Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
25.01.2006 at 17:01 #540208
Ég skal þyggja af þér kútana Guðjón, en hvernig er það eru kranarnir hafðir ennþá á svona kútum og tengt við þá, eða er þeim skift út? Hringdu bara í mig: Hafþór GSM: 848-4807
Ég held að það sé of mikil fyrirhöfn að vera með áfyllta svona kúta og þurfa alltaf að láta fylla á þá þegar tæmast.
Haffi H-1811
24.01.2006 at 21:00 #540076Ég er líka orðinn áfjáður í að fá svar við minni spurningu, þessari sem er næst efst á þræðinum!!!
Haffi litli
24.01.2006 at 00:19 #540064Já já, einmitt. Var reyndar að spá í Litludeildar-blótinu sem er auglýst helgina (11 febrúar) eftir blótið í Setrinu en auglýsingin segir það vera sömu helgi og Seturs-blótið. Hvort á það að vera?
Haffi litli H-1811
21.01.2006 at 15:00 #539786Kannski er millikassinn orðinn skakkur eftir langtíma þvingun, gírkassapúðarnir ónýtir eða lega/legur farnar í hakk. Gæti verið ástæða þess að erfiðara er að taka hann úr framdrifinu.
Haffi H-1811
21.01.2006 at 00:09 #197118Sælir og sælar. Talað er um það í dagatalinu hér við hliðina að blóta eigi þorra samkvæmt góðum þjóðlegum sið í Setrinu helgina 4-5 febrúar, en stendur svo varðandi blót Litlu deildar: „Þorrablót í Árbúðum. Í umsjón Litlu nefndar. HALDIÐ ÞESSA SÖMU HELGI OG BLÓTIÐ Í SETRINU. Hugsað fyrir fólk á minna breyttum jeppum.“
Var semsagt að velta fyrir mér hvort þetta væri vitlaust skrifað eða vitlaust hugsað; að litlu deildar blótið ætti að vera sömu helgi og það í Setrinu eða þessa umtöluðu sem er í þessu tilviki 11 febrúar.
Einnig langar mig að vita hvað þaður þarf að taka með sér af auka mat og svoleðis. Verður ekki bara eitt hlaðborð, og verður boðið uppá öl með eða þarf maður að drösla því með sér líka?Kveðja. Haffi H-1811
16.01.2006 at 01:18 #539134Komnir heilir níu póstar, tíu með þessum, og enginn kominn út fyrir uppheflegt umræðuefni- þetta er örugglega nýtt met!!!
En varðandi sýjuna. Ég fór í fyrra vor í ÁG-Mótorsport og verslaði mér Grenn sýju sem passaði beint í orginal sýjuhúsið á Pajeronum hjá mér. Setti hana í á staðnum og fann greynilegan mun á "andadrætti" vélarinnar: það var eins og túrbínan og blásarinn ættu auðveldara um að snúast vegna minni mótstöðu. Enda ekki skrítið því pappasýjan sem ég skifti út var að hálfu hulin plasti sem var með beiniblöðum til að þyrla til loftinu (svipað og Hiclone) og var það bara til að gera illt verra. Ég finn náttúrulega engan mun lengur enda engann samanburð að hafa. Hestaflatalan eða vinnslan jókst sama sem ekki neitt enda er þetta enginn töfralausn í þeim efnum.
Svo keypti ég mér bara hreinsisett og svæ draslið reglulega, og það safnast sko ryk í sýjuna skal ég segja ykkur.Takk fyrir kaffið og góðar stundir.
Haffi H-1811
14.01.2006 at 01:32 #538550… og ég endurtek aftur:
Á hvaða VHF-rás ætla menn að tala saman á í fyrramálið?Haffi
13.01.2006 at 23:19 #538538Það er ekki leiðum að líkjast. Að þurfa að skemma fyrir litlu köllunum og konunum með því að "vilja fá að koma með á VEL ÚTBÚNUM bílum" til að finna til máttar síns og meginn innan um lítilmagnann.
Ég er farinn að hallast a því að fara bara með. Ætlaði reyndar að fara suður og versla mér loftdælu, en hún getur vel beðið fram að næsta laugardag.Þar sem ég verð að vakna fyrr því ég keyri að norðan þá máttu hringja í mig Klaki og vera í sambandi við mig í fyrramálið, bara svona til eð ég missi ekki af ykkur. Á hvaða VHF rás ætla menn að ver á?
Haffi. GSM: 848-4807
13.01.2006 at 23:11 #539004Wild Spirit DTX. Mæli sterklega með þeim, eru notuð sem sumardekk en grípa þónokkuð vel í snjó og skána bara við microskurð. Veit reyndar ekki hvar þau fást þar sem fylgdu bílnum á sínum tíma. BFG eru líka fín, en þau hafa ekkert munstur/kubba á kanntinum og grípa því illa í kröppum beygjum og hliðarhalla.
Haffi H-1811
13.01.2006 at 19:07 #538530Kom víst tvisvar. Það getur komið fyrir.
13.01.2006 at 19:07 #538528Hvað segiði félagar, á ekki að vera leiðinlegt veður á morgun?
Haffi H-1811
08.01.2006 at 21:20 #538250Góður!!!
Haffi
08.01.2006 at 21:16 #538246Farðu aðeins ofar í dagatalið og smelltu á blálitaðann 9 janúar. Þá færðu svarið.
Kv. Haffi
07.01.2006 at 23:52 #538138En það á ekki eftir að verða gaman hjá ykkur á morgun. Ég var að komast að því að ég verð að vinna í fyrramálið. Þið reynið nú samt að hafa það gott eftir fremsta megni… er það ekki??
Haffi H-1811
07.01.2006 at 19:15 #538028Sælir snillingar. Var að finna gamla mynd úr bílablaði Moggans (ekki sá sem við þekkjum hér af spjallinu) þar sem sýnd er mynd af nýjasta gripnum.
Er bara ekki klár á hvernig á að setja inn myndir á spjallið hér.Haffi H-1811
07.01.2006 at 18:27 #538126Ætli maður láti ekki sjá sig líka.
Haffi H-1811
06.01.2006 at 01:25 #537890Snöfli, 2,7l Bens vélin (sem er framleidd af ítölsku fyrirtæki, allavega í Cherokee) er fimm strokka og "grunar" mig að hún sé frekar eitthvað í kringum 156 hp@3800 og TOG 330NM @1400-2400- sem er ansi lágur snúningur. Hægt er að fá aflaukningu með kubb og fær maður þá: 187 hp og 390 NM í tog.
Einnig spyr ég. Hvernig er hægt að segja að svona smíðuð vél eða hinsegin smíðuð vél endist styttra en ella ef tekið er mikið afl útúr henni.(miðað við rúmtak) Það er ekkert hægt að ákveða hversu lengi vélarnar endast. Ekkert eru þriggja lítra vélarnar í Patrol að endast neina ferð á tunglið, og ekki er verið að taka meira úr þeim, ef maður miðað við rúmtak heldur en t.d. í Pajero3.2, Cruiser120 eða Trooper.PajeroTooog kveðjur. Haffi H-1811
05.01.2006 at 02:25 #537916Það er kraftur í diesel.
Haffi
05.01.2006 at 02:18 #537824Og var sölumaðurinn lítill naggur með gleraugu, yfirvaraskegg og jafnvel örfhentur.
Hvað á það að þíða að vera svona seint á fótum?Kv Haffi H-1811
05.01.2006 at 01:32 #537608Formverk.is
Haffi H-1811
-
AuthorReplies