You are here: Home / Ólafur Gunnarsson
![]() |
FERÐAKLÚBBURINN 4X4 |
|||
Menu |
Pantaði þetta á ebay. Kostaði um 6.500 kall hingað komin. Þetta virkar vel með OziExplorer og Nobeltec. Það þarf bara að passa að tækið sendi frá sér NMEA staðlað merki en ég held að þau geri það flest.
Ég næ oftast fínu merki með tækið við framrúðuna, hefur dottið út sé keyrt inn dali. Þetta er víst vatnsþétt þannig að þeir gera ráð fyrir að menn smelli þessu á toppinn á bílnum.
Þetta virkar vel fyrir mig og gerir allt sem ég þarf ennþá. Ég ætla nú að fá mér gott tæki í bílinn seinna meir en þetta er góð og ódýr lausn þangað til.
Þetta var mjög skemmtilegur dagur og frábærir ferðafélagar. Það kom flestum á óvart hve 31" bílarnir stóðu sig vel, maður má greinilega ekki vanmeta þá. Trooper-stelpurnar stóðu sig vel í sinni fyrstu ferð og gáfu körlunum ekkert eftir.
Við vorum líka mjög spennt fyrir að skella okkur yfir jökulinn en það má ekki taka sénsa þegar veðurspáin er slæm, maður verður stundum að vera skynsamur.
Takk fyrir okkur.
Sjáumst hress í næstu ferð,
kv,
Óli og Hrafnhildur
…með á morgun. Sjáumst hress í fyrramálið.
Hjólbarðinn