Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
18.03.2009 at 19:16 #643656
Menningar og söguteingdar ferðir þykja mér lang skemmtilegastar. Það gefur ferðalaginu aðra upplifun að fylga í fótspor annarar og velta fyrir sér hvernig þeim gekk og hvernig aðstæður hafa breyst í gegnum árin. Síðan er sagan af flugvélinni sem komst ekki á loft, ekki minna spennandi, og mikil og góð saga af því þegar menn keyrðu á jarýtu upp á Bárðarbungu og grófu hana upp og komu niður af jökli til viðgerðar. Ef menn lesa sér til fyrir ferðina fá þeir mikið meira út úr henni og allt aðra upplifun.
Auðvita langar mann alveg rosalega með í þetta ferðalag.
Hlynur
18.03.2009 at 17:41 #643648Rosalega lýst mér vel á þetta ferðalag. Er ekki skylda að menn lesi kaflan í Hálendið heillar um Geysis slysið og eins bókina frá Óttari ? Ferðalög og leiðir verða oft aðeins öðruvísi þegar þau eru komin í sögutengingu í leiðina.
Góðar stundir
13.03.2009 at 19:42 #643448Bílasmiðurinn hefur verið með mjög góð verð á ljósum. Alveg þess virði að skoða þau.
11.03.2009 at 16:56 #643148Voðalegt væl er í fólki. Það er ekki neitt mál að fara á fjöll með börn ef maður hagar ferðalaginu eftir því og er með traustum og góðum ferðahóp sem tekur tillit til þess að maður er með ungabarn. Ég og konan fórum með báðar dætur okkar á miðjuna, aðra 4 ára og hina 7 vikna og allt gekk mjög vel í alla staði. Maður verður að vera meðvitaður um það að stoppa á tveggja tíma fresti til að taka þau úr stólnum og sú stutta þarf að drekka reglulega. Miðjuferðin var frekar auðveld ferð og aksturtími passlegur. Við vorum 4 tíma frá Hrauneyjum að miðjuni með einu góðu stoppi og svo vorum við 3 tíma yfir Hofsjökul í Kerlingafjöll með góðu stoppi á jöklinum. Ég og mínir ferðafélagar hafa í gegnum árin venjulega ferðast með alla fjölskylduna, enda er þetta fjölskyldusport. Þeir sem ekki vilja fara með sín börn á fjöll gera það þá bara ekki. Sú eldri var á svipuðum aldri þegar hún byrjaði að fara í jeppaferðir og hún veit fátt skemmtilegra í dag en fara í jeppaferð og gista í skála. Þannig að ég blæs bara á þetta væl.
Góðar stundir
ps: hvernig var hægt að vera í 18 tíma í þessari ferð ?
08.03.2009 at 23:42 #637822Það var mjög gaman að koma inn á miðju á Laugardaginn. fult af alskonar bílum og hellingur af fólki. Þetta var líklega eins besta jeppasýning sem ég hef komið á.
Góðar stundir
08.03.2009 at 21:56 #642770Ertu að spá í kvöldbíltúr ?
Það er örugglega þungt á jökli núna.Góðar stundir
01.03.2009 at 16:52 #639574Var að þvælast á fjallabaki í gær og hitti fasta fólkið.
Þarna var Astro á 44" sem fór niður um ís rétt fyrir innan Hnausaskarð en það var búið að ná honum upp en eitthvað voru stífur á afturhásingu í slæmu ásigkomulagi. Þeir voru að basla við Ford Econoliner sem var með nefið á kafi.
Það er æskilegt að fara inn með Eskihlíðarhnausum og sleppa því að reyna við sléttuna.
Góðar stundir
28.02.2009 at 00:43 #642112Heyrðu Erlingur, ég get bent þér á eitt soldið gott.
Þegar Akureyringar og aðrir sveitamenn koma hér suður og fara að láta dólgslega, þá erum við með ágætis lausn til að losna við þá aftur á snyrtilegan máta. Núna þegar MHN er mættur til ykkar og gæti farið að hegða sér dólgslega, þá er best að deila þessu með þér. Þetta klikkar bara ekki.
http://kemi.is/?c=frettir&id=18&lid=&pid=
Góðar stundir
28.02.2009 at 00:11 #642106Datsun veit ekki hvað búkkar eru og að sjálfsögðu stendur hann í öll fjögur hjól, klár í hvað sem er. Samt er einhver sleðafílingur í manni núna.
Góðar stundir
27.02.2009 at 22:44 #642100Ég sá það Erlingur að þú ert kominn á Ford. Þá er líklega bjórkvöld á hverju kvöldi hjá þér, enda er endalaust hægt að drekkja sorgum sínum ef maður á Ford.
Með Datsun kveðju
23.02.2009 at 18:39 #203894Var beðin um að setja þetta á spjallið.
38″ dekkjum á felgum fyrir Land Róver stolið.
Fyrir uþb. 2 vikum var brotist inn í gám hér fyrir aftan aðsetur Ferðaskrifstofunnar
Ísafoldar í Suðurhrauni, Garðabæ. Stolið var 4 ónotuðum negldum Artic Trucks 38″
dekkjum á hvítum 15″ felgum með 5 gata Land Rover deilingu. Einnig hurfu 4 nýjar
samskonar felgur. Við áttum þennan gang negldan og kláran til að setja undir ef
hjálparsveitir eða álíka aðilar myndu leigja af okkur fullbúinn ISAK fyrir erfiðar
aðstæður.Góður möguleiki ætti að vera að hafa uppi á þessu góssi þar sem kreðsinn fyrir
notendur þessarar stærðar af dekkjum og felgum fyrir Landróver er tiltölulega
þröngur. Reyndar er ekki útilokað að þjófarnir hafi affelgað dekkin og ætli að
selja þau sér. Það gerist hins vegar ekki nema á hjólbarðaverkstæði eða með góðum
græjum, dekkin eru vel föst á felgunum.Má ég biðja ykkur að nefna þetta í ykkar hópi og hafa augu og eyru opin gagnvart
falboði þessara hluta eða vinnu með þá, sjá felgur á mynd. Takist okkur að hafa upp
á góssinu læt ég alla sem eru á þessum sendilista vita um það.Með fyrirfram þökk og kveðju,
Jón Baldur
22.02.2009 at 00:15 #641686Ég hef alltaf keypt þetta hjá Bílanaust. Þeir eru með ágætis sett þar sem allt kemur í einum pakka, mottur og íblöndunarefni.
Góðar stundir
14.02.2009 at 14:19 #640812Það er töluvert minna vesen að koma Ljónstaðagírum í. Hann er allur minni og nettari og töluvert styttri. Það þarf að síkka millikassabitan og skera úr honum fyrir framskaftið. Það þarf að skera aðeins úr boddýinu og svo þarf að síkka einn grindarbita. Mesta málið er að fá skiptistengurnar þokkalegar, en þetta er auðvita bara vinna..
31.01.2009 at 21:33 #639676Ef einhver skyldi nú finna naglaklippurnar hans Sigga tæknó, þá yrði hann örugglega ánægður. Mig minnir að þær hafi týnst á Klakksleið, á leið í setrið
Það eru nokkur ár síðan hann týndi þeim, og það er ekki nokkur sjón að sjá neglurnar á kallinum núna. Það er orðið mjög aðkallandi að finna þessa naglaklippur svo Siggi geti aftur klippt á sér neglurnar.
Góðar stundir
26.01.2009 at 23:44 #639006Kolbrún Halldórsdóttir umhverfisráðherra.
úffffffff……
26.01.2009 at 23:19 #639024Á nú að láglendisvæða þorrablótið núna. Verður boðið upp á jeppaleik hjá Björgun fyrir blót ?
Góðar stundir
24.01.2009 at 19:02 #638822Það verður alltaf að setja herðir í lakkið til að fá þetta gott.
Ég er öðru hvoru með PPG trukkalakk í höndunum og blöndunin er 2 af lakki, 1 af herði og 0,5 af þynni.
Þetta er samt mjög mismunandi eftir lakki.
Góðar stundir
18.01.2009 at 19:43 #638416Ég myndi byrja á að skipta um síu.
Góðar stundir
18.01.2009 at 12:37 #638292Litlunefndarferðirnar eru að verða aðal uppákomuferðirnar. Bara gaman af þessu.
Góðar stundir
16.01.2009 at 21:48 #638096Þar sem þessi bifreið er af Ford gerð, þá tel ég allar líkur á því að hún verði biluð áður en húm kemst í snjó.
Góðar stundir
-
AuthorReplies