Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
05.07.2007 at 15:49 #586666
Svona má líka gera eitthvað á við [url=http://blogg.visir.is/hoski/2007/07/03/amma-gamla-l%c3%a6tur-toffarann-finna-fyrir-%c3%bevi/:2case6kd][b:2case6kd]þetta hérna[/b:2case6kd][/url:2case6kd] til að skamma þá óþolinmóðu. Þetta er bara fyndið. kannski ættum við öll að gera eitthvað álíka þegar fólk hegðar sér ruddalega í umferðinni.
Haffi.
04.07.2007 at 15:59 #593150Kannski aðeins að fara útfyrir málefni þráðarins, en af hverju eru menn að skifta út Dana 44 afturhásingu á Cherokee fyrir 9" Ford, en samt halda áfram að nota Dana 30 að framan? (þegar menn fara á stærri dekk) Var eitthvað búinn að heyra að það gæti verið vegna sterkari öxla og fljótandi í þokkabót. En hvernig er með hlutföll? Eins og [url=http://www.f4x4.is/new/photoalbum/default.aspx?file=byggingar/3988:2bxstvds][b:2bxstvds]hérna[/b:2bxstvds][/url:2bxstvds]
þá er ekki sama hlutfall að framan og aftan, ef menn lesa skýringar fyrir ofan myndirnar. Það munar reyndar sáralitlu en örugglega nóg samt til að valda þvingun. Er hægt að fá Dana 30 eða 44 með 5,285 hlutfalli?
Haffi
02.07.2007 at 00:06 #59284278×100=7800
7800/600=13 lítrar
Haffi
29.06.2007 at 11:37 #593012Það er nú svo skrítið að ljótleiki er í augun áhorfandans eins og stundum er sagt og einhver var búinn að nefna hér á spjallinu áður. En með réttum lit, flottum brettakönntum og nógu groddalegum dekkjum yrði þessi bíll alveg örugglega ágætur að horfa á. En maður fer ekki langt á útlitinu einu saman, jafnvel þótt maður sé á Toyotu/Lexus. En það sem mér er illt að skilja það er sú þörf hjá hönnuðum að þurfa endilega að hanna (og framleiða) frekar mjög undarlega ljóta bíla. Sérstsaklega þegar menn þurfa að punga út 10 milljónum til að eignast dótið. Ef við nefnum nokkra ljóta og fallega bíla þá er þar fremstur í flokki Toyota LC 120 sem er ljótur, gamli kassalaga Pajero og allflestir bílar frá Chevrolet. Toyota LC90 er ansi laglegur bíll og nýi (ekki nýjasti) Pajero er fínn en var lengi að venjast. Patrol er oftast ansi flottur, en ekki fyrr en á 44" dekkjum og með kvennmann undir stýri. Einn fallegasti jeppi að mínu mati er Jeep Grand Cherokee, og þá á einhverjum almenninlegum blöðrum. Svo slefar 4Runner rétt yfir meðallagið hvað fríðleika varðar.
Góða stundir allir fallegir sem ljótir
Haffi fallegi
29.06.2007 at 09:12 #593008Mikið svakalega er þetta ljótt!!!
Haffi
22.06.2007 at 22:59 #592736Hvað með að aftengja rafgeyminn þannig að samlæsingin fái ekki lengur straum og þá ættirðu kannski að eiga möguleika á að aflæsa hurðinni.
Haffi
22.06.2007 at 22:49 #592550Gísli minn. Auðvitað meinti ég að hann ætti að hafa dautt á vélinni þegar hann færi í þessar athuganir með túrbínuna. En ég er ekkert reiður við þig samt. Hvað fæ ég í verðlaun fyrir rétt gisk?
Haffi
15.06.2007 at 20:48 #592526Ef að díselbíll reykir mikið er of mikil hráolía á móti lofti. Athugaðu hvort að túrbínuhosan sé tengd hjá þér, eða bara hvort að túrbínan sé í lagi og nái að snúast. Gætir tekið hosuna af blásarahúsinu og athugað hvort þú náir að snúna kuðungnum með hendinni.
29.05.2007 at 15:56 #591696Jú jú reyndar er það satt að Davíð hafi drekkt Mussó í Krossánni. Var það vegna einskærs klaufaskapar og allgjörs hugsunarleysis. Því við á hinum bílunum ókum einhver á undan yfir ána og fórum á sama stað yfir hana aftur þar sem við höfðum skverað hana stuttu áður. Þar ókum við á móti straumi, og engu munaði að ég fengi vatn inn á mína vél líka. En bíllinn var skilinn eftir við ána á laugardegi og dreginn drifskaftslaus inn á tjaldsvæðið við Hamraborgir á sunnudaginn, og fóru menn að drekkja sorgum sínum um kvöldið. Svo ákvað Davíð að vera fram yfir helgina og jafnvel framyfir hátíðina og fór því að hringja eftir dráttarbíl fyrir fellihýsið. Svo fékk hann mig til að draga sig áleiðis til Reykjavíkur, sem ég og gerði á mánudagsmorguninn. Við ákváðum að skilja Mussoinn eftir á Selfossi og Stefanía tók að sér að ferja skötuhjúin Davíð og Völu í bæinn því mín kona var að verða sein til vinnu. Mér skildist að Davíð hafi fengið Patrol hjá Magga "Magnum" lánaðann til að komast aftur að fossinum og ætlar hann að gista þar eitthvað áfram og koma svo heim þegar tengdapabbi er búinn að ígrunda refsinguna.
En án alls gríns þá vonar maður allt hið besta og óskar þess að vélin sé heil ennþá og allt í góðu.Fyrir hönd Litlunefndar og þeirra fáu en góðu sem komu á vetrarslúttið
Haffi
25.05.2007 at 17:10 #591116Ég talaði við Davíð klukkan 14 og þá var hann við Litlu Kaffistofuna. Ætti semsagt að vera kominn á áfangastað þegar þetta er skrifað. Ég ætla að leggja af stað í fyrramálið klukkan 9 frá Select við Vesturlandsveg og mun verða með klúbbfána í glugganum á bílnum.
Haffi
GSM: 848-4807
20.05.2007 at 23:01 #589792samkvæmt því sem ég veit best að þá er 100% raki alger bleyta, semsagt pollur af vatni.
Haffi
19.05.2007 at 13:41 #591046skiftir engu hversu margar beygjur eru á leiðinni, eða hvert á að fara. Reyndar skil ég ekki hvað þú ert að tala um þegar þú minnist á áskorun. Hvað ertu að meina eiginega? Þetta er bara bull í þér og kemur ferðinni ekkert við. Mættu bara ef þig langar með og þú ræður hvort þú kemur með hópnum á föstudag eða laugardag, eða ferð einsömul. Mér skilst á þér að þér finnist það skemmtilegra að ferðast ein.
Haffi
19.05.2007 at 11:28 #591042Kæra Stefanía jeppalausa. Ég þakka góð ráð frá manneskju sem veit allt mest og best. Hvar væri maður staddur án þín. Veit ekki betur en að þú hafir prófar að vera í sæti Litlunefndar en það hafi ekki gengið, einhverra hluta vegna. Örugglega ekki þér að kenna eða hvað? Hvað varðar að láta nefndarmanneskju fylgja hópnum austur fyrir Selfoss er nauðsynlegt því hvað sem er gæti komið upp á leiðinni, bílar bilað og svo framvegis. Hvað á þá að gera, sérstaklega í ljósi þess að margir hverjir sem ferðast með Litlunefndinni eru að ferðast sínar fyrstu jeppaferðir og kunna lítið sem ekkert til verka á bilaða jeppa. Og jeppar geta líka bilað á þjóðvegi 1. Legg svo til að þú farir á eitthvað indælis elliheimili og aðstoðir gamla fólkið þar við einhverja iðjuna, eins og til dæmis að taka lyfin sín eða anda að sér súrefninu sínu.
Bið að heilsa, Haffi.
19.05.2007 at 00:54 #591038Höfum það þá þannig ef fáir nefndarmenn eru til skiftana þessa helgina. Grillið hlýtur að komast aftan á l200 án mikillar fyrirhafnar. Þá er bara að bíða og sjá hverjir fara á föstudag og hverjir á laugardaginn. Best er þá náttúrulega að allir séu útbúnir VHF talstöð, og ef svo er ekki þá er um að gera að leggja fram fyrirspurn til einhvers nefndarmanna sem reynir að redda handstöð hjá klúbbnum gegn vægu verði.
Haffi
19.05.2007 at 00:28 #591034Hvað með að fá einhvern annan úr Litlunefndinni til að leiða hópinn austur eftir á föstudaginn. Varstu eitthvað búinn að athuga þann möguleika?
Haffi
18.05.2007 at 22:00 #591030ætlarðu að leggja af stað með hópinn Davíð? Á föstudaginn, eða laugardaginn? Og klukkan hvað á að leggaj af stað og hvaðan? Ég var að pæla í að fara á laugardaginn og get því tekið með mér hóp ef að einhverjir ætla að fara á laugardaginn í stað föstudagsins. Giska fastlega á að Select á Vesturlandsveginum sé brottfarastaður.
Haffi
18.05.2007 at 19:30 #591290sá kerrudráttur. En hvaðan á að leggja í hann og hvaða dag og klukkan hvað? Ætlarðu að leggja af stað með hópinn á föstudaginn, eða laugardaginn.
Haffi
18.05.2007 at 17:14 #591284Davíð, ég skal draga fyrir þig fellihýsið ef það gengur upp. Er það ekki fullmikil bjartsýni að fara á fólksbíl á litlunefndartúr? Hafðu bara samband ef þú ert til í að láta mig draga fyrir þig fellihýsið.
Haffi
08.05.2007 at 16:00 #590738…Hummer!!!
Haffi
07.05.2007 at 22:44 #589434Ég skifti um útvarp hjá mér um daginn (var með sony, setti Pioneer í staðinn) og eftir það þá suðaði í útvarpinu (ekki spilaranum samt) þegar ég setti kastarana á með háa geislanum. Svo tók hann upp á því að sprengja 30Ampera öruggið bara strax. Búinn að skifta nokkrum sinnum um öryggi en allt kemur fyrir ekki. Er með PIAA reley með öryggi, tengd á takka inná háaljósið og annað lítið normal reley fyrir sér takka á kastarana. Stóra releyið er beintengt á geymi en svo tekinn stýrisstraumur á dagljósabúnaðinn (í gegnum takkann get ég svo slökkt og kveikt á kösturunum með háa geisla bílsinsns). Litla releyið er tengt (stýrisstraum) inná parkljósin og er ekki með neinu öryggi og kastararnir virka þegar ég ýti á þann takka. Mér var bent á að jarðtengja húddið með smá vírabút. Getur verið að það sé það sem þarf eða ætti ég að kíkja betur á fráganginn á útvarpinu?
Haffi
-
AuthorReplies