Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
22.09.2008 at 22:14 #202956
Þarf að skifta um olíupönnu á jeppanum hjá mér. Hernig kítti er best að nota á þá nýju? Eitthvað fínt úr valinni bílabúð, eða bara eittvað ódýrt jukk úr Húsasmiðjunni?
Haffi
09.09.2008 at 17:32 #629116Villi minn. Af hverju að setja ekki bara loftpúða undir tröllið? Svo færðu þér camper á pallinn og kemst þá fjölskyldan með þér á fjöll og þá fyrst fer að reyna á öll hestöflin í eðal lúxanum hjá þér.
Haffi
04.09.2008 at 22:32 #628886Pabbi gamli lenti í því fyrir sirka tíu árum með svipaðan bíl að það bráðnuðu saman þrír vírar (kápan utan um þá öllu heldur) sem hafa eitthvað með innspítinguna að gera. Mig minnir að þeir séu hægra meginn aftarlega í einhverju svörtu boxi.
Þetta var reyndar sjálfskiftur Sidekick með 1600 vél. Umboðið sá um að spottera vandann og gera við.
Kv. Haffi.
01.09.2008 at 16:22 #628664Hehe þú ert aðeins of seinn með þessa fyrirspurn Maggi minn, ég fór norður á föstudaginn. Frekar að hitta á menn með svona fyrir helgar heldur en eftir helgar.
Haffi
20.08.2008 at 23:34 #627858Dekkið er skakkt undir bílnum. Losaðu það af og settu það aftur undir, og passaðu þig á að herða það jafn og rétt undir. Einnig gæti öxulliðirnir verið orðnir slitnir þannig að þeir gefi skakkt átak sem er nú ekki hægt að aftengja þar sem þetta er nú einu sinni sídrifs "jeppi"
12.10.2007 at 16:28 #599684Mér skyldist að þessir þrír fyrrverandi nefndarmenn sem hættu í nefndinni hafi gert það vegna leiðinda frá stjórn. Leiðinda sem lýsa sér meðal annars í vantrausti. Talið var af stjórninni að þáverandi nefndarmenn væru ekki nógu reyndir til að halda út nýliðaferðir, og þeir sögðu sig sárir og reiðir úr nefndinni. Einnig verð ég að setja út á að bara séu valdir 4 en ekki 5 menn í nefndina.
Haffi H-1811
07.10.2007 at 20:37 #598810en maður verður þá að geta skilið hvað verið er að segja.
Haffi
07.10.2007 at 19:29 #598876Þessa umfjöllun
" Póst og fjar HVAÐ
30. September 2007 – 12:15 | Ofsi, 1816 póstar
Önnur slæm hugmynd.
Þar sem Póst og fjarskiptastofnun er látið fyrir bæri. Legg ég til að stöðin þurfi að vera samþykkt að Ferðaklúbbnum 4×4"
sem birtist á
[url=http://www.f4x4.is/new/forum/default.aspx?file=fjarskiptamal/10494#81943:3kbn4xhv][b:3kbn4xhv]þessum[/b:3kbn4xhv][/url:3kbn4xhv]
þræði?
Haffi
05.10.2007 at 00:49 #598744Þetta er reyndar soldið fyndin spurning. Getur alveg eins spurt hver sé munurinn á dekki og felgu, því þetta er nánast sami hluturinn þannig séð. Spíssinn er það sem dísan er innaní. Dísan er nál sem er innan í spíssanum og lyftist þegar ákveðinn þrýstingur kemur á dieselolíuna frá olíuverkinu og þá sprautast olían úr spíssanum innaní strokkinn.
Haffi
03.10.2007 at 22:59 #598670"Litlanefnd
???????"
Af hverju er Litlanefndin sett þarna inn Agnes. Var ekki búið að leysa hana upp með því að losa alla nefndarmenn undan störfum?
Haffi
20.09.2007 at 15:41 #596734Í mig hringdi maður (veit ekki hvort það var á eigin vegum eða á vegum annara) og bað mig um að byðjast afsökunar. Ég mun að sálfsögðu byðjast afsökunar, þótt ég viti ekki á hverju ég er að byðjast afsökunar. En svona er þetta; maður gerir bara það sem manni er sagt að gera!!
Haffi
20.09.2007 at 12:44 #596724Sæl Agnes. Við í Litlunefndinni vorum einmitt búin að ræða það hvernig gjaldheimta fyrir svona ferðir ætti að fara fram og komumst við að eftirfarandi: Þeir sem borga inn á reykning klúbbsins verða merktir niður á lista og hinir sem eftir sitja verða rukkaðir við Select áður en lagt verður af stað. Þá er aðallega verið að tala um þá sem borga með miðum og svo náttúrulega þessi 500 kall á bíl.
Svo held ég að það sé algjör óþarfi að fullorðið fólk fari að haga sér eins og 5 ára krakkar í sandkassaleik, þótt þannig umræður (hjá börnunum) hafi oftast rétt á sér miðað við innihald og aldur fólks hverju sinni. Svo þarf ákveðið fólk ekki heldur að fara úr límingunum vegna hugsanlega bilanna eða annara vandræða á við fjarskiftaleysi og svo frv. Við reddum okkur alveg þótt við séum á lítið breyttum bílum.
Haffi
18.09.2007 at 23:45 #596670Gjald fyrir ferðina alla helgina er einfaldlega 500 kr á bíl, og svo ef menn ætla að gista í Setrinu (ekkert sem getur stoppað menn í að sofa í bílnum sínum eða þá að tjalda og þá þurfa menn að sjálfsögðu ekkert að borga) þá kostar nóttin 1000 kr fyrir félagsmenn og 1500 fyrir utanfélagsmenn. Einnig er hægt að fá 10 miða á 7000 kr fyrir innanfélagsmenn og má nálgast þá á skrifstofu klúbbsins. Greiðslur fara beint á reikning klúbbsins og er því upplagt að hafa samband við Agnesi formann varðandi frekari upplýsingar.
Haffi
18.09.2007 at 00:50 #596650að maður lærði af þeim ferðum sem þessi ákveðni bíll fór með að það hentar ekki að taka svona bíla með. Og sérstaklega ekki þegar þungt færi skapast þar sem jafnvel harðgerðustu JEPPAR og allra bestu ökumennirnir lenda í miklu slarki og meiga ekki vera að því að draga upp sífasta slyddu-jepplinga með engann millikassa, lágadrif né þá það kram sem þolir álagið sem fylgir.
En allir að skrá sig í ferðina sem fyrst til að komast nógu tímanlega á listann.
Haffi.
17.09.2007 at 22:23 #596642Takk kærlega fyrir þetta Ofsi minn, alltaf fyrstur með fréttirnar. Bara skil ekki hvernig ég komst í netsamband þegar ég er upp við Kerlingarfjöll, svona líka pikkfastur í drullupytti á leið sem átti ekki einu sinni að fara. En þú getur farið í smá keppni við Lauga-Klaka til að úrskurða hvor ykkar sófariddarana á að sitja heima við sveitta tölvuna og úrbræddann símann og hvor ykkar fær að gleðja konuna.
Haffi
17.09.2007 at 21:48 #596638Það væri vel hægt að finna einn góðann mann til að sjá um að pósta inn upplýsingum varðandi ferðina og þá sem í henni verða. Það er reyndar yfirleitt gert, sama hverjir ferðast, að maður tali nú ekki um helgarferðir sértsaklega. Svo verða nú menn með NMT síma, Addi formaður og ég líka og ekkert mál að fá að hringja heim af og til þegar samband næst. Hvað jepplinga áhrærir þá er það ekki tekið í mál að taka með bíla í vetrarferðir sem ekki hafa millikassa og lágt drif. Enga jepplinga takk. Svo er bara að skrá sig því fleyri bílar því betri og þá þarf ég ekki að draga alla sem festa sig.
Haffi
17.09.2007 at 20:13 #597362hvar er þessi Girndavík?
12.09.2007 at 19:55 #596334Sælir. Fann gott pakningarlím á Esso í Borgarnesi. Það heitir "Permatex high-temp, red RTV silicone gasket maker" og er í rauðri túpu. Þolir 650° F hita.
Haffi.
09.09.2007 at 22:09 #596328ætla mér að nota það til að þétta af lokin sem koma utan á nafið, til að það komist ekki vatn inn á liðinn og allt þetta drasl. Spurði eftir þessu á Select og þar var ekkert til. Bara bónvörur og drasl. Svo fór ég á Esso við Vesturlandsveg og þeir sögðust ekki eiga það til heldur. Bentu mér á að þetta væri til í gömlu bílanaust og öðrum N1 búðum.
Haffi.
09.09.2007 at 13:36 #596322Það er skrítið nafn á lími. Bara alveg það sama og á Shell sjoppuni við Vesturlandsveg. Kannski maður athugi það við tækifæri. Takk fyrir.
Haffi.
-
AuthorReplies