sendi samgönguráðherra bréf og óskaði eftir að fá að gera tilboð í Kjalveg, enda hafði hann heyrt að hann væri til sölu. Líklega hefur hann ekki fengið svar frá ráðherra, en það má benda á það að það eru upplýsingalög í þessu landi og ráðamönnum ber skylda til að svara brefum frá almennum borgurum innan 2 vikna. Annars má kæra viðkomandi stofnun. Líklega verður maður að grafa þráðinn upp.
Góðar stundir
30.01.2006 at 09:57 #540658Er ekki rétt að bíða aðeins með að fara strax á taugum yfir góða veðrinu. Það þarf ekki neitt stórkostlegt að breytast til að fá ágætis færi um allar áttir. Þar að auki er komin hefð á að þorrablótið sé endalaust basl (hjá sumum allaveg) svo þetta stefnir allt í réttan farveg. Það sem er öllu vera, er að Lúddi hefur hugsað sér að fara á sleða inn í Setur á blótið. Fyrir nokkrum árum á heimleið af þorrablóti fékk Lúddi að taka í sleða sem var með í för. Kappanum tókst þá að keyra sleðan yfir sjálfan sig, og geri aðrir betur.
Góðar stundir
28.01.2006 at 21:04 #540594Super swamper eru of stíf í 38" dekkjum að mínu mati. Gætu verið ágætis sumardekk, en stela fullt af afli ef keyrt er á þeim úrhleyptum. Mudder og GH hafa sannað sig sem jafn bestu dekkinn, en AT gæti alveg átt séns líka. Önnur 38" dekk eru síðri til úrhleypinga vegna stífleika.
Góðar stundir
25.01.2006 at 21:36 #540258Flestir sem vilja 35 rillu öxla eru með Dana 70 (er undir F350) og þá er hægt að fá 10,5" drif í þær hásingar. Ég sá að Kiddi Bergs á Selfossi (kiddib notendanafn) var að auglýsa svona afturhásingu fyrir mjög stuttu hérna á vefnum.
Hlynur
25.01.2006 at 10:47 #540084Er ekki rétt að fara að senda matinn af stað strax, svo hann komist í tæka tíð ?
Líklega voru það mistök að fá suðurnesjamenn ekki til að kippa honum með um seinustu helgi.
Góðar stundir
23.01.2006 at 12:15 #539980Svo má ekki fara hraðar en 80km og borga 3000 í Hvalfjarðargöngin.
Góðar stundir
22.01.2006 at 12:27 #539858Mikið var gott að þessi ferð var misheppnuð. Núna er komin afsökun fyrir því að fara aftur, og Þröstur getur brotið hina lokuna og hinn framöxulinn.
Góðar stundir
21.01.2006 at 12:02 #539762Loftkæling er að vinna á lokuðu kerfi, svo þetta er ekki hægt.
18.01.2006 at 20:44 #539502Ef þú hefur ætlar að setja hann á 33" þarftu líklega ekki að gera neitt. Ef þú ætlar að setja hann á 44" þarftu að gera heilan helling.
Gangi þér vel.
17.01.2006 at 22:56 #539384Þér veitir nú ekki af sterkri og góðri hásingu Benni minn. Eins gott að rifja þetta upp af og til, svo maður gleymi þessu ekki.
Með Óþverakveðju.
15.01.2006 at 18:28 #539118K&N sía er of opin fyrir 3.0 Patrol. Air flow sensorinn mattast mjög fljótt ef K&N sía er í honum, og hann kostar alveg nokkra peninga. Notaðu bara orginal loftsíu.
Góðar stundir
13.01.2006 at 22:42 #539002Fyrst það nennir ekki nokkur maður að svara þér, mæli ég með að þú prufir leitarvélina, efst í horninu vinstramegin á síðunni. Það er trúlega búið að ræða dekk í þaula á þessari síðu, og mikill fróleikur í eldri þráðum.
Góðar stundir
13.01.2006 at 20:37 #538534Ekki gleyma að skoða Geysi, og sjá Strokk gjósa einu sinni. Eflaust er Gullfoss í klakaböndum núna, svo ekki gleyma að kíkja á hann líka.
Og ef ég heyri að þið hafið ekið um Lyngdalsheiði, en verið á Gjábakkavegi, verð ég alveg brjálaður. Ef þið farið um Gjábakkaveg, þá blasir Lyngdalsheiði við fyrir sunnan veginn.
Góðar stundir
13.01.2006 at 20:32 #538706Þessar litlu sandblásturs byssur eru frekar takmarkaðar í svona vinnu. Þær eru yfirleitt mjög loftfrekar, afkasta litlu og svo er alveg endalaus sóðaskapur af sandblæstri. Ég myndi í öllu falli reyna ap sprauta grunn á grindina, frekar en pensla.
Góðar stundir
13.01.2006 at 17:55 #538750Örnefnið Dvergar hef ég úr bók Hjörleifs Guttormssonar og Odds Sigurðssonar, Leyndardómar Vatnajökuls. Hef ekki fundi annað nafn á þessa gíga í öðrum ritum þrátt fyrir töluverða leit.
Hlynur
12.01.2006 at 23:12 #197041Var að fletta eitthvað bókum, í bók sem heitir Vatnajökull og er eftir Jón Eyþórsson veðurfræðing, og eins af stofnendum JÖRFI. Bókin kemur út 1960, en gamli skálinn á Grímsfjalli er byggður 1958. Í þessari bók er skálinn kallaður Snæheimar, líklega til að vera í stíl við Jökulheima, en þetta Snæheima nafn virðist hafa dottið uppfyrir einhvera hluta vegna. Það væri gaman að vita eitthvað meira um þessa nafngift og af hverju hún festi sig ekki í sessi.
Þess má líka geta að gígarnir við Þröskuld á Jökulheimaleið, heita Dvergar, og eru sagðir frá 1477. Ég var mikið búinn að leita að nafni á þessum gígum.
Hlynur
11.01.2006 at 15:34 #538424Núna er ég búinn veltast um á fjöllum í nokkra daga, og það var aldrei sama færið nokkurn dag. Líklega á færið eftir að breytast oft fram að helgi, svo menn ættu að hætta að hafa endalausar áhyggjur af færi og drífa sig bara af stað. Maður fer aldrei lengra en maður kemst hvort eð er.
Góðar stundir
07.01.2006 at 21:46 #538238Mánudagsfundir eru opnir fyrir alla sem hafa áhuga á ferðamensku og jeppum.
Hlynur
07.01.2006 at 01:47 #538168Það er aldrei neitt ófært. Bara spurning um þolinmæði, útsjónarsemi og réttu græjurnar.
Góðar stundir.
-
AuthorReplies