Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
27.11.2008 at 00:29 #633680
Ef ekki er búið að renna af nöfum sita felgurnar vitlaust á nafinu og allt hrystist og skelfur. Þetta hlutur sem menn hafa stundum klikkað á.
Venjulega 6 gata stál og ál felgur passa ekki á Patrol nema renna af nöfum. Skoðið þetta.
Góðar stundir
24.11.2008 at 17:41 #633416Það eru til svokallaðir Turbo hattar sem eru settir á snorkel. Þeir snúast og kasta frá sér öllum snjó, og vandamálið er úr söguni. Turbo hatta má sjá á Patrol jeppum HSSR og eins á snjótroðara HSSR.
Góðar stundir
24.11.2008 at 17:36 #633304Hlöðufellið er komið inn aftur. Við höfum samt ekki hugmynd um hvað er í gangi þar uppi núna, enda fór það í lag alveg sjálft.
Hvað varðar flottu útbreiðslumyndirnar af endurvörpunum, þá er sá sem gerði þær ekki lengur í fjarskiptanefnd og við verðum að blikka hann voða fallega og reyna að múta honum með bjór til að hafa hann góðan. Eigum við ekki að segja að með nýja vefnum verði allt uppfært og gert voða fínt.
Hlynur
Fjarskiptanefnd
23.11.2008 at 18:34 #633366Hvernig er þetta með Ford-drusluna hjá Sæma, hún er hætt að fara á fjöll nema vera skilin eftir einhversstaðar. Allavega var einn alvöru bíll (PATROL) með ykkur til að redda hlutunum.
Góðar stundir
22.11.2008 at 16:22 #633270Lenti í þessu fyrir stuttu. Plötunum var solið af bíl svona ca beint fyrir framan nefið á mér. Degi seinna er hringt frá shell vesturlandsvegi og okkur tjáð það að bifreið með stolnu plötunum hafi stungið af án þess að borga.
Góðar stundir
22.11.2008 at 13:22 #203249Var að fletta Mogganum og sá stutta grein um þokkalegan barnabílstól. Rauk strax á netið og googlaði kvikyndið en auðvita er ekki byrjað að framleiða hann, og því síður kominn verðmiði. Maður heldur sig þá bara við Recaro enn um sinn. Hérna er krækja á hann. http://www.autoblog.com/2008/11/18/carbon-fiber-baby-seat-keeps-junior-secure/
Góðar stundir
16.11.2008 at 22:45 #632928Þessi slóði er í öllum kortatækjum frá Garmin. Eins er hann í kortunum sem Nobeltec notar. Síðan ætti maður að forðast að fylgja ferlum of mikið og fara þangað sem augun leita.
Góðar stundir
07.11.2008 at 19:19 #632050Skrapp skottúr í Laugarnar í dag. Mikið tekið upp af snjó, en þó er ekki orðið snjólaust . 29" jeppar eiga ekki erindi í Laugarnar núna, en 33" undir meðal jeppa ætti að sleppa ef þeir eru í fylgd með "fullorðnum"
Góðar stundir
03.11.2008 at 23:53 #632084Það er ekki neitt mál að ferðast með ungabörn í vetrarferðum. Dóttir mín fór sína fyrstu löngu vetrar og jöklaferð 3 mánaða og hefur ekki slegið slöku við síðan. Ef fólk er meðvitað um hvað það er að gera er þetta ekki neitt mál.
Góðar stundir
02.11.2008 at 18:21 #632066Ef stóllinn(eða burðarrúmið) er gerður til að vera í framsæti og líknarbelgir ekki til staðar ætti þetta að vera í besta lagi.
Góðar stundir
18.10.2008 at 18:37 #203080Endurvarpinn á Hlöðufelli er kominn í gang aftur. Það gekk rólega að fá far upp með Gæsluni, svo Simmi tók sig til í dag og gekk á fjallið með nýtt loftnet og þær græjur sem þurfti til að koma endurvarpanum aftur í gang. Það var sett betra loftnet á endurvarpan og hann er að nást vel víða í Reykjavík með bílstöð. Sem dæmi var ég upp á höfða áðan (rétt við húsnæði 4×4) og talaði við Benna Magg sem var í Fordinu fyrir utan Setrið. Ekki slæmt að geta talað úr Setrinu til Reykjavíkur í gegnum Hlöðufell. Stöðin sem er inn í Setrinu er ekki með rás 58, en Benni tekur hana með í bæinn svo hægt sé að setja 58 inn í hana. Núna er um að gera að prufa 58 út um allt og láta okkur vita hvar hann er að nást. Mig langar sérstaklega til að vita hvort hann er að nást á Grímsfjalli.
Ég er bara á því að Simmi eigi skilið að fá Thule eftir þennan göngutúr.
Kveðja
Fjarskiptanefnd
17.10.2008 at 23:35 #630102Ég var að skoða matseðilinn og rak þar augun í eitthvað hræðilegt. Það á virkilega að bera Danskt kartöflusalat á borð fyrir íslendinga. Eins og allir vita eru Danir næst versta þjóð í heimi á eftir Bretum, og á þessum krepputímum þarf að efla samkend og þjóðernisvitund hjá okkur íslendingum. Ég fer því fram á að nafninu á þessu salati verð breytt í eitthvað annað og betra, eins og fjallakartöflusalat, kartöflusalat Setursins eða draslið sem var skafið upp úr kælikistuni eftir seinasta jeppatúr.
Góðar stundir
ps: óska eftir góðu nafni á þetta kartöflusalat.
16.10.2008 at 20:41 #631216Það er þeirra að komast að því og láta okkur hina vita.
Góðar stundir
16.10.2008 at 20:23 #631212Frétti af 44" bíl sem kom frá Hveravöllum í gær eða fyrradag og hann var í snjó upp í stuðara á kafla. Setrið og næsta nágreni er meiri snjóakista en kjalvegur, og líklega er að bæta hraustlega í núna.
Það er best að drífa sig bara af stað, og snúa þá bara við ef maður drífur ekki meir.
10.10.2008 at 23:22 #203052Hvað er að frétta af þessari sýningu ? Eru bara kreppubílar til sýnis, eða er eitthvað alvöru dót þarna líka ? Er það satt að það séu risastórir olíupollar undir öllum USA bílunum þarna svo það horfi til vandræða með gólfið eftir sýningu ? Var öllum Toyotunum ýtt inn í hús því þær eru allar bilaðar ? Er virkilega verið að láta fólk borga fyrir að skoða Land Rover ? Hvað eru margir Patrolar þarna ????????
Og á ekki að vera eitthvað partý á morgun ????
Góðar stundir
04.10.2008 at 20:28 #630414Ég er með Fini í Patrolnum hjá mér. Skrældi skelina af og setti hana inn í innrabrettið vinstramegin að aftan. Ég braut loftsíuna strax í burtu, en ég hafði viftuspaðan áfram á henni. Lagði að henni með rafsuðukapli og notaði 100 amp öryggi. Loftslangan er tengt beint í dæluna inn í bíl og er fasttengt. Rofinn er líka afturí hjá dæluni, allt voða aðgengilegt þegar skottið er opnað. Þessi búnaður klikkar bara ekki, þrátt fyrir gríðarlega notkun.
Góðar stundir
19.09.2008 at 17:03 #629638Bæði Hekla og N1 eru að selja þessar byssur. Þær eru frekar dýrar, 100þús +.
Góðar stundir
15.09.2008 at 22:51 #629444Ég hef gaman af góðum spurningum og pælingum um myndir, örnefni og ýmislegt sem viðkemur ferðalögum um ísland, en öllu má auðvita ofgera og ekki laust við að mhn sé búinn með kvótan fyrir þetta ár
Spurning missir þó alltaf marks ef hægt er að googla svarið, og gerir hana lítið spennandi.
Góðar stundir
12.09.2008 at 22:37 #628868"Fögur er hlíðin" sagði einhver fyrir mörgum árum. Sá sem sagði þetta var reyndar að horfa í hina áttina, en látum það liggja milli hluta núna.
Þegar maður kemur keyrandi í átt að Seljalandsfoss þá er hlíðin fögur, og ég vona að þessari ásýnd verði ekki spilt enn frekar.
Mér þykir vanta aðeins í þessa umræðu, smávirkjun sem var byggð rétt fyrir innan Seljalandsfoss. Þar hafa menn sótt vatn í nálæga læki og skorið hlíðina ljótum svöðusárum sem líklega koma ekki til með að hverfa. Það má segja að vesturhlíðar Eyjafjalla séu að verða hálf subbulegar.
Góðar stundir
12.09.2008 at 21:36 #628642Það fréttist af stikumönnum áðan, en þá töldu þeir sig vera við Árbúðir. Eitthvað fóru menn að þefa út í loftið og fundu lykt að djúpsteiktum frönskum kartöflum. Við nánari skoðun reyndust þeir vera við Staðarskála. Fréttir herma að þeir séu byrjaðir að stika nýju leiðina að nýja Staðarskálanum sem verið er að byggja.
-
AuthorReplies