Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
28.11.2007 at 15:08 #604774
Þessi bíll verður hrikalega flottur, rakið sýningareintak, ég mundi velja innspýtingarvélina, þegar metið er inni bensíneyðsla og áreiðanleiki held ég að hún hljóti að hafa vinninginn.
02.08.2007 at 13:31 #594360Ekkert lítið steikt lið!!!
27.02.2007 at 18:54 #582276Bílanaust er farið að flytja inn tölvukubba í dísel jeppa og pickupa.
Kv. Hjalti
05.02.2007 at 11:53 #579132Hver valt og hvar og hvernig o.s.frv.???
Kv. Hjalti
02.02.2007 at 09:27 #578648Út á Granda, beint á móti gamla Ellingsen húsinu (eiginlega sama plan) er fyrirtæki sem er að selja víra, man ekki hvað það heitir, var út á Seltjarnarnesi áður.
Allavega sérhæfa þeir sig í vírum og held ég öllu tilheyrandi.Kv. Hjalti
25.01.2007 at 09:31 #576928Allavega þarftu að hafa félagsnúmer klárt til að fá afsláttinn í Bílanaust.
Kv. Hjalti
12.01.2007 at 17:34 #574836Er ekkert að frétta af hvíta Patrolnum???
Kv. Hjalti
(sem er að drepast úr forvitni)
11.01.2007 at 11:08 #574808Já, væri fróðlegt að fá fréttir.
Kv. Hjalti
30.12.2006 at 15:04 #572938Sælir, afhverju senda hjálparsveitir ekki gíróseðla inn á hvert heimili einu sinni á ári eins og mörg samtök gera?
Ég veit að ég mundi ekki telja eftir mér að styrkja þá um 5 eða 10 þúsund einu sinni á ári en ég er bara ekki þessi flugeldatýpa og nenni ekki að skjóta þessu upp, og þar af leiðandi versla ég ekki flugelda.Gleðilegt ár
Kv. Hjalti
27.11.2006 at 16:21 #569662Þeir hafa átt kæla fyrir sjálfskiptingar.
Kv. Hjalti
14.11.2006 at 23:50 #5679002,9 vélin er að skila aflinu ágætlega miðað við stærð, ég átti svona óbreyttan bíl sem ég var að keyra innanbæjar á c.a. 15-17 lítrum. Fer sennilega niðurundir 13 lítra utanbæjar. Held að endingin sé nokkuð góð. Ég gæti samt séð fyrir mér að hún væri frekar lúin á 38" breyttum bíl.
Framhásingunni held ég að borgi sig ekki að bjóða upp á 38" dekk.Kv. Hjalti
14.11.2006 at 12:32 #567896Yfirleitt ef að menn breyta Broncoinum mikið þá skipta þeir út hásingunum og setja hásingar undan gamla Bronco í staðinn. Svo ef menn vilja fara alla leið þá er skipt um restina af kraminu. [url=http://www.f4x4.is/new/photoalbum/default.aspx?file=oldsite/1864/32829:peorllef][b:peorllef]Mynd[/b:peorllef][/url:peorllef]
14.11.2006 at 12:27 #567808Þakka kærlega viðbrögðin, komnar ágætar tillögur.
Kv Hjalti
13.11.2006 at 15:45 #567800Takk fyrir svörin en það sem ég var aðallega að reyna að fiska eftir er hvernig þetta sé tengt. Einhver sem veit það????????
Kv. Hjalti
13.11.2006 at 12:11 #567792Hvar eru öll séníin, er virkilega enginn sem hefur gert þetta?
Kv. Hjalti
12.11.2006 at 22:44 #198945Ég er að vandræðast með hvernig á að tengja lock-up á 700-skiptingu. Ég er með 305 TPI vél og gæti sennilega tengt skiptinguna við tölvuna frá vélinni en ég hef heyrt að menn hafi tengt lock-upið við takka á einfaldan hátt. Endilega ausið úr viskubrunninum, hvað best er að gera.
Kv. Hjalti
29.09.2006 at 22:33 #561778Hemill á Skemmuvegi, þeir geta lengt barkann fyrir þig. Þeir eru í götunni fyrir neðan Byko.
Kv. Hjalti
15.08.2006 at 18:56 #557838Það er svona geymsla á bæ rétt hjá Flúðum, eigandinn heitir Halldór og er hjá Hellu og Varmalögnum EHF. Fín geymsla.
Kv. Hjalti
06.07.2006 at 22:22 #555834Ég er með kassa með rafmagni en gamlan snúrumæli í bílnum. Er hægt að breyta því???
Kv. Hjalti
21.06.2006 at 13:49 #554992þessa dempara stillirðu með því að þrykkja þeim alveg saman og snúa, réttsælis til að stífa en rangsælis til að slaka. Illmögulegt nema að taka þá úr.
Kv Hjalti
-
AuthorReplies