Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
20.01.2004 at 13:36 #485182
Sæll
Ég held að ég hafi borgað um 55þús í Arctictrucks fyrir að skipta um og stilla inn ný hlutföll í 8" drif. Í því er innifalið hlutföllin og vinnan en ekki þurfti að skipta um legur.
—
Hjörtur
06.01.2004 at 10:27 #467580Sælir
Ekki lumar einhver ykkar á því hvort það er söluaðili fyrir Brahma á íslandi ? eða er hætt að framleiða þessi hús?
Vantar afturhlera og vinstri rúðu á brahma hús.
—
Hjörtur
hjortur@snerpa.is
05.01.2004 at 18:25 #483378Munurinn er einfaldlega sá að 35" kostar umtalsvert minna en 38"
Ég er á ’92 árgerð af bíl, á þeim tíma er´hann búinn að slíta nokkrum 35" göngum yfir sumartímann. 38" vetrardekkin eru svo gott sem óslitin enda nánast eingöngu notuð í snjó.
—
Hjörtur
29.12.2003 at 14:34 #193358Sælir
Hvar hafa menn verið að festa reimdrifnar loftdælur í hilux ?
Ég hef séð að í SR-5 bensínbíll þá eru boltagöt á vélinni til að festa dælu og laust hjól fyrir reimina.
Á diesel hiluxnum mínum (ekki sr-5) þá sé ég engar festingar og enginn laus hjól fyrir reimina.
Hefur einhver pælt mikið í þessu og fundið góða lausn ?
—
Hjörturp.s. (Ég veit vel að kanar/patrolar/ koma með þessu)
12.12.2003 at 10:37 #482588Við verðum nú að viðurkenna að patrol vélin er mun öflugri, enda verða þær nú aldrei það gamlar að tilkeyrslu sé lokið.
Patrol er jú mátturinn og dýrðin, eða hvað ?
—
Hjörtur
10.12.2003 at 15:49 #482482Ég sé að í myndaalbúminu þínu ertu með autocad teikningu af fjöðruninni. Er möguleiki að fá þessa teikningu hjá þér ?
—
Hjörtur
hjortur@snerpa.is
03.12.2003 at 10:55 #481916Ég veit nú ekki um þetta margfalda slit.
Ég er á ’92 árgerð af hilux sem hefur verið 38" breyttur frá upphafi. Í honum er orginal kúpling og allar legur og það eina sem hefur verið skipt um er hlutfallið í afturhásingunni (5.71). Þetta fer náttúrulega allfarið eftir hvernig notkun er á græjunni og hvernig meðferðin er frá ökumanninum.
Með smá skynsemi og engan múrstein á olíu/bensíngjöf þá sparast oft mikið.
—
Hjörtur
01.12.2003 at 16:29 #193251Nobeltec Visual GPS Planner 6,5
Hefur einhver prófað þetta forrit ?
Segjast vera með kort af öllu landinu í 1:500.000, 1:250.000 og 1:50.000.
Bæði í tvívídd og þrívídd.Sjá t.d. á rs.is
væri sérstaklega gaman að vita hvort þrívíddarmöguleikinn er að virka sem skyldi.
—
Hjörtur
13.08.2003 at 19:32 #475538Þannig að ég sit þá á gullmola með minn 38" breytta hilux sem er aðeins ekinn 170þús ?
—
Hjörtur
31.07.2003 at 10:19 #475190Þetta með endingu hlutfalla fer nú aðallega eftir meðferð á þeim og einnig skiptir miklu máli að þau séu rétt innstillit í byrjun. Af Spjallinu hér skilst manni að 5:71 hlutföllin séu handónýt og endist alls ekki lengur en 30.000km. Ég er að skríða í 170þús km með 5:71, þannig að endingin getur verið góð. Þú getur séð í verðlista á http://www.arctictrucks.is hvað ný hlutföll kosta, svo er náttúrulega einhver vinna á (réttu) verkstæði að troða þeim í.
Er þetta bensín/diesel turbó, intercooler/plain bíll sem þú ert að spá í ?
—
Hjörtur Arnþórsson
01.03.2003 at 19:02 #469708Fann það um leið og ég fann handbókina.
—
Hjörtur
01.03.2003 at 16:44 #192259Sælir
Ekki vill svo heppilega til að einhver ykkar sem á Toyotu með rafmagnsdriflæsingum geti frætt mig um það hvort það sé einhvers staðar öryggi fyrir læsingarnar ?
Er með Hilux ’92 og önnur driflæsingin virkaði hjá mér en eftir að ég þreif hina læsinguna og liðkaði upp og setti í samband aftur þá virkar hvorug. Sama hvort ég er með aðra í sambandi eða báðar.
—
Hjörtur
14.11.2002 at 15:53 #464180Það borgar sig ekki að spara í þessum málum.
Hinsvegar skil ég ekki hvernig sumir geta brotið drif eftir drif (og aðra hluti) í þessum jeppum sínum.
Er að skríða í 160þús. km á 5:71 í hilux en það er svo sem farið að syngja óskemmtilega í því.
—
Hjörtur Arnþórs
-
AuthorReplies