Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
15.12.2005 at 00:09 #531120
Drengir mínir. Voru ekki margir orðnir þreyttir á því þegar Moggi lét öllum illum látum og talið var að svona rifrildi og hótanir á spjallinu væri fráhrindandi og gæfu ranga ýmind af klúbbnum, nóg er nú um illindi í garð okkar jeppakallanna. Væri því ekki ráð að finna einhverja leið til að takmarka aðgang að vefnum nema þegar að allar persónu upplýsingar kæmu fram og hægt er að fylgjast með öllum sem á vefinn koma. sjáiði bara hversu margir eru búnir að skoða þennan þráð, rúmlega 20.000 sinnum.
Haffi H-1811.
PS: Ég skráði mig í klúbbinn í haust Hvar er gíróseðillinn og skírteinið mitt? Ofsi, þú hlýtur að geta gert eitthvað í þeim málum fyrir mig. Takk fyrir.
14.12.2005 at 21:32 #535844Biðst afsökunar á fljótfærninni, var að heiman og var ekki búinn að lesa nýjustu innskrif í þræðinum um "stolna Patrolinn". Hins vegar held ég að það sé ansi erfitt fyrir menn að stela þessum bíl sem ég nefni- eða úr honum, hvað þá vélinni.
Það er bara að fara yfir alla sem eru innskráðir en eru ekki félagar og henda þeim út ef þeir gefa ekki upp heimilisfang eða/og síma.Haffi H-1811
14.12.2005 at 19:08 #535832Ég veit um svona 6,5 GM vél handa þér valur. Hún er ekin um 40000,klm. Hringdu í Þennan mann og hann segir þér allt um málið: Gunnar Örn GSM: 863-6745
05.12.2005 at 01:50 #196786Góða „kvöldið“ allir saman. Var að spá og spegúlera: Var uppá Langjökli áðan (sunnudag) í góðra manna hópi en var sá eini með VHF þannig ég var bara með hana stillta á skann, bara til að hlusta að gamni mínu. En það eina sem ég náði var skruðningar og vesen þegar menn voru að lykla og tala saman. Hún hefur virkað vel hingað til og ekkert má, fyrir utan þetta. Getur verið að ég þurfi að láta stilla/klippa loftnetið, sem er á toppi bílsins, í samræmi við sendistirk stöðvarinnar. (einhversaðar var ég allavegana búinn að lesa um að láta breyta lengdinni til að fá best útur henni)
Hvað dettur mönnum svona helst í hug að orsaki þetta?
Þetta er Icom stöð sem var keypt ný í vor.
04.12.2005 at 20:51 #534914Elías, varstu búinn að kíkja á partasölur? Kannski er þetta til þar.
Haffi H-1811
04.12.2005 at 20:39 #534912Ég er nokkurnveginn sammála Ofsa með það að þetta eigi alveg heima hér á spjallinu, Þó þetta sé ekki jeppi sem um ræðir, og við getum kallað til aðstoðar og fengið skoðanir hjá öðrum félögum okkar hér. En ég er ekki alveg sammála Eik með það að klúbburinn eigi að gæta hagsmuna félagsmanna, heldur starfi þeirra og því sem tengist meðal annars jeppamennsku og útivist. (þess vegna var 4×4 stofnaður á sínum tíma).
Ég er líka á því að menn eigi að birta það sem birtingarhæft er ef það kemur upp um lélega viðskiftahætti eða léleg vinnubrögð;- til dæmis hjá breytingarverkstæði sem vandar ekki til verka og skellir svo skollaeyrum við. Þá geta hættulegir bílar verið í umferð og valdið (hugsanlega) hættu. Ég lenti nefninlega í því að ákveðinn maður sem rekur ákveðið fyrirtæki ætlaði að hafa við mig viðskifti en lét aldrei sjá sig og kostaði það mig einhverja aura. Það væri gott að fá nokkrar sögur og bera þær saman, og geta því hafnað viðsiftum við hina og þessa hrotta.
P.S. Þessi pistill er skrifaður af ábyrgð undirritaðs:Hafþór Atli. H-1811
03.12.2005 at 19:56 #534606Ég er f. norðan og bíð eftir ykkur við Baulu. En ég er svo grænn, á hvaða vefsíðu getur maður séð hvernig veðrið er og mun verða.
03.12.2005 at 16:34 #534600Að fara upp Húsafells meginn hljómar vel fyrir mér. Hvaða stráka ertu svo að meina? Kobba og Stefán Grétars, sem eru víst bestu vinir.
Hringdu bara í mig Þröstur seinna í kvöld þegar þú verður kominn í samband við fleyri bíla.
Kannski fer ég ekki langt á mínum en fæ þá bara að prófa þinnKveðja. Haffi H-1811
02.12.2005 at 20:46 #534596Ég er til í að koma með ef færið verður ekki of þungt, ef þið nennið að gefa mínum 35" bíl þolinmæði það er að segja. Hvaðan eru menn að hugsa um að fara upp á hann (jökulinn)
Haffi 848-4807
27.11.2005 at 16:40 #534002Mér skilst að það fari illa með framdrifið að draga bíla aftur á bak. Hvenær er von á mönnunum heim í siðmenninguna aftur?
Haffi H-1811
27.11.2005 at 00:22 #534090Mér finnst Captian vera bölvað sull og gjörsamlega ódrekkandi. Drekktu frekar viskí eins og alvöru menn gera.
Hvernig væri, ef það á að fara að uppfæra myndaalbúmið, að láta þar svona sjálfvirkann flettara/ skygnisýningu. Svona eins og Gemlingjarnir eru með á sinni síðu. Er orðinn þreyttur á því að þurfa að skrolla niður og velja næstu mynd í hvert skifti þegar maður er að skoða sig um í þessu annars fátæka albúmi.
20.11.2005 at 20:28 #533170Nei Andri minn, ég er ekki að rugla í þér, bara aðeins að stríða þér. En ég varð ansi ruglaður af að lesa hvað þú skrifaðir um eitthvað sem var læst (?) og hæstu hlutföllin eru samt með minnstu tölunum.
Bíllinn er beinskiftur og á 35" dekkjum. árgerð 1999 og með super celect kassa. Fer í 2100 snm í 90. Var í hlutlausum og afturdrifi þegar ég tjakkaði hann upp og merkti stað á skafti og snéri dekkinu hring og taldi 2.25 hringi á skaftinu. Reyndar þegar ég set driflæsinguna á þá blikkar ljósið í mælaborðinu þó að læsingin virki. Það gefur mér hugmynd um að átt hafi verið við drifið (skift um hlutföll) eða þetta ljósasistem sé bara með rugl.
Hef oft heyrt að þessir bílar eftir 98 séu
spurningarmerki, þess vegna gerði ég þetta til að hafa það á hreinu.
En þar sem þessi þráður er kominn út fyrir uppruna sinn þá er best að skjóta inn einu sem tengist því. Þar sem Stebbi er að tala um álhúðað púst, þá finnst mér endilega að ég hafi fengið púst úr áli undir fólksbíl sem ég átti eitt sinn. Getur verið að það sé rétt hjá mér að ál sé notað í púst eða er ég að rugla.Ruglkveðja Haffi H-1811
20.11.2005 at 19:29 #533164Allar hurðirnar í skúrnum sem ég gerði þetta í voru læstar. Já ég er viss um að mismunadrifið var að rugla eitthvað í mér. Hefur látið svona áður, þarf reyndar ekkert að setja í lága drifið þar sem drifið sér um að breyta um hlutföll af sjálfu sér:)
Haffi H-1811
20.11.2005 at 17:36 #533160Var nú bara að benda manninum á þetta þar sem þetta passar beint í sýjuhúsið á bílnum, en mér skilst að K&N sýjur þurfi smíðavinnu í kringum sig við ísetningu.
Svo held ég að ég hafi verið að ljúga að ykkur með hlutföllin í bílnum mínum. Tjakkaði hann upp að aftan og sneri hjólinu einn hring á móti 2,1/4 hring drifskafts. Hvaða hlutföll eru þá í bílnum. Getur einhver svarað því?
20.11.2005 at 14:39 #533154Heyrðu flosi. Farðu í ÁG-Mótorsport við Klettháls (bak við bílasöluna) og keyptu þér opnari Green kraftsíu í bílinn hjá þér. Gerði þetta við minn 2.5 Pajero og hann var allt annar eftir. Ég er á 35" og með orginal 5,285 hlutföll.
14.11.2005 at 01:05 #532298Það kom allt tvisvar. Þetta tölvusístem er eitthvað að stríða mér!!
14.11.2005 at 01:04 #532296Ef þú setur sama rör að framan og það sem er að aftan mun þá ekki verða ansi erfitt fyrir þig að beygja? Nei en án gríns þá held ég að þetta verði þá bara sami bíll og F-250 og F 350 nema þá með bensíndraug og minni drifi að aftan.
13.11.2005 at 02:25 #532216Þýðið það að ég kemst lengra á mínum en ég hef getað hingað til ef ég -"lími/skrifa/smíða"- á hann
-"merki/orð/stafi"- sem mynda eftirfarandi: JEEP?Haffi H-1811
06.11.2005 at 19:51 #531514Já, þetta var svo einföld lausn að mér datt hún bara ekki í hug. takk fyrir Hjalti.
Afsakið ég setti þetta víst inn í "Ferðir"
Haffi H-1811
06.11.2005 at 18:53 #196591Sælir allir saman. Veit einhver ykkar hvar er hægt að fá festingar af einhverjum toga til að nota á toppgrind; eins og til dæmis að festa skóflur og svoleiðis. Einnig get ég líka smíðað þetta ef menn eru með hugmyndir í kollinum. Ég nenni ekki að vera með spotta sem þarf að binda og losa í hvert einsasta skifti.
Takk fyrir. Haffi H-1811,- sá sem kemst ekki í nýliðaferðina.
-
AuthorReplies