Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
18.02.2015 at 22:12 #776867
Jæja félagar nú er þetta allt að bresta á.
Lagt verður af stað kl 19 á föstudagskvöldið frá Ábæ.
Ekki er alveg ákveðið með ferðalög á laugardeginum en veður og snjóalög ráða því.
kv stjórn
29.01.2015 at 20:03 #776385Sælir félagar
Þorrablót Skagafjarðardeildar 4×4 verður haldið helgina 20 – 22 feb næstkomandi.
Farið verður í Gíslaskála og gist tvær nætur. Blótið verður á laugardagskvöldinu.
Gisting tvær nætur og matur 9100 kr skráning hjá Benna 8254570 eða Hilmari 8995204 einnig hérna á síðunni má skrá sig.
Nánari ferðatilhögun síðar en á laugardeginum látum við veðrið ráða hvert stefnan verður tekinn.
kv stjórn
11.01.2015 at 22:39 #776081Sælir félagar og gleðilegt nýtt ár.
Næsti fundur verður miðvikudaginn 14 jan kl 20 í Kjarnanum.
Fundarefni.
Ferðafrelsi.
Þorrablót 2015 hvenær og hvar.
Ferðir í vetur, umræða um þær.
kv Stjórn Skagafjarðardeildar.
24.12.2014 at 10:16 #774960Kæru félagar 4×4
Stjórn Skagafjarðardeildar óskum ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á
nýju ári. Vonum að nýtt ár færi okkur snjó og mikið af honum.
Jólajeppakveðjur….
Stjórn Skagafjarðardeildar
05.12.2014 at 21:01 #774444Jæja félagar nú ætlum við að halda í okkar árlegu aðventuferð.
Lagt verður af stað kl 11 og er stefnan sett á Skiptabakka, síðan er ætlunin að renna og kíkja á Ingólfsskála og athuga hvort ekki sé allt í standi þar. Síðan höldum við aftur í SKiptabakka annað kvöld og grillum saman og er áætluð heimferð á sunnudag.
kv Stjórn
04.11.2014 at 18:11 #772899Sælir félagar. Næsti fundur verður haldinn í Kjarnanum kl 20 miðvikudagskvöldið 5 nóv.
Fundarefni:
* Bragi Skúla verður með fyrirlestur um Hofsjökul.
* Sagt frá landsfundinum.
* Árshátíð 22 nóv næstkomandi
* Aðventuferð í Skiptabakka 6 des næstkomandiKv stjórn
28.08.2014 at 20:16 #771238Jæja félagar nú er þetta rétt að bresta á. Förum í Vaglaskóg á morgun. Síðan verður tekinn rúntur kl 10 út í Fjörður og Flateyjardal. Þegar við höfum grillað saman á laugardeginum tökum við veðurspána fyrir sunnudaginn og ákvörðun tekin í samræmi við hana með heimferð.
Kv Stjórn
02.07.2014 at 21:00 #769821Jæja ekki ráð nema í tíma séu töluð.
Sumarferð Skagafjarðardeildar verður farin 29 – 30 ágúst.
Munum nú eftir að taka helgina frá.Farið verður í Vaglaskóg á föstudeginum. Laugardagurinn verður svo notaður í rúnt út í Fjörður og Flateyjardal um kvöldið verður síðan grill og gleði í Vaglaskógi.
Kv stjórn.
02.07.2014 at 13:01 #769812Held að þetta sé gott mál ef við höfum burði til að fjármagna þetta. Allir vita að standsetja svona hús tekur mikin tíma og kostar mikla peninga. Sveinbjörn talar um að samningurinn við Skeljung verði að vera í höfn næstu árin, ekki spurning að landa honum. Ef félagsmenn eru tilbúnir að fórna tíma sínum í þetta er það hið besta mál og gerir ekkert annað en að efla félagsandann.
07.11.2012 at 17:47 #759869Kæru félagar
Mælifell er staðurinn og opnar húsið kl 19:30
Sjáumst fersk á fundinum í kvöld
kv skemmtilega nefndin
05.11.2012 at 19:26 #759865Jæja ágætu félagar
hérna kemur matseðillinn á árshátíðinni okkur um næstu helgi
Hvítlauksristaður humar og rækjur á salatbeði
Steikarhlaðborð – Lambalæri – Folaldafile – Kalkúnabringur ásamt meðlæti
Eftirréttur borinn á borð – Óvænt endalok
Frábær skemmtun á vægu verði
kv Nefndin
26.10.2012 at 19:24 #224749Sælir félagar nú er enn og aftur að bresta á árshátið Skagafjarðardeildar.
Laugardagskvöldið 10 nóv næstkomandi verður hátíðin haldin þannig að takið kvöldið frá.
Nánar síðar
Kv skemmtinefndin
23.10.2010 at 08:46 #705886upp
16.10.2010 at 11:17 #705876upp endilega látið vita ef þið fréttið af svona spili til sölu
13.10.2010 at 18:30 #705872upp
12.10.2010 at 10:57 #705870upp
11.10.2010 at 16:35 #705868Já þetta er nú farið að ganga full langt….. Vonandi þarf aumingja maðurinn/mennirnir ekki á björgunnarsveit að halda
kv Hilmar
09.10.2010 at 19:25 #215079Félagar athugið Warn 9500 spili var stolið af björgunarsveitarbíl fyrir utan Kjarnan bílaverkstæði KS Sauðárkróki.
Þetta spil er með dynex ekki vír þannig að ef einhver fréttir af svoleiðis spili til sölu án fjarstyringar látið lögregluna á Sauðárkróki vita í síma 455-3366 eða verkstjóra á verkstæðinu í síma 455-4574með bestu kveðjum Hilmar
23.05.2009 at 09:34 #648076Svona er lífið en Hofsósi afhverju ekki á Króknum
05.03.2009 at 19:00 #637774Ups komst upp um strakinn Tuma:)
Kv Hilmar
-
AuthorReplies