Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
09.09.2007 at 13:30 #596318
og hafiði eitthvað ákveðið nafn í huga, eða er þetta bara til í allskonar gerðum og umbúðum? Þarf að skifta um framhjólalegur hjá mér og vantar einmitt svona stöff.
Haffi.
08.09.2007 at 11:01 #200765Sælir jeppamenn. Ég var að hugsa með mér hvort að það sé möguleiki að lækka hlutföll í sjálfum gírkassa jeppans hjá manni. Veit að menn hafa verið að skifta um hlutföll í millikössunum til að losna við að þurfa að setja aukamillikassa undir, en ég hef alveg áhuga á að setja aukamillikassa (þegar ég stækka við mig dekkin). Er kannski að tala um að lækka eingöngu fyrsta og annan gír sem kæmi sér vel til að koma sér af stað þegar maður keyrir á malbikinu. Pajeroinn kemur nefninlega á svo lágum hlutföllum orginal, 1:528,5 en er aftur á móti svo afllítill að það þarf eitthvað að gera á móti þar sem að lægri hlutföll eru eiginlega ófáanleg í þessa bíla.
Haffi
03.09.2007 at 22:52 #595936Hvað með Dick Cebek fcII? Mér skillst að þetta séu ansi góð keyrsludekk við hvaða aðstæður sem er. Allavega eru þetta þau dekk sem fara undir sem næstu vetrardekk hjá mér. Mig langar allavega að prufa þau.
Haffi.
29.08.2007 at 20:49 #595708Má þetta? Er þetta ekki bara kúgun og misbeyting af hæstu þekkjanlegu stærðargráðu? Þarna er verið að fá/kúga fólk til að kaupa sér ákveðnar tegundir af ökutækjum og þar með svifta því valfrelsinu. SVEIATTAN segi ég.
Haffi H-1811
28.08.2007 at 23:39 #595612þessi 46" MT dekk eru frábær akstursdekk fyrir utan að vera soldið hávaðasöm (kannski ekkert skrítið) og þau svoleiðis svínlyggja á miklum malbikshraða. Þurfa smá tíma til að mýkjast almenninlega þau fyrstu skifti sem hleypt er úr þeim, en það á örugglega við um öll dekk.
Haffi
26.08.2007 at 12:04 #595328Rav4 er ekki slyddujeppi, heldur svo kallaður jepplingur. Slyddujeppi er hugtak sem nær yfir óbreyttann jeppa en jeppi er fjórhjóladrifinn bíl með hágu og lágu drifi í millikassa sem miðlar aflinu milli aftur og framdrifs. Þannig séð mætti alveg kalla Suzuki vitara og Jimny jeppa, en þeir eru svo litlir að menn hafa verið að setja þá í jepplinga-flokkinn. Hvað boð og bönn varðar þá tel ég það ansi heimskulegt að mismunna fólki eftir þjóðerni ef það vill ferðast hér um frjálst landið. Það sem má bæta og herða á er fræðsla og áróður, að maður tali ekki um að merkja vöð við ár nógu áberandi og skiljanlega. [url=http://www.youtube.com/watch?v=gbZuj78ZZyA&mode=related&search=:33letj3j][b:33letj3j]þessa ágæti maður[/b:33letj3j][/url:33letj3j] gerir einmitt það sem ekki má gera og setur útlendingum sem hafa áhuga á að koma til landsins slæmt fordæmi. Hann hvetur fólk til að stofna lífi sínu í hættu með djörfum "leik" (sem er búið að undirbúa fyrir hann svo það lýti vel út á skjánum) og því dettur manni í hug að fólk komi að utan hingað til lands með þá hugmynd að það geti og megi allt. Þar að auki brýtur þessi ágæti maður nokkur lög á "ferðalagi" sínu um landið; Hann kveikir sér opin eld, veiðir sér rjúpu til matar og skilur eftir fallhlíf á miðjum jökli (þó það sé nú augljóst að hún hafi verið hirt upp eftir hann) Þetta finnst mér skrítið að sé liðið að menn komi til landsins og framleiði svona vitleysu til að planta í hausinn á grandalausum erlendum ferðamönnum.
Haffi
25.08.2007 at 21:20 #595424Hvernig færðu það út? Það eru líka kerti í díselvélum.
Haffi.
25.08.2007 at 20:14 #595378Skrítið að menn séu að upphefja eitthvað fyrirbæri eins og Land Rover, sama hvaða undirtegund það er. Defender bílarnir eru t.d rómaðir fyrir óþægindi og lélega einangrun o.s.frv. Svo kemur hér einhver með kvartanir varðandi slakan bíl og lélegt umboð í þokkabót. Ég bara spyr þá af hverju mönnum dettur í hug að velja sér svona bíla þegar þessar niðurstöður lyggja fyrir. Ég hef heyrt að B&L sé ansi gott umboð og standi sig vel hvað varðar þjónusu og framkomu starfsmanna. En það er einmitt mergurinn málsins, því að alltaf eru til starfsmenn hér og þar sem vita ekki hvað þeir eru að gera og eru bifreiðaumboðin ekki undanskilin því. Kannski þú hafir bara lent á lélegum starfsmanni. Mér skillst að dísel vélin í þessum Freelander bílum sé frá BMW. Hvað varðar að gírkassi hrynji eftir nokkra kílómetra er náttúrulega bara léleg smíði eða illa ísettur gírkassi og slugs vinna við ísetningu.
PS. Ekki má gleyma Bílabúð Benna, en það umboð er eitt af því besta hér á landi. En það fær enga ummfjöllum því það er ekkert að klaga uppá þá.Kv Haffi H-1811
22.08.2007 at 23:17 #595148Villi, það er spurning hvernig þér og "toyota-stolltinu" myndi líða ef að það hefðu aldrei verið til neinar Toyotur nokkurn tímann og þú hefðir ekki hugmynd um hvað það væri. Bara svona smá pæling. Mann grunar nú svona fljótt á litið að þeir hafi ákveðið að sleppa beltunum til að ná að komast sem fljótast út úr bílnum ef hann tæki upp á því að sökkva. Annars var þetta flottur þáttur og maður getur alveg verið stoltur af því að vera íslendingur.
Haffi H-1811
22.08.2007 at 09:22 #595130Kemur ekki neitt þegar maður klikkar á þennan link.
Haffi
21.08.2007 at 22:00 #595086RAFMAGNað andrúmsloft hjá þér Magnús
Haffi
21.08.2007 at 12:30 #595012Hver er orginal spindilhallinn á þessum hásingum, þ.e.a.s undan cherokee, Wagoneer og Scout?
Haffi.
13.08.2007 at 16:00 #594558talaðu við [url=http://www.framtak.is/:23h3varp][b:23h3varp]þessa[/b:23h3varp][/url:23h3varp] Haffi
11.08.2007 at 15:29 #594544jú þetta er einmitt merki um að kertin séu að anda sitt síðasta. Er að vinna á Sprinter með svona vél (eða allavega svipaðri) og ljósið logar og bíllinn erfiður í gang. Hann er með nýja geyma sá bíll þannig að ekki eru það þeir.
Haffi
12.07.2007 at 12:20 #593506Reyndar sagðist mér bara vera illa við hana, ekki að ég hataði hana neitt. Reyndar er ég hræddur við kríuna og kæmi ekki nálægt kríuvarpi ótilneyddur. En ég ber samt virðingu fyrir henni.
Kv Haffi
11.07.2007 at 19:40 #593502Já maður fordæmir svona heigulshátt og hálfvitaskap af stærstu mögulegu gráðu. Og húmorsleysi í þokkabót. Þótt manni (mér) sé illa við kríuna þá er þetta ekki leiðin til að lifa eftir. Þar að auki hefði verið hægt að taka niður bílnúmer þessa fólks og kæra það því krían er friðaður fugl.
Haffi
10.07.2007 at 22:00 #593252"Gaman að láta sjá sig smá…" ´Þýðir einfaldlega að ég ætli að kíkja einhvern daginn í smá stund því ég verð í sumarbústað stutt frá Vík. Ætla semsagt ekki að gista.
Sjáumst hress.
Haffi
09.07.2007 at 23:24 #593238verður rampurinn á hátiðinni þarna í Vík?
Gaman að láta sjá sig smá og athuga fjöðrunina á eðaljeppanum.
Haffi
08.07.2007 at 15:31 #586686Meininginn hjá mér hvað byssuna varðaði var í sambandi við það að það er bannað samkvæmt lögum að bera og nota skotvopn innanbæjar. Ef menn verða uppvísir að misnotkun og ólöglegri notkun á skotvopni verður byssan gerð upptæk, skotvopnaleifið tekið af manni og veiðikortið líka, einnig að menn verða að greiða sekt. Þetta er svipað þeim viðurlögum sem beita á þá sem uppvísir verða að hraðakstri og glannaskap á bíl. Nefndi þennan samanburð bara því að þú, Anton varst að bera saman byssueign og bílaeign og notkun þessara hluta. Ég sé lítinn mun á því að ógna lífi samborgara sinna með byssu annars vegar og bíl hins vegar. Mér finnst alveg réttlætanlegt að gera bíl upptækan og svipta menn prófinu og sekta menn auk þess að stinga þeim inn í nokkrar vikur ef þeir virða ekki lögin og keyra hratt og glannalega og STOFNA LÍFI ANNARA Í HÆTTU MEÐ GLANNA AKSTRI.
Haffi
06.07.2007 at 09:20 #586672Hvurslags er það að bera saman skotvopnaeign og bílaeign, Anton. Segðu mér hvar þú átt heima og ég skal mæta með haglarann heim að dyrum hjá þér og skjóta villt og galið innan dyra hjá þér, ætli þú yrðir lítið hress með það. Svo skal ég enda á að spóla smá í bakgarðinum hjá þér á jeppanum. Það sem ég á við er að það eru lög og reglur um meðferð skotvopna; bannað að bera og nota innanbæjar. Og það eru lög og reglur um meðferð og stjórnun ökutækja og þeim reglum skal framfylgja. Ekki erum við jeppamenn að torfærast í hverjum garðinum og hólnum sem við sjáum innanbæjar. Skiljanlegt hvað þú ert að reyna að benda á hér, að sektarhækkanir og þyngri refsingar muni ekki skila sér en það breytir ekki því að þeir sem haga sér vel í umferðinni sleppa og hinir sem haga sér ekki vel og nást, fá eitthvað slæmt fyrir. Það er einfaldlega þannig og hefur alltaf verið og mun alltaf vera.
Haffi
-
AuthorReplies