Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
24.05.2010 at 07:56 #694408
Hér koma þrjár myndir af nafinu bæði ytri og ynnri brún og boltanum. Þið sjáið að þetta er orðið svolítið kjagað en spurning hvort hægt sé að laga þetta og setja 14mm bolt eins og ég var með fyrir en með sverari legg sem maður slær fastann í nafið…….
Ytri hliðin
[img:29lpp54l]http://sphotos.ak.fbcdn.net/hphotos-ak-snc3/hs327.snc3/28949_1369878898563_1579448762_2537387_7897722_n.jpg[/img:29lpp54l]Innri hliðin
[img:29lpp54l]http://sphotos.ak.fbcdn.net/hphotos-ak-ash1/hs336.ash1/28949_1369883458677_1579448762_2537393_6675194_n.jpg[/img:29lpp54l]14mm felgubolti
[img:29lpp54l]http://sphotos.ak.fbcdn.net/hphotos-ak-ash1/hs336.ash1/28949_1369878818561_1579448762_2537386_7073393_n.jpg[/img:29lpp54l]
23.05.2010 at 22:55 #694406Já maður skoðar þetta. Götin sem eru fyrir felguboltana eru orðin vel stór og aflöguð spurning hvort þetta borgi sig. Punga bara út fyrir öðru og eiga þetta soðið auka í verkfærakassann.
Á eftir að skoða þetta betur og sjá hvvaða 14mm felgubolta maður getur fengið með nógu sverum legg sem fer í gegnum nafið og festir boltann….
23.05.2010 at 07:21 #694402Já ég hugsa að ég sjóði bara nýja felgubolta á nafið í þetta skiptið og láti það duga allavega í sumar.
22.05.2010 at 15:07 #212834Nú lenti ég í því skemmtilega (því menn eru nú byrjaðir að tala um „skemmtilegar“ bilanir) atviki að nánast að skemma hjá mér nafið á patrol, vinstra megin að framan. Felgubolta götin eru orðin vel stór og kjöguð og leiðinleg en annað í lagi. Var með 14mm bolta fyrir þannig að bora út fyrir stærri er held ég ekki málið.
Ég var að velta fyrir mér hvort maður geti fengið nafið úr gamla (90-97) og sett í og aftengt bara ABS dótið í bílnum??? Hafa menn gert þetta eða er einhver annar munur á þessum nöfum nema ABS dótið?Er á 44″ bíl
KV Hagalín
04.05.2010 at 16:49 #212542Hvar fær maður sandblásturssand og hvað haldið þið að hann kosti í dag???
25.04.2010 at 13:47 #636862Eru menn alveg sáttir við þessa HOBA kubba í 3.0l patrol eða hafa menn notast við eitthvað annað?
18.04.2010 at 12:40 #691066Frændi minn býr upp í Hvítársíðu upp í Borgarfirði.
Hann hefur tekið eftir svakalegri niðursveiflu allavega á umferð jeppa um Húsafell og upp á jökul.
Man sjálfur þegar maður var þar um helgar að þá voru þetta heilu strollurnar á leið upp á Langjökul um helgar.
15.04.2010 at 09:49 #690676[quote="Atli":19zjlf64]Væri ekki betra ef þetta fólk væri út á mörkinni með skóflu í hönd að reyna að bjarga málunum? t.d. að grafa í sundur vegi, banna akstur, banna flug, banna öskufall, moka ösku, ausa vatni og svoleiðis?[/quote:19zjlf64]
Öllu þessu er stjórnað í Skógarhlíðinni. Þar eru öll tæki til þess að lesa og vinna úr upplýsingum til þess að þessi úrræði sé framkvæmarleg.
07.04.2010 at 13:30 #689682Glæsilegt. Ef einhver á trac frá Grímfjalli og norður í Kverkfjöll væri vel þegið að frá það sent á eddahagalin(hjá)internet.is
Svo ef menn eru í gjafmildu stuði þá líka ef menn ættu trac frá stóruferðinni síðustu frá Kverkfjöllum og suður inn á Sprengisand……Kv Hagalín
07.04.2010 at 11:51 #211946Hefur einhver farið upp á Grímsfjall nýlega sem gæti hugsanlega sagt til um snjóalög frá Hrauneyjum upp í Jökulheima annarsvegar og svo færð frá Jökulheimum upp í Grímsfjall???
Erum Vesturlandsdeildin af fara næstu helgi…….
Kv Hagalín
05.04.2010 at 23:55 #689428Veit um einn sem lenti í þessu með ljósin í mælaborðinu.
Þá var það að altanatorinn var ónýtur og það var skipt um hann og
einhvern vír líka sem verður að skipta um í leiðinni. (Þeir í Skorra vita betur
um þennan vír, bjallaðu bara á þá)
Þegar búið var að skipta um altanatorinn og vírinn hætti þetta og hefur ekki
komið aftur.
04.04.2010 at 16:57 #688994[quote="Atli":2ue96tru]Svona heilt á litið þá virðast flestir vera mjög ánægðir með það að láta unga "sérþjálfaða" stráka í löggu-leik og oft á tíðum með dónaskap, hugsa fyrir sig, því menn treysta sér ekki til að bera ábyrgð á sjálfum sér.
(held reyndar að þeir sem eru eldri og reyndari í björgunarsveitum séu ekki svona sýnilegir og því fáum við sjaldnar að kynnast þeim)Gott og vel, enn getum við hinir ekki fengið bara límmiða í rúðuna þar sem beðist er undan svona þjónustu?
MIg langaði reyndar til að spyrja ykkur sem eruð í björgunarsveit:
Hvernig fá fjölmiðlar fréttir (og oft nákvæmar lýsingar) af fræknum björgunarleiðangrum eftir íllabúnu fólki og jafnvel háum björgunarkostnaði sem eru stundum kannski ekki jafn stórfengleg björgunar-afrek í raun eins og hann hljómar í fréttunum?
(ætla samt ekki að gera lítið úr því að oft er verið að vinna við erfiðar aðstæður og í raun verið að vinna björgunar-afrek)Finns oft eins og björgunarmenn fari varla út til að safna dósum án þess að það komi í fjölmiðla sem björgunarafrek á íllabúnnu fólki.[/quote:2ue96tru]
Bara á því að lesa þetta get ég ekki annað en vorkennt þér Atli. Held að þetta sé orðið ágætt hjá þér……..
04.04.2010 at 09:11 #678380Hverjir eiga til pakkningar á túrbínuna aðrir en IH??
03.04.2010 at 15:53 #688976http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2010/0 … _90_metra/
Kíkið á þetta…….
Yfirgangurinn, frekjan, mikilmennskubrjálæðið og hitt og þetta er að drepa þessa björgunarsveitir……
Held að menn ættu nú aðeins að fara hugsa hvað þeir eru að bulla um þessa einstaklinga sem standa þarna og reyna að halda þessum 5% hans Þráins Bertelsonar í burtu. Og menn meiga ekki tapa sér alveg og hrauna yfir heildina þegar hugsanlega svartir sauðir eru inn á milli…..
02.04.2010 at 19:58 #678376Ekki vill svo til að einhver góðhjartaður ætti turbínu í 3.0l patrol sem hann gæti lánað mér til þess að svissa út minni og athuga hvort mín sé að svíkja mig……
02.04.2010 at 13:18 #688902[quote="thengillo":14nhox00]Ég skil bara vel að björgunarsveitar mennirnir séu þurrir á manninn, þegar þeir þurfa endalaust að vera bæja fólki frá stöðum sem búið er að banna umferð á. Og fólk örugglega oft með "attitjút" og leiðindi við þá. Jeppamenn eru nú ekki manna bestir í svona málum. Halda þeir séu yfir marga hafnir af því að þeir eru "vanir" jeppamenn. Og hlýða hvorki boðum né bönnum af því að þeir þykjast vita betur.
Held við ættum ekki að vera agnúast út í björgunarsveitirnar fyrir að vinna vinnu sem engin annar getur gert eða vill gera.
En auðvitað verða björgunarsveitarmenn og konur að vera kurteisir við almúgan.
Það þurfum við jeppamenn líka að vera.Enþá hef ég ekki hitt björgunarsveitarmann/konu sem hefur ofmetnast í þessu sem þau gera. En auðvitað eru menn misjafnir.
Og þú Atli ert örugglega ekki maðurinn sem getur ákveðið það hvort eitthvað sé hættusvæði eða ekki. Ef það er búið að biðja björgunarsveitarfólk að banna umferð á ákveðnum svæðum útaf hættu þá er það væntanlega ástæðan. ÞETTA ER HÆTTUSVÆÐI!!! Einhver Jón útí bæ getur ekki áveðið það fyrirfram hvað er hættusvæði og hvað ekki. Við erum með sérhæft fólk í því og sennilega þá hæfust í heimi á þessu sviði.
Og þetta kemur ekki ferðafrelsi við á nokkurn hátt. Þetta snýst um að hafa vit fyrir vitleysingunum. Það er nóg af þeim að þvælast þarna og það verður bara að ganga jafn yfir alla.
Mér finnst þetta allavega ekki sanngjörn gagnrýni á björgunarsveitirnar.
Ég er ekki viss um að allir væru tilbúnir að standa í þessu í sjálfboðavinnu.
Kveðja
Þengill, sem er ekki í björgunarsveit.[/quote:14nhox00]Hjartanlega sammála þér þarna.
Svona gagnríni er náttúrulega bara bull og vitleysa.
Þeir taka ekki bara upp á sitt eindæmi að loka hér og þar. Þetta er allt skipanir frá lögreglu og almannavörnum…..
17.03.2010 at 19:31 #678374Er að hugsa um að rífa þetta í sundur, sogrein og túrbínu eftir helgina og kíkja á þetta bara. Skipta um pakkningar og kíkja á turbínuna.
17.03.2010 at 18:30 #678368Nú er ég búinn að prufa að skipta um hosur og intercoolerinn, ekki skánaði hann við það. Fékk það lánað þannig að ég þurfti ekki að kaupa það.
Eitt sem ég var að spá í. Ef að ventlalokspakkningin er orðin léleg getur hann þá blásið með henni þannig að það komi svona blásturshljóð???
26.02.2010 at 20:56 #211082Hvernig er með EGR ventilinn í patrol. Hver er munurinn á því að fjarlægja hann og hafa hann áfram???
20.02.2010 at 17:18 #210894Vita menn eitthvað hvernig leiðin er frá Langavatnsdal upp að Langavatni og yfir í Hörðudal í Dalasýslu?
Erum feðgarnir að spá í þessari leið á mánudag þriðjudag.
KV Hagalín
-
AuthorReplies