Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
26.01.2006 at 23:24 #540460
Ætlunin er að nota þetta í fólksbíl, svo að þetta ætti að duga í það. Það væri mjög gaman, ef einhver á slátur úr svona drifi, læstu eða ólæstu að fá að skoða það til samanburðar.
Andri G, alveg týndur í vitleysunni…..
26.01.2006 at 22:47 #540454En pælingin er eiginlega meiri en þetta sko…..
Þannig er mál með vexti og vaxtavexti að gamli Volvo 244 er á dana 30 hásingu, og gaman væri að sjá hvort þetta passaðí úr einhverju Jeep dæmi. Þess vegna ég að spá í er hvort þetta hafi komið original í einhverju af þessu dóti, og liggi kannski einhversstaðar í skúrum landsins.
26.01.2006 at 21:25 #197174Þegar stórt er spurt verður oft fátt um svör….er að velta fyrir mér hvort til sé tregðulæsing í dana30 t.d. í Jeep framhásingu, já eða hvaða dana 30 sem er, veit þetta einhver???
21.12.2005 at 01:03 #536386Þessi grái Scout II þarna, er þessi bíll ofanjarðar í dag?
08.03.2005 at 17:29 #518388Heyrði einusinni að rellan væri svo gleið að þetta kostaði grindarbreytingu og allan pakkan, en sel það ekki dýrara en ég keypti það….
21.02.2005 at 19:44 #517344Hann er líklega staðsettur í mælaborðinu vinstra megin, ættir að sjá hann ef þú tekur hlífina undan mælaborðinu, svartur kubbur með ca 8-10 vírum,í stökum tengjum. Þetta bilar frekar mikið. Ef þú tekur hann úr sambandi þarftu að tengja parkvírinn sem liggur upp í stýri saman aftur, hann er klipptur þegar þetta er sett í, átt að sjá mjög greinilega hvernig þetta hefur verið samsett.
13.01.2005 at 19:03 #506942Gormar eða bogin flatjárn
13.01.2005 at 18:57 #506940Gott saman…en frekar bjórinn
15.09.2004 at 23:11 #505812Hljómar líka dálítið eins og falskt loft,skoðaðu lögnina mjög vel aftan úr tank,bæði ryð og eins öll samskeyti.
Annars veit ég voða lítið um bíla sko….
Kveðja, Andri G
17.01.2004 at 18:30 #484228Sælir,ég er nógu klikkaður til þess,að mér finnst í sjálfu sér eyðslan ekki meginmálið,í þetta eina skipti sem ég þorði að mæla hlunkinn hjá mér eyddi hann ca.27 lítr/100km, af bensíni það er að segja,og megnið af tímanum með krampa í hægri fæti innanbæjar.En hvað með það? Þetta er GAMAN,og þegar menn spyrja hvað hann eyði,fá allir sama svar: Öllu sem ég dæli á hann. Þetta er leiktæki,og ef ég á ekki fyrir bensíni þá keyri ég hann bara ekki. Einfalt, ekki satt?
Dönsum úrkomudansinn og munum eftir smáfuglunum.
Kveðja, Andri G H1871
10.05.2003 at 00:45 #473238Sælir. ég myndi giska á leguna/fóðringuna í swinghjólinu, ef hún fer koma oft ÆGILEG óhljóð!
Kv. Andri
-
AuthorReplies