Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
20.11.2006 at 22:37 #568760
Fjörunin í mínum Patta er ein og Thule bjór, best í heimi.
Að framan eru OME lift gormar fyrir 80 Cruiser, en þeir eru 10 cm lengri en orginal Cruiser gormur og mikið lengri en Patrolgormar. Með þessu er OME demparar sem eru gerðir fyrir þessa gorma og Toyota samsláttarpúðar. Jafnvægisstöng var tekin úr að framan. Travel á þessari fjöðrun er 30cm.
Að aftan voru fyrst 10cm OME liftgormar fyrir Patrol og OME dempara sem fylgja gormunum. Mér þótti þeir full stífir fyrir tourhesta svo þeim var skipt út fyrir HT gorma, en sömu demparar notaðir áfram. Travel að aftan er 27 cm. Þetta er alveg skítvirka og betur fjaðrandi jeppi er vandfundin.
JeppaþjónustanBreytir smíðaði þetta allt saman og ég er alveg drullu ánægður með útkomuna, hann gleypir allar ójöfnur og hraðakstur á óslettu landi er alveg yndislegur.
Góðar stundir
19.11.2006 at 13:34 #568520Ég myndi segja að Dómadalur í þessa átt sé ekki góð leið, nema þau nenni að moka sneiðingin í hálsinum.
19.11.2006 at 12:58 #568514Einhverjar óljósar fréttir hef ég af því að ein framhásing sé komin í drasl og eitthvað meira fjör. Fer ekki einhver að hringja í fólkið ?
18.11.2006 at 00:18 #568620Olían sem við fáum í dag er mikið betri en það sem var í boði fyrir 10-15 árum. Þetta vax vandamál virðist að mestu úr söguni í dag, ef menn passa að skipta um síu á haustin, og hella einum brúsa af ísvara í tankin.
16.11.2006 at 19:45 #568326Það eru ekki sömu kerti í gamla 2.8 og 3.0 vél, enda eru þetta algjörlega óskyldir mótorara. Glóðakerti lagast ekki með því að svissa nokkrumsinnum af og á.
Hlynur
16.11.2006 at 17:17 #198975Ég verðað benda ykkur á myndasafnið hans Eiríks Kolbeins. Þarna eru mjög áhugaverðar jeppamyndir frá Grænlandi sem er mjög gaman að skoða. Myndasafn
16.11.2006 at 15:29 #568352Ég verð allavega fjögur kvöld að lesa þetta.
Góðar stundir
16.11.2006 at 10:05 #568320Þetta er líklega glóðakerti. Það þarf að taka millikælin af til að komast í kertin, og nota djúpan 12mm 3/8 topp til að ná þeim. Þegar ég skipti í mínum gamla voru þau bara til í umboðinu, en orginal kertin eru frá NGK svo kanski á bílanaust þau núna.
Hlynur
15.11.2006 at 22:49 #568154Ég yrði frekar á gönguskíðum en fá mér Parnelli.
Mudder, AT og Ground Hawg eru líklega bestu 38" dekkin fyrir snjóakstur.Góðar stundir
15.11.2006 at 22:42 #568258Það er líka ágætis lausn til á þessu vandamáli. Best er að kaupa sér bara jeppa, en vera ekki að reyna að breyta þessum slyddurum í jeppa.
Góðar stundir
15.11.2006 at 18:41 #568100Ég myndi skoða handbremsuna aftan á millikassanum. Gæti hlífin við skálina gæti verið beygluð eða steinn á milli ?
Hlynur
14.11.2006 at 16:38 #567972Um hvað var verið að spyrja ?
Hlynur
12.11.2006 at 22:50 #565936Þetta voru alvarlegar ásakanir sem embættið fékk á sig, og sýsli á Selfossi virðist hafa ákveðið að setja undir þessu, allaveg hefur hann ekki látið neitt fara frá sér um þetta mál. Svona framkoma rýrir yfirvöld öllu trausti, og þetta yfirvald ber manni skyldi til að virða !!! Þetta er vægast sagt til skammar fyrir sýslumannsembættið á Selfossi
Hlynur
11.11.2006 at 13:56 #567318Það er niðurlæging dauðans að setja Toyotu vél í Patrol. Hallgrímur var rekin úr Patrolfélaginu með skömm eftir þessi drottningarsvik. .
Góðar stundir
11.11.2006 at 00:48 #567146Ég er bestur í sólstól með Oban og vindil, bíðandi eftir öðrum. Svoleiðis er það vanalega.
Góðar stundir
10.11.2006 at 23:56 #567588Mins er sko á Polaris, ekki á neinu skíþódóti.
Góðar stundir
10.11.2006 at 21:58 #567140Svona besserwisser eins og ég viðurkennir aldrei neitt, sérstaklega ekki ekki ef á mig eru bornar upplognar sakir. Ég hef aldrei fest mig…..
Góðar stundir
10.11.2006 at 21:55 #567578Hver er að fara Sóleyjarhöfða innúr ??? er þetta huglausa ferðafélagið ? Ég held bara í þá von að Sóleyjarhöfði verði farinn heim, enda eru sóleyjarnar fallegar þarna.
Góðar stundir
10.11.2006 at 15:55 #567136Þetta er bara eitthvað eldgamlat og löngu staðnað 4×4 lið sem stendur fyrir þessari ferð. Sé varla að nokkur kjaftur nenni að fara með ykkur, enda keyrði þið alltaf á 15km hraða og kaffipásur á korters fresti. Það dugar varla helgin til að komast í Hraunayfirykkureyjar.
Góðar stundir
10.11.2006 at 15:49 #567484Ódýrasti 105 bílinn kostar 36000 evrur, mínus 16% Mws skattur.
2630880.- verð úti
100000.- flutningur
45% vörugjald = 3959776.-
24.5%vsk = 4929921.- kominn á klakan fyrir utan skráningu.Þetta er jeppa sem er ekki læstur og mjög hrár í alla staði, en kostar samt ca 5 millur. Ekki langar mig í svona dós á þessu verði
Hlynur
-
AuthorReplies