Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
04.04.2004 at 16:57 #502701
Varðandi þetta, eins og margt annað, siglum við hraðbyri inní það sem kallað hefur verið "norska stefnan", þ.e.a.s. það er allt bannað sem ekki er leyft.
Núna bitnar þetta beint á okkur, þ.e. félögum í 4×4, og þessvegna látum við það okkur einhveju varða, en hvar sem borið er niður í þjóðfélaginu er það sama uppi á teningnum, þ.e. ofstjórnun. Má í því sambandi benda á tilraun stjórnvalda til að draga úr óhóflegri þenslu heilbrigðiskerfisin, þar sem menn hafa átölulaust komist upp með að kalla þetta niðurskurð,þrátt fyrir að einungis sé stefnt að því að kostnaður við heilbrigðiskerfið aukist ekki "nema" um 9 miljarða á þessu ári! Það er nefnilega svo auðvelt og ódýrt að slá sig til riddara með því að segja "og hvað ef þú yrðir nú veikur?"
Þetta var nú smá útúrdúr sem vísar til meintrar ofstjórnunar í þjóðfélaginu.
Ein meginorsök ofstjórnunarinnar er sú að nú á tímum komast þeir einir til valda sem stjórnmálaflokkarnir ala upp í allskonar ungliðahreifingum allt frá 14 ára aldri og hafa því enga msjálfstæða skoðun, aðeins skoðun flokksins.
Þessi galli lýðræðisins veldur því að alltof margir undirmálsmenn (þingmenn, ráðherrar) komast til valda.
Síðan eyða þessir undirmálsmenn starfsævinni í að reysa sér minnisvarða í formi misgáfulegra lagasetninga, t.d. í formi lagasetningar um Vatnajökulsþjóðgarð.
Samt sem áður er lýðræðið skásta stjórnskipulagið, eða hvað? Anarkismi???Eyjakveðja, HarSv.
02.04.2004 at 23:50 #194131Sú merka stofnun Íslandspóstur færði mér tímaritið Setur í dag. Ég er einn af þessum „nytsömu sakleysingjum“ sem borga árgjaldið mitt skilvíslega en tek að öðru leiti ekki mikinn þátt í félagsstarfinu (þar veldur staðsetning mín á landinu sennilega mestu).Engu að síður hef ég ómælda ánægju og gagn af félagsskapnum, þá kannski fyrst og fremst af vefsíðunni, spjalli og auglýsingum.
Einnig hef ég mjög gaman af að fá Setrið í hendurnar,því það er alltaf svolítið öðruvísi að fletta blaði en að horfa á tölvuskjá. Og þá er ég kannski loksins kominn að efninu! Setrið var óvenju efnismikið og skemmtilegt að þessu sinni og allt efni þess mjög áhugavert.
Þó má ég til með að hrósa sérstaklega „Annál Rottugengisins“. Það var lipurlega skrifuð og skemmtileg frásögn. Til að slá svo aðeins á (of)lofið, þá hefði verið ennþá betra að gefa smá skýringu á mönnum,;hvað heita þeir fullu nafni sem nefndir eru til sögunnar undir gælunöfnum, hvernig bílum aka þeir, o.s.fr.
Og síðast en ekki síst,hver er höfundur títtnefnds annáls?
Með þökk fyrir ágætt blað.
Eyjakveðja X-5620
24.03.2004 at 23:04 #500803Sæll.
Þú getur reiknað með að hann eyði 15-20 lítrum í byggð síðan +++ á fjöllum, fer allt eftir færð og þyngd á bensínfæti.Kveðja Haraldur
24.03.2004 at 23:04 #493517Sæll.
Þú getur reiknað með að hann eyði 15-20 lítrum í byggð síðan +++ á fjöllum, fer allt eftir færð og þyngd á bensínfæti.Kveðja Haraldur
14.02.2004 at 21:31 #488684Þakka þér fyrir upplýsingarnar Lúter. Þar sem það er nú frekar úrleiðis fyrir mig að koma við í Mörkinni svona á leiðinni heim úr vinnu, þá er spurning hvernig við landsbyggðarpúkarnir getum nálgast merkið.Það væri kannski hægt að stinga einu eða tveim eintökum í umslagið með næsta "Setri".
Kveðja HarSv.
14.02.2004 at 21:31 #494355Þakka þér fyrir upplýsingarnar Lúter. Þar sem það er nú frekar úrleiðis fyrir mig að koma við í Mörkinni svona á leiðinni heim úr vinnu, þá er spurning hvernig við landsbyggðarpúkarnir getum nálgast merkið.Það væri kannski hægt að stinga einu eða tveim eintökum í umslagið með næsta "Setri".
Kveðja HarSv.
14.02.2004 at 16:48 #193763Sælir félagar.
Ég var að velta fyrir mér hvort einhverstaðar væri hægt að fá skjaldarmerki 4×4 klúbbsins á límmiða.
Þetta er fallegt merki sem gaman væri að hafa í afturglugganum.Kveðja HarSv.
13.02.2004 at 08:33 #488494Góðan daginn.
Ég seldi núna í haust svona bíl, reyndar árgerð ’91, ekinn 190 þúsund á 700 þúsund þannig að svona lítið ekinn bíll færi allavega ekki á minna en það.
Það þarf ekki að vera neitt svaka dæmi að reka svona bíl,þetta eru sterkir bílar með frekar lága bilanatíðni og eyðslan ofbauð mér ekki. Í innanbæjarsnatti var hann að eyða 22 lítrum en í langkeyrslu 15-16 lítrum. Svo var að sjálfsögðu auðvelt að ná eyðslunni upp með því að þyngja bensínfótinn.
Hvort þetta sé heppilegur byrjandabíll, ja afhverju ekki?
Kveðja Haraldur.
13.02.2004 at 08:33 #493987Góðan daginn.
Ég seldi núna í haust svona bíl, reyndar árgerð ’91, ekinn 190 þúsund á 700 þúsund þannig að svona lítið ekinn bíll færi allavega ekki á minna en það.
Það þarf ekki að vera neitt svaka dæmi að reka svona bíl,þetta eru sterkir bílar með frekar lága bilanatíðni og eyðslan ofbauð mér ekki. Í innanbæjarsnatti var hann að eyða 22 lítrum en í langkeyrslu 15-16 lítrum. Svo var að sjálfsögðu auðvelt að ná eyðslunni upp með því að þyngja bensínfótinn.
Hvort þetta sé heppilegur byrjandabíll, ja afhverju ekki?
Kveðja Haraldur.
31.12.2003 at 22:20 #193373Kæru félagar!
Óska öllum jeppa og fjallamönnum gleðilegs nýárs og farsældar á komandi ári,með þökk fyrir skemmtilegt spjall á
árinu sem er að líða.Ferðakveðja Haraldur.
29.12.2003 at 20:50 #482918Sæll Ólsari.
Þú segir í pistlinum þínum " spottar eru ekki sérlega dýrir nema maður fari í dynex".Smá ábending, Dynex er ekki teigjuspotti,það er ENGIN teigja í því efni.
Kveðja HarSv.
10.09.2003 at 20:29 #476326Í sumar lét ég hjólastilla bílinn í Bíltak H/F á Selfossi. Ég fór fyrst í Toyota umboðið á Selfossi,en þeir sögðust ekki gera þetta sjálfir, heldur vísuðu mér á Kristján í Bíltak og þar fékk ég mjög góða þjónustu sem ég mæli hiklaust með. Það besta var þó að verðið kom mjög á óvart í jákvæðum skilningi. Ekki alltaf sem maður borgar reikningana sína með slíkri ánægju !
Fjallakveðja HarSv.
28.08.2003 at 14:01 #475922Þar sem ég hef lítið verið við tölvuna í sumar hefur greinilega ýmislegt farið framhjá mér.
Hvernig dekk eru þetta, hvað kosta þau, er einhver reynsla komin af þeim o.s.fr.
Væri ekki hægt að fá myndir af þeim hérna inná síðuna?
Mig er nefnilega farið að sárvanta betri fótabúnað.Kveðja HarSv.
09.06.2003 at 22:00 #192635Er Setrið ekki mánaðarrit ?
Ég hef ekki fengið Setrið síðan í marz.?Eyjakveðja Haraldur.
13.03.2003 at 21:16 #192350Sælt veri fólkið.
Er einhver sem getur kennt mér ráð til að lappa uppá krómfelgur sem eru orðnar ryðskellóttar? Er kannski eina ráðið að henda þeim.
Kveðja Haraldur
09.03.2003 at 17:25 #470200Voru það þúsund bílar sem fóru í 1000 bíla ferðina?
09.03.2003 at 16:54 #470208Farðu bara í einhverja smiðju og láttu búa til læsingarjárn beint á snerilinn og hentu teinunum sem ganga út til hliðanna. Þetta á ekki að kosta mikið.
Fjallakveðja HarSv.
09.03.2003 at 16:46 #469728Til hamingju með bílinn BÞV. Áttu ekki fleiri myndir af honum? Það væri líka gaman að sjá myndir af breytingaferlinu.
Fjallakveðja HarSv.
09.03.2003 at 16:39 #470222Sæll Davíð dekkjakall.
Ég samhryggist þér að hafa velt bílnum.
Áttu ekki myndir af honum fyrir og eftir veltu?Fjallakveðja HarSv.
09.03.2003 at 16:04 #470164Sæll AtliE.
Hvað þarft þú að keyra mikið á diesel til að vera farinn að spara miðað við bensín?
Runnerinn hjá mér er að eyða 20l í snattinu hérna í Eyjum en í langkeyrslu er hann með 16l . Ég er að keyra 1500-2000 á mánuði og miðað við þessa keyrslu er kostnaðurinn svipaður og var meðan ég var á DC diesel.
Maður fær semsagt mikið fleiri hross fyrir sama pening miðað við þessar forsendur.Kveðja HarSv.
-
AuthorReplies