FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Hlynur Snæland Lárusson

Hlynur Snæland Lárusson

Profile picture of Hlynur Snæland Lárusson
Virkur síðast fyrir 8 years, 7 months síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 241 through 260 (of 1,627 total)
← 1 … 12 13 14 … 82 →
  • Author
    Replies
  • 09.09.2008 at 13:09 #628842
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Ég vil bara þakka Róbert fyrir fróðlega og góða innkomu á spjallið.

    Góðar stundir





    07.09.2008 at 18:26 #202884
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Ég er búinn að vera að googla Bjallavirkjun, en gengur ekki of vel að finna út hvernig hún á að vera. Eitthvað hafa blöðin verið að birta myndir og maður er að reyna að átta sig á þessu.

    Mér sýnist að stíflan komi einhversstaðar fyrir neðan Tröllið, og þaðan komi göng eða skurður til austurs. Síðan verður önnur stífla við Bjalla með litlu lóni og þar verður inntakið fyrir virkjunina, en það lón mun líklega drekkja Bjallavaði, Maríufoss og Hófsvaði. Síðan virðist affallið eiga að fara beint út í Krókslón, en ekki um farvegin. Kýlingar og Svartikrókur munu verða vatnslausir að mestu leiti. Jökulkvísl mun þó áfram renna um Svartakrók, en þetta verður ekki svipur hjá sjón.

    Haustið 2006 fórum við nokkur í 44″ ferð og vorum heilan dag á þessu svæði, og skoðuðum það nokkuð vel. Þarna er mjög fallegt og ef menn fara aðeins útfyrir helstu leiðir, eru þeir einir í heiminum.

    Mér hryllir við þessum virkjanahugmyndum og vona að þeim verði snarlega hent í ruslið.

    Hlynur





    29.08.2008 at 20:45 #628472
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Núna þurfum við bara að fá sambærilegar upplýsingar um Þvottapoka. Hvernig þvottapoka á maður að kaupa ?

    Góðar stundir





    26.08.2008 at 23:06 #628264
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Þetta eru ágætis dekk, gott grip og gott á keyra á þeim. En ef þú þarft að fara í 16.5" felgur skaltu gleyma þessu strax. Þessi dekk rifna mjög gjarnan við felguna, eins og sum önnur dekk fyrir 16.5" felgur.

    Góðar stundir





    21.08.2008 at 00:01 #627860
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Líklega er dekkið vírslitið.

    Góðar stundir





    16.08.2008 at 01:29 #627034
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Þetta var Goðinn sem fórst í Vaðlavík í des 1993, þegar hann var þar við björgunarstörf. Óttar hefur skrifað eina Útakllsbók um þetta sorglega slys. Eins er þetta flestum holl lesning um þetta slys. http://hallgrimurg.blog.is/blog/hallgri … ry/484077/





    15.08.2008 at 22:07 #627516
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Ég man eftir góðu myndbandi sem ber þetta nafn "SOS Setrið kallar" Þá fór hópur vaskra manna í Setrið með varahluti og bjargaði lífi tugi manna, að mig minnir :)





    15.08.2008 at 19:34 #627372
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    GSM á Snjóöldu er komin í gang, svo núna er hægt að kjafta í síman í lauginni í Landmannalaugum. Ef einhver er að fara á fjallabakið um helgina væri fróðlegt að menn myndu góna aðeins á síman til að kanna útbreiðslu, og eins ef menn eru með Tetra.

    Góðar stundir





    14.08.2008 at 23:31 #627412
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Er eitthvað orðið ákveðið hvernig þetta verður ? Eiga að vera fyrirlestra og myndasýningar ? Verður eitthvað fjallað um upphaf jeppaferða ? Verður Jón Ofsi geymdur í búri og hafður til sýnis ? Er búið að fá Geimstöðina á sýninguna ? Er ekki örugglega 44" lágmarks stærð fyrir sýningarbíla ? Verður ekki bara Patrol til sýnis ? Verður ekki örugglega keppni í einhverju ?

    Góðar stundir





    14.08.2008 at 18:30 #627368
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Núna er verið að koma í gang Tetra og GSM sendum á Snjóöldu, svo það er að koma mjög gott GSM og Tetra samband í Landmannalaugum og á svæðinu í kringum Snjóöldu. Það verður mjög fróðlegt að prufa útbreiðslu frá þessum sendi.

    Hlynur





    12.08.2008 at 23:43 #202774
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Ég var að skoða myndir frá Óskari Erlings, þar sem hann var meðal annars á ferðalagi um Kjöl. Þar sýnir hann þessa mynd https://old.f4x4.is/new/photoalbum/default.aspx?file=landslag/6211/52255
    og segir að þarna sé Kjalvegur sem Reynistaðabræður fóru um forðum. Eitthvað er Óskar að flaska á þessu, því Reynistaðabræður fóru upp hjá Tungufelli og yfir Jökulfallið við suðurenda Innri Skúta. Þaðan í Gránunes og austurfyrir Kjalhraun, þar sem þeir urðu úti í nóvember 1780. Það hefur margt verið ritað um þetta ferðalag, og það upplýstist aldrei hvað varð af þeim fjármunum sem þeir voru með, en fundust ekki hjá líkum þeirra né í Tjaldinu. Sumir hafa talið að menn sem voru sendir suður Kjöl til að leita þeirra stuttu fyrir jól, hafi fundið líkin og rænt þau og jafnvel komið þeim fyrir í klettaskoruni sem þau fundust 65 árum seinna.

    Ef menn hyggja á ferðalag yfir Kjöl, er kjörið að rifja upp söguna um Reynistaðabræður.

    Góðar stundir





    11.08.2008 at 23:18 #627020
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Þessi guli var inni hjá Guttasonum í mosó í vor. Þeir sögðu mér hver á hann, en að sjálfsögðu er ég búinn að gleyma því. Ég reyni að gleyma flestu sem viðkemur Ford sem fyrst.

    Góðar stundir





    09.08.2008 at 22:22 #626118
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Við höfum ekki neitt að gera við sturtu í setrinu fyrr en búið er finna heitt vatn. Þá vill maður fá vatnaveröld með rennibraut og öllu.

    Hvað skálagjaldi varðar, þá var orðið tímabært að hækka það, og sérstaklega á utanfélagsmenn. Hinnsvegar þykir mér rétt, að ákvörðun um hækkun sé tekin á aðalfundi 4×4, eins og oftast hefur verið gert.

    Góðar stundir





    09.08.2008 at 22:01 #627098
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Þetta voru útlendingur á breyttum bílaleigubíl. Gott að þeir náðust.

    Góðar stundir





    08.08.2008 at 22:04 #627056
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Handbremsa í Sprinter er ekki neitt stórvandamál orginal. Þetta er svipaður búnaður og er í Toyota LC 80. Það þarf að herða útí þær, og þá virkar dótið ágætlega. Handbremsa í Patrol er samt mikið betri, en ég tel ekki þörf á því að mixa svoleiðis búnað í Sprinter, enda er viðhaldið á þeim óverulegt og frekar ódýrt í þetta.

    Góðar stundir





    31.07.2008 at 22:45 #626592
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Ekki ómerkari maður en Mad Max var að ferðast í hvíta 46" hórukassanum. Hann var svo ánægður með bílinn og eigandan, að það hálfa hefði verið nóg.

    Góðar stundir





    31.07.2008 at 22:38 #626536
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Þarna kom svarið. Leiðangur Ahlmann 1936 skýrði Norðlingalægð. Reyndar kemur það fram í annari bók, sem heitir Jöklaveröld að þeir hafi skýrt Norðlingalægð, en ég man ekki hvort það kemur fram í bókinni hans, enda nokkur ár síðan ég lasa hana seinast, en hún er til hjá mér upp í hillu. Jöklaveröld er núna á náttborðinu og ég er kominn í mest spennandi kaflana í henni. Þar eru viðtöl við gamla jökla hunda sem voru í þessum fyrstu leiðangrum og kunna margar sögur, og þekkja til annara leiðangra sem farið hafa á Vatnajökul. Vonandi verður sem mest af þessum sögum skráð, svo sérvitringar og grúskarar geti lesið sér til um þetta efni.

    Hlynur





    31.07.2008 at 20:34 #626530
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Olgeir er nokkuð heitur, en þetta var leiðangur sem gaf þetta nafn. Sami leiðangur bjó líka til örnefnið Djöflaskarð. Ég er ekki kominn það langt í bókinni sem ég er að lesa til að vita hvot hægt sé að eigna þeim Jóni og Sigurði þessa nafngift, og eins er ég ekki alveg viss um að þeir hafi verið báðir í þessum leiðangri. Þetta skýrist fljótlega.

    Hvað Hríshólma varðar, þá ætla ég að giska á hólman sem var í Tungnaá rétt við Tangavað. Sá hólmi hefur verið skógi vaxin, en er nú óðum að eyðast.





    30.07.2008 at 19:43 #625960
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Búhúhú. Ekki fara að grenja.

    Góðar stundir





    29.07.2008 at 23:58 #625938
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Var það ekki Sniglabandið sem söng svo undurfallega "jéttu úldin hund kona, jéttu úldin hund"

    Góðar stundir





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 241 through 260 (of 1,627 total)
← 1 … 12 13 14 … 82 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.