Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
05.05.2007 at 14:09 #590414
Jóhann Davíð, þér er velkomið að prufa að ferðast með Litlu Nefndinni þar sem þú ert á þetta lítið breyttum bíl. Reyndar skiftir dekkjastærðin engu þegar menn vilja ferðast með Litlu Nefndinni en það er ágætis grundvöllur til að byrja jeppamennskuna (getur samt vel verið að þú sért margreyndur jeppamaður) því í þessum ferðum eru valdar leiðir sem henta lítið breyttum jeppum og er ekki sett mikið álag á menn. Bara smá ábending. Um að gera að fylgjast með hér á vefnum. Styttist í ferð með Nefndinni sem kallast vetrarslútt og verður hún í lok maí.
Haffi H-1811
30.04.2007 at 12:29 #589714Það verður eiginlega að segja að við erum löngu búnir að þróa jeppabreytingar til fulls hér á íslandi.
Það má ekki rugla saman þvi að breyta jeppa (boddyhækka og/eða hækka á fjöðrun og breyta stýrisgangi) annars vegar og útbúa bílinn með öllum mögulegum og ómögulegum græum. Það er einfaldlega ekki sami hluturinn. Er ekki málið eindaldlega það að koma þessum þróuðu breytingaraðferðum í reglugerðir og fá viðurkenningu fyrir vel smíðaða hluti. þannig skil ég allavega spurningu Ofsa til Magnúsar að hann sé einfaldlega að prófa hvað hann veit um reglugerðir og athuga hversu fær hann Magnús er til áframhaldandi setu í tækninefnd.Haffi
24.03.2007 at 13:53 #585810Mér skildist að þessir Excursion séu ekki lengur framleiddir. Allavega vorum við í Björgunarsveitinni á Hvammstanga (sem á bílinn á myndbandinu hérna að ofan) á þeirri trú þegar við létum IB á Selfossi panta hann handa okkur og svo Breyti setja 46" undir. Enda held ég að það sé algjört morð að kaupa sér svona stórann amerískann nýjann úr kassanum ef að ríkisstjórn íslands ætlar að setja hraðatakmarkara í þessa bíla. Þá held ég að það sé betra að fá sér eldri bíl sem kemst uppfyrir 80 klm. Enda get ég vottað að þeir rulla eins og ekkert sé á 110 klm hraða. Samt er ég ekki að mæla með hraðakstri. Hvað með Dodge Ram með 5,9 sexu?
Haffi
23.03.2007 at 19:09 #585796[url=http://www.123.is/hunar/default.aspx?page=video:3cgk1j5u][b:3cgk1j5u]þarna eru nokkur myndbönd[/b:3cgk1j5u][/url:3cgk1j5u]
09.03.2007 at 20:59 #583762Var ekki einhver að auglýsa akkúrat svona dekk hérna inni í gær? Fjögur ókeyrð dekk á 160 þús kall.
Haffi H-1811
09.03.2007 at 20:56 #582688það verður einhver fararstjóri inni á spjallinu á vefsíðu litlunefndarinnar núna í kvöld milli 22 og 23.30. Endilega að kíkja þangað ef fólki langar að vita eitthvað varðandi ferðina.
Haffi.
08.03.2007 at 22:54 #582674já það kemur örugglega á morgun hér inn. Hrafnhildir (hjólbarðinn) á að halda utanum skráningu og matarinnkaup fyrir ferðina. En það er orðið of seint að skrá sig, nema þá að skriðið sé á fjórum fótum og beðið fallega. Og náttúrulega líka miðað við að það sé pláss í skálanum.
Haffi
08.03.2007 at 22:42 #582670N 64°36, 540´
W0 19°42,224´Rétt vestan við kjalveg, sést frá veginum. Í beina línu austur-vestur af sirka miðju Hvítárvatni, rétt við Svartá. Vonandi svarar þetta einhverju.
Haffi
07.03.2007 at 22:10 #582650þá bæti ég bara meiri snjó í pottinn og svo sérvöldu fjallagrjóti. Mæli sterklega með því að fólk komi með sín eigin klaufapör til að ráðast á lambakjötið með. Giska fastlega á að það sé ekki auðvelt að vinna á kjötinu með plasthnífapörum. Eitthvða á a vera til af áhöldum uppfrá í skálanum, en allur er varinn góður.
Varðandi þína spurningu, Davíð sem var um hitunarbúnað í skálanum þá eru þar tveir eða þrír gasofnar og að ekkí sé talað um að þarna verða rúmlega 25 manns á að giska og þeir halda hita á öllu saman þegar gítarinn og vínið er farið að ylja mönnum.Haffi
07.03.2007 at 20:21 #582646það er frekar að borga í gegnum banka, reiningsnúmerið er hér efst á þræðinum. En það er hægt að skrá sig á Mörkinni á morgun, athugið bara þá líka hvort að þið fáið að borga með PÉNINGUM þá. Aldrei að vita nema Kristinn taki við aurum. Við þurfum að vera komin með alla skráða niður, sem ætla með, í síðasta lagi annað kvöld. Það er til að við vitum hvað mikið kjöt og meðlæti við eigum að kaupa fyrir ferðina.
Kv. Haffi
07.03.2007 at 15:55 #582638Bara halda þræðinum í manna minnum. Muna svo að mæta á opið hús í Mörkinni á morgun (8.3) til að skrá sig og fá upplýsingar varðandi ferðina.
Haffi
05.03.2007 at 23:17 #583372Á ég að mæta með tvíhelypuna á laugardaginn og standa vörð um skálann og skíthúsið á meðan ég sýð kjötsúpuna og allir hinir skjótast á keyra í hvíta asæluduftinu? Kannski maður skjóti bara ferskt í súpuna.
Haffi og haglarinn.
05.03.2007 at 21:12 #583368Ég segi nú bæði sem áhugaskotveiðimaður og sem jeppamaður, (að maður tali nú ekki hvað það er gott að fara á kamar á hálendinu) hvað mér er er brugðið við að lesa þetta. Voru einhver tóm hagaskothylki þarna í nágrenninu við skálann? Erum að fara þarna uppeftir næstu helgi við í Litludnefndinni, og vonandi er kamarinn nothæfur. Hvað með að tryggja eigur klúbbsins sem eru til fjalla, eins og skála og allt það sem þeim fylgir?
Haffi og Toppurinn
01.03.2007 at 20:10 #582590það mun vera þann 8/3, fimmtudaginn. Um að gera að skrá sig og skella sér á fjöll á meðan vetur er ennþá við líði og einhver snjór er á hálendinu. Að ekki sé talað um áður en búið verður að leggja vegi yfir það þvert og endilangt
Haffi
25.02.2007 at 12:19 #199787Sælir og sælar jeppakallar og konur. Ég var að versla mér kassa aftan á hlerann á jeppanum en þarf að smíða mér millilegg á milli hlerans og kassans því að kassinn er hannaður aftan á aðra bíltegund. En spurningin sem ég ætla að koma með er sú hvort einver veit hvar ég get fengið svona gúmmí á milli kassans og hlerans, svo lakkið skemmist ekki. Hef séð svona gúmmípúða aftan á jeppa og það var það mjúkt, þannig að hægt var að pressa það vel saman.
Kv. Haffi
16.02.2007 at 14:22 #580402Pallihall…..skiftir engu með blessuð dekkin–en hvernig í fjandanum náðirðu 160hp út úr 2,8lítra vélinni sem er í Paerjo?
Haffi og Toppurinn
P.S varðandi báðar þessar dekkjategundir þá get ég sagt að eftir að hafa ekið um á Ford Excursion á báðum gerðum, 44Trexus á sumdin og 46MT á veturna að hann er ekki að rása eins mikið á 46MT dekkjunum en er samt töluvert háværari. Að maður tali nú ekki um hvað hann er laglegri á 46tommuni.
11.02.2007 at 23:25 #580124gengur svona illa ef að háspennukeflið er ónýtt. Prófaðu að snerta það, varlega, þegar hann drepur á sér heitur næst. Ef það er heitt þá er það ónýtt. Prófaðu líka að sprauta yfir hann fínum úða með vélina í gangi. Var held ég einvherstaðar búinn að heyra af þeirra aðferð til að sjá hvort að keflið væri búið að gefa sig.
Haffi
02.02.2007 at 00:03 #578564[url=http://f4x4.is/new/photoalbum/default.aspx?file=oldsite%2f1364:1itvosqc][b:1itvosqc]hérna[/b:1itvosqc][/url:1itvosqc]
31.01.2007 at 22:43 #578054Það á víst að bjóða upp á dýrindis kjötsúpu, já þið lásuð og heyrðuð rétt; kjötsúpu í þorrraferð Litlunefndar sem verður farin í Árbúðir 9.-11. mars. Kannski væri ekki svo vitlaust að fá svona pott í að sjóða þetta gríðarlega mikla magn af súpu handa öllu margmenna liðiðinu sem er farið að langa að ferðast með Litludeilidinni. Enda er mesta fjörið og bestu ferðirnar hjá okkur.
Hvað dettur ykkur eiginlega næst í hug að troða á svæðið þarna upp frá við Setur??
Á kannski að setja æfingarsal og saunu og til að kóróna allt má troða þarna 200 manna bar og verslun. Kaupþing og Glitnir gætu verið með útibú þarna einhverstaðar bakvið klósettið (sem þyrfti víst að fara að stækka) og hraðbanka líka, fyrir þá sem dettur í hug að ferðast um helgar þegar allt er lokað.Haffi H-1811
31.01.2007 at 00:09 #578172[url=http://mmedia.is/gjjarn/sjeppar/:2hwi13ae][b:2hwi13ae]jeppaskurður[/b:2hwi13ae][/url:2hwi13ae]
-
AuthorReplies