Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
28.02.2003 at 21:32 #469362
Ekki efast ég um þekkingu þína á Sovésku stjórnarfari, kæri" eik". En fyrir mér er það líka Stalínskt lýðræði þegar þeir sem mótmæla Kárahnúkavirkjun heimta þjóðaratkvæðagreiðslu þrátt fyrir að mikill meirihluti alþingis hafi samþykkt framkvæmdina og í öllum hlutlausum skoðanakönnunum komi fram að 2/3 hlutar þjóðarinnar eru framkvæmdinni fylgjandi. Stalín hvað?!
Virkjunarkveðja
28.02.2003 at 20:32 #469358Veistu það Hvati, að þegar Sogsvirkjun var byggð, einhvern tíman fyrir miðja síðustu öld, ef ég man rétt,þá var það stærsta virkjun sem byggð hafði verið í landinu?
Við værum ekki komin andskoti langt útúr moldarkofunum ef alltaf hefði verið haft að leiðarljósi að ekki mætti gera neitt stærra eða meira en gert hefði verið áður.
Og ég fyrir mitt leiti er ekki svo hrokafullur að halda að akkurat núna sé komið að einhverjum endalokum í þróun og framkvæmdum og hér og nú skuli staðar numið!Framfarakveðja.
27.02.2003 at 21:46 #469350Það virðist vera að einungis 0,7% þjóðarinnar hafi mætt í"Lækjargötuhálendisgönguna" þrátt fyrir dyggan stuðning og ókeypis auglýsingar undanfarna daga í fréttatímum RÚV (sem kannski ætti frekar að heita RÚVG,ríkis útvarp vinstri grænna). Ætli 0,7 prósentin verði ekki kölluð "mikill mannfjöldi" í næsta fréttatíma?
Mér þótti ánægjulegt að aðeins svona fáir skyldu láta draga sig þetta á asnaeyrunum.
16.12.2002 at 20:47 #465466Það er fróðleg kjallaragrein eftir Örn Jónasson viðskiptafræðing í opnu DV í dag.
Hún er í miðju blaðinu en ekki VINSTRA megin og ekki með GRÆNU letri.
( Lesist með báðum heilahvelum ef þau eru til staðar)Rafmagnskveðja HarSv
15.12.2002 at 19:08 #465416Sæll Isan.
Um metangas veit ég ekkert annað en að það kemur vond lykt af því þegar maður framleiðir það sjálfur !
Aftur á móti þekki ég vel að hlaða upp lofti með afgasi. Þessi útbúnaður var í mörgum eldri bátum. Þá var krani á pústgreininni við einn stimpil ( yfirleitt þann fremsta) frá krananum var síðan rör inná loftkút. Loftið var síðan notað til að ræsa vélina.
Þetta voru alltaf hæggengar vélar, ég man ekki eftir að hafa séð þetta á meira en 1000 rpm vél. Það mátti alls ekki hlaða hreinu lofti ( súrefni ) inn á kútinn nema tæma hann fyrst, annars varð sprengihætta.
Hvort þessi útbúnaður gengur í bílvélum sem snúast margfalt hraðar veit ég ekki. Ég hugsa líka að afgasið væri ekki mjög hollt fyrir dekkin. Það gengur hins vegar ekki að sitja krana á spíssarörið því olíuverkið verður að koma olíunni frá sér og myndi því sprengja eitthvað.Kveðja Haraldur
12.12.2002 at 20:28 #465286Ég tek heils hugar undir orð Undra, látum ekki öfgasinnaða minnihlutahópa leggja undir sig þessa síðu.
Þetta er sama fólkið og var á móti Blönduvirkjun , álverinu á Grundartanga ,hvalveiðum o.fl o.fl.
Þetta eru þeir sem eru á MÓTI öllu.
Látum lýðræðið hafa sinn gang og virkjum við Kárahnjúka eins og mikill MEIRIHLUTI Alþingis vill og eins og mikill MEIRIHLUTI þjóðarinnar vill.Þeir sem vilja vera " fúll á móti" geta svo flautað eins og þeir vilja hver í sínu horni.P.S. Gassi, hefurðu heirt minnst á stuðla og höfuðstafi?
28.11.2002 at 20:30 #191830Sælir félagar!
Mig langar að fá svör við nokkrum spurningum og þá helst frá stjórnarmönnum eða þeim sem þekkja vel innviði og lög klúbbsins.
Í fyrsta lagi;hvaða skylirði þarf að upfylla til að geta stofnað deild innan klúbbsins? Þarf til að mynda einhvern lágmarks fjölda félaga og þá hvað marga?
Hvað með önnur réttindi og skyldur, t.d. hvaða hlutfall af félagsgjaldinu kemur í hlut deildar og hvað í hlut klúbbsins? Allar upplýsingar um þetta mál vel þegnar.Með ferðakveðju
Haraldur
11.11.2002 at 19:59 #464142Sælir félagar.
Ég er nýbúinn að mæla innanbæjareyðsluna á runnernum hjá mér og það voru sléttir 20 lítrar á hundraðið. Hann er á 38" með 3" púst. Í sumar mældi ég hann í langkeyrslu með 15,7 lítra. Svo er mjög auðvelt að auka eyðsluna ef maður fær fiðring í bensínfótinn….
21.08.2002 at 18:06 #191651Sælt veri fólkið.
Getur einhver sagt mér hvort 3 lítra dieselvélin úr 4Runner passar beint ofan í bensínbílinn eða þarf miklu að breita og þá hverju?
Kveðja HarSv
28.07.2002 at 09:58 #462570Góðan daginn!
Þú gætir prófað að fá þér þynnir fyrir "Bit ætigrunnur".
Hann vinnur vel á svona löguðu og skemmir þó ekki lakkið, að minnsta kosti ekki ef hann er notaður í hófi.Kveðja Haraldur
-
AuthorReplies