Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
30.09.2007 at 01:47 #598224
Þótt félagi Rúnar sé að reyna að dissa ofurPatrola, verður að segja honum til miska, að fáir hafa notið hjólfara þeirra betur en hann. Verðum vér í Patrolavinafélaginu því að telja þetta háð, enda er maðurinn á 2.4 hrælux og á er því ekki tekin trúarlega.
Góðar sundir
30.09.2007 at 01:41 #597846Gerum f4x4.is að undirsíðu hjá barnaland.is, og láglendisvæðum starfsemina hið fyrsta, enda virðist það vera stefna flestra í dag, að taka undir og grenja með minnihlutahópum.
Góðar fasistastundir.
28.09.2007 at 22:15 #597822Yaris er bara fyrir smástelpur, og ég efa að margar gelgjur séu fastagestir á þessum vef. Ég er á því að þeir sem spama auglýsingar á 4×4 með fólksbíladrasli og öðru álíka rusli, og eru ekki einusinni félagar í 4×4, ættu að fá bann í einhvern tíma.
Góðar stundir
26.09.2007 at 22:49 #597788Núna eru 4 fólksbílaauglýsingar í topp 10. Það þarf að breyta þessu eitthvað, en ég veit ekki hvernig.
Góðar stundir
25.09.2007 at 18:21 #597776Bara láta ykkur vita að það er Toyota Yaris diesel til sölu á vefnum. Sú auglýsing verður eiginlega að flokkast sem spam, og ég er kominn á þá skoðun að þeir sem "spama" auglýsingar svona mikið ættu að fá tiltal, eða aðra skömm í hattinn. Því miður er þetta að skemma fyrir öðrum. Ef ég er að leita að einhverju sérstöku, eins og Toyota Yaris, nota ég að sjálfsögðu leitarvélina á síðuni, oftast með ágætis árangri.
Góðar stundir
25.09.2007 at 10:08 #597920Litlanefndin fer að minna mig á Frjálslindaflokkinn. Endalaus hjaðningarvígi í allar áttir. Svo er dramað svo rosalegt, að þetta er eins og sjónvarpsþáttur sem er sýndur fyrir fjögur á daginn.
Ég mæli með að fyrrverandi formaður, hann Benni, taki nú aftur við stjórnartaumunum í litlunefnd, enda ekki vanþörf á sterkum leiðtoga í þetta embætti. Skítt með það, að hann sé á 49" dekkjum, það virðast allir í litlu vera á 38"+, nema mhn, og hann fær hvort eð er ekki að fara með. Ég held að besta lausnin sé að kalla saman auka aðalfund hjá 4×4 og fara yfir þessi mál.
Læt þessum hugrenningum mínum lokið að sinni.
Góðar stundir
22.09.2007 at 22:29 #59757222.09.2007 at 22:07 #597568Einn einn leiðangurinn í Setrið sem er þvílík svaðilför, að annað eins afrek hefur ekki verið unnið fyrr né síðar.
Ég fer reyndar að komast á þá skoðun að það ætti að banna Musso líka í ferðum, fyrst fólksbíllinn hjá mhn hinum bitra, er bannaður.
Svo má líka benda á það að suðurlandsdeild fór Bárðargötu í dag og ætlaði að vera í Nýjadal í nótt, en þeir virðast ekki nenna að skipa fréttaritara, sem situr inn fréttir ef einhver rekur við.
Góðar stundir
19.09.2007 at 23:25 #596712Ég verð nú að taka aðeins undir með Lauga í þessari umræðu. Ég sé ekki neitt sem bannar það að menn borgi gistingu með miðunum, enda eiga miðarnir að gilda alveg eins og peningar. Í þessari ferð sem hér um ræðir, er talað um þátttökugjald sem er 500 krónur á bíl, og svo gisting sér fyrir þá sem vilja gista í Setrinu. Svona fljótt á litið sé ég ekki neitt því til fyrirstöðu að menn borgi með gistimiðum, og njóti þar með betri kjara, heldur en að verða að borga 1000 kall inn á einhvern reikning. Þessar 300 eða 200 krónur skipta þá sem fara í svona ferð varla nokkru máli, frekar er þetta spurning um prinsip.
Þar fyrir utan er tímabært að endurskoða verðskrá á gistingu í Setrinu. Ferðafélagið er að hækka gistigjöld upp í 3000 krónur, og þar er verið að tala um lakari skála en Setrið
Hlynur
13.09.2007 at 21:58 #594786Eigum við ekki að kaupa olíubirgðarstoðina í Hvalfirði og panta síðan eins og einn olíudall til að fylla á draslið. Ég skrifa mig strax fyrir 100.000 lítrum.
Góðar stundir
13.09.2007 at 21:47 #596578Ég held að það sé einhver heimsk kelling úr Haukadal sem er með þessi dekk.
Góðar stundir
ps: þessi dekk eru ekki til í 44" svo hættu að spá í þetta.
11.09.2007 at 23:17 #596538Í gær ritar formaður 4×4 hér á vefin að landsfundur verði haldin í Setrinu helgina 19-21 Oct eftir að spurning kom um það á vefnum . Núna er búið að breita þeim pistli, og taka út að fundurinn verði í Setrinu. Breitingar eru svosem ekki slæmar, en æskilegt að einhver aðdragandi sé að þeim, og ekki sé skipt um skoðun eins og vindhani skiptir um vindátt. Svona láglendisvæðing á starfi 4×4 er mér bara ekki að skapi.
Hlynur
11.09.2007 at 22:32 #502327Það er gaman að skoða þessa gömlu pósta og gráta í hljóði. Hugsið ykkur hvað 4×4 væri í góðum málum núna ef við hefðum verslað okkar eigin húsnæði á þessum tíma. Núna erum við í fúlu leiguhúsnæði og eigum ekki neitt.
Góðar stundir
11.09.2007 at 22:26 #596528Núna er landsfundur í Setrinu búin að vera á dagsskrá lengi. Mér þykir það skrítið að innra starf 4×4 skuli ekki ganga fyrir í gistingu í Setrinu.
Hlynur
11.09.2007 at 19:54 #596520"Á Illugastöðum í Fnjóskárdal í Suður-Þingeyjarsýslu er orlofshúsahverfi með um 30 orlofshúsum og þar hefur SFR til umráða 2 hús (nr. 15 og 18) sem eru í eigu Einingar-Iðju á Akureyri. Í húsinu eru 2 svefnherbergi með rúmum fyrir 4 og auk þess er tvíbreiður svefnsófi í stofukrók og hægt að draga tjald þar fyrir. Sængur og koddar eru fyrir 8. Hægt er fá leigt lín hjá umsjónarmanni í þjónustumiðstöðinni. Húsin hafa bæði verið endurbætt nýlega þar sem m.a. gólfefni, eldhúsinnrétting, hreinlætistæki og fataskápar voru endurnýjaðir. Heitur pottur er við hvert hús. Af aðstöðunni á Illugastöðum má t.d. nefna leikvöll fyrir börn, sundlaug og gufubað. Lyklar eru afhentir í þjónustumiðstöðinni og þar er lítil verslun.
Illugastaðir eru í u.þ.b. 50 km fjarlægð frá Akureyri og þaðan er stutt til margra fegurstu staða Norðurlands eystra, t.d. er Vaglaskógur í aðeins 10 km fjarlægð. Í Fnjóskárdal er veðursælt og fallegt, gönguleiðir eru óteljandi og margs konar afþreying í boði á svæðinu, t.d. er hægt að kaupa veiðileyfi í Fnjóská."
Setrið er líklega sá staður sem er einna mest miðsvæðis fyrir alla, ekki bara höfuðborgarbúa. Einhvernvegin sé ég ekki landsfund fyrir mér í sumarhúsabyggð, með heitum pottum og öllu. Eins þykir mér trúlegt að þetta sé eitthvað dýrara en Setrið, sem við í 4×4 eigum.
Hlynur
10.09.2007 at 19:26 #596256Það væru nú bara guðlast að halda landsfund annarstaðar en í Setrinu, höfuvígi 4×4. Reyndar verður árshátíðin haldin á Akureyri, kanski einhver ruglingur þarna á milli.
Hlynur
02.09.2007 at 17:16 #595856Ég er með sama gír og Elli, og tel þetta það besta sem er í boði í Patrol.
Góðar stundir
01.09.2007 at 22:04 #595800Blönduvirkjun, Þrándur, Fjórðungsalda, Skrokkalda og Búrfell. Ef það væru settir langdrægir GSM sendar á þessa staði væri maður að kjafta í GSM á ótrúlegustu stöðum. Ég held að tæknilega séð, sé lítið mál að setja upp senda á þessu stöðum, og mörgum öðrum við hálendi. Mér fróðari menn geta vonandi lagt eitthvað til málana.
Hlynur
01.09.2007 at 20:55 #595796Vodafone er klárir núna, og drulla yfir símann. Núna ná þeir eflaust mörgum pirruðum NMT notendum yfir til sín, meðan síminn er enn að klóra sér í rassgatinu. Síminn gæti sett upp svona senda á mörgum stöðum á hálendinu, en er bara ekki að gera það, og seinir að laga sig að þörfum kúnnans. Mín reynsla er sú að menn eru flestir hættir að nenna að kveikja á NMT síma, nema eitthvað sérstakt sé í gangi.
Góðar stundir
29.08.2007 at 21:55 #59563047" dekkin sem voru undir hvíta Fordinum voru ekki að gera sig. Tvö urðu ónýt eftir ca 10 þúskm, þrátt fyrir ágæta meðferð, enda kona sem keyrir þann bíl. 46" er að koma best út undir þessu touristabílum. Síðan er auðvita hægt að fá sér bara alvöru keyrsuldekk undir stóra bíla, ég er núna á Michelin XML 395 85 R 20 sem eru æðisleg sumardekk undir Ford
Góðar stundir
-
AuthorReplies