Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
24.11.2004 at 23:20 #509434
Hvaða tímasetning er þetta hjá fólkinu
vita þau ekki af nýliðaferðum?
kv. HJL
22.11.2004 at 13:42 #509262Sælir,
ég er skráður,
búinn að borga og ekki séns að ég hætti við,
bara svo það sé á hreinu, þetta verður alveg brilliant eins og V M hefði sagt.Hlakka mikið til, sjáumst í kvöld.
kv HJL
18.11.2004 at 23:10 #508976hæ aftur,
biggi – þú nefnir skiljuglas – hvað er það?
Er það til að skilja olíuna frá loftinu?kv. HJL
18.11.2004 at 20:16 #194876Hæ öll sömul,
ég er með orginal Aircondition dælu í Patrol ’95 og ætla mér að nota hana til að blása lofti í dekk.Hvernig leysa menn smurningsvandamálið?
Er einhver algjör patent og skítódýr lausn á því að láta dæluna smyrja sig sjálfkrafa?
Hlakka til að heyra frá ykkur.
kv. Hannes
09.11.2004 at 22:52 #507950hæ öll sömul,
mig langar að leiðrétta tvennt
1. Öxull brotnar ekki í Patrol
2. Ég er á 95 módel af Patrol á 38" ef einhver vill endilega breyta því – þá er það velkomið, setjið bara lyklana í póstkassann merktan mér á Háaleitisbraut 109.
Hlakka til.Myndir frá mér eru á http://www.raudheimar.com
03.11.2004 at 11:07 #507706skráning hófst á mánudagsfundinum síðast í jökulheima.
Þar var nefndur morgundagurinn hvað varðar hinar tvær ferðirnar.
kv. Hannes
02.11.2004 at 23:50 #507698Sælir strákar,
flott síða sem að sjálfsögðu mun taka breytingum eins og að ofan er nefnt. Eitt atriði sem stingur mig hins vegar strax er hin gríðarlega stærð á myndinni þótt falleg sé.
Þetta gerir nýtni skjásins mjög lélega, tala nú ekki um ef menn eru með minni upplausn er 1024 x 768 og hvet ég vefsmiði til að endurskoða þessa útfærslu.
Aðalsíða ætti að rúmast sem mest á einni síðu eins og að ofan kemur fram, þannig eru þær aðgengilegastar.
Samt frábært framtak, hlakka til að fylgjast með næstu daga.
kv. Hannes
31.10.2004 at 20:08 #194763Hæ garpar,
hverjir gera við stálfelgur og hvað getur slíkt kostað?
Er með eina white spoke sem lenti á grjóti og þarf aðeins að rétta.
kv. Hannes
21.10.2004 at 10:39 #506344Benni- skráðu þig sem fyrst, ég mæti á svæðið, we have unfinished business.
Kv. HJL
26.07.2004 at 10:49 #505018Sælir,
ég hef ekki átt svona bíl eða þurft að reka hann en ég hef heyrt að þeir drekka alveg svakalega, reyndu að fá upplýsingar um það áður en þið kaupið. Þeir eru nokkrir á 38" og því ætti að vera hægt að nálgast þær upplýsingar.
kv. HannesJón
23.07.2004 at 13:07 #504976ég spurði vörubílstjóra hjá Póstinum um þetta fyrir stuttu, hann sagðist nota uppþvottalög úr eldhúsinu við þetta, bætti líka aðeins út í rúðupissið og þá flytu þær af.
Á eftir að sannreyna þetta sjálfur.
Ég hef því miður ekki tíma til að bóna bílinn á tveggja vikna fresti.
kv. HannesJón
22.07.2004 at 23:01 #504960Hringdu í mountain taxi,
þeir eru alltaf á ferðinni þarna.Endilega hafðu samband í 6944714 ef þú ferð, er líka með útlendinga sem hafa áhuga.
kv. Hannes Jón
06.07.2004 at 08:37 #504596Sæll Benni (HMM)
Það er nú líka mikill munur að hafa verið kvaddur á föstudag áður en við lögðum af stað, gott að geta haft hugann við eitthvað ákv. alla helgina 😀
Eins og Benni Akureyringur nefnir hér að ofan eru myndir á http://www.raudheimar.com – en ég á eftir að setja inn fleiri – kóarinn minn tók líka slatta.
Sælir að sinni.
kv. HJL
05.07.2004 at 11:12 #504610Hvað með þessa kubba hér?
Eru þeir til á landinu?[url=http://www.dtronic.com/dtronic/dtronic.htm:2cgkxfl7]DTronic[/url:2cgkxfl7]
kv Hannes Jón
01.07.2004 at 08:10 #504358Sælir ferðalangar,
ég keyrði sprengisand helgina 18. – 20. Mjög góður vegur, alveg greiðfært en kræklóttur. Hleypti niður í 13 pund og stóð pattan eins og ég gat = 60 km/klst.
Þetta er ekkert mál einbíla – var sjálfur einn á ferð en árnar voru líka bara sprænur, hafði verið mjög þurrt.
Hringið bara ef einhverjar vangaveltur.
kv. HannesJon – 694-4714 – eftir kl. 16.
25.06.2004 at 08:06 #503982Nú verð ég að láta skoða Pattann, þarf orðið átak til að kúpla,
hvert er gott að fara með svona eðal-limósínur?
Hverjir hafa mestu reynslu og sanngjarnan prís á viðgerðum á Patrol?kv. Hannes Jón
23.06.2004 at 14:58 #504172Það var fjallað um þetta hér:
[url=http://www.f4x4.is/vefspjall/tradur.asp?t=2740#18452:17q1ycjx]Spjallþráðurinn[/url:17q1ycjx]kv HJL
22.06.2004 at 08:35 #504100Það er hætt að flytja þá inn þar sem það er hætt að framleiða þá.
22.06.2004 at 00:02 #504042Gleymdi að setja inn símanúmer, og rásir.
það næst í mig í
GSM: 694 4714
NMT: 853 4777
VHF: 45
CB: 17kv HannesJon
21.06.2004 at 13:18 #194477Sælir,
er einbíla en mig langar á Langjökul á morgun, er að snattast með útlending.
Ég gæti verið kominn upp að jökli 14:30 – Færi úr bænum 12:30.
Er einhver sem hefur áhuga og tök á að koma með?kv. HannesJon
-
AuthorReplies