Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
10.06.2006 at 01:39 #554296
Það er smurningin. Er ég bara einhver bullari í allra augum? Er þá enginn hérna sem að tekur mark á manni á þessum blessaða vef. Auðvitað læt ég sjá mig á morgun, en þú verður þá að lofa að breyða yfir Hummerinn.
Haffi.
10.06.2006 at 01:14 #554292Hvaða vit hefur ÞÚ annars á bílum??? Ég læt mig bara hverfa aftur ef þú ætlar að láta svona við mig endalaust. Hvar er annars bjórinn sem við ætluðum að drekka saman við tækifæri… eða jafnvel bara; hvar er tækifærið??
Haffi
10.06.2006 at 01:04 #554288Patrollan er nú eitthvað þyngri en Cruiserinn. Og þar að auki ert þú með 6 sílyndra bílinn, er það ekki annars?
Haffi
05.06.2006 at 21:56 #553932Prófaðu, Haraldur, að fá þér 2,5 tommu púst alveg frá túrbínu og afturúr ásamt opnum hljóðkkút einhverstaðar á miðri leið. Alveg ótrlúlegt hvaða mun maður finnur fyrir og eftir á túrbo dísel vél.
Kv. Haffi og Toppurinn
14.05.2006 at 04:49 #552492Patrolmenn djamma og drekka að sjálfsögðu lengst til að drekkja sorgum sínum yfir að eiga meingallaða bíla, og til þess þarf marga bjóra, langt fram eftir nóttu.
Haffi.
03.04.2006 at 01:32 #548066Með von um að ég sé ekki að fara með vitleysu Einar Elí og með fullri virðingu þá held ég að Þórir Tuddi sé ekki að tala um/við þig; heldur hann
Einar-eik sem á nokkur viskuskrif hér og þar sem virðast leggjast eitthvað illa í hann þóri. En sjálfur legg ég það nú í vana minn að láta ekki á neinu bera ef að á vegi mínum verða leiðinlegir menn og bíð með að dæma þá viðtalshæfa þangað til ég hef spjallað við þá að ráði og komist að því hvaða mann/mannleysu þeir hafa að bjóða. Ekki tel ég Þóri einn af þessum mönnum sem maður ætti eitthvað að eiga tal við, enda afspyrnu illa upp alinn og leiðinlegur maður. Og þó hef ég ALLDREI hitt mann garminn. Hvað olíuna í Hrauneyjum varðar þá er ansi skrítið að einn bíll skuli damla sig dauðann á henni, á meðan hin kennir sér engin mein. Það er þá frekar bíllinn eða sýjan, frekar en eitthvað annað. Ekki er þó endanlega hægt að útiloka seljandann þar sem engum frá olíufélugunum er hreinlega treystandi.Haffi H-1811
01.04.2006 at 03:22 #548158Ekki veit ég hvað er að hrjá stefnuna hjá þér Einar, en fer maður ekki að sjá fleyri myndir af gripnum í breytingarferlinu?
Haffi.
27.03.2006 at 00:24 #547518Já, já. Verið meiri hálvitarnir og sýnið stofnanda þráðarinns leiðindi og dónaskap með því að gera lítið úr skoðunum hans og rakka þetta bara niður í svaðið. Ekki er maðurinn nú að fara fram á neitt nema að menn taki sér smá tíma í að lesa yfir textam sem þeir setja hér inn og laga það sem þarf. Hellst er um að kvarta við þá einstalinga sem sleppa því að láta einn og einn punkt í skrif sín þannig að maður villist við að lesa eitt hnoðstykki og fer að svima.
Hvernig væri ef þið tækuð tillitsleysið og hrokann sem þið sýnið hér með á fjöll, og mynduð virða að vettugi þá ferðafélaga sem festa sig og álíka og keyrðuð bara áfram eins og þið séuð einir í heiminum.Haffi H-1811
26.03.2006 at 00:14 #547394Einar. Hættu þessu helvítis rugli og farðu að sofa. Ekki fyrir mína parta takk.
Haffi H-1811
25.03.2006 at 21:49 #547346Ég vil líka þakka fyrir alveg frábæran dag á jökli, og sérstaklega þeim sem lánuðu mér pundmæli þar sem minn varð óvart eftir heima. Veðrið var frábært og engin armur brotnaði.
Kv. Haffi og Toppurinn.
23.03.2006 at 22:52 #547276Sæll Ragnar. Ég er með góða lausn á þessu hjá þér. Ef þú ert ekki að nota öftustu sætin undir farþega þá er um að gera að losa annað sætið (eða bara bæði) og nota festinguna fyrir sætið ofaná hjólaskálinni til að festa dæluna við. Þarf að vísu að smíða einhverskonar millistykki til að koma þessu þarna fyrir. En mér finnst þetta sniðugur staður þar sem ekki fer mikið fyrir dælunni þarna og betra er að hafa dæluna inni en úti, og ef ekki er nú talað um að losna við öftustu stólana bæði til að fá meira pláss og að þá er maður ekki að burðast með óþarfa þyngd á drasli sem maður nota aldrei.
Takk fyrir. Haffi.
23.03.2006 at 19:58 #546578Ætli ég og Toppurinn látum ekki sjá okkur á laugardaginn. Þarf líka hvoer eð er að prufu keyra cb-stöðina sem ég var að setja í bílinn. Sjáumst bara.
Kv. Haffi og Toppurinn.
20.03.2006 at 00:07 #546932…HaHaHa!!!!!!!
Góður Kiddi. In Your Face Þórir.Kv. Haffi.
Já, og þessi er ansi "merkileg"
[img:3c1gr1pc]http://www.f4x4.is/new/files/photo/?file=files/photoalbums/4201/28331.jpg[/img:3c1gr1pc]Sjáumst um næstu helgi Kiddi.
17.03.2006 at 18:28 #546696Veistu fyrir víst Eik hversu oft eða mikið íslensku þyrlurnar voru notaðar á síðasta ári? Ég tel það nú bara gott mál ef það reynir sem minnst á þessi tæki, og eina björgunin sem ætti að vera í höndum þeirra er þegar sækja þarf mann útá sjó. Annað má mæta afgnangi því það er til nóg af flugvélum til að sjá um sjúkraflug og þessháttar. En svo er það alveg ljóst, samkvæmt frétt sem ég las um daginn, að þegar þyrlurnar eru teknar inn í "tékk" þá er nánast hver einasta frumeind skoðuð og svo er hún skoðuð aftur til að menn séu vissir um að allt sé í lagi í vélunum.
En það er alveg ljóst að það þarf fleyri svona tæki hér á klakann, hvort sem að herinn fer eða verður hér um kjurt.Takk fyrir. Haffi.
11.03.2006 at 19:13 #546192Alveg er ég sammála þér Snorri og skora ég á þann/þá sem var svona ósvífinn að hegða sér svona að sýna sig og biðja afsökunar, eða allavegana sjá sóma sinn í því að gera svona ekki framar og á það nú bara við um alla sem jafnvel svo mikið sem hugsa sér að koma svona fram.
Kv. Haffi H-1811
11.03.2006 at 11:00 #546138Þetta er víst ekki stór mynd, enda er ég enginn tölvuséní. Það er víst betra að sjá hvert örin er að benda ef að myndin er skoðuð í myndaalbúmi mínu.
Klaufafveðja. Haffi H-1811
11.03.2006 at 10:57 #546136Já, manni leiðist á laugardögum þegar ekkert er að gera. Er hann að verða klár hjá þér slyddarinn Jóhannes?
[img:3hh00vkw]http://www.f4x4.is/new/files/thumbnails/?file=files/photoalbums/4172/29653.jpg&width=100&height=100[/img:3hh00vkw]
Er örin að benda á réttan stað á fjallinu. Ef svo er þá virðist hann vera að stefna á toppinn, eins og þeir bestu gera.
Kv. Haffi og TOPPURINN.
04.03.2006 at 21:32 #545622Hún amma mín hún heitir Magga
ekur um á rosa kagga
Eitthvað um og yfir tvöhundruðogfimmtíu hestöfl
þegar snjóar þá þeysir sú gamla á fjöll.Takk fyrir hrósið Kalli, en þetta er ekki góð visa. Ef ég fæ tíma þá geta kannski komið betri frá mér. Kannski kem ég með eina eða fleyri góðar næst þegar við förum saman á fjöll og drekkum bjórinn sem ég var búinn að lofa þér.
Vísu hvað einn vitleysingur
vissi ei hvað hann orti.
Lítill ljótur tippalingur
mikla löngun skorti.Takk fyrir mig.
Haffi. H-1811
04.03.2006 at 21:19 #545614Þið kaldir senduð konur að
keyra á fjöll og skemma það
sem hörðum höndum lömduð frá
og til og suðuð hér og þarBíræfnar tóku bjór og grill
blessaða tölvuna einnig til
að villast ekki því enginn vill
vera einn í blindabilHald er stutt í skyldinginn
við að skúra jeppann sinn
stemma ljós við myrkrið úti
til að finnist fjallaskútiP.S Haða vald hefur þú til að reka menn úr klúbbnúm Kalli minn? Égbaraspyr!!!
Kv Haffi og Toppurinn.
26.02.2006 at 00:14 #544502Fljótt skipast veður í lofti. þetta er hrikalegur atburður og sendi ég samúðarkveðjur til aðstandenda.
Kv. Haffi H-1811
-
AuthorReplies