Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
04.01.2006 at 23:30 #537942
að láta stela sér svona. Taktu bara mynd af henni og settu hana hér inná mynda albúmið. Einnig geturðu reynt að auglýsa eftir stolinni kerru í Fréttablaðrinu.
Eitt er víst, hér inná færð stuðning góða manna ef einhverju er stolið frá þér.Haffi. H-1811
04.01.2006 at 21:26 #537820Sælir. Heyrðu Magnum. Getur verið að önnur tegund þessara kastara sem þú minnist á hafi heitið Hella FF-7 eða eitthvað álíka og verið par vinnukastara sem kosta eitthvað í kringum 7000 kr? Mér var bent á (að mig minnir) svona kastara þegar ég var að kaupa mér ökukastara í Bílanaust, á bílinn minn í fyrra. Þessum kösturum var auðveldlega hægt að snúa til hliðar þannig að tvennir kastarar eru, að mínu mati, alveg nóg T.D. aftan á bílinn. Þeir voru heldur ekki svo fyrirferðarmiklir.
Ljósakveðjur Haffi H-1811
02.01.2006 at 21:53 #537722Var einmitt að hugsa um Það áðan hvernig það yrði í náinni framtíðinni þegar NMT leggst niður. Ég er reyndar ekki með NMT- hef ekki séð ástæðu til að fá mér svoleiðis þar sem það var á leiðinni út.
Haffi H-1811
01.01.2006 at 21:44 #537720Hringdu í Partaland í Stórhöfða18, síminn er 567-4100. Minnir að maðurinn með þetta heiti Þorbjörn, hann er aðallega með Pajero.
29.12.2005 at 21:47 #537444Ætla einhverjir að fara upp frá Húsafelli á morgun?
Haffi H-1811
29.12.2005 at 20:06 #537438Gaman væri að fara í smá jólanýársskreppitúr til að kveðja gamla árið.
Hvaðan ætla menn að fara og hversu langt/lengi á að fara? Verður öruglega kallt og hart á jökklinum.Haffi H-1811
29.12.2005 at 17:02 #537392Mun þetta system passa við þessi GPS tæki sem koma (að ég held) öll frá Bandaríkjunum? Mun eittvað þurfa að endurstilla GPS-tækin eða ganga þau bara á hvaða tungl sem er eða þurfa menn sem ætla að nota þetta að kaupa sér ný tæki? Hvernig mun þetta kerfi aðgreyna sig frá hinum kerfunum- munu þau semsagt ekkert rugla saman merkjasendingum (eða hvað það nú kallast).
Einn vitlaus og forvitinn
Haffi H-1811
27.12.2005 at 22:57 #537250Ertu alveg brjálaður maður???!!!! Ef einhver hefði verið að veifa myndavél þarna þá hefði komist upp um lyfjatöku kappans, einmitt þá sem við höfum verið að verja svo harkalega.
Ég kaus karlinn á Rás 2 áðan. Hann á það skilið.Haffi H-1811
27.12.2005 at 14:01 #537144Sæll Ingólfur. Til að byrja á réttum enda þá þarftu að vita að maður slær ekki inn Track-ið, heldur er þetta línan sem tækið gerir miðað við þá leið sem þú hefur farið. Línuna er svo hægt að vista í tækinu og nota seinna með því að gefa henni nafn en tækið tekur 15 svona Track-línur í minnið. Þessi Track- lína er gerð úr púnktum sem er hægt að stilla (allavegana í Garmin að ég veit) hversu oft tækið tekur niður punkta- hversu mikið bil er á milli þeirra- því meira bíl: því meiri vegalengd er hægt að taka. Þetta tæki á að taka 10.000 púnkta og geyma Þá í minninu (og úr þeim gerirðu svo vistaða Track-línu) Hins vegar er einnig hægt að gera svo kallaða Routu (langferðarbíl) sem er leið sem þú sjálfur slærð inní tækið en Þá þarf maður að vera kunnugur í siglingafræði og kunna á lengdar og breiddargráður. Ef maður ætlað að slá inn Routu þá árf maður að finna sér kunna punkta af leiðinni sem á að fara í tækið og svo tekur tíma að slá þetta inn, nema þó að maður hafi forrit í tölvunni og kapal til að tengja á milli. En eitt er alveg víst. Þó að þú farir til Rikka í R. Sigmundsson og fáir hjá honum diskinn, þá er það samt alltaf þannig að þú lærir mest með því að fikta þig áfram og leika þér eins og óður maður. Einnig skaðar ekki að fá hjálp hjá reyndari mönnum.
Með von um að þú villist ekki.
Haffi H-1811
26.12.2005 at 02:28 #537012var bensínstöð á leiðinni á pólnum? Eru menn með einhverjar myndir af kappanum? Flott afrek hjá honum.
Haffi H-1811
26.12.2005 at 02:23 #537026Það er þannig að það er til hellingur af þessum bílum svipað breyttur og þessi er ekkert öðruvísi. Þannig er það nú bara. Ætla samt ekki að vera með leiðindi eða særa neinn. Hvernig tannstönglar eru þetta annars sem eru undir honum?
Haffi H-1811
24.12.2005 at 19:17 #536884Gleðilega hátíð og gott og farsælt komandi aldrifs og ferðaár.
Takk fyrir rifrildin og góðu ráðin á hverfandi ári.Hafþór Atli og "Millikassinn" (nafnið á bílnum :o)
19.12.2005 at 19:53 #536624Hvað varstu að reyna að borga, hverjum sendirðu e-mail og hvaða skrifstofa var þetta??
haffi H-1811
18.12.2005 at 22:24 #536352Hér er einn gamall og góður. Þessi er búinn að vera björgunar-bíll lengi og er í ansi góðu standi, enda geymdur inni.
[img:3mxl5z9x]http://www.f4x4.is/new/files/photo/?file=files/photoalbums/3007/27098.jpg[/img:3mxl5z9x]
18.12.2005 at 20:30 #536546Það er stórskrítið að hraðamunurinn sé svona "rokkandi" milli stærðar og notendaflokka. Fólksbílar og jeppar upp að ákveðinni þyngd mega aka á 90, á meðan vörubílar/trailerar og USA pickupar mega (bara) aka á 80. Samt má hvaða rúta sem er aka á 90, þar sem hún fylgir fólksbílnum í allri reglugerð. Þessir pickupar eru með öfluga vél og gríðarlegar bremsur sem gerir þá öruggari og betri en nökkurn Lancruiser sem má aka á 90. Það yrði því eins og að lemja hausnum við steininn (sem bæri öruglaga meiri árangur hver sem hann væri) að fá ráðamenn þessarar þjóðar til að, þó ekki væri nema til að hugsa um að breyta þessum lögum þannig að vit yrði í. Er ekki búið að opna augu þeirra á jeppamenningunni með því að taka þá með á fjöll?!!!
Varðandi gáfnafar og ökuhæfni landanns þá finnst mér það yfirleitt til algjörrar og áberandi skammar. Var einu sinni að keyra á þjóðveginum á eftir Patrol og fórum við upp brekku þar sem ég nálgaðist hann því ökumaðurinn hélt ekki við með gjöfinni og fór sífelt hægar. Leiddist mér silanganurinn og ákvað að taka framúr á mínum 2000 kílóa, 100 hestafla jeppa. Blessaður maðurinn hægði þá ekki á sér til að auðvelda mér verkið, né gaf hann mér merki um rútuna sem koma á móti honum. Ég rétt náði að bremsa niður til að forða mér frá meiriháttar árekstri, Það var öryggi fjölskyldunnar sem Patrol pabbinn (hann var með konu og krakka í bílnum) var örugglega að hugsa um þegar hann ákvað að keyra 30 klm undir löglegum hraða. Maður óskar þess stundum að hafa símanúmer allra asnanna sem gera fíflaskap í umferð Íslands.Haffi H-1811
17.12.2005 at 00:55 #531182Þetta hefði getað endað illa ef menn hefðu tekið lögin í eigin hendur og farið í einhverskonar "skrímslaveiðar". Það væri frekar ráð að heimta það að maðurinn yrði dæmdur því sem hæfði afbrotum hans.
Hvað segja menn um að losna við smá gremju með að skreppa á fjöll? Hvernig er þetta með
LITLU deildina Klaki, fer hún ekki að huga sér til JÓLA-hreifings?Haffi H-1811
17.12.2005 at 00:48 #535136Sælir drengir. Segið mér, er mikið mál að koma svona boost mæli í bílinn? Gæti einhver verið svo góður að gefa mér díteil upplýsingar hvernig þetta er sett í. Er með turbo dísel vél.
Einnig væri í lagi ef einhver sem kann þetta mundi bara hringja í mig og tala mig í gegnum þetta.GSM:848-4807
Haffi.
15.12.2005 at 16:53 #536044að passa í loftbarka á nokkrum bíl,svona slétt og órúllað? Einnig virðist þetta vera varasamt þar sem að þarna eru hnoð sem gætu losnað og blöðin sogast inn í túrbínu með tilheyrandi. Kannski er Gummij að fíflast í okkur, hvað veit ég.
En þessi þráður er kominn nógu langt út fyrir sitt upphafs svið þannig að reynið að halda ykkur við það.Haffi H-1811
15.12.2005 at 00:42 #531134Ofsi- Ég skal gefa þér viskí ef þú kemur norður. Það er miklu betra.
Annars gæti maður haldið, samkvæmt auglýsingum að Ágúst Þór á Krílinu hafi stolið eigin bíl og sé að selja úr honum gramsið. Nei nei, bara djók.
15.12.2005 at 00:34 #531130Takk fyrir það Ofsi. Nú er OFSAlega gaman hjá mér. Ég man nefninlega ekki betur en ég hafi sent Elíasi (þeim hér að ofan) email í sumar um kaup á svona Hiclone hólkum í bílinn minn, en ekkert svar. Ætla því að biðja þig um að hafa við mig samband ef þú vildir vera svo góður.
Svo biðst ég afsökunar á því að fara út fyrir efni þráðarins, sérstaklega þegar verið er að ræða jafn leiðinleg mál og bílþjófnað. Ég skal vera góður!!!Haffi- H1811
-
AuthorReplies